Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir

Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir

 

Dagskrá:

1. Bókuð útgefin starfsleyfi 1038
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 1039
3. Skráningarskyldur atvinnurekstur 1039
4. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva. 1040
5. Tiltekt á Seyðisfirði 1040
6. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð 1040
7. Vinna milli funda 1041
8. Önnur mál 1041

1 Bókuð útgefin starfsleyfi

690 Vopnafjörður
a) Spicehaus ehf., kt. 551025-0120. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Hafnarbyggð 4A. Leyfi útgefið 18.11.2025.
b) Jane Kavanagh Lauridsen, kt. 031282-5009. Starfsleyfi fyrir kaffihús að Hafnarbyggð 4A. Leyfi útgefið 28.11.2025.

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
c) Múlaþing, kt. 660220-1350. Starfsleyfi fyrir áhaldahús og dýragæslu að Tjarnarási 9. Leyfi útgefið 23.10.2025.

765-766 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
d) Landsnet hf., kt. 580804-2410. Starfsleyfi fyrir tengivirki að Stuðlum. Leyfi útgefið 06.11.2025

780-781 Höfn í Hornafirði
e) Funaborg ehf., kt. 620915-1650. Starfsleyfi fyrir gististað að Víkurbraut 2. Leyfi útgefið 22.10.2025.
f) Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639. Starfsleyfi fyrir leikskóla, leiksvæði og mötuneyti með fullbúnu eldhúsi að Kirkjubraut 47. Leyfi gefið út 4.11.2025.
g) Andreyn ehf., kt. 561222-0290. Starfsleyfi fyrir gististað að Hafnarbraut 11. Leyfi útgefið 12.11.2025.
h) Klifá ehf., kt. 660717-0210. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir gististað, veitingastað og starfsmannabústað að Breiðabólsstað 2. Leyfi útgefið 5.12.2025.

785 Öræfi
i) Flosi hf., kt. 710883-0259. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir gististað, tjaldsvæði og vatnsveitu að Svínafelli 1. Leyfi útgefið 4.12.2025.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður

a) Gamla sláturhúsið ehf., kt. 690125-0800. Tóbakssöluleyfi að Hafnarbraut 50. Leyfi útgefið 4.11.2025.

780 Höfn í Hornafirði

b) Hafnarbúðin ehf., kt. 480617-0960. Tóbakssöluleyfi að Ránarslóð 2a. Leyfi útgefið 4.11.2025.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa.

3. Skráningarskyldur atvinnurekstur

690 Vopnafjörður

a) Vopnafjarðarhreppur., kt. 710269-5569. Skráning vegna brennu við Búðaröxl um áramót. Skráning staðfest 8.12.2025.
b) Vopnafjarðarhreppur., kt. 710269-5569. Skráning vegna brennu við Búðaröxl á þrettándanum. Skráning staðfest 8.12.2025.

700 Múlaþing - Egilsstaðir

c) MVA ehf., kt. 541212-0860. Skráning vegna steypustöðvar að Ekkjufelsseli 8. Skráning staðfest 24.10.2025.
d) Sleðbrjótur ehf., kt. 620413-3050. Skráning vegna niðurrifs á Sleðbrjóti 1. Skráning staðfest 29.10.2025.
e) Sleðbrjótur ehf., kt. 620413-3050. Skráning vegna niðurrifs á Breiðumörk 1. Skráning staðfest 29.10.2025.
f) Sleðbrjótur ehf., kt. 620413-3050. Skráning vegna niðurrifs á Breiðumörk 2. Skráning staðfest 29.10.2025.
g) Björgunarsveitin Hérað, kt. 481199-2989. Skráning vegna flugeldasýningar á Egilsstöðum um áramót. Skráning staðfest 14.11.2025.
h) Jónsmenn ehf., kt. 530306-0620. Skráning vegna bifreiða- og vélaverkstæðis að Miðási 23. Skráning staðfest 18.11.2025.
i) Múlaþing, kt. 660220-1350. Skráning vegna brennu um áramót á Egilsstöðum. Skráning staðfest 4.12.2025.

