111. / 17. fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands
haldinn 2. september 2013 á Silfurbergi í Breiðdal kl. 12:00

Heilbrigðisnefndarmenn viðstaddir:

Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Benedikt Jóhannsson, Eiður Ragnarsson og Ólafur Hr. Sigurðsson

Starfsmenn viðstaddir:

Helga Hreinsdóttir, Júlía Siglaugsdóttir, Hákon Hansson og Borgþór Freysteinsson

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi  658
  2. Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka  661
    2.1       Sundlaugar 661
    2.2       Opin leiksvæði 661
    2.3       Litlar vatnsveitur 662
    2.4       Háahraun ehf. vegna Hótel Tanga á Vopnafirði 662
    2.5       Bensínstöðvar 663
    2.5.1    N1 ehf. Hestgerði í Hornafirði  663
    2.5.2    N1 ehf. Nesjum í Hornafirði  663
    2.6       ÞS verktakar  663
  3. Efnavörueftirlit – efnalög 61/2013  664
  4. Gæludýramál  664
  5. Endurnýjun samnings um úrgangseftirlit  665
  6. Erindi og bréf 665
  7. Drög að fjárhagsáætlun 2014 og umræða um gjaldskrá  665
  8. Önnur mál  666
    8.1       Ákvörðun um aðalfund  666
    8.2       Næstu fundir heilbrigðisnefndar  666
    8.3       Aðalfundur SSA 13. og 14. 9.  666

Fundurinn hófst með hádegisverði sem var framreiddur af rekstaraðilum Silfurbergs, á Þorgrímsstöðum í Breiðdal. Að hádegisverði loknum var gengið um aðstöðuna í fylgd forsvarsmanna sem kynntu byggingarsögu húsanna og sögðu frá rekstrinum og fyrirkomulagi þess.

VOH formaður heilbrigðisnefndar setti fundinn kl. 13: 30 í fyrrverandi hlöðu, sem hefur verið snilldarlega innréttuð til þjónustu við ferðamenn.

Bókuð útgefin starfsleyfi  

690 Vopnafjarðarhreppur

a) Kvenfélagið Lindin, kt. 670279-0229 Samsett starfsleyfi fyrir samkomuhús m/móttökueldhúsi (ekki samfelld starfsemi) og fyrir vatnsbóli. Samkomuhúsið Staðarholt við Hof. Leyfi útgefið 5.7.2013.

710 Seyðisfjörður

b) El Grilló ehf., kt 690903-2020. Endurnýjað starfsleyfi fyrir sölu á einföldum veitingumNorðurgötu 3. Leyfi útgefið 2.01.2013.

700-701 Fljótsdalshérað

c) Bara snilld ehf., kt. 520906-2070. Nýtt starfsleyfi fyrir almennt bifreiðaverkstæði með smurþjónustu, dekkjaviðgerðir og pústþjónustu, handvirka bón- og bílaþvottastöð og varahlutaverslun, þ.m.t. sölu á efnavöru að Sólvangi 5, 700 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 8.7.2013.

d) Atlantsolía hf., kt. 590602-3610. Nýtt starfsleyfi fyrir sjálfsafgreiðslubensínstöð að Fagradalsbraut 15, 700 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 17.7.2013.

e) Akstursíþróttafélagið Start, kt. 630206-1030. Tímabundið starfleyfi fyrir ENDURO-keppni á Stóra Steinsvað, Hjaltastaðarþinghá, 701 Egilsstaðir. Ábyrgðarmaður: Þorsteinn Sigurlaugsson, kt. 010975-3369. Leyfið gildir vegna samskonar keppni seinustu helgina fyrir verslunarmannahelgi árin 2013 - 2016

f) Ylur ehf., kt. 430497-2199. Tímabundið starfsleyfi fyrir neysluvatnsveitu og fráveitu frá salernisaðstöðu og kaffiskúr við starfsmannaaðstöðu fyrirtækisins við Árbakka í Hróarstungu, 701 Egilsstaðir. Leyfið gildir frá 30.7. til 15.10.2013

g) Gistiheimilið Eyvindará ehf., kt 450307-1570. Endurnýjað starfsleyfi vegna sölu á veitingum og gistingu að Eyvindará 2. Leyfi útgefið 1.8.2013.

