Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Janine Arens
Auður Anna Ingólfsdóttir
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Sandra Konráðsdóttir

Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Ólöf Vilbergsdóttir
Kjartan Róbertsson
Maja Karlovic

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 1034
  2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 1035
  3. Skráningarskyldur atvinnurekstur 1035
  4. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva. 1036
  5. Ársreikningur HAUST 2024 1036
  6. Gjaldskrá 1036
  7. Fjárhagsáætlun 2026 1036
  8. Áform um breytingar á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum máls S-160/2025 í samráðsgátt stjórnvalda. 1037
  9. Vinna milli funda 1037
  10. Önnur mál 1037

1. Bókuð útgefin starfsleyfi

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
a) Obo ehf., kt. 490124-0980. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Fagradalsbraut 13. Leyfi útgefið 10.09.2025.
b) Art & Text ehf., kt. 540115-0360. Starfsleyfi fyrir húðflúrsstofu að Helgafelli 1. Leyfi útgefið 16.9.2025.
c) Austur Bý ehf., kt. 430425-1530. Starfsleyfi fyrir pökkun á hunangi og snyrtivöruframleiðslu í Háskólanum Hallormsstað. Leyfi útgefið 25.9.2025.
d) Eiðar Village ehf., kt. 660121-0480. Starfsleyfi fyrir gististað, samkomuhús, þvottahús og fráveitu að Eiðum 17. Leyfi útgefið 25.9.2025.
e) Lunaveitingar ehf., kt. 440725-0310. Starfsleyfi fyrir sölu á veitingum að Tjarnarbraut 21. Leyfi útgefið 16.10.2025.

710 Múlaþing – Seyðisfjörður
f) LungA-skólinn ses., kt. 660213-1200. Starfsleyfi fyrir mötuneyti að Hafnargötu 2a. Leyfi útgefið 24.9.2025.

720 Múlaþing – Borgarfjörður eystri
g) Blábjörg ehf., kt. 710506-0430. Starfsleyfi fyrir sölu á gistingu, sölu á veitingum, baðhús og nuddstofu í Gamla Frystihúsinu. Leyfi útgefið 25.9.2025.

765-766 Múlaþing – Djúpivogur
h) Baggi ehf., kt. 630801-2490. Starfsleyfi fyrir tjald- og hjólahýsastæði að Bragðavöllum. Leyfi útgefið 16.9.2025.

765-766 Fjarðabyggð – Eskifjörður
i) Fjarðaþrif ehf., kt. 410605-1630. Starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð og vatns átöppun að Strandgötu 44. Leyfi útgefið 15.10.2025.

780-781 Höfn
j) Stórtækur ehf., kt. 560125-1350. Starfsleyfi fyrir þvottahús að Heppuvegi 6. Leyfi útgefið 19.9.2025.
k) Skyrhúsið ehf., kt. 480507-0960. Starfsleyfi fyrir gististað að Breiðabólsstað, Hala. Leyfi útgefið 17.10.2025.

785 Öræfi
l) Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Starfsleyfi fyrir veitinga- og gististað að Svínafelli. Leyfi útgefið 3.10.2025.
m) Tindaborg ehf., kt. 620120-0570. Starfsleyfi fyrir gististað í Lambhaga. Leyfi útgefið 3.10.2025.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

690 Vopnafjörður
a) Kauptún rekstrarfélag ehf., kt. 690113-1200. Tóbakssöluleyfi að Hafnarbyggð 4, Vopnafirði. Leyfi útgefið 13.10.2025.

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
b) Olís ehf., kt. 500269-3249. Tóbakssöluleyfi að Búðareyri 33, Reyðarfirði. Leyfi útgefið 13.10.2025.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
c) Trausti Reykdal Guðvarðsson, kt. 251244-2789. Tóbakssöluleyfi að Strandgötu 29a. Leyfi útgefið 9.10.2025.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa.

 

3. Skráningarskyldur atvinnurekstur

700 Múlaþing - Egilsstaðir
a) Vegagerðin, kt. 680269-2899. Skráning vegna bifreiða- og vélaverkstæði að Smiðjuseli 1. Skráning staðfest 7.10.2025.

720 Múlaþing – Borgarfjörður eystri
b) Ylur ehf., kt. 430497-2199. Skráning vegna niðurrifs á húsnæði, Sæból. Skráning staðfest 7.10.2025.

730 Fjarðabyggð - Reyðarfjörður
c) Launafl ehf, kt. 490606-1730. Skráning vegna bifreiðaverkstæðis að Austurvegi 20. Skráning staðfest 3.10.2025

740 Fjarðabyggð - Neskaupstaður
d) Björgunarsveitin Gerpir, kt. 550579-0499. Skráning fyrir flugeldasýningu í Neskaupstað um áramót 2025/26. Skráning staðfest 26.9.2025.

