Skráningarskylda nær til 47 atvinnugreina sem koma fram í viðauka við reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunavarnir. Rekstraraðili ber ábyrgð á því að skrá skráningarskylda starfsemi og að skráðar upplýsingar um hana séu réttar. Óheimilt er að hefja skráningarskyldan atvinnurekstur fyrr en Skráning hefur farið fram Skráningargjald hefur verið greitt Rekstraraðili hefur fengið senda staðfestingu á skráningu Rekstraraðili fær send skráningarskilyrði vegna rekstursins. Rekstraraðili fær, líkt og starfsleyfisskyld starfsemi, eftirlit frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Skráningarskyldur atvinnurekstur
- Almenningssalerni
- Bifreiða- og vélaverkstæði
- Bifreiðasprautun
- Bón- og bílaþvottastöð
- Brenna stærri en 100m3
- Dýragæsla
- Dýralæknastofa
- Dýrasnyrtistofa
- Dýraspítali
- Efnalaug
- Flugeldasýning
- Flutningur úrgangs
- Framköllun, t.d. á ljós-, röntgen- og kvikmyndum
- Framleiðsla á aukefnum og hjálparefnum fyrir matvælaiðnað
- Framleiðsla á áfengi, gosdrykkjum og vatni
- Framleiðsla á ilmvatni og snyrtivörum
- Framleiðsla á olíu og feiti
- Framleiðsla glers, önnur en í viðauka I
- Framleiðsla leirvara með brennslu, önnur en í viðauka I
- Framleiðsla plasts, önnur en í viðauka I
- Gæludýraverslun
- Hársnyrtistofa
- Heilsugæslustöð
- Heilsuræktarstöð
- Hestahald
- Hestaleiga og/eða reiðskóli
- Hundahótel
- Húðflúrstofa og stofa þar sem fram fer húðgötun, húðrof og fegrunarflúr
- Kaffivinnsla
- Kanínurækt
- Kartöfluvinnsla, önnur en í viðauka I
- Kírópraktor
- Kjötvinnsla, önnur en í viðauka I
- Lauksteikingarverksmiðja
- Leðurvinnsla, önnur en í viðauka I og II
- Meðhöndlun, blöndun og mölun á korni, önnur en í viðauka I
- Meindýravarnir
- Mjólkurvinnsla og ostagerð, önnur en í viðauka I
- Niðurrif bifreiða- og bílapartasala
- Niðurrif mannvirkja
- Nuddstofa
- Pappírsvöru- og pappakassaframleiðsla, önnur en í viðauka I
- Prentun, þar sem er notkun á mengandi efnum
- Ryðvarnarverkstæði
- Sjúkraþjálfun
- Smurstöð
- Sólbaðsstofa
- Starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau kerfi
- Starfsmannabúðir
- Starfsmannabústaður
- Steypueiningaverksmiðja
- Steypustöð
- Stofa þar sem gerðar eru aðgerðir, svo sem læknastofa og fótaaðgerðastofa
- Tannlæknastofa
- Trésmíðaverkstæði, önnur en í viðauka I
- Vefnaðar- og spunaverksmiðja
- Veitingastaðir
- Vinnsla á hrájárni eða stáli, önnur en í viðauka I
- Vinnsla fisks og annarra sjávarafurða, önnur en í viðauka I
- Vinnsla gúmmís
- Vinnsla málma, önnur en í viðauka I