h) Heilsuleiðir ehf., kt.600613-1700. Starfsleyfi fyrir sjúkraþjálfun að Miðvangi 1-3. Leyfið útgefið 6.8.2013

i) Forskot, ferðaþjónustufélag, kt. 600794-3109. Tímabundið starfsleyfi vegna heildarumsjónar á Ormsteiti á Fljótsdalshéraði 9.-19.8.2013 og hreindýraveislu í Bragganum við Sláturhúsið að kvöldi laugardags 17.8.2013. Ábyrgðarmaður: Guðríður Guðmundsdóttir, kt. 150160-2439. Leyfi útgefið 9.8.2013.

j) Sláturfélag Austurlands fsf., kt. 670901-2890. Starfsleyfi fyrir matvöruverslun að Kaupvangi 3b. Um er að ræða skilyrt starfsleyfi með gildistíma til 14. nóvember 2013. Leyfi útgefið 22.8.2013

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

k) Tærgesen ehf., kt.411209-0830. Endurskoðað starfsleyfi fyrir sölu á veitingum og gistingu að Búðargötu, 2, 4 og 6. Starfsleyfi útgefið 27.6.2013.

l) Launafl ehf., kt. 490606-1730. Starfsleyfi fyrir vatns- og fráveitu við kaffiskúr í tengivirki Landsnets við Stuðla í Reyðarfirði. Starfsleyfi útgefið 2.7.2013 með gildistíma til 30.10.2013.

m) N1 hf., kt. 540206-2010. Starfsleyfi fyrir sjálfsafgreiðslustöð eldsneytis að Búðargötu 7. Leyfi útgefið 9.7.2013.

n) Alcoa Fjarðaál sf., kt. 520303-4210. Endurnýjað starfsleyfi fyrir geymsluskemmu á Seljateigi. Leyfi útgefið 16.8.2013.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður

o) Guðni Jón Árnason, kt. 290373-3289. Tímabundið starfsleyfi fyrir pylsuvagn við sundlaug Eskifjarðar. Leyfi útgefið 28.6 2013 með gildistíma til 30.9.2013.

p) Sveitarfélagið Fjarðabyggð, kt. 460898-2099. Tímabundið starfsleyfi vegna niðurrifs hlöðu, fjárhúss o.fl. útihúsa innan við gamla Eskifjarðabæinn í Eskifirði. Einnig er heimilað að slökkvilið Fjarðabyggðar noti mannvirkin til brunaæfinga áður en þau verða rifin. Ábyrgðarmaður: Guðmundur Elíasson, mannvirkjastjóri. Leyfi útgefið 10.7.2013.

q) Eskfiskur ehf., kt. 5804131530. Nýtt starfsleyfi vegna mengunarvarna við fiskvinnslu að Hafnargötu 4. Starfsleyfi útgefið 15.7.2013

r) Tandraberg ehf., kt. 601201-4960. Endurnýjað starfsleyfi fyrir viðgerðaverkstæði þar sem sinnt er viðhaldi á tækjum og vélum fyrirtækisins að Strandgötu 8, 735 Eskifjörður. Leyfi útgefið 2.8.2013.

740 Fjarðabyggð – Norðfjörður

s. Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf., kt. 531295-2189. Starfsleyfi fyrir vatns- og fráveitu við kaffiskúr í Fannardal. Starfsleyfi útgefið 27.6.2013 með gildistíma til 30.10.2013.

t) Björgunarsveitin Gerpir, kt. 550579-0499. Tímabundið starfsleyfi fyrir flugeldasýningar á Neistaflugi og um páska í Oddskarði árin 2013-2017. Leyfið útgefið 5.7.2013.

u) Pizzafjörður ehf., kt.710311-0560. Endurnýjað starfsleyfi vegna veitingasölu að Hafnargötu 7. Leyfi endurnýjað 8.7.2013.

v) Fjarðahótel ehf., kt. 650810-0310. Starfsleyfi vegna sölu á veitingum og gistingu auk samkomuhúss í Egilsbúð, Egilsbraut 1. Starfsleyfi útgefið 29.7.2013.

w) Blús, Rokk/djassklúbbur á Nesi, kt. 620498-3949. Tímabundið starfsleyfi vegna heildarumsjónar á Neistaflugi í Neskaupstað 1. til 4. ágúst 2013. Ábyrgðarmaður: Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, kt. 260583-4099. Leyfi útgefið 30.7.2013.

