Heilbrigðisnefndarmenn: 

Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Sandra Konráðsdóttir

Starfsmenn:

Lára Guðmundsdóttir

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi  1049
  2. Útgáfu starfsleyfa hafnað  1050 
  3. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi  1050 
  4. Skráningarskyldur atvinnurekstur 1051 
  5. Breytingar á heilbrigðiseftirliti - Rekstur 1052
  6. Breytingar á heilbrigðiseftirliti – Verkefni sveitarfélaga 1052
  7. Vinna milli funda 1053
  8. Önnur mál  1054

 

1. Bókuð útgefin starfsleyfi

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir

a)  Múlaþing, kt. 660220-1350. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir félagsheimilið Iðavelli. Leyfi útgefið 28.5.2026.

b)  Egilsstaðahúsið ehf., kt. 700198-2869. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Tjarnarbraut 1, Frú Nielsen. Leyfi útgefið 12.6.2026.

c)  Crispy Crunch ehf., kt. 641025-0540. Starfsleyfi fyrir matsöluvagni að Miðvangi 31. Leyfi útgefið 30.6.2026.

d)  East Events ehf., kt. 580526-0390. Starfsleyfi fyrir gististað að Grásteini 15,17 og 19. Leyfi útgefið 16.7.2026.

e)  Hótel Stuðlagil ehf., kt. 640221-0700. Breyting á starfsleyfi fyrir gististað, tjaldsvæði og vatnsveitu að Grund á Jökuldal. Leyfi útgefið 17.07.2026. 

f)  1001 nótt ehf., kt. 501213-0980. Starfsleyfi fyrir gististað, veitingastað og setlaugar að Álfási. Leyfi útgefið 7.8.2026.

g)  Múlaþing, kt. 660220-1350. Tímabundið starfsleyfi fyrir Ormsteiti. Leyfi útgefið 19.8.2026. 

701 Múlaþing – Fljótsdalshreppur

h)  Höllustaðir slf., kt. 630326-0950. Starfsleyfi fyrir gististað og vatnsveitu að Höllustöðum. Leyfi útgefið 1.6.2026.

710 Múlaþing - Seyðisfjörður

i)  NO PANIC ehf., kt. 591021-1090. Tímabundið starfsleyfi fyrir matsöluvagni/stýrishúsi að Lónsleiru 2. Leyfi útgefið 2.6.2026.

735 Fjarðabyggð - Eskifjörður

j)  Andrés J. Stefánsson, kt. 190373-3559. Tímabundið starfsleyfi fyrir markaðssölu á matvælum. Leyfi útgefið 8.6.2026.

750 Fjarðabyggð - Fáskrúðsfjörður

k) Hanna Kristín Hauksdóttir, kt. 060573-3529. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á matvælum á Frönskum dögum 2026. Leyfi útgefið 3.7.2026.

l)  Njáll SU-8 ehf., kt. 410604-2210. Starfsleyfi fyrir gististað Skólavegi 57. Leyfi útgefið 26.8.2026.

755 Fjarðabyggð - Stöðvarfjörður

m) Stöðfirska verzlunarfélagið, kt. 621025-0580. Starfsleyfi vegna sölu á á veitingum, þægindavöruverslun og gististað. Leyfi útgefið 10.7.2026.

765-766 Múlaþing – Djúpivogur

n)  Helena Leifsdóttir, 280264-4669. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Voglandi 2. Leyfi útgefið 23.7.2026.

o)  Búlandstindur ehf., 680999-2289. Starfsleyfi fyrir flutning og geymslu á aukaafurðum að Víkurlandi 6. Leyfi útgefið 11.8.2026.

780-781 Höfn

p)  Svartifoss ehf., kt. 670709-0190. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Hafnarbraut 2. Leyfi útgefið 3.6.2026.

q)  Svartifoss ehf., kt. 670709-0190. Starfsleyfi fyrir gististað að Hafnarbraut 2. Leyfi útgefið 3.6.2026.

r)  N1 ehf., kt. 411003-3370. Starfsleyfi fyrir matsöluvagn að Vesturbraut 1. Leyfi útgefið 8.6.2026.

s)  Sveitarfélagið Hornafjörður, 590169-4639. Starfsleyfi fyrir móttökustöð úrgangs (millilager)við Ægissíðu. Leyfið útgefið 26.6.2026.

t)  Jökla Dekk ehf., kt. 580602-2150. Starfsleyfi fyrir gististað að Myllulæk 10, 11 og 12. Leyfi útgefið 1.7.2026.

