Mætt:
Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Ólafur Hr. Sigurðsson, Benedikt Jóhannsson og Kristín Ágústsdóttir.
Starfsmenn viðstaddir:  Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson

Dagskrá: 

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi   551
  2. Tóbakssöluleyfi   554
  3. Málefni einstakra fyrirtækja. 554
    3.1  Landsvirkjun og Landgræðslan v efnanotkunar við jarðvegsbindingu. 554
  4. Erindi og bréf 554
    4.1  Kauptún ehf á Vopnafirði, Árni Róbertsson, dags. 7.2.2011. 554
    4.2 Umhverfisstofnun dags. 27.1.2011: Ræktun á erfðabreyttu byggi. 555
  5. Gamlar fundargerðarbækur 555
  6. Framsalsmál 555
  7. Málefni minni vatnsveitna. 555
  8. Innri mál HAUST. 556
    8.1 Bráðabirgðauppgjör ársins 2010. 556
    8.2 Bílamál 556
  9. Næstu fundir 556
  10. Önnur mál 557
    10.1 Fundur SHÍ á Akureyri 8.2.2011. 557

Formaður setur fund.

Fundarmenn óskuðu Andrési Skúlasyni til hamingju með þá viðurkenningu sem nýtt aðalskipulag Djúpavogshrepps hefur fengið og lýstu ánægju sinni með það mál allt.

1        Bókuð útgefin starfsleyfi
690 Vopnafjarðarhreppur

a)     Valgerður H. Friðriksdóttir, kt. 290430-3139.  Tímabundið starfsleyfi til að framleiða sultur í eldhúsi Árhvamms, veiðihúss, 690 Vopnafjörður.  Leyfi útgefið 16.12.2010.
b)    Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569.  Tímabundið starfleyfi fyrir áramótabrennur.  Tímabundið starfsleyfi fyrir áramótabrennu við Búðaröxl.  Leyfið nær til brennu ár hvert á gamlárskvöld árin 2010-2014 að báðum meðtöldum.  Ábyrgðarmaður: Hilmar Jósefsson, kt. 090948-2379.  Leyfi útgefið 23.12.2010
c)     Kolbrún Steingrímsdóttir, kt.  140761-2149. Tímabundið starfsleyfi f.h. Þorrablótsnefndar Vopnafjarðarhrepps kt.  710269-5569 fyrir Þorrablót í Miklagarði þann 22.1.2011. Leyfi útgefið 11.1.2011. 

