1. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2017
  2. Ársreikningar 2017 lagðir fram
  3. Umræða um liði 1 og 2
  4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
  5. Gjaldskrá HAUST nr. 1026/2015
  6. Umræður um gjaldskrá og fjárhagsáætlun
  7. Ný heilbrigðisnefnd tekur til starfa
  8. Tillögur að breytingu á stofnsamþykkt byggðasamlagsins
  9. Kjörinn löggiltur endurskoðandi
  10. Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
  11. Önnur mál

Fundarmenn:

Nafn Sveitarfélag  
Jón Björn Hákonarson Fjarðabyggð Formaður heilbrigðisnefndar
Karl Óttar Pétursson Fjarðabyggð Bæjarstjóri
Árni Kristinsson Fljótsdalshérað Varaformaður heilbrigðisnefndar
Björn Ingimarsson Fljótsdalshérað Bæjarstjóri
Vilhjálmur Jónsson Seyðisfjarðarkaupstaður  
Andrés Skúlason

Djúpavogshreppur

Fulltrúi í heilbrigðisnefnd
Sandra Konráðsdóttir Vopnafjörður Fulltrúi í heilbrigðisnefnd
Sigríður Bragadóttir Vopnafjörður  
Gunnþórunn Ingólfsdóttir Fljótsdalshreppur  
Gunnhildur Imsland

Hornafjörður

 
Leifur Þorkelsson   Framkvæmdastjóri HAUST
Lára Guðmundsdóttir   Staðgengill frkvstj. HAUST
Dröfn Svanbjörnsdóttir   Heilbrigðisfulltrúi
Borgþór Freysteinsson   Starfsmaður HAUST

Jón Björn Hákonarson formaður heilbrigðisnefndar, setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Jón Björn fól Birni Ingimarssyni, bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði, fundarstjórn og Láru Guðmundsdóttur fundarritun og bað þessa aðila að taka til starfa.

Tafla yfir fjölda atkvæða og nöfn fulltrúa sveitarfélaga á aðalfundi HAUST 2018:

Sveitarfélag

Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2018

Nafn fulltrúa sem fer með atkvæði sveitarfélags:

Vopnafjarðarhreppur

3

Sigríður Bragadóttir og Sandra Konráðsdóttir

Fljótsdalshreppur

1

Gunnþórunn Ingólfsdóttir

Fljótsdalshérað

11

Björn Ingimarsson

Seyðisfjarðarkaupstaður

3

Vilhjálmur Jónsson

Borgarfjarðarhreppur

1

 

Fjarðabyggð

15

Karl Óttar Pétursson

Djúpavogshreppur

2

Andrés Skúlason

Hornafjörður

8

Gunnhildur Imsland

 

1.  Skýrsla stjórnar

Jón Björn Hákonarson, formaður heilbrigðisnefndar, flutti skýrslu stjórnar.  Skýrslan fylgir fundargerðinni. 

2.  Ársreikningar 2017 lagðir fram

Leifur Þorkelsson framkvæmdastjóri, kynnti ársreikningana. Reikningarnir voru endurskoðaðir af KPMG og áritaðir af skoðunarmönnum. Reikningarnir voru lagðir fyrir heilbrigðisnefnd á fundi 12.9.2018 og þá afgreiddir til aðalfundar.

Helstu niðurstöðutölur ársreiknings 2017 eru sem hér segir:

  niðurstaða ársreiknings  2017 áætlun 2017
Rekstartekjur  76.028.648 74.143.736
Rekstargjöld  71.253.378 75.672.945
Rekstrarniðurstaða  4.775.270 1.529.209

Niðurstaða ársins var jákvæð og afgangur meiri en áætlun gerði ráð fyrir. 

3.  Umræður um liði 1 og 2

Til máls tóku Björn Ingimarsson, Jón Björn Hákonarson, Andrés Skúlason, Árni Kristinsson, Karl Óttar Pétursson, Sigríður Bragadóttir, Gunnþórunn Ingólfsdóttir og Leifur Þorkelsson.

Leifur Þorkelsson ræddi breytingar á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir er varðar þá breytingu að nú sé ráðherra heimillt að kveða á um skráningarskyldu atvinnureksturs í stað starfsleyfisskyldu. Skráning mun fara fram hjá Umhverfisstofnun en eftirlit með fyrirtækjunum verður áfram hjá heilbrigðiseftirliti.