785 Öræfi

u) Adventure Hotels ehf., kt. 490317-0310. Starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Skaftafelli 3C. Leyfi útgefið 29.6.2026.

v) 785FHM ehf., kt. 710817-1460. Starfsleyfi fyrir matvælavinnslu að Stöðli Fagurhólsmýri. Leyfi útgefið 25.8.2026.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. 

 

2. Útgáfu starfsleyfa hafnað

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir

a)  Viator ehf., kt. 571002-4180. Umsókn um starfsleyfi fyrir gististað í Eyjólfsstaðaskógi, lóð 20. 

710 Múlaþing – Seyðisfjörður

b)  Landsverk ehf., kt. 590907-0730. Umsókn um starfsleyfi fyrir efnistöku í námu E-361 Stafdal. 

Heilbrigðisnefnd hafnar útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga 7/1998 eða reglugerða settra samkvæmt þeim sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sbr. 65. gr. laga nr. 7/1998. 

 

3. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

780 Höfn í Hornafirði

a)  Díma ehf., 660406-1150. Tóbakssöluleyfi að Álaugarvegi 9. Tóbakssöluleyfi útgefið 22.7.2026.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa. 

 

4.  Skráningarskyldur atvinnurekstur

700 Múlaþing – Egilsstöðum 

a)  Nornasetrið ehf., kt. 650325-0870. Tímabundin skráning fyrir húðflúri á Eiðum 17A. Skráning staðfest 4.6.2026.

b)  Go East ehf., kt. 560925-2120. Skráning fyrir bón og bílaþrif að Smiðjuseli 4. Skráning staðfest 30.6.2026.

c)  Andri Hrannar Magnússon., kt. 140403-3770. Skráning vegna niðurrifs mannvirkja að Koltröð 7. Staðfest 17.7.2026.

d)  Múlaþing, kt. 660220-1350. Skráning vegna almenningssalernis í Selskógi. Skráning staðfest 14.8.2026.

e)  Múlaþing, kt. 660220-1350. Skráning vegna íþróttahús Smiðjuseli 2. Skráning staðfest 26.8.2026. 

730 Fjarðabyggð - Reyðarfjörður

f)  Vegagerðin., kt. 680269-2899. Skráning vegna niðurrifs á sandgeymslu að Búðareyri 11. Skráning staðfest 26.8.2026. 

735 Fjarðabyggð - Eskifjörður

g) RH-Gröfur ehf., kt. 560597-2749. Skráning vegna niðurrifs á geymslu við Stóru Breiðuvík. Skráning staðfest 10.8.2026. 

740 Fjarðabyggð - Neskaupstað

h)  740 Sjúkraþjálfun slf., kt. 510526-0740. Skráning fyrir sjúkraþjálfun að Bakkavegi 5. Skráning staðfest 3.7.2026.

i)  Björgunarsveitin Geisli, kt. 550579-0499. Skráning vegna flugeldasýningu á varnargörðunum í Neskaupstað 2.8.2026. Skráning staðfest 7.7.2026. 

750 Fjarðabyggð - Fáskrúðsfirði

j) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Tímabundin skráning fyrir húðflúr í félagsheimilinu Skrúði. Skráning staðfest 5.6.2026.

k) Björgunarsveitin Geisli, kt. 471188-2559. Skráning vegna flugeldasýningu á frönskum dögum 17.7.2026. Skráning staðfest 7.7.2026.

 765 Múlaþing - Djúpivogur

l) Múlasveit ehf., kt. 620124-0600. Skráning vegna hestaleigu og reiðskóla að Múla 1a. Skráning staðfest 21.8.2026.