710 Múlaþing - Seyðisfjörður

j) Sigurbergur Sigurðsson, kt. 170844-7699. Skráning vegna bifreiða- og vélaverksstæði að Langatanga 7. Skráning staðfest 23.10.2025.

735 Fjarðabyggð - Eskifjörður

k) Björgunarsveitin Brimrún, kt. 710186-1389. Skráning vegna flugeldasýningar á Eskifirði um áramót. Skráning staðfest 14.11.2025.

740 Fjarðabyggð - Neskaupstaður

l) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Skráning vegna niðurrifs á Strandgötu 62. Skráning staðfest 29.10.2025.

750 Fjarðabyggð - Fáskrúðsfjörður

m) Fjarðabyggðarhafnir, kt. 470989-2179. Skráning vegna niðurrifs á Hafnargötu 27A. Skráning staðfest 29.10.2025. 

760 Fjarðabyggð - Breiðdalsvík

n) Björgunarsveitin Eining, kt. 510590-2289. Skráning fyrir flugeldasýningu á vestari bryggjukantinum á Breiðdalsvík. Skráning staðfest 29.10.2025.

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.

4. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva.

4.1 Mógli ehf.

Á 187. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands var tekin fyrir verkáætlun Mógli ehf. um hreinsun á lóðunum við Strandgötu 59 og Strandgötu 61 á Eskifirði. Verkáætlunin var samþykkt af heilbrigðisnefnd og fallist á að fella niður dagsektir sem höfðu verið lagðar á fyrirtækið á 181. fundi nefndarinnar, að því skilyrði að úrbætur yrðu framkvæmdar í samræmi við framlagða verkáætlun. Ekki hefur verið staðið við innsenda verkáætlun og úrbætur hafa ekki farið fram. Þá hafa ítrekuð tilmæli heilbrigðisnefndar og beiting dagsekta til að knýja fram úrbætur ekki skilað árangri.

Heilbrigðisnefnd Austurlands átelur fyrirtækið fyrir vanefndir á eigin úrbótaáætlun. Að mati nefndarinnar er fullreynt að ná fram úrbótum með beitingu þvingunarúrræða og geta úrbætur ekki beðið lengur. Þar sem úrbætur hafa ekki farið fram í samræmi við framlagða úrbótaáætlun verða dagsektir sem lagðar voru á fyrirtækið á 181. fundi nefndarinnar innheimtar að fullu.
Í samræmi við forsögu málsins og bókun á 187. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands er hér með tekin sú ákvörðun að heilbrigðisnefnd hreinsi svæðið í samræmi við áætlun þar um. Fasteignareigandi, Mógli ehf., vegna fasteignanna Strandgötu 61, F2170477, og Strandgötu 61, F2224989, er ábyrgur vegna kostnaðar vegna mats á mengun á svæðinu, sýnatöku, hreinsunaráætlun og hreinsun, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 7/1998, og verður kostnaðurinn innheimtur hjá félaginu. Krafa vegna þess er tryggð með lögveði í fasteignunum, sbr. 2. mgr. 61. gr. laga nr. 7/1998. Þá er kostnaðurinn aðfararhæfur, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga nr. 7/1998.

5. Tiltekt á Seyðisfirði

Heilbrigðisnefnd hefur unnið að undirbúningi við hreinsun á Seyðisfirði. Birt hefur verið auglýsing um fyrirhugaða hreinsun og hefur verið reynt að hafa uppi á eigendum lausamuna á svæðinu og þeim sent bréf með tilkynningu um fyrirhugaða hreinsun. Svæðið sem um ræðir liggur utan eftirfarandi lóða: Fjarðargötu 1A og 1B og Ránargötu 2A, 2C og 4. Nauðsynlegt er að hreinsa til á svæðinu vegna fyrirhugaðra framkvæmda í tengslum við frágang ofanflóðavarna á Seyðisfirði. Þá hefur Veðurstofa Íslands bent á að hætta vegna snjóflóða geti aukist mikið vegna þess braks sem er á svæðinu og gert björgunar- og hreinsunarstarf erfiðara í kjölfarið.