700-701 Fljótsdalshérað
d)    Jónína Zóphaníasdóttir, kt. 280249-4089.  Nýtt starfsleyfi vegna  framleiðslu og pökkunar á jurtasmyrslum á Arnhólsstöðum í Skriðdal, 701 Egilsstaðir.  Leyfi útgefið 15.12.2010.
e)     Myndsmiðjan ehf., kt. 500889-1019. Endurnýjað starfsleyfi fyrir ljósmyndaþjónustu, Dynskógum 4, 700 Egilsstaðir.  Leyfi útgefið 17.12.2010.
f)     Anna Fía Emilsdóttir, kt.  230551-3169. Starfsleyfi/endurnýjun fyrir sölu á gistingu að Kaupvangi 41, 700 Egilsstöðum. Um er að ræða sölu á gistingu í tveggja herbergja íbúð fyrir allt að 4 gesti. Leyfið útgefið 21.12.2010.
g)     Miðás hf., kt. 570890-1079. Starfsleyfi fyrir trésmíðaverkstæðiMiðási 9. Starfsleyfi útgefið 21.12.2010.
h)    Móðir Jörð ehf., kt. 510510-1000. Starfsleyfi fyrir matvælaframleiðslu, sölu á gistingu og vatnsveituVallnesi. Starfsleyfi útgefið 22.12.2010.
i)      Björgunarsveitin Hérað, kt. 481199-2989.  Tímabundið starfsleyfi fyrir áramótabrennur á Egilsstaðanesi, neðan við Egilsstaðakirkju á Blómabæjarreit. Leyfið nær til brennu ár hvert á gamlárskvöld árin 2010-2014 að báðum meðtöldum.    Ábyrgðarmaður er Kjartan Benediktsson, s. 896 7320.  Leyfi útgefið 27.12.2010
j)      Broddi B. Bjarnason, kt.  200150-3849. Tímabundið starfsleyfi fh. Þorrablótsnefndar Egilsstaða fyrir Þorrablót haldið á Bóndadag 21.1.2011 í Íþróttamiðstöð Egilsstaða. Leyfið útgefið 29.12.2010.
k)    Isavia ohf., kt. 550210-0370.  Breytt og endurnýjað starfsleyfi fyrir.  alþjóðaflugvöll með eldsneytisafgreiðslu á Egilsstaðaflugvelli. Leyfi útgefið 11.1.2011.
l)      Mjólkursamsalan ehf.. kt. 540405-0340.  Breyting á starfsleyfi vegna mjólkurstöðvar að Kaupvangi 39, 700 Egilsstaðir.  Leyfi eingöngu vegna mengunarvarna en ekki vegna matvælaframleiðslu eins og verið hefur. Leyfi útgefið 13.1.2011.
m)   Steindór Jónsson ehf., kt. 601299-3139. Breyting á starfsleyfi fyrir veitingastaðinn Kaffi Egilsstaðir, Kaupvangi 17. Veitt er leyfi fyrir flutningi matvæla til viðbótar við fyrra leyfi útgefið 4.6.2010. Starfsleyfi breytt 14.1.2011.
n)    Hugi Guttormsson, kt.  271072-5389. Tímabundið starfsleyfi fh. Þorrablótsnefndar í Fellum fyrir Þorrablót haldið  28.1.2011 í Fjölnotahúsinu, Smiðjuseli 2, Fellum. Leyfið útgefið 18.1.2011
o)    Anna V. Hjaltadóttir kt. 240549-7199. Tímabundið starfsleyfi f.h. Þorrablótsnefndar Valla- og Skóga fyrir Þorrablót haldið að Iðavöllum þann 29.1.2011. Leyfið útgefið 19.1.2011.
p)    Jón R. Karlsson, kt  201146-7399. Tímabundið starfsleyfi f.h. Þorrablótsnefndar Skriðdals fyrir Þorrablót haldið að Arnhólsstöðum 12.2.2011. Leyfið útgefið 19.1.2011
q)    Ágústína Hlíf Traustadóttir, kt.  070948-6809. Starfsleyfi/endurnýjun vegna Nuddstofu Hlífar, Ranavaði 5, 700 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 25.1.2011.
r)     Stefán Jónsson, kt.110456-3449, Haugum, 701 Egilsstaðir. endurnýjað starfsleyfi fyrir vatnsveituHaugum í Skriðdal. Leyfi útgefið 27.1.2011
s)     Jónas Þór Jóhannsson, kt.  110749-4069. Tímabundið starfsleyfi f.h. Þorrablótsnefndar Hlíðarmanna og Jökuldælinga, haldið í Brúarási þann 5.3.2011. Leyfi útgefið 2.2.2011.
t)     Fljótsdalshérað, kt.  481004-3220. Starfsleyfi fyrir Félagsheimilið Hjaltalund, Hjaltalundi, 701 Egilsstaðir. Um er að ræða samkomuhús/félagsheimili með móttökueldhúsi og vatnsveitu sem þjónar aðstöðunni. Leyfið útgefið 8.2.2011

701 Fljótsdalshreppur
u)    Gunnar Jónsson, kt. 181148-3739. Tímabundið starfsleyfi f.h. þorrablótsnefndar Fljótsdalshrepps kt. 690269-6009 fyrir Þorrablót í Végarði.5.2.2011. Leyfið útgefið 17.1.2011.

710 Seyðisfjörður
v)    Seyðisfjarðarkaupstaður, kt. 560269-4559.  Endurnýjun starfsleyfis fyrir áhaldahús Seyðisfjarðarkaupstaðar, Ránargötu 2, 710 Seyðisfjörður.  Leyfi útgefið 17.12.2010. 
w)   Rúnar Reynisson, kt.  010160-5539. Tímabundið starfsleyfi f.h. Þorrablótsnefndar Seyðisfjarðar kt. 680394-2109 vegna Þorrablóts í Íþróttahúsi Seyðisfjarðar þann 22.1.2011. Leyfið útgefið 12.1.2011.

