Stefán Þór Eysteinsson formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands.

Starf nefndar

Heilbrigðisnefnd Austurlands fundar að jafnaði sex sinnum á ári. Flestir fundir nefndarinnar eru fjarfundir enda langt á milli nefndarmanna. Staðfundur nefndarinnar er einn á ári og hittist nefndin á staðfundi í október í Neskaupstað. Þar fengu starfsmenn HAUST ásamt nefndarmönnum kynningu á starfsemi Síldarvinnslunnar ásamt kynningu á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem er að finna  í Múlanum samvinnuhúsi.

Starfsfólk og verkefni

Hjá Heilbrigðiseftirlitinu starfar öflugt og hæft starfsfólk. Á árinu 2024 störfuðu sex starfsmenn hjá HAUST í samtals 5,2 stöðugildum. Starfsstöðvar eru þrjár talsins, þ.e. á  Egilsstöðum, Djúpavogi og Höfn. Lögð hefur verið áhersla á að fá hæft og vel menntað starfsfólk til starfa óháð staðsetningu og hafa starfsstöðvar heilbrigðiseftirlitsins verið opnaðar í samræmi við búsetu starfsmanna.

Á árinu 2024 voru 1.410 starfsstöðvar eftirlitsskyldar á starfssvæði HAUST og fóru starfsmenn í 639 reglubundnar eftirlitsferðir. Þá voru afgreidd 161 starfsleyfi, skráningar og tóbakssöluleyfi á árinu auk þess sem yfir 160 umsagnir voru afgreiddar af heilbrigðisfulltrúum á síðasta ári um skipulagsmál, rekstrarleyfi og aðaluppdrætti. Fjölgun umsagna um aðaluppdrætti endurspeglar aukið umfang verkefna og þá fjölbreyttu þjónustu sem heilbrigðiseftirlitið veitir.

Fjárhagur

Rekstur heilbrigðiseftirlitsins hefur verið stöðugur undanfarin ár. Stefnt hefur verið að því að embættið standi undir kostnaði við lögbundin verkefni og að til séu fjármunir til bregðast við óvæntum útgjöldum án þess að þurfa að leita til sveitarfélagana eftir viðbótar fjármagni. Lögð er áhersla á að tekjur af eftirlitsskyldri starfsemi standi undir eftirliti, á meðan íbúaframlag nýtist til annarra lögbundna verkefna sem heilbrigðieftirlitinu er falið.

Lagabreytingar og regluverk

Á árinu 2024 tók gildi endurbætt reglugerð um hollustuhætti. Þó nokkur óánægja hefur komið fram með tiltekna þætti reglugerðarinnar, enda er skýrt og samræmt regluverk grundvöllur fyrir fagleg vinnubrögð heilbrigðisfulltrúa. Hnykkt var sérstaklega á auglýsingaskyldu tillagna að starfsleyfum sem sett var í lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með breytingu nr. 66/2017 á lögunum. Þar með var gerð skýr sú krafa að auglýsa eigi tillögu starfsleyfis á sviði hollustuhátta í 4 vikur. Þar með hefur innleiðing Árósarsamningsins, sem kveður á um aðkomu almennings að ákvörðunum um útgáfu starfsleyfa fyrir t.d. álver, kjarnorkuver, brennslustöðvar og áburðarverksmiðjur, verið yfirfært á snyrtistofur og skólahúsnæði. Með gildandi reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur, þar sem meðal annars hárgreiðslustofur eru skráningaskyldar hjá viðkomandi heilbrigðisnefnd hefur myndast gríðarlegt ósamræmi á málshraða og útgáfu leyfa skyldra atvinnugreina.

Í júní voru drög birt í samráðsgátt um breytingu á reglugerð um skráningaskyldan atvinnurekstur. Lagt var til að 23 flokkar atvinnureksturs myndu bætast við reglugerð um skráningaskyldan atvinnurekstur. Sú breyting hefði leitt af sér aukið samræmi á málsmeðferð milli sambærilega atvinnugreinaflokka sem eru leyfisskyldir hjá heilbrigðisnefnd og hefði undið ofan af auglýsingakröfu sem sett var á fyrirtæki sem starfa á sviði hollustuhátta. Aðeins einn þessara flokka rataði í endanlega útgáfu reglugerðarinnar, sem hefur í för með sér að heilbrigðisnefndir, fyrirtæki og almenningur sitja enn uppi með ósamræmi og óskiljanlega auglýsingaskyldu í tilvikum sem ekki samrýmast tilgangi laganna. 

Starfsumhverfi

Þann 2. september sl. kynntu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra breytingar á fyrirkomulagi eftirlits í kjölfar birtingar skýrslu stýrihóps um opinbert eftirlit. Boðaðar breytingar fela í sér að ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum verði færð frá heilbrigðiseftirlitssvæðum til Umhverfis- og orkustofnunar og ábyrgð á eftirliti með matvælum færist yfir til Matvælastofnunar.

Þessi áform stjórnvalda munu setja svip sinn á störf heilbrigðiseftirlitsins á komandi ári. Ljóst er að boðaðar breytingar geta haft í för með sér aukið álag á starfsmenn, þar sem óvissa um framtíð starfseminnar og stöðu starfsmanna hefur áhrif á starfsanda. Slíkar aðstæður geta valdið röskun á daglegu starfi, þar sem tími og orka fara í undirbúning og framkvæmd breytinga í stað hefðbundinna verkefna. Jafnframt má búast við aukinni áhættu á starfsmannaveltu og að nýráðningar verði erfiðari við slíkar aðstæður.

Lokaorð

Stjórn Heilbrigðisnefndar Austurlands þakkar starfsfólki heilbrigðiseftirlitsins fyrir faglegt og öflugt starf á liðnu ári og gott samstarf við sveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu.

Í ljósi fyrirhugaðra breytinga á skipulagi opinbers eftirlits telur nefndin brýnt að tryggja að heilbrigðiseftirlit á landsbyggðinni haldi áfram að vera nálægt íbúum, að þekking á staðbundnum aðstæðum nýtist við ákvarðanatöku og að gæði þjónustunnar verði ekki skert.

Nefndin mun áfram leggja áherslu á að starfsemin sé fagleg, skilvirk og í þágu íbúa á starfssæði HAUST.

Í lokin er bent á ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem nálgast má á heimasíðu HAUST en þar má finna nánara yfirlit yfir störf og verkefni heilbrigðiseftirlitsins.

pdfSkýrsla stjórnar og fundargerð aðalfundar á PDF