Skýrsla stjórnar HAUST á aðalfundi 2021

Sú Heilbrigðisnefnd sem nú situr tók við á aðalfundi byggðasamlagsins haustið 2018 og er því að fara inní sitt síðasta starfsár. Nokkrar mannabreytingar hafa orðið í nefndinni á kjörtímabilinu m.a. í kjölfar sameiningar sveitarfélaga og búferlaflutninga.  Frá síðasta aðalfundi sem fram fór á Borgarfirði í lok október 2020 hafa verið haldnir sex fundir í heilbrigðisnefnd, þar af tveir snertifundir annar á Djúpavogi í vor og hinn á Síreksstöðum í Vopnafirði um miðjan október. Starfið í nefndinni gengur vel og mál eru undantekninga laust afgreidd samhljóða og í sátt

Starfsfólk

Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Austurlands eru sem fyrr 6 í 4,9 stöðugildum. Engar breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi frá síðasta aðalfundi

Rekstur

Byggðasamlagið hefur verið rekið nokkrum rekstararafgangi undanfarin ár og þar af leiðandi hefur verið hægt að endurnýja bifreiðar embættisins án lántöku og einnig er möguleiki á því að mæta óvæntum útgjöldum án þess að leita á náðir aðildarsveitarfélagana. Hins vegar er það ekki hlutverk byggðasamlagsins að skila hagnaði eða safna upp sjóði heldur er gert ráð fyrir því að tekjur standi undir þeirri lögbundnu þjónustu sem embættinu eru ætlað að veita.

Starfsumhverfi

Á árinu óskaði Heilbrigðisnefnd eftir því við Umhverfisstofnun að samningur um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Austurlands yrði endurnýjaður. Jafnframt lýsti nefndin nefndin yfir vilja sínum til að taka að sér aukin eftirlitsverkefni f.h. stofnunarinnar. í svari Umhverfisstofnunar sem barst nýlega kom fram að stofnunin er ekki tilbúin til þess að endurnýja samninginn. Flyst því eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum yfir til Umhverfisstofnunar frá og með næstu áramótum líkt og eftirlit með sorpurðunarstöðum gerði fyrir tveimur árum. þar með lýkur eftirlitsverkefnum HAUST fyrir Umhverfisstofnun en HAUST hefur sinnt eftirliti með Fiskimjölsverksmiðjum frá árinu 1995 og sinnti eftirliti með sorpurðunarstöðum á árabilinu 1998-2019. Það er sárt að horfa á eftir verkefnum flytjast frá sveitarfélögum á landsbyggðinni yfir til ríkisstofnanna á höfuðborgarsvæðinu, ekki síst vegna þess að heilbrigðisnefnd hefur á undanförnum árum og áratugum sýnt mikið frumkvæði í því taka að sér eftirlitsverkefni fyrir hönd ríkisstofnanna.

Nú í haust upplýsti Umhverfis-og auðlindaráðuneytið að vinna við endurskoðun laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir væri hafin og að haft yrði samráð við stjórnvöld og aðra haghafa varðandi vinnuna framundan. Engar upplýsingar hafa hins vegar borist frá ráðuneytinu varðandi vinnu við reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur sem staðið hefur yfir frá árinu 2018 né heldur nýja reglugerð um fráveitur og skólp sem unnið hefur verið að á vegum ráðuneytisins í enn lengri tíma.

Í frétt sem birtist á vef stjórnarráðsins þann 15. september sl. kom fram að á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og Umhverfis- og auðlindaráðuneytis sé hafinn vinna við endurskoðun á eftirlitskerfi með matvælum, mengunarvörnum og hollustuháttum. Fram kemur að fyrirhuguð endurskoðun sé unnin framhald af vinnu KPMG sem á síðasta ári vann greiningu á opinberu eftirliti að beiðni ráðneytanna tveggja.

Ekki liggur enn fyrir í hvað fellst í endurskoðun laganna eða eftirlitskerfisins og hvaða áhrif boðuð endurskoðun hefur á starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Sú skoðun Heilbrigðisnefndar að best fari á því lögbundnu eftirliti sé sinnt úr nærumhverfinu í stað þess að þenja út miðlægar eftirlitsstofnanir. Undir þetta sjónarmið tók umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í nefndaráliti um fyrirhugaðar breytingar á lögun nr. 7/1998 á 150. löggjafarþingi en þar segir orðrétt „Nefndin telur að best fari á því að eftirlit fari fram sem næst starfsemi hverju sinni en hlutverk stofnana ríkisins sé að huga að samræmingu og veita aðstoð þegar með þarf. Þar verði hugað að því hvernig þekking í nærumhverfi nýtist sem best, samskipti við stjórnvöld og upplýsingagjöf sé sem aðgengilegust og atvinnustarfsemi búi við sambærilegar aðstæður óháð staðsetningu um landið“.

pdfFundargerð á PDF með skýrslu stjórnar