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
x)     Fjarðarblikk ehf., kt 520603-2550. Starfsleyfi fyrir blikkmiðjuHjallaleiru 15, Starfsleyfi útgefið 21.12.2010.
y)    Sigurjón Baldursson, kt.  300953-2049. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót í Íþróttahúsinu Reyðarfirði á bóndadag 21.1.2011. Leyfið útgefið 4.1.2011.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
z)    Björgunarsveitin Brimrún, kt. 710186-1389.  Tímabundið starfsleyfi áramótabrennu sunnan Eskifjarðar, ofan vegar, í nánd við gömlu steypustöðuna.  Leyfið nær til brennu ár hvert á gamlárskvöld árin 2010-2014 að báðum meðtöldum.  Ábyrgðarmaður: Bjarni Freyr Guðmundson, kt. 060673-519.  Leyfi útgefið 16.12.2010.
aa)  Benjamín Steinarsson, kt. 190473-3419.  Tímabundið starfsleyfi dagana 4.-8. 2.2011 fyrir húðflúr og götun, í húsnæði Björgunarsveitarinnar að Strandgötu 11. Leyfi útgefið 4.2.2011.

740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
bb) Torgið ehf., kt. 661110-0310. Starfsleyfi fyrir veitinga og skemmtistaðEgilsbraut 19, Neskaupstað. Starfsleyfi útgefið 17.12. 2010 .
cc)  Björgunarsveitin Gerpir, kt. 550579-0499.  Tímabundið starfleyfi fyrir áramótabrennu neðan við Skógræktina í Neskaupstað. Leyfið nær til brennu ár hvert á gamlárskvöld árin 2010-2014 að báðum meðtöldum.  Ábyrgðarmaður: Þorvaldur Einarsson, kt. 280480-5259.  Leyfi útgefið 23.12.1010.
dd) Skúli G. Hjaltason kt.  261053-5279. Tímabundið starfsleyfi f.h. þorrablótssjóðs Norðfjarðar fyrir þorrablót sveitamanna haldið þann 22.1.2011 í Egilsbúð Neskaupstað. Leyfið útgefið 20.1.2011.
ee)  Guðmundur R. Gíslason kt. 190270-2979. Tímabundið starfsleyfi f.h. Alþýðubandalagsins í Neskaupstað fyrir þorrablót „Kommablót“ haldið þann 29.1.2011 í Egilsbúð Neskaupstað. Leyfið útgefið 24.1.2011.

780-781 Hornafjörður
ff)   AJTEL-ICELAND ehf., kt. 560908-0670. Nýtt starfsleyfi fyrir niðurlagningu sjávarafurðaÓfeigstanga 9. Starfsleyfi útgefið 7.12.2010.
gg)  N1 hf., kt.  540206-2010. Breyting á starfsleyfi fyrir N1, þjónustustöð, Vesturbraut 1, 780 Höfn. Leyfi útgefið fyrir eldsneytisafgreiðslu og grillskála með þægindavöruverslun og sölu á sælgæti og matvælum m.a. óvörðum matvælum. og annarri nauðsynjavöru sem og merkingaskyldri efnavöru.  Leyfi úrgefið 6.1.2011.
hh) Ari Þorsteinsson, kt. 230358-2499, f.h. Þorrablótsnefndar Hafnar í Hornafirði.  Tímabundið starfsleyfi vegna Þorrablóts í íþróttahúsi Heppuskóla 22.1.2011.  Leyfi útgefið 11.1.2011.
ii)    Freyja ehf., kt. 701280-0169. Starfsleyfi/endurnýjun fyrir sælgætisgerðÁlaugarvegi 1. Leyfi útgefið 11.1.2011.
jj)    Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum ehf., kt. 540301-2120.  Breyting á starfsleyfi fyrir Ferðaþjónustuna að Smyrlabjörgum, 781 Höfn.   Veitt er leyfi fyrir flutningi matvæla til viðbótar við fyrra leyfi útgefið 4.9.2009.. Starfsleyfi breytt 14.1.2011.
kk) Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Hólmslindum Hornafirði. Leyfið útgefið þann 18.1 2011.
ll)    Hestgerði ehf., kt. 561209-1110. Starfsleyfi fyrir litla vatnsveitu að Hestgerði 781 Hornafirði. Leyfi útgefið 8. 2.2011.