750 Fjarðabyggða-Fáskrúðsfjörður

x) Blakdeild Leiknis., kt. 480589-2549 Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á Frönskum dögum 2013. Gildistími leyfis 26.7.-28.7..2013 Ábyrgðarmaður: Elsa Sigrún Elísdóttir, kt. 050968-4219.

y) Söluskáli S.J., kt. 131148-7719. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á Frönskum dögum 2013. Gildistími leyfis 25.7.-28.7.2013 Ábyrgðarmaður: Stefán Jónsson, kt. 131148-7719

z) Weerawan Warwn, kt. 270976-2209. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á Frönskum dögum 2013. Gildistími leyfis 25.7.-28.7.2013. Ábyrgðarmaður: Weerawan Warwn, kt. 270976-220.

aa) Slysavarnadeildin Hafdís, kt. 670484-0259. Starfsleyfi fyrir veitingasölu, þ,e, sölu á candy-floss. Ábyrgðarmaður: Jóhanna Þorsteinsdóttir kt. 210370-5369 Útgáfudagur leyfis: 23.07.2013 Gildir til: 22.07.2017. Um er að ræða starfsleyfi fyrir sölu á veitingum í tenglum við hátíðarhöld á Frönskum dögum og öðrum hátíðum, svo sem 17. júní og öðrum sambærilegum.

bb) Starfsmannafélag Uppsala, kt. 631008-1270. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á Frönskum dögum 2013. Gildistími leyfis 25.7.-28.7..2013 Ábyrgðarmaður: Jóhanna Þorsteinsdóttir, kt. 210370-5369. Um er að ræða starfsleyfi vegna sölu á matvælum.

cc) Óskar Guðmundsson, kt. 020283-4759. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á Frönskum dögum 2013. Gildistími leyfis 26.7.-28.7.2013. Ábyrgðarmaður: Óskar Guðmundsson, kt. 020283-4759.

755 Fjarðabyggð – Stöðvarfjörður

dd) Viktor Pétur Hannesson, kt. 281187-2369. Tímabundið starfsleyfi vegna dansleiks og annars skemmtanahalds í Samkomuhúsinu Stöðvarfirði vegna Pólar Festival. Gildistími leyfis 12.-13.7.2013.

ee) Ferðaþjónustan Óseyri ehf., kt. 430912-0540 Norðurtúni 24, 700 Egilsstaðir. Starfsleyfi vegna sölu á gistingu í gistiskála að Óseyri í Stöðvarfirði fyrir allt að 10 manns. Gestir hafa aðgang að heimiliseldhúsi og setustofu. Ábyrgðarmaður: Ívar Ingimarsson, kt. 200877-5359. Leyfi gefið út 20. 8. 2013

760 Breiðdalshreppur

ff) Guðlaugur Valtýsson, kt 201053-2189. Tímabundið starfsleyfi, þ.e. leyfi til að rífa gamalt fjós og hesthús á Ormsstöðum, Breiðdalshreppi og til flutnings á úrgangi þaðan til förgunar eða endurvinnslu. Ábyrgðarmaður: Guðlaugur Valtýsson, kt. 201053-2189. Útgáfudagurt leyfis 14.8.2013, gildir til 31.12.2013.

780-785 Hornafjörður

gg) Kaffi Hornið ehf., kt. 550299-2679. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á hátíðarsvæðinu á Humarhátíð á Höfn 28.6.-30.6.2013. Ábyrgðarmaður: Ingólfur Guðni Einarsson, kt. 201072-5499. Leyfi útgefið 26.6.2013.

hh) Hótel Vatnajökull ehf., kt. 470897-2449. Nýtt starfsleyfi fyrir starfsmannabústað að Hæðagarði 20, Nesjum í Hornafirði. Ábyrgðamaður: Stefán Þór Arnarson, kt. 230377-4729. Leyfi útgefið 26.6.2013.

ii) Nónhamar ehf., kt. 631208 1260. Nýtt starfsleyfi vegna sölu gistingar í þrem smáhýsum. Lækjarhús, Hofi 2/Lækjarhús, 785 Öræfi. Ábyrgðarmaður: Eyþór Sigurðsson, kt. 260482-5139. Leyfi útgefið 2.7.2013.

jj) Laufey Guðmundsdóttir, kt. 100366-4949. Endurnýjun leyfis vegna sölu á gistingu í einu húsi fyrir allt að 9 manns að Lækjarhúsum, 781 Hornafjörður. Ábyrgðarmaður: Laufey Guðmundsdóttir, kt. 100366-4949. Leyfið gildir frá 8.6. til 15.10.2013.

