Starfið í Heilbrigðisnefnd

Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir sex fundir í heilbrigðisnefnd þar af fimm fjarfundir auk þess sem  nefndin kom saman til fundar á Eskifirði í vor. Yfirleitt hefur nefndin hist tvisvar á ári en vegna Covid-19 var fyrirhugaður fundur nefndarinnar á Egilsstöðum nú í haust haldin í gegn um fjarfundarbúnað. 

Starfið innan nefndarinnar hefur gengið vel og undantekningalaust eru þau mál sem rata inn á nefndarfundi afgreidd samhljóða og í sátt. Undanfarin ár hafa málefni tveggja starfsstöðva á svæðinu ítrekað verið til umfjöllunar í Heilbrigðisnefnd vegna frávika frá kröfum sem settar eru grunni laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Heilbrigðisnefnd hefur beitt þeim vægu þvingunarúrræðum sem löggjöfin heimilar með takmörkuðum árangri til þessa. Núna er hinsvegar ekki loku fyrir það skotið að fullnægjandi úrbótum verði lokið í báðum tilfellum á næstu vikum.

Þrátt fyrir að heilbrigðisnefnd í núverandi mynd hafi aðeins starfað í tvö ár verða gerðar breytingar á henni hér í dag,  í kjölfar sameiningar fjögurra aðildarsveitarfélaga í Múlaþing. Ljóst er að þau Davíð Þór Sigurðarson varformaður og Aðalheiður Borgþórsdóttir láta af nefndarsetu. Hið sama má segja um Lovísu Rósu Bjarnadóttur sem upphaflega var varamaður í nefndinni en hefur setið flesta fundi núverandi nefndar. Eru þeim þökkuð störf í þágu Heilbrigðisnefndar Austurlands

Starfsfólk

Starfmenn HAUST eru 6, þar af 5 fastráðnir og einn í afleysingum, stöðugildin eru 4,4. Segja má að nú á haustmánuðum sé útlit fyrir að nokkur stöðugleiki sé að færast yfir starfsmannahaldið en undanfarin ár hafa einkennst að fæðingarorlofum starfsmanna og þá létu tveir reynsluboltar þau Helga Hreinsdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri og Hákon Hansson  heilbrigðisfulltrúi á Breiðdalsvík af störfum á síðasta ári.

Fjárhagur

Byggðasamlagið hefur verið rekið með nokkrum rekstarafangi undanfarin þrjú ár og er fjárhagur þess því nokkuð traustur. Þar leiðandi hefur verið unnt að endurnýja bifreiðar embættisins og mæta óvæntum útgjöldum án lántöku eða með því að leita á náðir aðildarsveitarfélaga.

Starfsumhverfi

Um áratugaskeið hefur HAUST haft með höndum eftirlit með starfsemi sorpurðunarstaða og fiskimjölsverksmiðja f.h. Umhverfisstofnunnar skv. sérstökum samningi þar um. Í lok síðasta árs kom í ljós að stofnunin var ekki tilbúin að endurnýja þann hluta samningsins sem tekur til urðunarstaðanna og fluttist því eftirlitið með þeim yfir til Umhverfisstofnunnar frá og með áramótum þrátt fyrir ítrekuð samtöl við forstjóra Umhverfisstofnunar. Það er sárt að horfa á eftir verkefnum flytjast frá sveitarfélögum á landsbyggðinni og yfir til ríkisstofnanna á höfuðborgarsvæðinu ítrekað á síðustu árum. Það er ennþá sárar í ljósi þess að ítrekað hefur það verið rætt við stjórnvöld og þingmenn um þann möguleika að framselja verkefni heim í hérað en þau samtöl virðast litlu skila í verki.

Enn er unnið að reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur og gera drög að reglugerðinni ráð fyrir því að hún taki gildi í ársbyrjun 2021. Ólíklegt verður að teljast að af því verði m.a. vegna þess að starfsskilyrði sem reglugerðin gerir ráð fyrir að gildi um þá starfsemi sem reglugerðin tekur til hafa ekki verið útbúin. Bent hefur verið að verði drögin samþykkt í óbreyttri mynd að reglugerð komi það til með að auka flækjustig verulega, auk þess að flytja verkefni, fjármagn og ákvörðunarvald frá sveitarfélögum til ríkisstofnunnar.

Í vor framkvæmdi KPMG greiningu á opinberu eftirliti sem unnið er skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um matvæli. Greining þessi var unnin að beiðni Umhverfis- og auðlindaráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, þar sem ráðuneytunum höfðu borist ábendingar varðandi núverandi fyrirkomulag eftirlits. Í kjölfar úttektarinnar munu ráðuneytin leggja mat á það hvort þörf sé á endurskoðun núverandi kerfis. Engin viðbrögð hafa enn borist frá ráðuneytunum vegna skýrslunnar sem var skilað í maí sl. og því ekki ljóst hvort vænta megi stefnubreytingar í málaflokknum.

Að venju er að lokum vakin athygli á þeirri skoðun Heilbrigðisnefndar Austurlands að Heilbrigðiseftirlit Austurlands sé vel í stakk búið til að taka að sér frekari verkefni fyrir hönd ríkisstofnana. Enda er það allra hagur, ekki síst umhverfisins að verkefnum á borð við þau sem um ræðir sé sinnt úr nærumhverfinu.

pdfFundargerð á PDF með skýrslu stjórnar