2        Tóbakssöluleyfi

735 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
a)     Torgið ehf., kt. 661110-0310. Tóbakssöluleyfi í skemmtistaðnum Rauða Torgið, Egilsbraut 19. Leyfi útgefið 28.1.2011.

780-785 Hornafjörður
b)    Hótel Skaftafell ehf. kt. 650589-1149. Tóbakssöluleyfi í Shellskálanum í Freysnesi, 785 Öræfum. Leyfið útgefið 22.12.2010.
c)     Samkaup hf., kt 571298-3769. Tóbakssöluleyfi í versluninni Nettó, Miðbæ, 780 Höfn. Leyfi útgefið 28.1.2011.


3        Málefni einstakra fyrirtækja

3.1 Landsvirkjun og Landgræðslan v. efnanotkunar við jarðvegsbindingu

Bæði fyrirtækin hafa sent skýrslur um jarðvegsbindingu við Hálslón á sumrinu 2010:

Landsvirkjun, bréf dags. 3.12.2010 og skýrsla um jarðvegsbindingu við Hálslón sumarið 2010.  Í henni er vel farið yfir tilraunir um magn bikþeytu og aðferðafræði við dreifingu til að ná árangri í fokvörnum.

Landgræðslan, bréf dags. 7.12.2010 og. skýrsla um tilraunir með Entac og Lignobond – þ.e. trjákvoðu. Niðurstaðan er að þessi efni þyrfti að nota í mjög miklu magni til að ná markmiðum um verndun gróðurlendis.  Því eru ekki áform um áframhaldandi notkun þeirra.

Lagt fram til kynningar.

Ath. að heilbrigðisnefnd hefur þegar veitt leyfi fyrir takmarkaðri notkun bikþeytu á næstu árum.  Sbr. bókun af fundi 17.9.2010:

„Heilbrigðisnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir allt að 100 tonnum af bikþeytu á árinu 2011 og að hámarki 200 tonn árlega eftir það.  Miðað er við að ýruefnið Indulin W-5 verði notað, en ef skipt er um efni eða efnasamsetningu skal leita leyfis á ný.  Eindregið er hvatt til að efnið verði því aðeins notað að nauðsyn krefji og í eins litlu magni og hægt er til að hindra áfok.  Einnig er óskað eftir að skýrslur um notað magn, staði notkunar og mat á árangri verði sendar HAUST. „

4   Erindi og bréf

4.1 Kauptún ehf á Vopnafirði, Árni Róbertsson, dags. 7.2.2011
Umsókn vegna salernis í nýrri verslun ÁTVR Vopnafirði. Vínbúðin (ÁTVR) hyggst opna nýja búð í húsnæði í eigubréfritara.  Sér inngangur verður í vínbúðina.  Vegna erfiðleika við fráveitutengingar er óskað eftir að starfsmenn Vínbúðar fái að samnýta snyrtingar með aðliggjandi húsnæði verslunarinnar Kauptúns.  Opnunartími Vínbúarð er 1 klukkutíma á dag nema föstudaga, þegar opið er í 3 klst. LÞ og HHr kynntu málið.

Erindið er samþykkt enda sé tryggt að starfsmenn vínbúðar hafi ætíð aðgang að Kauptúnsversluninni.

4.2 Umhverfisstofnun dags. 27.1.2011: Ræktun á erfðabreyttu byggi.
Ósk um umsögn vegna starfsleyfisdraga fyrir Orf Líftækni hf. fyrir ræktun á erfðabreyttu byggi í gróðurhúsi Barra í Fellabæ.  Erindinu hefur verið svarað jákvætt að höfðu samráði við formann og varaformann heilbrigðisnefndar.  Heilbrigðisnefnd staðfestir afgreiðsluna.