kk) Díma ehf., kt. 660406-1150. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á íbúðargistingu að Grund II, Hafnarnesi, 780 Höfn í Hornafirði. Ábyrgðarmaður: Árnína H. Guðjónsdóttir, kt. 270676-4999. Leyfi útgefið 8.7.2013 með gildistíma til 1.11.2013.

ll) Iceland Summer ehf. 650805-0540. Nýtt starfsleyfi vegna sölu á íbúðargistingu að Hæðagarði 5, 780 Höfn í Hornafirði. Ábyrgðarmaður: Sigurður Bjarni Gíslason, kt. 120978-2929. Leyfi útgefið 8.7.2013.

mm) Rut Guðmundsdóttir, kt. 280873-4709. Nýtt starfsleyfi vegna sölu á íbúðargistingu að Haga II, 781 Hornafjörður. Leyfi útgefið 8.7.2013.

nn) Nautafélagið ehf., kt. 710709-0170. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á veitingum úr matsöluvagni í tengslum unglingalandsmót UMFÍ dagana 1.-5.8.2013. Leyfi útgefið 15.7.2013.

oo) Heppa Matarhöfn ehf., kt. 540212-3090. Nýtt starfsleyfi vegna íbúðagistingar að Dalbraut 4 n.h., 780 Höfn í Hornafirði. Ábyrgðarmaður: Vigfús Ásbjörnsson, kt. 020177-4629. Leyfi útgefið 17.7.2013.

pp) Mikley ehf., 660413-2000. Nýtt starfsleyfi fyrir heimagistingu að Fiskhóli 11, 780 Höfn í Hornafirði. Ábyrgðarmaður: Sveinbjörn Imsland, kt. 170468-4249. Leyfi útgefið18.7.2013.

qq) Akstursíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu, ASK, kt. 580107-1680. Tímabundið starfsleyfi fyrir motocrosskeppni þann 4.8.2013 við Drápskletta, 780 Hornafjörður. Ábyrgðarmaður: Jón Sölvi Ólafsson, kt. 090672-5429.

rr) Funi ehf., kt. 541289-1199. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu gistingar á einkaheimili og einkavatnsveitu að Ártúni, 781 Hornafjörður. Ábyrgðarmaður: Marteinn L. Gíslason, kt. 200365-5269. Leyfi útgefið 23.7.2013.

ss) Ungmennafélagið Sindri, kt. 430380-0609. Tímabundið starfsleyfi vegna heildarumsjónar á UMFÍ móti á Höfn 1.-4.8.2013. Ábyrgðarmaður: Valdemar Einarsson, kt. 010762-5299. Leyfi útgefið 29.7.2013.

tt) Kaffi Hornið ehf., kt. 550299-2679. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingastarfsemi á hátíðarsvæðinu á unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn 1.-5.8.2013. Leyfi útgefið 2.8.2013.

uu) Theoretical Iceland ehf., kt. 580713-0920. Tímabundið starfleyfi til að brenna díselolíu o.fl. í sérútbúnum brennurum vegna kvikmyndatöku við Svínafellsjökul. Ábyrgðarmaður: Gunnar Kvaran, kt. 110176-4819. Gildistími leyfis frá 6.8-25.9.2013.

vv) Theoretical Iceland ehf., kt. 580713-0920. Tímabundið starfsleyfi vegna aðstöðu, þ.e. snyrtinga o.fl. í tengslum við kvikmyndagerð við Svínafellsjökul í Öræfum. Gildistími leyfis frá 6.8.-30.9.2013.

ww) Hellu- og varmalagnir ehf., kt. 590897-2059. Tímabundið starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir við Smyrlabjargaárvirkjun. Ábyrgðarmaður er Hólmar Guðmundsson, kt. 080266-5029. Leyfi útgefið 23.8.2013.

2    Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka

2.1       Sundlaugar

Nokkrar aths. hefur þurft að gera við rekstur sundlauga í sumar. Öryggismerkingum hefur verið ábótavant sem og menntun baðvarða og dæmi um að baðvörslu hafi ekki verið sinnt sem skyldi. Einnig hefur þurft að gera aths. við gæði baðvatns.

JS og HIH gerðu grein fyrir eftirlitsskoðunum í sumar og ýmsu sem fyrir augu hefur borið í sundlaugaeftirliti. HIH sýndi nokkrar myndir til upplýsingar fyrir nefndarmenn.

Rætt var um starfsleyfisskyldu heitra potta við sumarhús í útleigu og kalda potta í sundlaugum og íþróttahúsum.

