Stefán Þór Eysteinsson formaður heilbrigðisnefndar Austurlands setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Tilnefndur til fundarstjóra var Valdimar O. Hermannson og Ólöf Vilbergsdóttir var tilnefnd til fundarritara. Ekki komu fram aðrar tillögur og töldust þau þar með rétt kjörin.

Fundarstjóri fór yfir að boðað hefði verið til fundarins í samræmi við samþykkt byggðasamlagsins. Hann kallaði eftir því hvort gerðar væru athugasemdir við lögmæti fundarins eða boðun hans. Engar athugasemdir komu fram. Fulltrúar tók þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Áður en að gengið var til dagskrár var farið yfir fjölda atkvæða og nöfn viðkomandi fulltrúa sveitarfélaga, skv. eftirfarandi.

Sveitarfélag

Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2025

Fulltrúar á aðalfundi 2025

Vopnafjarðarhreppur

3

Valdimar O. Hermannsson

Fljótsdalshreppur

1

Halla Auðunardóttir

Múlaþing

16

Helgi Hlynur Ásgrímsson og Jónína Brynjólfsdóttir

Fjarðabyggð

16

Jóna Árný Þórðardóttir

Hornafjörður

8

Valdís Ósk Sigurðardóttir

 

Aðrir sem sátu fundinn án atkvæðisréttar voru: Stefán Þór Eysteinsson formaður heilbrigðisnefndar Austurlands, Lára Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri HAUST og Ólöf Vilbergsdóttir heilbrigðisfulltrúi hjá HAUST.

Á dagskrá fundarins voru eftirfarandi mál:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2024
  2. Ársreikningur 2024
  3. Umræða um liði 1 og 2
  4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
  5. Gjaldskrá HAUST
  6. Umræður um liði 4 og 5
  7. Fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi eftirlits
  8. Tillaga að breytingu á stofnsamþykkt
  9. Önnur mál

 1.    Skýrsla stjórnar fyrir árið 2024

Stefán Þór Eysteinsson flutti skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan fundargerðinni.

 

2.    Ársreikningur 2024 lagður fram

Lára Guðmundsdóttir kynnti ársreikning 2024. Reikningurinn er endurskoðaður af KPMG.  Ársreikningurinn var tekinn fyrir hjá heilbrigðisnefnd á fundi 21.10.2025 og þá afgreiddur til aðalfundar.

 

Niðurstaða ársreiknings 2024

Áætlun 2024

Tekjur

100.864.672

98.503.799

Gjöld

98.733.138

98.513.997

Niðurstaða

2.973.045

(10.198)

 

3.    Umræða um liði 1 og 2

Fundarstjóri gaf orðið laust. Til máls tóku: Valdimar O. Hermannsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jóna Árný Þórðardóttir.

Lára Guðmundsdóttir og Stefán Þór Eysteinsson svöruðu fyrirspurnum.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við ársreikninginn. Svo var ekki og skoðast hann því samþykktur samhljóða.

4.    Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár

Lára Guðmundsdóttir kynnti fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Drög að henni voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar 21.10.2025. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að tímagjald hækki um 9,4% og að íbúaframlag sveitarfélaga verði óbreytt eða 25%.

 

5.    Gjaldskrá HAUST

Lára Guðmundsdóttir kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá HAUST. Tillagan gerir ráð fyrir ráð fyrir að upphæðir í nýrri gjaldskrá verði eftirfarandi:

Gjaldskrárbreytingar

 

Nr. 12/2025

Tillaga 2026

Breyting

Tímagjald

17.500

19.000

9,38%

Vatnssýni

34.000

35.500

4.4%

Önnur sýni

25.000

25.500

2%

Ný starfsleyfi

32.000

35.000

9,4%

Endurnýjuð starfsleyfi

24.000

25.000

4.2%

 

6.    Umræður um liði 4 og 5

Fundarstjóri gaf orðið laust. Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Lára Guðmundsdóttir, Sigurjón Andrésson og Kristrún Ósk Pálsdóttir.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við fjárhagsáætlun. Svo var ekki og skoðast hún því samþykkt samhljóða.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við tillögu að breytingu á gjaldskrá. Svo var ekki og skoðast tillaga að breytingu á gjaldskrá, því samþykkt samhljóða.

 

7.    Fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi eftirlits

Lára Guðmundsdóttir flutti erindi um fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi eftirlits.

Opnað var fyrir umræður. Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Valdimar O. Hermannsson,

Helgi Hlynur Ásgrímsson.

Lára Guðmundsdóttir svaraði fyrirspurnum.

8.    Tillaga að breytingu á stofnssamningi

Jónína Brynjólfsdóttir, varaformaður heilbrigðisnefndar Austurlands tekur til máls og leggur fram tillögu að breytingu á stofnssamningi byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Opnað var fyrir umræður Til máls tóku: Jóna Árný Þórðardóttir  og Helgi Hlynur Ásgrímsson og Valdís Ósk Sigurðardóttir

Jónína Brynjólfsdóttir  og Lára Guðmundsdóttir svöruðu fyrirspurnum.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væri við breytingartillöguna. Svo var ekki og skoðast breytingar á 2. gr og 9.gr stofnsamningi byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands, því samþykkt samhljóða.

9.    Önnur mál

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 15:18.

Fundargerðina staðfesta Valdimar O. Hermannsson fundarstjóri og Ólöf Vilbergsdóttir fundarritari, með rafrænni undirritun.

pdfFundargerð og skýrsla aðalfundar 2025