5        Gamlar fundargerðarbækur

Við tiltekt í gögnum HAUST hafa fundist fundargerðarbækur frá því áður en núverandi heilbrigðisnefnd tók til starfa.  Því er hér með beint til heilbrigðisnefndar hvort ekki sé rétt að afhenda Héraðsskjalasafni Austurlands bækurnar.  Einnig hvort nefndinni þyki rétt að loka trúnaðarmálabókunum fyrri heilbrigðisnefnda fyrir aðgangi og skoðun í einhvern ákveðinn tíma (10-30 ár).  Um er að ræða m.a. gögn frá eftirfarandi nefndum:

  • Svæðisnefnd um Heilbrigðismál á Austurlandi 11.6.1991-29.4.1998
  • Rekstararstjórn Heilbrigðiseftirlits Austurlands 9.2.1994-3.9.1998
  • Heilbrigðisnefnd Vopnafjarðar 7.2.1991 – 15.4.1998
  • Heilbrigðisnefnd  Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar 7.2.1996-24.6.1998
  • Trúnaðarmálabók heilbrigðisnefndar Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar   4.12.1996 -24.6.1998
  • Trúnaðarmálabók heilbrigðisnefndar Fljótsdalshéraðs 10.9.1997-1.10.1997
  • Heilbrigðisnefnd Djúpavogssvæðis
  • Heilbrigðisnefnd Fáskrúðsfjarðarsvæðis

Tillaga um að hafa trúnaðarmálabækur lokaðar í 15 ár var samþykkt.  Samþykkt að fara skuli með bækurnar til Héraðsskjalasafns.

6        Framsalsmál

MAST-HAUST
Búið er að ganga frá samningi um að HAUST fari með matvælaeftirlit (starfsleyfisvinnslu, eftirlit og þvingunarúrræði) f.h. MAST.  Um er að ræða 9 fyrirtæki sem skv. lagatúlkun MAST hefðu átt að færast frá HAUST og til MAST með gildistöku nýju matvælalöggjafarinnar.  Ekki náðust samningar um að HAUST færi áfram með matvælaeftirlit með MS á Egilsstöðum og því verður aðeins um mengunareftirlit að ræða við það fyrirtæki hér eftir.

Þau fyrirtæki sem samningurinn nær til eru eftirfarandi:

  • Fiskvinnsla Gylfa Þórs Eiðssonar, Eskifirði
  • Matís Matvælamiðstöð Höfn
  • Matís Matvælamiðstöð Egilsstöðum – hefur hætt starfsemi frá 31.12.2010
  • Möðrudalur ehf., kjötvinnsla Möðrudal, Fljótsdalshérað
  • Seljavellir, kjötvinnsla Seljavöllum Hornafirði
  • Sporður ehf, harðfiskvinnsla, Eskifirði
  • Sæmundur Jónsson, mjólkurvinnsla, Árbæ, Hornafirði
  • Helgi Ragnarsson, mjólkurvinnsla,  Akurnesi Hornafirði
  • Egilsstaðabúið ehf.  Mjólkurvinnsla, Egilstöðum, Fljótsdalshérað

Lagt fram til kynningar.

7        Málefni minni vatnsveitna

Kynnt bréf frá matvælastofnun þar sem fram kemur það álit ESA að grundvöllur starfsleyfis allra vatnsveitna sé heildarúttekt á neysluvatni.  MAST hefur óskað eftir upplýsingum um hve margar vatnsveitur á svæði HAUST hafi ekki slíka úttekt.

Leifur gerir grein fyrir málinu.

Heildarsýni er rannsókn á neysluvatni m.t.t. ýmissa eðlis- og efnafræðilegra þátta.  Sýnin þarf að senda til Svíþjóðar og rannsóknakostnaður per sýni er í kring um 200 þús. kr.  Í reglubundnum sýnum er aðeins leitað að gerlum, leiðni, sýrustigi o.þ.h.

Í neysluvatnsreglugerð er heilbrigðisnefnd falið að taka ákvörðun um hvort taka þurfi heildarsýni af litlum vatnsveitum, þ.e. vatnsveitum sem þjóna færri en 500 íbúum.  Það hefur verið mat HAUST að ekki sé ástæða til að taka heildarsýni af litlum vatnsveitum.  Þau heildarsýni sem tekin hafa verið af vatni úr stærri veitunum eru öll langt undir viðmiðunargildum fyrir alla mæliþætti og berggrunnurinn á Austurlandi er einsleitur.

Heilbrigðisnefnd staðfestir fyrri ákvörðun og viðtekið verklag um að ekki sé talin ástæða til að taka heildarsýni af litlum vatnsveitum. Burtséð frá þeim kostnaði sem slíkt myndi valda við litlar- og einkavatnsveitur þykir sýnt að ávinningur væri allt of lítill miðað við jarðfræði Austurlands og þær upplýsingar sem þegar liggja fyrir í kjölfar heildarrannsókna á vatni úr stóru vatnsveitunum.  

