Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningar 2010 lagðir fram
- Umræða um liði 1 og 2
- Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár 2012
- Tillaga um breytingu á gjaldskrá HAUST
- Umræður um liði 4 og 5
- Kjörinn löggiltur endurskoðandi
- Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
- Fráveitumál sveitarfélaga – staða mála hjá sveitarfélögum á starfssvæði HAUST
- Önnur mál
Mætt:
Úr Heilbrigðisnefnd:
Valdimar O. Hermannsson
Árni Kristinsson
Andrés Skúlason
Aðrir:
Bjarni Sveinsson
Haukur Ingi Einarsson
Jóhann Eðvald Benediktsson
Gunnþórunn Ingólfsdóttir
Kristín Ársælsdóttir
Vilhjálmur Jónsson
Starfsmenn:
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson
Hákon Hansson
Borgþór Freysteinsson
Valdimar O. Hermannsson, formaður heilbrigðisnefndar, setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Fundarstjóri var kosinn Hákon Hansson og ritari Leifur Þorkelsson
Farið var yfir hverjir færu með umboð sveitarfélaganna skv. tilnefningum til HAUST ýmist með kjörbréfum eða tölvupósti.
Fulltrúar eftirfarandi sveitarfélaga fóru með atkvæði sem hér segir:
|
Sveitarfélag |
íbúafjöldi 2011 (skv. heimasíðu Hagstofu 3.10.2011) |
Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2011 |
Nafn fulltrúa sem fer með atkvæði sveitarfélags: |
|
Vopnafjarðarhreppur |
668 |
3 |
Andrés Skúlason |
|
Fljótsdalshreppur |
80 |
1 |
Gunnþórunn Ingólfsdóttir |
|
Fljótsdalshérað |
3.401 |
11 |
Árni Kristinsson |
|
Seyðisfjarðarkaupstaður |
668 |
3 |
Vilhjálmur Jónsson |
|
Borgarfjarðarhreppur |
141 |
1 |
Bjarni Sveinsson |
|
Fjarðabyggð |
4.583 |
14 |
Jóhann Eðvald Benediktsson |
|
Breiðdalshreppur |
199 |
1 |
Kristín Ársælsdóttir |
|
Djúpavogshreppur |
447 |
3 |
Andrés Skúlason |
|
Hornafjörður |
2.119 |
7 |
Haukur Ingi Einarsson |
|
Samtals: |
12.306 |
43 |
|
Fundarstjórinn kynnti dagskrá og síðan var gengið til fundarstarfa.
1. Skýrsla stjórnar
Valdimar O. Hermannsson, formaður heilbrigðisnefndar, flutti skýrslu stjórnar. Skýrslan fylgir fundargerðinni.
2. Ársreikningar 2010 lagðir fram
Helga Hr., framkvæmdastjóri, kynnti ársreikningana sem höfðu verið yfirfarnir og áritaðir af skoðunarmönnum, endurskoðaðir af KPMG og afgreiddir til aðalfundar á 98. fundi Heilbrigðisnefndar þann 14.9.2011.
Helstu niðurstöðutölur ársreiknings 2010 í samanburði við áætlun (í þúsundum króna):eru sem hér segir:
|
Rekstartekjur: |
44.656 |
áætlun: 42.525 |
|
Rekstargjöld: |
43.603 |
áætlun 42.343 |
|
Mism tekna og gjalda |
1.052 |
182 |
|
Hagnaður ársins |
1.168 |
182 |
3. Umræða um liði 1 og 2 skýrslu stjórnar og ársreikninga 2010
Rætt um tvö frumvörp sem fram eru komin varðandi breytingar á matvælalögum. Að mati starfsmana HAUST er mikilvægt að breytingar á lögunum verði ekki til þess að heilbrigðiseftirlit geti ekki haft aðkomu af heimabakstri og veitt leiðbeiningar varðandi framleiðslu matvæla í heimahúsum. Allir sammála því að leyfa eigi sölu á einföldum matvælum framleiddum í heimahúsum en hinsvegar er það mat manna að breytingarnar megi ekki ganga of langt.
Fram kom í svari framkvæmdastjóra að ekki sé útilokað að HAUST fari með eitthvað eftirlit fyrir hönd Umhverfisstofnunnar á næsta ári en ekkert sé þó í hendi og ekki er búið að ganga frá samningum þar að lútandi.
Rætt var um mikilvægi þess að eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum og sorpurðunarstöðum verði áfram hjá HAUST bæði vegna þess að HAUST hefur tekjur af eftirlitinu og eins vegna þess að kostnaður þeirra fyrirtækja sem um ræðir yrði hærri en nú er ef eftirlitið yrði flutt af svæðinu.
