Stefán Þór Eysteinsson, formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands, bauð fundarmenn velkomna og tilnefndi Þórð Vilberg Guðmundsson sem fundarstjóra og Elínborgu S. Pálsdóttur fundarritara. Ekki komu fram aðrar tillögur og töldust þau þar með rétt kjörin.
Fundarstjóri tók við stjórn fundarins og lýsti yfir að boðað hefði verið til fundarins í samræmi við samþykkt byggðasamlagsins. Hann kallaði eftir því hvort gerðar væru athugasemdir við lögmæti fundarins eða boðun hans. Engar athugasemdir komu fram.
Hluti fulltrúa tók þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Fjölda atkvæða á aðalfundi og nöfn viðkomandi fulltrúa sveitarfélaga, voru skv. eftirfarandi.
Fundarmenn:
|
Sveitarfélag |
Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2023 |
Fulltrúar á aðalfundi 2023 |
|
Vopnafjarðarhreppur |
3 |
Sandra Konráðsdóttir |
|
Fljótsdalshreppur |
1 |
Jónína Brynjólfsdóttir |
|
Múlaþing |
16 |
Jónína Brynjólfsdóttir og Helgi Hlynur Ásgrímsson |
|
Fjarðabyggð |
16 |
Stefán Þór Eysteinsson |
|
Hornafjörður |
8 |
Gunnhildur Imsland |
Fulltrúar í heilbrigðisnefnd sem sátu fundinn án atkvæðisréttar: Benedikt Jóhannsson
Starfsfólk sem sat fundinn án atkvæðisréttar: Elínborg S. Pálsdóttir og Lára Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri.
Aðrir sem sátu fundinn: Jóna Árný Þórðardóttir
Á dagskrá fundarins voru eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2022
- Umræða um liði 1 og 2
- Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
- Gjaldskrá HAUST
- Umræður um liði 4 og 5
- Breytingar á heilbrigðisnefnd
- Skýrsla starfshóps um fyrirkomulag eftirlits
- Önnur mál
1. Skýrsla stjórnar
Stefán Þór Eysteinsson flutti skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan fundargerðinni.
2. Ársreikningur 2022 lagður fram
Lára Guðmundsdóttir kynnti ársreikning 2022. Reikningurinn er endurskoðaður af KPMG. Ársreikningurinn var tekinn fyrir hjá heilbrigðisnefnd á fundi 5.10.2023 og þá afgreiddur til aðalfundar.
|
Niðurstaða ársreiknings 2022 |
Áætlun 2023 |
|
|
Tekjur |
90.016.497,- |
90.493.796,- |
|
Gjöld |
88.185.946,- |
88.895.314,- |
|
Niðurstaða |
1.861.348,- |
-1,518,- |
3. Umræður um liði 1 og 2
Til máls tóku: Stefán Þór, Benedikt, Jónína, Helgi Hlynur og Jóna Árný.
Að umræðu lokinni bar fundarstjóri ársreikninginn upp til atkvæðagreiðslu og var hann samþykktur samhljóða.
4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
Lára Guðmundsdóttir kynnti fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Drög að henni voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar 5.10.2023. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að tímagjald hækki um 8,84% og að íbúaframlag sveitarfélaga verði áfram 25%.
5. Gjaldskrá HAUST
Lára Guðmundsdóttir kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá HAUST. Tillagan gerir ráð fyrir að upphæðir í nýrri gjaldskrá verði eftirfarandi:
|
Gjaldskrárbreytingar |
|||
|
Nr.8/2023 |
Tillaga 2023 |
Breyting |
|
|
Tímagjald |
14.700 |
16.000 |
8,84% |
|
Vatnssýni |
30.000 |
31.500 |
5,00% |
|
Önnur sýni |
22.000 |
23.000 |
4,55% |
|
Ný starfsleyfi |
28.000 |
30.000 |
7,14% |
|
Endurnýjuð starfsleyfi |
21.000 |
22.500 |
7,14% |
6. Umræður um liði 4 og 5
Til máls tóku: Benedikt og Lára
Að umræðu lokinni bar fundarstjóri gjaldskránna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða. Að því loknu var fjárhagsáætlun komandi starfsárs einnig borin upp og samþykkt samhljóða.
7. Breytingar á heilbrigðisnefnd
Breyting á varamönnum heilbrigðisnefndar var kynnt, Kristjana Sigurðardóttir og Ólafur Áki Ragnarsson víkja sem varamenn. Auk þess var Auður Anna Ingólfsdóttir tilnefnd sem varamaður fyrir fulltrúa atvinnurekenda. Heilbrigðisnefnd Austurlands er því nú þannig skipuð:
|
Aðalmenn: |
Stefán Þór Eysteinsson, Fjarðabyggð |
|
Jónína Brynjólfsdóttir, Múlaþingi |
|
|
Helgi Hlynur Ásgrímsson, Múlaþingi Anna Ragnarsdóttir Pedersen, Hornafirði |
|
|
Sandra Konráðsdóttir Vopnafirði |
|
|
F.h. atvinnurekenda |
Benedikt Jóhannsson |
|
F.h. náttúruverndarnefnda |
Kristín Ágústsdóttir |
|
Varamenn: |
Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Fjarðabyggð |
|
Þórhallur Borgarsson, Múlaþingi |
|
|
Jóhann Hjalti Þorsteinsson, Múlaþingi Janine Arens, Hornafirði |
|
|
Guðni Jónsson, Fljótsdalshreppi |
|
|
F.h. atvinnurekenda |
Auður Anna Ingólfsdóttir |
|
F.h. náttúruverndarnefnda |
Gunnhildur Imsland |
8. Skýrsla starfshóps um fyrirkomulag eftirlits
Lára Guðmundsdóttir kynnti skýrslu starfshóps um fyrirkomulag eftirlits. Niðurstaða starfshópsins er að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga yrði lagt niður í þeirri mynd sem það er í dag og að eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum verði fært yfir til ríkisins. Þar sem boðuð er veigamikil tilfærsla á verkefnum sveitarfélaga til ríkisins lagði framkvæmdastjóri áherslu á að fulltrúar sveitarfélagana fjalli um skýrslu starfshóps í sínum sveitarstjórnum.
Til máls taka: Helgi Hlynur, Jóna Árný, Benedikt, Stefán, Jónína, Sandra og Gunnhildur.
Aðalfundur vísar málinu til heilbrigðisnefndar til frekari umræðu.
9. Önnur mál
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 14:57.
Í lok fundar var fundarstjóra og framkvæmdastjóra falið að ganga endanlega frá fundargerð og staðfesta hana með undirritun sinni.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