780-781 Höfn í Hornafirði

m) Tannlæknisstofa Daða ehf., kt. 480605-0120. Skráning fyrir tannlæknastofu að Vesturbraut 4. Skráning staðfest 4.6.2026.

n)  Birta Karlsdóttir, kt. 240897-2109. Skráninga fyrir hársnyrtistofu að Álaugarvegi 7. Skráning staðfest 10.6.2026.

o)  Náttúruverndarstofnun, kt. 700924-1570. Skráning fyrir brennu, sumarbrenna í Skaftafelli við varnargarða Morsár. Skráning staðfest 3.7.2026.

p) Náttúruverndarstofnun, kt. 700924-1570. Skráning fyrir brennu um verslunarmannahelgi í Skaftafelli við varnargarða Morsár. Skráning staðfest 3.7.2026.

q) Félag sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum, kt. 700708-1360. Skráning fyrir brennu um verslunarmannahelgi við árfarveg Jökulsár í Lóni. Skráning staðfest 28.7.2026.

r)  Rósaberg ehf., kt. 620601-2330. Skráning fyrir bifreiða- og vélaverkstæði og steypustöð að Háhól. Skráning staðfest 18.8.2026. 

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.


5.  Breytingar á heilbrigðiseftirliti - Rekstur

Þann 19. júní 2026 samþykkti Alþingi lög sem fela í sér grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi opinbers eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2027.

Samkvæmt lögunum flytjast verkefni heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á sviði hollustuhátta og mengunarvarna til Umhverfis- og orkustofnunar. Jafnframt flytjast verkefni heilbrigðiseftirlitsins á sviði matvælaeftirlits til Stofnunar atvinnuveganna, sem tekur til starfa sama dag. Við breytingarnar fellur núverandi lögbundið fyrirkomulag heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga niður. 

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir áhrifum lagabreytinganna á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands og þeim ráðstöfunum sem grípa þarf til vegna fyrirhugaðra starfsloka 31. desember 2026. Þar undir falla meðal annars ráðningarsambönd starfsmanna, húsaleigu- og þjónustusamningar, varsla og afhending gagna, eignir og skuldbindingar, uppgjör við aðildarsveitarfélög og samskipti við þær ríkisstofnanir sem taka við verkefnum heilbrigðiseftirlitsins.

Nauðsynlegt er að hefja þegar undirbúning að starfslokum og tryggja að ákvörðunum um uppsagnir eða lok samninga verði komið til framkvæmda með réttum fyrirvara og í samræmi við gildandi lög, kjarasamninga og ákvæði einstakra samninga. Jafnframt þarf að tryggja að lögbundin starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands verði óskert til 31. desember 2026.

Heilbrigðisnefnd Austurlands felur framkvæmdastjóra, formanni og varaformanni Heilbrigðiseftirlits Austurlands að annast sameiginlega undirbúning og samhæfingu nauðsynlegra ráðstafana vegna fyrirhugaðra starfsloka Heilbrigðiseftirlits Austurlands 31. desember 2026. 

 

6. Breytingar á heilbrigðiseftirliti – Verkefni sveitarfélaga

Í framhaldi af umfjöllun undir síðasta dagskrárlið gerði framkvæmdastjóri grein fyrir þeim verkefnum sem verða áfram á ábyrgð sveitarfélaganna eftir 1. janúar 2027.

Við gildistöku lagabreytinganna fellur núverandi fyrirkomulag heilbrigðisnefnda niður. Af því leiðir að sveitarfélögin þurfa m.a. að yfirfara samþykktir sem byggist á aðkomu heilbrigðisnefndar, meðal annars samþykktir um umgengni og þrifnað utan húss, hunda- og kattahald, meðhöndlun úrgangs og fráveitur. Gera þarf ráð fyrir að gildandi samþykktir verði að óbreyttu ekki framkvæmanlegar með sama hætti eftir áramót, þar sem þær fela heilbrigðisnefnd tiltekin verkefni og valdheimildir.

Jafnframt þurfa sveitarfélögin að taka afstöðu til þess hvernig þau tryggja nauðsynlega fagþekkingu vegna þeirra verkefna sem áfram verða á þeirra ábyrgð, meðal annars á sviði skipulagsmála, vatnsveitna, fráveitna, úrgangsmála og annarra umhverfismála.

Heilbrigðisnefnd Austurlands vekur athygli á því að þrátt fyrir flutning eftirlitsverkefna til ríkisstofnana verða ýmis verkefni áfram á ábyrgð sveitarfélaganna eftir 1. janúar 2027.