Heilbrigðisnefnd lítur það alvarlegum augum að öryggi sundlaugagesta sé ekki tryggt og felur starfsmönnum að ganga fast eftir að úrbótum verði sinnt.

2.2       Opin leiksvæði

Enn eru nokkur sveitarfélög sem ekki hafa uppfyllt kröfur um opin leiksvæði skv. reglugerð 942/2002. Í árslok 2010 áttu öll leiktæki að uppfylla staðla, aðlögunartími hafði þá verið frá útgáfu reglugerðarinnar. Nokkrir aðilar hafa sótt um lengri fresti til heilbrigðisnefndar.

Heilbrigðisnefnd er ekki heimilt að veita undanþágur frá ákvæðum reglugerðar nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Sveitarfélög skulu tafarlaust fjarlægja leiktæki sem ekki uppfylla ákvæði reglugerðarinnar eða sæta þvingunarúrræðum ella.

2.3       Litlar vatnsveitur

Engar stórar vatnsveitur hafa lent í vandræðum með gerlamengun á þessu ári.

Nokkrar litlar vatnsveitur sem voru komnar með starfsleyfi hafa lent í vandræðum með gerlamengun í vatni. Stundum hefur eitthvað farið úrskeiðis, t.d. leysingavatn komist að brunnum og skemmt umhverfið þannig að gerlar umfram leyfileg mörk hafa mælst í neysluvatni.

Enn eru starfsmenn HAUST að „finna“ litlar vatnsveitur án starfsleyfa. Sumar þessara vatnsveitna eru afar illa útbúnar og uppfylla alls ekki ákvæði sem gera ber til neysluvatnsveitna. HHr sýndi nokkrar myndir af óviðunandi umbúnaði við litlar vatnsveitur.

Við litlar vatnsveitur sem ekki uppfylla gæðakröfur neysluvatnsreglugerðar hafa heilbrigðisfulltrúar gert kröfur um lagfæringar og að þar til þeim er lokið og neysluvatnssýni staðfestir öryggi vatnsins sé við alla vaska upplýsingaspjald um að neysluvatnið uppfylli ekki gæðakröfur og fólk hvatt til að sjóða vatnið.

Heilbrigðisnefnd samþykkir ofangreint verklag.

2.4       Háahraun ehf. vegna Hótel Tanga á Vopnavirði

Heilbrigðiseftirlit Austurlands fór í reglubundið eftirlit í Hótel Tanga á Vopnafirði þann 9.7.2013. í eftirlitsskýrslu dagsettri 10.7.2013 voru gerðar athugasemdir við að brotið væri gegn ákvæðum matvælareglugerðar nr.93/1995 í þrem liðum.

Fyrirtækinu var veittur þriggja vikna frestur til lagfæringa, að öðrum kosti myndi Heilbrigðiseftirlit Austurlands íhuga að beita fyrirtækið þvingunarúrræðum.

Eftirfylgniferð var farin í fyrirtækið þann 6.8.2013, þá hafði verið brugðist við athugasemdum varðandi eitt af atriðunum þrem. Niðurstöður eftirfylgniferðarinnar voru kynntar fyrirtækinu í eftirlitsskýrslu dags. 7.8.2013. Í skýrslunni var krafist tafarlausra úrbóta, þá var fyrirtækinu jafnframt veittur frestur til andmæla og tilkynnt um að frekari aðgerða væri að vænta af hálfu HAUST til þess að fylgja eftir kröfum um úrbætur.

Í ábyrgðarbréfi sem fyrirtækinu var sent þann 8.8.2013 var fyrirtækinu tilkynnt um að HAUST íhugaði að áminna fyrirtækið vegna áðurnefndra brota á matvælalögum. Fyrirtækinu var jafnframt veittur tveggja vikna frestur til þess að koma sjónarmiðum á sínum á framfæri í samræmi við 13. gr. Stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Fresturinn rann út þann 22.8.2103 ,án þess að fyrirtækið nýtti sér hann.

Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykir að veita fyrirtækinu Háahrauni ehf. kt. 620906-2120 áminningu í samræmi við ákvæði 30. gr. laga nr.93/1995 um matvæli. Vegna brota á matvælalögum nr. 93/1995 og reglugerðum sem á þeim byggja. Einnig er brotið gegn ákvæðum starfsleyfis og ítrekuð fyrirmæli Heilbrigðiseftirlits Austurlands hundsuð.