750 Fjarðabyggð - Fáskrúðsfjörður
e) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Skráning vegna niðurrifs á asbesti við Hafnargötu vegna endurnýjunar vatnslagna. Skráning staðfest 30.9.2025.

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.

 

4. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva

4.1 Mógli ehf. – Olíumengun Eskifirði

Fyrirliggur minnisblað dags. 9.10.2025, skjal nr. 112748-MIN-001-V01 frá verkfræðistofunni Eflu um niðurstöður mengunarrannsókna á lóðum við Strandgötu 59 og 61, 735 Eskifirði. Í minnisblaðinu er auk þess gerð tillaga að hreinsunaraðgerðum á lóðunum. Rannsókn var unnin að beiðni HAUST.

Lögð er fram tímasett áætlun um hreinsun á svæðinu frá Mógli ehf. auk beiðni um niðurfellingu dagsekta.

Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir framlagða verkáætlun Mógli ehf. um hreinsun olíumengaðs jarðvegs á lóðum Strandgötu 59 og 61 á Eskifirði í samræmi við tillögur Eflu verkfræðistofu. Verki skal lokið eigi síðar en 15. nóvember 2025. Heilbrigðiseftirlit Austurlands mun hafa eftirlit með framkvæmd hreinsunarinnar. Hafi verki ekki verið lokið innan tímamarka er gert ráð fyrir að HAUST vinni verkið á kostnað Mógli ehf., sbr. fyrra bréf HAUST, dags. 10.10.2025.

Dagsektir Heilbrigðisnefndar Austurlands sem lagðar voru á fyrirtækið á 181. fundi nefndarinnar verða felldar niður að öllu leyti þegar HAUST hefur staðfest að hreinsun sé fullnægjandi. Kostnaður vegna við vinnu Eflu vegna rannsóknar og tillögugerð verður innheimtur hjá Mógli ehf. með almennum hætti.

5. Ársreikningur HAUST 2024

Fyrir liggur endurskoðaður ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2024 frá KPMG.

Nefndarmenn samþykkja fyrirliggjandi ársreikning með rafrænni undirskrift og vísa honum til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar.

6. Gjaldskrá

Lögð var fram tillaga um breytingar á gjaldskrá fyrir heilbrigðs- og mengunarvarnareftirlit á Austurlandi.

Heilbrigðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á gjaldskrá fyrir sitt leyti og vísar tillögunni til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar.

7. Fjárhagsáætlun 2026

Tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 lögð fram.

Heilbrigðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun komandi árs og vísar tillögunni til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar.

8. Áform um breytingar á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum máls S-160/2025 í samráðsgátt stjórnvalda.

Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

 

9. Vinna milli funda

Umsagnir um veitinga- og gistileyfi
9.1 Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Gistileyfi, Langatorfa, 785 Öræfi.
9.2 Skyrhúsið ehf., kt. 480507-0960. Gistileyfi, Breiðabólsstaður, 701 Höfn.

Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi
9.3 Hjónaballið á Fáskrúðsfirði, kt. 560408-2340. Tækifærisleyfi fyrir hjónaball í félagsheimilinu Skrúði. Tímasetning viðburðar 17.1.2026.

Umsagnir vegna skipulags-, byggingar- og umhverfismála
9.4 Aðaluppdrættir fyrir íbúðarhús að Lindarhóli, 701 Egilsstaðir.
9.5 Aðaluppdrættir fyrir frístundahús við Rannveigarstaði 2, 766 Djúpavogi.
9.6 Aðaluppdrættir fyrir viðbyggingu ofan á Bókakaffi og breytingar innanhús að Hlöðum í Fellabæ, 700 Egilsstaðir.
9.7 Grunnmynd fyrir Nýtingarmiðstöð, Hafnarbyggð 8A, 690 Vopnafirði.
9.8 Aðaluppdrættir fyrir frístundahús við Tunguás 1, 701 Egilsstaðir.
9.9 Aðaluppdrættir fyrir gistiheimili á Grund, 701 Egilsstaðir.
9.10 Aðaluppdrættir fyrir skemmu við Álfagötu 8, 701 Egilsstaðir.

Aðrar umsagnir
9.11 Stöðuskýrsla um fráveitumál á Íslandi, Umhverfis- og Orkustofnun.

10. Önnur mál

10.1 Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands

Fjarfundur 11. desember kl. 8:30

10.2 Aðalfundur byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Verður haldinn 13.11 á Teams kl. 14:00.

Fundi slitið kl. 14:47

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

pdfFUNDARGERÐ Á PDF