Nefndin bendir sérstaklega á nauðsyn þess að sveitarfélögin yfirfari tímanlega gildandi samþykktir og annað regluverk sem felur heilbrigðisnefnd eða Heilbrigðiseftirliti Austurlands verkefni, eftirlit eða valdheimildir. Að öðrum kosti er hætta á að samþykktirnar verði að hluta eða öllu leyti óframkvæmanlegar eftir að heilbrigðisnefndin og heilbrigðiseftirlitið hætta starfsemi.

Jafnframt þurfa sveitarfélögin að taka afstöðu til þess hvernig þau hyggjast sinna þeim verkefnum sem áfram verða á þeirra ábyrgð og hvernig tryggður verði aðgangur að nauðsynlegri fagþekkingu við framkvæmd þeirra.

Heilbrigðisnefnd Austurlands felur framkvæmdastjóra, formanni og varaformanni Heilbrigðiseftirlits Austurlands að kynna framangreindar breytingar fyrir aðildarsveitarfélögunum og eiga við þau samráð um undirbúning vegna þeirra verkefna sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaganna eftir 1. janúar 2027.


7.  Vinna milli funda

Umsagnir um veitinga- og gistileyfi

7.1.  Höllustaðir slf., kt. 630326-0950. Rekstarleyfi fyrir gististað að Höllustöðum, 701 Egilsstaðir.

7.2.  Svartifoss ehf., kt. 670709-0190. Rekstarleyfi fyrir veitingastað að Hafnarbraut 2, 780 Höfn. 

7.3.  Svartifoss ehf., kt. 670709-0190. Rekstarleyfi fyrir gististað að Hafnarbraut 2, 780 Höfn. 

7.4.  Six Rivers Iceland ehf., kt. 630269-6529. Rekstrarleyfi fyrir gististað í veiðihúsinu Fossgerði við Selá, 690 Vopnafirði. 

7.5.  Náttúruverndarstofnun, kt. 700924-1570. Rekstarleyfi fyrir gististað í Snæfellsskála, 701 Egilsstaðir. 

7.6.  Egilsstaðahúsið ehf., kt. 700198-2869. Rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Tjarnarbraut 1, 700 Egilsstaðir.

7.7.   Skriðukaffi ehf., kt. 561025-0100. Rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Skriðuklaustri, 701 Fljótsdalur. 

7.8.  Adventure Hotels ehf., kt. 490317-0310. Rekstrarleyfi fyrir gististað að Skaftafelli 3C, 785 Öræfi. 

7.9.  Jökla Dekk ehf., kt. 580602-2150. Rekstrarleyfi fyrir gististað að Myllulæk 10,11 og 12, 781 Höfn. 

7.10. East Events ehf., kt. 580526-0390. Rekstrarleyfi fyrir gististað að Grásteini 15, 17 og 19, 701 Egilsstöðum. 

7.11. Hótel Stuðlagil ehf., kt. 640221-0700. Rekstrarleyfi fyrir gististað að Grund á Jökuldal, 701 Egilsstöðum. 

7.12. Helena Leifsdóttir, kt. 280264-4669. Rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Vogalandi 2, 765 Djúpvogi. 

7.13. Six Rivers Iceland ehf. kt. 630269-6529, Rekstrarleyfi fyrir gististað í veiðihúsinu Árhvammi, 691 Vopnafirði. 

7.14. 1001 nótt ehf., kt. 501213-0980. rekstarleyfi fyrir gististað og veitingastað að Álfási, 701 Egilsstaðir.

7.15. Óbyggðasetur ehf., kt. 540314-0630. Rekstrarleyfi fyrir gististað að Egilsstöðum í Fljótsdal, 701 Egilsstaðir. 

7.16. Njáll SU-8 ehf., kt. 410604-2210. Rekstrarleyfi fyrir gististað að Skólavegi 57, 750 Fáskrúðsfirði. 

Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi

7.17. NO PANIC ehf., kt. 591221-1090. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga að Lónsleiru 2, 710 Seyðisfirði, 20.6.-4.7.2026.

7.18. NO PANIC ehf., kt. 591221-1090. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga að Lónsleiru 2, 710 Seyðisfirði, 6.7.-4.8.2026.