2.5       Bensínstöðvar

2.5.1      N1 ehf. Hestgerði í Hornafirði

Á fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands, sem haldinn var 2.2.2012 var fjallað um erindi N1 varðandi notkun á olíutönkum á Hestgerði. Eftirfarandi var bókað:

Fyrirtækið hefur lagt fram niðurstöður þrýstiprófana á tönkum við bensínstöðina á Hestgerði skv. kröfum HAUST þar um. Krafan var gerð þar sem tankarnir eru orðnir gamlir. Fyrirtækið óskar eftir undanþágu til að mega nota tankana í eitt ár ennþá. Heilbrigðisnefnd samþykkir notkun tankanna til ársloka 2012.

Í eftirlitsferð þann 27.8.sl. kom í ljós að starfsstöðin er enn í notkun átta mánuðum eftir að starfsleyfið rann út. Í tölvupósti frá N1 segir 30.8.“...stefnan er að endurnýja allt í Hestgerði nema ef niðurstaða innanhúsnefndar hjá okkur kemur upp með e-ð annað.  Endanlegar niðurstöður frá þessari nefnd koma ekki fyrr en seint í sept.“

Starfsmönnum falið að senda fyrirtækinu bréf og tilkynna að Heilbrigðisnefnd íhugi að beita þvingunarúrræðum verði starfsstöðinni ekki lokað.

2.5.2      N1 ehf. Nesjum í Hornafirði

Á fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands sem haldinn var 29.5.sl. var fjallað um málefni N1 hf. vegna bensínstöðvar í Nesjahverfi. Eftirfarandi var fært til bókar í fundargerð:

Í kjölfar eftirlits með bensínstöð N1 í Nesjum hefur fyrirtækinu verið gefinn frestur til 1.7.2013 til að leggja fram tímasettar áætlanir um endurnýjun olíutanka og hugsanlega stöðvarinnar allrar. Olíutankar eru eldri en 25 ára eða verða svo gamlir á þessu ári. Mengunarvarnir (olíuskiljur) eru ekki við stöðina.

Málið kynnt og rætt.

Eftirfarandi svör hafa borist í tölvupósti:

  • 28. Júní 2013. Félagið hefur áform um að endurnýja geyma stöðvarinnar á þessu ári og koma upp olíuskilju. En núverandi geymar eru frá 1988. Ekki liggur fyrir tímasett áætlun önnur en sú að þetta verður gert á árinu 2013. Varðandi húsnæðið sjálft þá verður eðlilegu viðhaldi sinnt en ekki farið í neinar stórvægilega lagfæringar, enda er húsnæði í þokkalegu ásigkomulagi.
  • 22. ágúst 2013 Varðandi framtíðarsýn stöðva okkar þá höfum við verið að afla okkur upplýsingar frá Vegargerðinni varðandi vegaáætlun.  Varðandi Nesjar þá er talað í vegaáætlun að leggja nýjan veg sunnar en þann sem er í dag yfir Hornafjarðarfljótið.  Þar með setur það áform okkar að endurbyggja stöð sem afleggst af eftir 3 til 4 ár í uppnám.  Eins og ég sagði er þessi framtíðarsýn félagsins í vinnslu og niðurstöður liggja fyrir í september.  Þá verður tekinn ákv. um Nesjar. 

Heilbrigðisnefnd ítrekar að fyrirtækið þarf að leggja fram gögnum um nýja stöð og sækja um ítrekar að frestur vegna núverandi stöðvar rennur út í árslok 2013.

2.6       ÞS verktakar

Frá því í desember 2011 hafa endurtekið verið samskipti milli Þ.S.Verktaka og HAUST varðandi aðstöðu fyrirtækisins að Miðási 19-21. Samskiptin voru annars vegar vegna starfsleyfis fyrir starfsstöðina og hins vegar um hvort og þá hvar olíuskilja sé á fráveitu frá húsinu og um kröfu HAUST um að ef skilja er við húsið, þá sé hún þjónustuð, en ef ekki þá verði olíuskilja sett niður og þjónustuð.

Þann 8.8. var fyrirtækinu sent bréf með tilkynningu um að HAUST íhugaði að beitaþvingunarúrræðum vegna brota á reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun þar sem segir: 7.1 Allur atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun og þar sem fyrirmælum heilbrigðisnefndar hefur ekki verið sinnt. Tveggja vikna andmælaréttur var veittur, andmæli hafa ekki borist.

Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykir að veita fyrirtækinu Þ.S. Verktakar ehf., kt. 410200-3250 áminningu og fjögurra vikna frest til úrbóta í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Innan gefins frests skal fyrirtækið hafa sýnt fram á að olíuskilja sé við aðstöðu fyrirtækisins að Miðási 19-21 á Egilsstöðum og hún sé þjónustuð. Innan sama frests skal einnig sótt um nýtt starfsleyfi fyrir starfsemina.

3  Efnavörueftirlit – efnalög 61/2013

29.5.2013 var eftirfarandi bókað á fundi Heilbrigðisnefndar:

Ný efnavörulög hafa verið afgreidd frá Alþingi. Nokkur breyting verður á verkaskiptingu HES og UST í kjölfarið. Hlutverk Heilbrigðisnefnda breytist og hluti eftirlits færist til UST. Markmið laganna er m.a. að færa eftirlit sem fremst í aðfangakeðjuna.

Enn er óljóst hve miklar breytingar nýju lögin hafa í för með sér fyrir HES. UAR hefur falið UST að halda upplýsingafund vegna málsins, en hann hefur ekki verið tímasettur.

Heilbrigðisnefnd felur starfsmönnum að óska eftir eftirlitsverkefnum í umboði UST í samræmi við lið 3 í kynningarbréfi frá UAR, dags. 6.5.2013. Jafnframt harmar nefndin að forræði málafloksins flytjist úr héraði.

Í samræmi við bókunina var UST sent bréf dags. 18.6.2013 þar sem segir „er hér með óskað eftir að Umhverfisstofnun setji upp drög að samningi um að HAUST taki að sér verkefni varðandi efnavörueftirlit samkvæmt eftirlitsáætlun stofnunarinnar. Af hálfu undirritaðrar verður samningurinn borinn undir Heilbrigðisnefnd til frekari vinnslu og væntanlegrar afgreiðslu. Óskað er eftir að vinnu við samningsgerð verði hraðað þannig að unnt verði að fella verkefnin að framkvæmdaáætlun ársins 2014.“

Svar barst með bréfi UST dags. 2.7.2013. Þar segir í niðurlagi að eftirlitsáætlun UST vegna áranna 2014-2016 muni ekki liggja fyrir fyrr en í árslok 2013. „Umhverfisstofnun mun þegar sú áætlun liggur fyrir , taka ákvörðun um nýtingu heimildar skv. 3. tl. 6. gr. efnalaga“

Af hálfu HAUST er ofangreint svar UST túlkað sem höfnun á ósk um samning, enda er ekki unnt að vinna áætlun um aukin eftirlitsverkefni á árinu 2014 eftir að það ár hefst.

4.  Gæludýramál

Hundur varð uppvís að því að bíta mann í fjórða skiptið á 3 árum, þar af í nóv .2012, apríl og júlí 2013. Unnið hefur verið í málinu. Eigandi óskaði eftir að fá að láta gelda hundinn til að kanna hvort það hefði áhrif á skapgerð hundsins. Þetta var heimilað og sex vikna reynslutími gefinn eftir geldinguna.

Heilbrigðisnefnd samþykkir ofangerðar aðgerðir og hvetur starfsmenn til að fylgja málinu eftir.

5.  Endurnýjun samnings um úrgangseftirlit

UST hefur sent HAUST tillögu að nýjum samningi um að HAUST fari með eftirlit með urðunarstöðum og spilliefnamóttöku sem UST hefur gefið út starfsleyfi fyrir. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði aðeins til tveggja ára, en hvað framkvæmdina varðar er samningurinn sambærilegur við samning um að HAUST fari með eftirlit með fiskimjölsverkmiðjum og fiskeldi. Sá samningur rennur út í des. 2016.

Í raun er um að ræða framhald samnings frá árinu 1998 sem í tvígang hefur verið sagt upp en gildistöku uppsagnar frestað.

Heilbrigðisnefnd fagnar því að vilji er til samninga um áframhaldandi eftirlitsverkefni f.h. Umhverfisstofnunar, en telur æskilegt að samið sé til lengri tíma, enda fylgir því óöryggi og tímasóun að hafa samningstíma mjög stutta.

6.  Erindi og bréf

Kynnt erindi dags. 11. ágúst 2013 sem frkvstj. sendi formanni og varaformanni Heilbrigðisnefndar . Um er að ræða ósk um námsleyfi í allt að 6 vikur á árinu 2014 (tvisvar sinnum 3 vikur). Sótt er um leyfi til að geta sinnt fjarnámi með skyldumætingu í annarlok og með vísan í ákvæði í kjarasamningi FÍN og ríkisins sem kjarasamningur FÍN og HAUST byggir á.