8        Innri mál HAUST

8.1 Bráðabirgðauppgjör ársins 2010
Bráðabirgðauppgjör ársins 2010 barst seint í gær og því ekki unnt að senda það til fundarmanna.  Málinu er því frestað til næsta fundar, en jafnframt kynnt að rekstarniðurstaða er réttu megin við núllið.

8.2 Bílamál
Á fundi heilbrigðisnefndar 17.9.2010 var eftirfarandi bókað undir liðnum fjárhagsáætlun 2011:

“Bifreiðar í eigu HAUST eru tvær, Toyota Hilux, árgerð 2005 og báðir eknir um 130 þús. km.  Brýnt er að endurnýja a.m.k. aðra bifreiðina á árinu 2011 ef nokkur kostur er að fjármagna það.

Heilbrigðisnefnd samþykkir framlögð drög að fjárhagsáætlun og vísar áætluninni til afgreiðslu aðalfundar þann 6.10. nk.  Nefndin er sammála því að a.m.k .ein bifreið verði endurnýjuð á næsta ári. “

Leifur gerir grein fyrir málinu. Í samræmi við bókunina og niðurstöðu bráðabirgðauppgjörs fyrir árið 2010 hefur önnur Toyota Hilux bifreiðin verið seld og Skoda Oktavía keypt í staðinn.  Málið var unnið af JS og LÞ í samráði við formann og varaformann.

Oktavían fékkst lítið ekin ca. 6000 á 4 millj. Toyotan var tekin upp í og var milligjöf staðgreidd.  Talið er að með meðalakstri ættu ca 400 þús. að sparast. á ársgrundvelli þar sem nýja bifreiðin er mun sparneytnari en sú sem seld var.

Heilbrigðisnefnd lýsir ánægju með þessar framkvæmdir í bílamálum embættisins.

9        Næstu fundir

Á 94. fundi var eftirfarandi ákveðið:

  • Símfundur         6.4.2011        kl.   9:00
  • Snertifundur    22.6.2011        kl. 14:00  Forstjóri UST verður gestur fundarins

Benedikt yfirgefur fundinn.

10     Önnur mál

10.1 Fundur SHÍ á Akureyri 8.2.2011
Um var að ræða hefðbundinn vorfund SHÍ, en staður og tímasetning ákvarðaðist af kveðjuhófi sem var haldið í lok fundar til heiðurs Valdimar Brynjólfssyni, sem lætur nú af störfum sem frkvstj. Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra eftir langt og farsælt starf.

Þema fundarins var fræðsla starfsmanna sem vinna í matvælafyrirtækjum, sem hefur lengi verið sérstakt baráttumál Valdimars f.h. HES.  Auk Valdimars Brynjólfssonar hélt gæðastjóri Norðlenska fróðlegt erindi um fræðslu starfsmanna í fyrirtækinu.

Á fundi SHÍ var auk þessa fjallað um áherslur  í starfi SHÍ og hvert skuli stefna. Hingað til hefur áhersla verið á að kynna samtökin fyrir samstafs- og hagsmunaaðilum.  Umræður urðu einnig um samskipti við fagráðuneytin o.fl.

Elsa Ingjaldsdóttir, heilbrigðiseftirliti Suðurlands, hélt erindi um samskipti UST og MAST við HES undanfarin ár.  Allmikil umræða varð um þetta atriði.

Þorsteinn Narfason, heilbrigðiseftirliti Kjósarsýslu kynnti hugmynd að gæðahandbók fyrir öll heilbrigðiseftirlitssvæðin

Á fundinum var m.a. hvatt til að heilbrigðiseftirlitssvæðin kynni starfsemi sína gagnvart sveitarstjórnum á sínum svæðum.

Fundi slitið kl. 9:50

Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti og/eða á símbréfi til staðfestingar.  Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

Valdimar O. Hermannsson                             
Árni Kristinsson
Sigurlaug Gissurardóttir
Andrés Skúlason
Ólafur Hr. Sigurðsson
Benedikt Jóhansson
Kristín Ágústsdóttir
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson

 pdf Fundargerð 95. fundar á pdf