Ársreikningar fyrir árið 2010 voru bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða
4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár 2012
Leifur fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði.
Drög að fjárhagsáætlun 2012 voru til umfjöllunar á 98. fundi heilbrigðisnefndar þann 14.9.2011. Á þeim fundir voru drögin samþykkt og afgreidd til aðalfundar:
Helstu breytingar eru að gert er ráð fyrir hækkun gjaldskrár og að verkefni sem HAUST hefur unnið fyrir Umhverfisstofnun falli nú niður, enda hefur Umhverfisstofnun sagt upp samningum þar um.
Helstu niðurstöðutölur eru:
|
|
|
|
Rekstartekjur alls |
45.915 þús |
|
Þar af íbúaframlag |
12.847 þús |
|
Rekstrargjöld |
45.902 þús |
|
Mismunur |
13 þús |
5. Tillaga um breytingu á gjaldskrá HAUST
HHr kynnir ástæður gjaldskrárbreytinga á sama grunni og gert var á fundi heilbrigðisnefndar þann 14.9. sl. Heilbrigðisnefnd samþykkti þá tillögur starfsmanna og vísaði þeim til aðalfundar.
Ástæðan fyrir nauðsyn á breytingum á gjaldskránni er tvíþætt:
- Breyta þarf gjaldskrá HAUST skv. leiðbeiningum frá lögfræðingum MAST. Í kjölfar þess að forsjá matvælaeftirlits var fært til MAST og lögum breytt þar að lútandi er lagagrunnur fyrir innheimtu gjalda ekki aðeins í hollustuháttalögum nr. 7/1998 fyrir heldur einnig í matvælalögum nr. 93/1995.
- Einnig verður að hækka gjaldskrá HAUST vegna hækkandi verðlags almennt, ekki síst aukins kostnaðar við akstur, hækkandi rannsóknakostnað, nýja kjarasamninga o.fl.
Eftirfarandi tillaga starfsmanna um grunntölur í gjaldskránni er þessi:
| Tímagjald HAUST | verði kr. 9.400,- |
| Gjald vegna rannsókna skv. eftirlitsáætlun | verði kr. 12.500,- |
6. Umræður um lið 4 og 5 fjárhagsáætlun 2012 og breytingu á gjaldskrá.
Til máls tóku:
Jóhann Eðvald, Gunnþórunn, Andrés, Helga, Valdimar, Haukur, Vilhjálmur
Nokkur umræða varð um breytingar á gjaldskrá og meðal annars var rætt um hvort unnt væri að halda íbúaframlagi óbreyttu á milli ára. Bent var á að frá því að fjárhagsáætlunin var gerð hefur rannsóknarstofa Matís boðað 7% hækkun á gjaldskrá sinni. Einnig kom fram að rekstur sveitarfélaga væri erfiður og þau væru mörg hver illa í stakk búin til þess að taka á sig miklar hækkanir.
Gjaldskrá og fjárhagsáætlun voru bornar undir atkvæði og voru gjaldskrárbreytingar samþykktar án mótatkvæða, einn sat hjá.
Fjárhagsáætlun ársins 2012 var samþykkt samhljóða.
7. Kjörinn löggiltur endurskoðandi
Í samræmi við ákvörðun Heilbrigðisnefndar á fundi í sept. sl. óskaði frkvstj. tilboða frá tveim stærstu endurskoðendafyrirtækjum á svæðinu.
Eftirfarandi tilboð bárust:
| KPMG | 355.300 án vsk |
| Deloitte | 400.000 án vsk en krafa um 3ja ára samning |
Formaður og framkvæmdastjóri leggja til að lægra tilboði verði tekið.
8. Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
Samþykkt var tillaga um sömu skoðunarmenn reikninga og verið hafa, þ.e. Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Stefán Bragason, bæjarritari Fljótsdalshéraðs.
Einnig var samþykkt samhljóða tillaga um sömu varamenn og sl. ár, þ.e. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti í Fljótsdalshreppi og Páll Baldursson sveitarstjóri Breiðdalshrepps.
9. Fráveitumál sveitarfélaga.
HHr gerir grein fyrir ástandinu í fráveitumálum á svæðinu. Innan við helmingur íbúa á Austurlandi býr við fráveitur sem uppfylla ákvæði laga og reglugerða þar um. Í kjölfar erindis Helgu Hr, var rætt um fyrirkomulag fráveitumála í sveitarfélögum á svæðunum og fulltrúar nokkurra þeirra ræddu um hugmyndir sem uppi eru varðandi úrbætur í fráveitumálum.
Fundi slitið kl. 15:45
Fundargerðina staðfesta:
Hákon Hansson, fundarstjóri
Leifur Þorkelsson, fundarritari
Fundargerð aðalfundar - pdf
