Heilbrigðisnefndarmenn:

Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Sandra Konráðsdóttir                                                                                                  

Dagskrá:

1 .     Breytingar á heilbrigðiseftirliti – Uppsögn framkvæmdastjóra. 1060
2.      Önnur mál 1061


 1.  Breytingar á heilbrigðiseftirliti – Uppsögn framkvæmdastjóra

Formaður gerði grein fyrir stöðu mála vegna þeirra lagabreytinga sem taka gildi 1. janúar 2027 og fela í sér grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Í framhaldi af fyrri ákvörðunum heilbrigðisnefndar um uppsagnir starfsfólks og undirbúning að lokum starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands í núverandi mynd er nauðsynlegt að taka afstöðu til starfsloka framkvæmdastjóra.

Heilbrigðisnefnd Austurlands telur óhjákvæmilegt, í ljósi þeirra lagabreytinga sem taka gildi 1. janúar 2027 og fyrirhugaðra breytinga á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands, að segja framkvæmdastjóra stofnunarinnar upp störfum.

Nefndin harmar að þessar breytingar leiði til uppsagnar framkvæmdastjóra, líkt og annars starfsfólks stofnunarinnar, en telur sig tilneydda til að grípa til þessara ráðstafana vegna þeirra grundvallarbreytinga sem verða á lögbundnu hlutverki og starfsemi heilbrigðiseftirlitsins.

Með vísan til 9. gr. samþykkta HAUST samþykkir heilbrigðisnefnd að segja framkvæmdastjóra upp störfum og felur formanni nefndarinnar ásamt varaformanni að annast uppsögnina fyrir hönd HAUST, í samræmi við gildandi ráðningarsamning, uppsagnarfrest og önnur viðeigandi ákvæði.

 Heilbrigðisnefnd Austurlands ítrekar að hún harmar þá óvissu sem starfsfólk hefur búið við vegna breytinganna og þær afleiðingar sem þær hafa haft í för með sér. Nefndin þakkar framkvæmdastjóra sérstaklega fyrir fagleg og góð störf í þágu Heilbrigðiseftirlits Austurlands og aðildarsveitarfélaga þess.

2.   Önnur mál

2.1   Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands

Verður haldinn sem fjarfundur þann 10. desember kl. 08:30

2.2   Aðalfundur byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands

Fer fram 12. nóvember nk. í fjarfundi.

Engin önnur mál.

 

Fundi slitið kl. 8:45.

Fundargerð ritaði Jónína Brynjólfsdóttir

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

pdfFUNDARGERÐ í PDF