Ennfremur var stuttlega kynnt reglugerð 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Þar er gert ráð fyrir auknum kröfum um auglýsingar í ferli við starfsleyfisútgáfu fyrirtækja sem falla undir þessa reglugerð.

Ársreikningar fyrir árið 2017 voru bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða.

4.  Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár 2019

Leifur Þorkelsson kynnti fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár 2019. 

Drögin voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar þann 12.9.2018.

5.  Gjaldskrá HAUST nr. 1026/2015

Leifur Þorkelsson framkvæmdastjóri kynnti tillögu heilbrigðisnefndar um óbreytta gjaldskrá fyrir árið 2019. 

6.  Umræður um fjárhagsáætlun 2019 og gjaldskrá

Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Gunnþórunn Ingólfsdóttir.

Tillagan að fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. 

Tillagan um óbreytta gjaldskrá var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

7.  Ný heilbrigðisnefnd tekur til starfa

Jón Björn Hákonarson kynnti nýja Heilbrigðisnefnd ásamt því að þakka fráfarandi nefndarmönnum fyrir ánægjulegt samstarf. Þrír nýir aðalmenn koma nú inn í heilbrigðisnefnd. Davíð Þór Sigurðsson tekur sæti Árna Kristinssonar sem setið hefur í nefndinni í 10 ár sem varaformaður. Berglind Häsler tekur sæti Andrésar Skúlasonar sem setið hefur í nefndinni í 12 ár. Vilhjálmur Jónsson tekur sæti Söndru Konráðsdóttur sem setið hefur í nefndinni síðan í september 2015.

8.  Tillögur að breytingu á stofnsamþykkt byggðasamlagsins

Leifur Þorkelsson lagði til breytingar á stofnsamþykkt Heilbrigðisnefndar Austurlands vegna sameiningar Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps og breytinga á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Eftirfarandi breytingar voru lagðar til:

3. grein er fyrir breytingu:
3. Starfssvæði HAUST er Austurlandssvæði sbr. 6. tl. 11. gr. laga nr. 7/1998 (fyrrum “Austurlandskjördæmi”). Aðildarsveitarstjórnir eru sammála um að svæðið skiptist í eftirtaldar undirdeildir:
a) Norðursvæði: Vopnafjarðarhreppur, sveitarfélög á Fljótsdalshéraði, Borgarfjarðarhreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður
b) Miðsvæði: Fjarðabyggð og Breiðdalshreppur
c) Suðursvæði: Djúpavogshreppur og Hornafjörður

Lagt er til að 3. grein verði eftir breytingu:
3. Starfssvæði HAUST er Austurlandssvæði sbr. 6. tl. 45. gr. laga nr. 7/1998 Aðildarsveitarstjórnir eru sammála um að svæðið skiptist í eftirtaldar undirdeildir:
a) Norðursvæði: Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Borgarfjarðarhreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður
b) Miðsvæði: Fjarðabyggð
c) Suðursvæði: Djúpavogshreppur og Hornafjörður

9.  Kjörinn löggiltur endurskoðandi

Lögð fram tillaga um að óska áfram þjónustu frá KPMG.

Tillagan samþykkt samhljóða.

10.  Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara

Lagt er til að skoðunarmenn reikninga verði endurkjörnir, þ.e. Stefán Bragason, starfsmanna- og skrifstofustjóri Fljótsdalshéraðs og Ingunn Björnsdóttir, fjármálastjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Til vara Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdalshrepps og Jón Þórðarson, sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps.

Tillagan lögð fram og samþykkt samhljóða.

11.  Önnur mál

JBH boðaði næsta heilbrigðisnefndarfundar og þakkaði starfsmönnum HAUST fyrir vel unnin störf. Andrés Skúlason þakkaði fyrir samstarfið undanfarin 12 ár í Heilbrigðisnefnd.

Fundi var slitið kl. 14:22

Fundargerðina staðfesta:

Björn Ingimarsson, fundarstjóri
Leifur Þorkelsson, fundarstjóri

pdf Fundargerð aðalfundar 2018 ásamt skýrslu stjórnar