Stefán Þór Eysteinsson formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands.

Heilbrigðisnefndin

Frá síðasta aðalfundi Heilbrigðisnefndar Austurlands (HAUST) hafa verið haldnir sex fundir. Þar af voru fimm símafundir en heilbrigðisnefnd ákvað að fækka staðfundum nefndarinnar úr tveimur í einn á ári. Jafnframt var lögð áhersla á að staðfundir yrðu nýttir betur til að kynnast starfsemi á svæðinu. Staðfundur var haldinn á Egilsstöðum í október og fékk heilbrigðisnefnd kynningu á starfsemi HEF veitna.

Starfsfólk og verkefni

Fastráðnir starfsmenn HAUST voru 6 í 5,2 stöðugildum. Starfsmönnum hefur fjölgað um ca. hálft stöðugildi á undanförnum árum en á sama tíma hefur starfsleyfum á starfssvæði HAUST fækkað. Mest hefur fækkunin verið hjá fyrirtækjum eða einkaaðilum með starfsleyfi fyrir gistingu í heimahúsi svokölluð heimagisting  en leyfi fyrir slíkri gistingu hafa frá árinu 2017 verið gefin út af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Verkefni heilbrigðiseftirlitsins eru fjölmörg og hafa verkefni sem snúa að þjónustu við sveitarfélög s.s. yfirferð á aðaluppdráttum, umsögnum um skipulagsmál o.s.frv. aukist undanfarin ár. Verkefni sem snúa að tiltekt á lóðum og lendum eru óþrjótandi þó að mjög misjafnt sé eftir sveitarfélögum hvort þau óski eftir aðkomu heilbrigðiseftirlitsins. Tiltektarmál eru oft á tímum viðkvæmt málefni, krefjast oft mikils tíma og geta verið flókin þar sem ólík sjónarmið takast á. Sum heilbrigðiseftirlitssvæði hafa farið þá leið að ráða til starfa sérstakan starfsmann sem sinnir eingöngu umgengismálum. 

Fjárhagur

Stefnt hefur verið að því að reka heilbrigðiseftirlitið á þann veg að embættið standi undir kostnaði við að sinna lögbundnum skildum sínum. Rekstur heilbrigðiseftirlitsins hefur verið stöðugur og án ófyrirséðra atburða undanfarin ár. Vegna jákvæðrar fjárhagsstöðu embættisins var farin sú leið árin 2020, 2021 og 2022 að endurgreiða hluta af íbúaframlagi sveitarfélagana. Í kjölfarið var íbúaframlag sveitarfélagana lækkað árið 2023 úr 29,5% í 25%.

Starfsumhverfi

Í lok júlí tók í gildi ný reglugerð um hollustuhætti eftir þó nokkurn tíma í mótun. Hollustuháttareglugerðin er hryggjastykkið í starfi heilbrigðisfulltrúa. Nokkur óánægja var með gildistöku reglugerðarinnar meðal heilbrigðisfulltrúa sem tók gildi þegar sumarfrí margra stóð yfir í lok júlí. Þá fyrirfórst hjá ráðuneytinu að kynna fyrir heilbrigðisnefndum um gildistöku reglugerðarinnar. Ýmis vafamál og atriði í reglugerðinni sem hafa verið túlkunaratriði sem vonir stóðu til að yrðu skýrari með gildistöku reglugerðarinnar, hafa ekki verið skýrð. Ferill við útgáfu starfsleyfa á sviði hollustuhátta hefur þyngst við gildistöku reglugerðarinnar og má í því samhengi nefna að heilbrigðisnefnd bókaði á fundi sínum í september að breytingin á útgáfu starfsleyfa væri íþyngjandi fyrir fyrirtæki.

Stýrihópur var skipaður af umhverfis,- orku og loftslagsráðherra og matvælaráðherra í maí á þessu ári með það hlutverk að rýna fyrirliggjandi tillögur og ólíkar sviðsmyndir um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum sem og að koma með tillögu til að tryggja skilvirka framkvæmd eftirlits. Hópurinn mun einnig fjalla um og leggja drög að innleiðingu á miðlægu umsýslukerfi sem stuðli að samræmdri framkvæmd frá móttöku umsóknar til framkvæmdar eftirlits. Stýrihópurinn hefur nú fundað með öllum heilbrigðiseftirlitssvæðum en framkvæmdastóri HAUST og formaður heilbrigðisnefndar fundaði með hópnum í byrjun nóvember. Fundurinn var afar gagnlegur og ánægjulegt var að heyra að stýrihópurinn var jákvæður í garð heilbrigðiseftirlits og lagði áherslu á að tryggja áframhaldandi störf á landsbyggðinni. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi í júlí formlegt áminningarbréf þar sem fram kemur að Ísland hafi ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt EES-Samningnum. Í athugasemdum ESA kemur fram að fyrirkomulag eftirlits með matvælum tryggi ekki nægjanlega vel samræmda framkvæmd eftirlits og að kerfið tryggi ekki nægjanlega yfirsýn. Stýrihópurinn um fyrirkomulag eftirlits hefur fram til áramóta til að kynna tillögur að úrbótum á eftirlitskerfi með matvælum til ESA.

Lokaorð

Það er óhætt að segja að undanfarin ár hafi verið krefjandi enda hafa hugmyndir um breytt fyrirkomulag eftirlits sett svip sinn á starf heilbrigðinefnda. Heilbrigðiseftirlitssvæðin hafa lýst sig reiðubúin til að taka þátt í samstarfi um bætt heilbrigðiseftirlit í landinu enda starfar hæft og metnaðarfullt starfsfólk. Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi (SHÍ) hafa kallað eftir því að Matvælastofnun og Umhverfisstofnun sinni sínu lögbundna samræmingarhlutverki m.a. með útgáfu leiðbeininga, starfsskilyrða og að stofnanirnar séu í forsvari faghópa á sviði hollustuhátta, mengunar og matvæla.

Að lokum er bent á ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem nálgast má á heimasíðu HAUST en þar má finna nánara yfirlit yfir störf og verkefni heilbrigðiseftirlitsins.