Skýrsla stjórnar HAUST á aðalfundi 2022

Sú heilbrigðisnefnd sem formlega lýkur skyldum sínum hér í dag, tók við á aðalfundi byggðasamlagsins haustið 2018. Hér á eftir verður skipuð ný heilbrigðisnefnd og þar með talinn nýr formaður en Jón Björn Hákonarson hefur starfað sem formaður nefndarinnar síðan haustið 2015 og lætur nú af því embætti.

Frá síðasta aðalfundi sem fram fór á Hótel Höfn í byrjun nóvember 2021 hafa verið haldnir sex fundir í heilbrigðisnefnd, þar af einn snertifundur og fór hann fram á Skriðuklaustri um miðjan september. Starfið innan nefndarinnar hefur verið farsælt og samstarf nefndarinnar og starfsmanna HAUST sömuleiðis.

Starfsfólk

Engar breytingar urðu á síðast liðnu starfsári á starfsmannahaldi og voru starfandi 6 starfsmenn í 4,9 stöðugildum líkt og árið 2021. Samsetning starfsmanna hefur engu að síður tekið þó nokkrum breytingum frá síðasta aðalfundi þar sem Leifur Þorkelsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri um síðast liðin mánaðarmót. Er honum þakkað gott samstarf og óskað velfarnaðar í nýju starfi. Starf framkvæmdastjóra var auglýst á dögunum og var gengið frá ráðningu Láru Guðmundsdóttur, sem verið hefur staðgengill framkvæmdastjóra HAUST frá árinu 2017.

Rekstur

Byggðasamlagið hefur verið rekið með nokkrum rekstararafgangi undanfarin ár og hefur hluti íbúaframlags sveitarfélagana nú verið endurgreitt síðast liðin tvö ár. Enda ekki æskilegt að byggðarsamlag sé að skila hagnaði eða safna upp sjóðum og hefur því þessi leið farin. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023 var tekið mið af rekstri síðustu ára og samþykkti stjórn HAUST að lækka íbúaframlag sem sveitarfélögin greiða til rekstursins í samræmi við þetta. Tekjum er ætlað að standa undir þeirri lögbundnu þjónustu sem embættinu er ætlað að veita og kostnaður við reksturinn hefur verið óvenju lágur og er ástæða þess að hluta til vegna minni ferðalaga og annarra áhrifa sem Covid-19 hafði á reksturinn. Jákvæðu áhrif faraldursins eru vissulega þau að aukið framboð er á fjarfundum sem áður kröfðust ferðalaga til höfuðborgarinnar með auknum tilkostnaði.

Starfsumhverfi

Ný reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur sem hangið hefur yfir höfði heilbrigðiseftirliti undanfarin ár tekur nú gildi 14. nóvember næst komandi. Reglugerðin gerir rekstaraðilum skylt að skrá sína starfsemi í miðlæga rafræna gátt sem hjá Umhverfisstofnun í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um rafræna stjórnsýslu. Markmið reglugerðarinnar var að einfalda og auka skilvirkni stjórnsýslunnar og að auðvelda aðgengi að henni. Ljóst er að reglugerðin er í þversögn við yfirlýst markmið hennar. Nú þegar innan við mánuður er til gildistöku reglugerðarinnar hefur sú gagnagátt sem taka á við skráningum ekki verið fullkláruð og það sama má segja um þau fjölmörgu starfsskilyrði sem gilda fyrir mismunandi fyrirtækjaflokka. Ekki hefur verið leyst úr því hvernig gjaldtöku vegna skráningar verður háttað en ljóst er að hluti af tekjum sem áður runnu til Heilbrigðiseftirlitana færist nú yfir til UST. Óskað hefur verið eftir frestun á gildistöku reglugerðarinnar án árangurs.

Í byrjun árs voru drög að heildarendurskoðun á reglugerð um hollustuhætti birt í samráðsgátt stjórnvalda. Reglugerð um hollustuhætti er hryggjarstykkið í allri vinnu heilbrigðisfulltrúa og unnið hefur verið að endurskoðun reglugerðarinnar frá árinu 2018. Starfsmenn HAUST hafa lagt mikla vinnu í verkefnið og ekki laust við nokkur vonbrigði hafi orðið þegar drögin litu dagsins ljós. Þó nokkrar athugasemdir bárust við drögin en lítið hefur heyrst um afdrif reglugerðarinnar síðan þá. Er það von Heilbrigðisnefndar að áfram verið unnið að endurskoðun reglugerðarinnar í ljósi þeirra athugasemda sem bárust. Enda mikilvægt fyrir heilbrigðisnefndir að reglugerðin verði endurskoðuð sem fyrst og að sú vinna skili sér í skilvirkara eftirliti og skýrari leiðbeiningum ekki eingöngu til eftirlitsaðila heldur einnig almennings og fyrirtækja.

Á síðast liðnu starfsári rann út samningur milli HAUST og UST um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum á starfssvæði HAUST. Þrátt fyrir gott samstarf starfsmanna HAUST og UST, ítrekaðar beiðnir heilbrigðisnefndar til yfirstjórnar UST um aukin eftirlitsverkefni, hefur UST ekki orðið við endurnýjun samninga. Þar með lýkur stórum kafla í sögu HAUST en eftirliti með fiskimjölsverksmiðjum verið sinnt frá árinu 1995. HAUST sinnti með sambærilegum hætti eftirliti með sorpurðunarstöðum á árunum 1998-2019. Það hefur verið skoðun Heilbrigðisnefndar að skilvirkara sé að eftirliti sé sinnt úr nærumhverfinu og hefur flutningi verkefna frá sveitarfélögum yfir til ríkisstofnana verið mótmælt.

Lítið hafði frést af vinnu á vegum umhverfis, orku og loftslagsráðuneytisins um endurskoðun á eftirlitskerfi með matvælum, mengunarvörnum og hollustuháttum í kjölfar greiningar á opinberu eftirliti sem KPMG framkvæmdi árið 2020. Í síðustu viku bar þó til tíðinda þegar Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra skipaði starfshóp um fyrirkomulag eftirlits í samráði við matvælaráðuneytið og skal starfshópur skila tillögum til ráðherra fyrir 1. mars 2023. Samráðshópnum er ætlað að hafa samráð við hagaðila og viðkomandi stofnanir og mun HAUST ekki skorast þar undan verði eftir því leitað.

pdfFundargerð á PDF með skýrslu stjórnar