7.19. Humarhátíð á Höfn, kt. 660499-2029. Tækifærisleyfi vegna humarhátíðar á Höfn. Tímasetning viðburðar 26.6.2026-28.6.2026.

7.20. Ungmennafélagið Sindri, kt. 430380-0609. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga í íþróttahúsinu Víkurbraut 9, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 27.6.2026.

7.21. Ungmennafélagið Sindri, kt. 430380-0609. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga í sölutjaldi á hátíðarsvæði Humarhátíðar. Tímasetning viðburðar 25.6.2026-28.6.2026.

7.22. Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna sólstöðuhátíðar Félags íslenskra Fjallaleiðsögumanna að Löngutorfu, Svínafelli. Tímasetning viðburðar 20.6.2026.

7.23. Kartöfluhúsið ehf., 610317-1890. Tækifærisleyfi vegna viðburðar fyrir ungmenni í Hafinu, Heppuvegi 5, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 23.6.2026.

7.24. Skemmtifélag Stöðvarfjarðar kt. 620211-2490. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga í íþróttahúsinu Fjarðarbraut 55 b, 755 Stöðvarfirði. Tímasetning viðburðar 10.7.2026.

7.25. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði, kt. 610715-2220. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Skrúði, Skólavegi, 750 Fáskrúðsfirði. Tímasetning viðburðar 15.-19.7.2026.

7.26. NO PANIC ehf., kt. 591221-1090. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga að Lónsleiru 2, 710 Seyðisfirði, 5.8.-1.9. 2026.

7.27. Signý Ingólfsdóttir kt. 040494-2789. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna harmonikkudansleiks í Brúarásskóla. Tímasetning viðburðar 29.8.2026.

7.28. Kiwanisklúbburinn Ós, kt. 601094-2239. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna 56. Umdæmisþings Kiwanis í Sindrabæ. Tímasetning viðburðar 11.9.2026 til 13.9.2026.

7.29. Menntaskólinn á Egilsstöðum, kt. 610676-0579. Tækifærisleyfi fyrir nýnemadansleik á Aski Taproom, Fagradalsbraut 25, 700 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 3.9.2026.

Umsagnir vegna skipulags-, byggingar- og umhverfismála

7.30. Aðaluppdrættir fyrir íbúðarhús, Ytra Geitland, 721 Borgarfjörður eystri. 

7.31. Deiliskipulag, Skarðshólar, 781 Höfn í Hornafirði. 

7.32. Deiliskipulaga, Birgi í Suðursveit, 781 Höfn í Hornafirði.

7.33. Aðaluppdrættir fyrir tengivirki við Hryggstekk, 701 Egilsstaðir. 

7.34. Aðaluppdrættir fyrir þrjú eins frístundahús við Álfagötu 5, 701 Egilsstaðir. 

7.35. Deiliskipulagsbreyting, mótorcross svæði, 780 Höfn í Hornafirði.

7.36. Deiliskipulagsbreyting Skaftafell II og IV, 785 Öræfi. 

7.37. Aðaluppdrættir fyrir frístundahús, Nátthagi við Stóra Sandfell 2. 701 Egilsstaðir

7.38. Aðaluppdrættir fyrir íbúðarhús, Versalir 1. 701 Egilsstaðir

7.39. Aðaluppdrættir fyrir sumarhús, Uglumói í landi Stóra-Steinsvaðs, 701 Egilsstaðir. 

7.40. Deiliskipulagstillaga fyrir frístundabyggð í landi Kollsstaðasels, 701 Egilsstaðir.

7.41. Aðaluppdrættir fyrir frístundahús við Sellæk, 701 Egilsstaðir. 

7.42. Aðaluppdrættir fyrir skemmu golfklúbbs Seyðisfjarðar við Kúahaga, 711 Seyðisfirði.

Aðrar umsagnir

7.43. Könnun á matsskyldu, Stokknesvegur í Sveitarfélaginu Hornafirði, Almannaskarð – Leirtjörn.

7.44. Náttúruverndarstofnun, kt. 700924-1570. Brennuleyfi í Skaftafelli, 785 Öræfum.


8. Önnur mál

8.1. Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands

Staðfundur 6. október kl. 13:00 

Fundi slitið kl. 9:22

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir 

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna. 

pdfFUNDARGERÐ 192 Á PDF