Frkvstj. kynnti málið en vék síðan af fundi.

Ákvörðun heilbrigðisnefndar: Samþykkt

Frkvstj. mætir aftur til fundar.

7. Drög að fjárhagsáætlun 2014 og umræða um gjaldskrá

Lögð voru fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun ársins 2014. Allmargir óvissuþættir eru í áætlanagerðinni, m.a. eru kjarasamningar lausir í upphafi árs 2014, verðbólgu er spáð og verðlagshækkanir hafa verið allnokkrar á árinu 2013. Rekstur ársins 2013 hefur verið nokkuð í samræmi við áætlanir.

  • Lagt er til að gjaldskráin sem var samþykkt árið 2011 verði fullnýtt, þ.e. að tímagjaldið 9.400 kr verði nýtt sem grunnur að eftirlits- og starfsleyfagjöldum frá 1.1.2014. Þegar gjaldskráin var samþykkt lá ekki fyrir hvort samningar um verkefni fyrir UST næðust og því var gert ráð fyrir 9.400 kr, en eftir að þeir samningar náðust var ákveðið að fullnýta ekki heimild gjaldskrárinnar og nota kr. 9.200 sem tímagjald.
  • Lagt er til að gjald vegna rannsókna á neysluvatnssýnum verði hækkað úr kr. 12.500 í kr. 15.000, enda er raunkostnaður rannsóknastofu vegna þessara sýna kr. 16.750. Ekki þarf að hækka gjöld vegna annarra reglubundinna rannsókna.
  • Lagt er til að sumarstarfsmenn eða -maður verði ráðinn í 4 mánuði til að létta á starfsmönnum og leysa af vegna námsleyfis framkvæmdastjóra.
  • Ekki þykir óeðlilegt að ganga á sjóði HAUST ef með þarf, enda er reksturinn nokkuð tryggur, ekki neinar kollsteypur fyrir séðar og óþarft að embættið safni frekari sjóðum.

Heilbrigðisnefnd samþykkir fram lögð drög að fjárhagsáætlun, (merkt B á prentuðu skjali) og felur frkvstj. að fullvinna þau og leggja fyrir aðalfund HAUST. Einnig er frkvstj. falið að útbúa drög að breytingu á gjaldskrá HAUST til að leggja fyrir aðalfundinn, þ.e. þar sem breytt er sýnatökugjaldi fyrir neysluvatnssýni sem eru innheimt með reglubundnum eftirlitsgjöldum.

8 Önnur mál

8.1   Ákvörðun um aðalfund.

Aðalfundur verði haldinn 9. október og framkvæmdastjóra falið að kanna hvort unnt er að halda hann á Borgarfirði eystri.

8.2  Næstu fundir heilbrigðisnefndar

Næstu fundir heilbrigðisnefndar verði símfundir haldnir kl. 9:30 á eftirfarandi dögum:

Miðvikudaginn 13. nóvember               

Mánudaginn 13. janúar 2014                         

Stefnt er að fundi um miðjan mars, þ.e. 10. eða 11. mars 2014

8.3  Aðalfundur SSA 13. og 14. 9.

Samþykkt að HAUST komi á framfæri við fundarhaldara tilmælum um ályktanir skv. eftirfarandi:

  • Ályktarnir um fráveitumál
  • Ályktun um samskipti ríkis og svfél m.t.t. eftirlits og/eða framsalsverkefna

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:01

Fundargerðin færð í tölvu af Júlíu Siglaugsdóttur og Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

Valdimar O. Hermannsson
Árni Kristinsson
Sigurlaug Gissurardóttir
Benedikt Jóhannsson
Eiður Ragnarsson
Andrés Skúlason                   
Ólafur Hr. Sigurðsson
Borgþór Freysteinsson
Hákon Hansson
Júlía Siglaugsdóttir
Helga Hreinsdóttir

 Fundarmenn í Silfurbergi:  Fundarmenn í Silfurbergi: Efri röð: Borgþór Freysteinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Árni Kristinsson, Hákon Hansson, Andrés Skúlason Neðri röð: Júlía Siglaugsdóttir, Eiður Ragnarsson, Ólafur Hr. Sigurðsson, Benedikt Jóhannsson, Valdimar O. Hermannsson, Helga Hreinsdóttir Ljósmyndari: Hákon Hansson á myndavél Andrésar Skúlasonar.

pdfFundargerð á pdf