Ný heilbrigðisnefnd tók til starfa á síðasta aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs. Frá síðasta aðalfundi, sem fram fór í Múlanum í Neskaupstað, hafa verið haldnir sex fundir í heilbrigðisnefnd. Á fyrsta fundi nefndarinnar sem haldinn var á Egilsstöðum í desember sl. skipti nefndin með sér verkum og var Stefán Þór Eysteinsson skipaður formaður nefndarinnar og Jónína Brynjólfsdóttir skipuð varaformaður. Snertifundir nefndarinnar voru haldnir á Fáskrúðsfirði í júní og á Egilsstöðum í október. Aðrir fundir hafa farið fram í gegnum fjarfundarbúnað. Ákveðið var á síðasta heilbrigðisnefndarfundi að staðfundum skyldi fækkað úr tveimur í einn á ári. Starfið innan nefndarinnar hefur gengið vel og verið með hefðbundnum hætti en hlutverk nefndarinnar er að framfylgja lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Samstarf nefndar og starfsfólks hefur verið farsælt og hafa ýmis krefjandi mál komið upp á árinu sem starfsmenn hafa leyst á farsælan hátt.

Starfsfólk

Óvenju margir nýir starfsmenn hófu störf á árinu, sé litið til sögu HAUST. Kjartan Róbertsson kom til starfa um áramót en áður hafði hann sinnt stöðu verkefnastjóra framkvæmdamála hjá Múlaþingi. Ráðnir voru tveir sumarstarfsmenn, annars vegar Þór Albertsson nemi á öðru ári í næringarfræði við Háskóla Íslands og hins vegar Maja Karlovic sem er með B.Sc gráðu í líftækni og M.Sc gráðu í næringarfræði. Maja reyndist afar öflugur og hæfur eftirlitsmaður og var gengið frá fastráðningu við hana í september.

Fjárhagur 

Heilbrigðiseftirlitið hefur verið rekið með afgangi undanfarin ár og hefur hluti íbúaframlags verið endurgreiddur síðast liðin þrjú ár. Stefna heilbrigðisnefndar hefur verið að gæta þess að byggðasamlag sem þetta sé ekki að skila hagnaði og hefur þessi leið því verið farin. Tekjum af rekstri sé ætlað að standa undir kostnaði við að veita þá lögbundnu þjónustu sem embættinu er ætlað að veita. Fyrst og fremst voru það áhrif Covid-19 á reksturinn sem útskýrðu hagnað, t.d. vegna færri ferða starfsmanna sem og annarra áhrifa á rekstur embættisins. Rekstrarárið 2022 ómaði enn af þessum áhrifum og skilaði embættið hagnaði og voru því endurgreiddar 2 milljónir af íbúaframlagi sveitarfélaga sem var þó minna en gert var 2021 (3 milljónir) og 2020 (3 milljónir). 

Starfsumhverfi

Reglugerð um skráningaskyldan atvinnurekstur tók gildi 14. nóvember 2022. Gildistaka þeirrar reglugerðar hefur litað starfsemi heilbrigðiseftirlitsins á undanförnu ári. Reglugerðin gerir rekstraraðilum skylt að skrá sína starfsemi í miðlæga rafræna gátt hjá Umhverfisstofnun í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um rafræna stjórnsýslu. Markmið reglugerðarinnar var að einfalda og auka skilvirkni stjórnsýslunnar og að auðvelda aðgengi að henni. Sú rafræna gátt sem taka átti við umsóknum vegna skráninga var ekki tilbúin þegar reglugerðin tók gildi og voru fyrstu mánuðir eftir gildistökuna krefjandi fyrir embættið. Óskað var eftir frestun á gildistöku reglugerðarinnar án árangurs. Mikil óánægja hefur verið vegna ótímabærrar gildistöku reglugerðarinnar bæði hjá eftirlitsaðilum og eftirlitsþegum. Nú þegar tæpt ár er liðið frá gildistökunni er enn ekki búið að leysa öll þau tæknilegu vandamál sem komið hafa upp.

Guðlaugur Þór Þórðarson Umhverfis- orku og loftslagsráðherra skipaði starfshóp um fyrirkomulag eftirlits í október 2022. Starfshópnum var falið að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum og átti að skila inn niðurstöðu til ráðherra fyrir 1. mars 2023. Framkvæmdastjóri HAUST fundaði einu sinni með starfshópnum í byrjun janúar og kynnti fyrir þeim starfsemi HAUST og svaraði spurningum starfshóps. Endanlegar niðurstöður og ráðleggingar starfshópsins voru kynntar nú í október. Niðurstöður starfshópsins eru að ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum færist frá heilbrigðiseftirliti til Umhverfisstofnunar og að eftirlit með matvælum færist frá heilbrigðiseftirliti til Matvælastofnunar og er því um að ræða viðamikla stjórnsýslulega breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. 

Tillögur ráðherra bíða nú umræðu inn í heilbrigðisnefnd en í gegnum tíðina hefur skoðun Heilbrigðisnefndar verið sú að best fari á því lögbundnu eftirliti sé sinnt úr nærumhverfinu í stað þess að þenja út miðlægar eftirlitsstofnanir.

pdfFundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023