Eigendur og umráðamenn lausamuna og annarra hluta á svæðinu eru beðnir um að fjarlægja þá af svæðinu fyrir 10. febrúar 2026. Verði ekki brugðist við fyrir tilgreindan frest áskilja Heilbrigðisnefnd Austurlands og Múlaþing sér rétt til að láta fjarlægja og farga öllum lausamunum, númerslausum bílum, óskráningarskyldum ökutækjum og öðrum óskráðum hlutum á kostnað og ábyrgð eigenda, sbr. 6. gr. samþykktarinnar og lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Kostnaður verður innheimtur hjá eigendum.

6. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð

Lögð fram tillaga að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.

Heilbrigðisnefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu hjá Fjarðabyggð.

7. Vinna milli funda

Umsagnir um veitinga- og gistileyfi

7.1 Lunaveitingar ehf., kt. 440725-0310. Veitingaleyfi, Tjarnarbraut 21, 700 Egilsstaðir.
7.2 Klifá ehf., kt. 660717-0210. Gistileyfi að Breiðabólsstað 2, 781 Höfn.
7.3 Spicehouse ehf., kt. 551025-0120. Veitingaleyfi í Kaupvangi, Hafnarbyggð 4a, 690 Vopnafirði.

Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi

7.4 NE.F.F.A.S kt. 491192-2169. Tækifærisleyfi í Sindrabæ fyrir dansleik. Tímasetning viðburðar 7.11.2025.
7.5 Austurbrú ses., kt. 640512-0160. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna matarmóts Austurlands í Sláturhúsinu, Kaupvangi 9, 700 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 15.11.2025.
7.6 Árni Ólason, kt. 231062-4919. Tækifærisleyfi vegna árshátíðar ME í Hótel Valaskjálf. Tímasetning viðburðar 27.11.2025.
7.7 María Ósk Kristmundsdóttir, kt. 300581-4989. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir þorrablót í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 23.1.2026.
7.8 Þorrablót Nesja- og Lónamanna kt. 670199-3399. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í íþróttahúsinu Mánagarði, 781 Höfn. Tímasetning viðburðar 31.1.2026.
7.9 Bar smíðar ehf., kt. 620218-0730. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga á Aski Taproom, Fagradalsbraut 25, 700 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 1.1.2026.

Umsagnir vegna skipulags-, byggingar- og umhverfismála

7.10 Grunnmynd, Miðás 1-5, breyting á húsnæði í gistiheimili, 700 Egilsstaðir.
7.11 Aðaluppdrættir fyrir íbúðarhús, Smáraborg, 720 Borgarfjörður eystri.
7.12 Aðaluppdrættir fyrir geymsluhúsnæði, Víkurland 9A, 765 Djúpavogi.
7.13 Matsáætlun um uppbyggingu hótels og baðstaðar við Hoffell í Nesjum, 781 Höfn í Hornafirði.

Aðrar umsagnir
7.14 Brennuleyfi fyrir stóran bálköst á Hermannsstekk, 765 Djúpavogi. Umsækjandi Múlaþing kt. 660220-1350. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.15 Brennuleyfi fyrir lítinn bálköst við norðurenda flugbrautar, 720 Borgarfirði eystra. Umsækjandi Múlaþing kt. 660220-1350. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.16 Brennuleyfi fyrir lítinn bálköst við Langatanga, 710 Seyðisfirði. Umsækjandi Múlaþing kt. 660220-1350. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.17 Brennuleyfi fyrir litla brennu við Búðaröxl, 690 Vopnafirði. Umsækjandi Vopnafjarðarhreppur kt. 710269-5569. Tímasetning brennu 31.12.2025.

8. Önnur mál

8.1 Fundadagskrá Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

Lögð fram tillaga að fundadagskrá fyrir 2026

12. febrúar
9. apríl
28. maí
3. september
15. október
12. nóvember aðalfundur byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlit Austurlands
10. desember

Fundi slitið kl. 9:22

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

Fundragerð á PDF