Heilbrigðisnefndin

Frá síðasta aðalfundi HAUST hefur Heilbrigðisnefnd Austurlands sem jafnframt er stjórn byggðasamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands haldið sex fundi. Þar af voru fjórir símafundir þá hittist nefndin á fundi á Seyðisfirði í vor og aftur hér á Egilsstöðum nú í haust. Sú heilbrigðinefnd sem formlega lætur af störfum síðar á þessum fundi hefur verið að mestu óbreytt frá því hún tók við á aðalfundi fyrir fjórum árum þó létu aðalmenn Vopnfirðinga og Hornfirðinga af störfum á miðju kjörtímabili og varamenn tóku þeirra sæti. Samkvæmt stofnsamningi um rekstur HAUST tekur ný nefnd til starfa á fyrsta aðalfundi eftir „hverjar reglulegar“ sveitarstjórnarkosningar. Það liggur fyrir að þrír aðalmenn af sjö láta í dag af störfum í nefndinni. Andrés Skúlason hefur verið fulltrúi Djúpavogs frá árinu 2006 eða í 12 ár, Árni Kristinsson tók sæti í nefndinni í upphafi árs 2008 á því 10 ára setu að baki, allan þann tíma sem varaformaður, þá verður Sandra Konráðsdóttir fulltrúi Vopnfirðinga varamaður í nýrri nefnd en hún hefur verið aðalmaður frá því haustið 2015.

Starfsfólk

Hjá HAUST starfa nú 6 starfmenn í 4,6 stöðugildum.

Helga Hreinsdóttir sem gengt hefur stöðu framkvæmdastjóra HAUST frá árinu 1994 fékk að eigin ósk ársleyfi frá framkvæmdastjórastöðunni í febrúar sl. og hefur síðan þá starfað sem heilbrigðisfulltrúi í 80% starfi. Leifur Þorkelsson hefur sinnt framkvæmdastjórastöðunni í fjarveru Helgu og Lára Guðmundsdóttir hefur verið hans staðgengill.

Helga hefur nú sagt starfi framkvæmdastjóra lausu en jafnframt óskað eftir áframhaldandi starfi sem heilbrigðifulltrúi í hlutastarfi, þar til hún fari að notfæra sér rétt til eftirlauna. Eitt af fyrstu verkum nýrrar Heilbrigðinefndar verður því að ráða framkvæmdastjóra, nokkuð sem ekki er daglegt brauð hjá nefndinni.

Fjárhagur

Í tíð núverandi stjórnar var mörkuð sú stefna að reka byggðasamlagið hallalaust og láta tekjur standa undir kostnaði. Þetta hefur gengið eftir og undanfarin ár hefur verið lítilsháttar rekstarafgangur árlega. Byggðasamlagið hefur því safnað lítilsháttar sjóði og var þar af leiðandi í stakk búið að mæta óvæntum útgjöldum s.s. uppgjöri vegna jöfnunar lífeyrisréttinda.

Starfsumhverfi

Breytingar voru gerðar á lögum um matvæli á vorþingi og taka breytt lög gildi í upphafi næsta árs. Breytingarnar gera m.a. ráð fyrir því að heilbrigðiseftirlitið skrái og birti upplýsingar á sama hátt og Matvælastofnun. Nokkuð sem ætti að vel framkvæmanlegt í tilfelli HAUST en við höfum haft aðgang og notað eftirlitskerfi Matvælastofnunnar undanfarin ár. Með lagabreytingunni er einnig gert ráð fyrir fastmótaðra samstarfi Matvælastofnunar og Heilbrigðisnefnda.

Breytt lög um hollustuhætti og mengunarvarnir tóku gildi í sumar. Í breyttum lögum er nú m.a. ákvæði sem heimilar ráðherra að setja reglugerð þar sem starfsleyfisskylda ákveðinna fyrirtækjaflokka verður afnumin og í stað þess tekin upp skráningarskylda. Þessi breyting var harðlega gagnrýnd, bæði af hálfu heilbrigðisnefnda og Sambandi Íslenskra sveitarfélaga sem benti m.a.á í umsögn sinni að með þessari útfærslu skapaðist óvissa um möguleika sveitarfélaga og heilbrigðisnefnda til að synja fyrirtæki um leyfi til að hefja mengandi atvinnurekstur í eða við íbúabyggð og jafnvel í bága við skipulag sveitarfélaga.

Enn er rétt að vekja athygli á þeirri skoðun Heilbrigðisnefndar Austurlands að nefndin og starfmenn hennar séu vel í stakk búin til að taka við frekari verkefnum frá ríkisstofnunum og að við teljum þau eiga betur heima í héraði.

pdfDOWNLOAD - Fundargerð aðalfundar 2018 ásamt skýrslu stjórnar