Sigurjón Andrésson bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Tilnefndur til fundarstjóra var Sigurjón Andrésson og Ólöf Vilbergsdóttir var tilnefnd til fundarritara. Ekki komu fram aðrar tillögur og töldust þau þar með rétt kjörin.

Fundarstjóri fór yfir að boðað hefði verið til fundarins í samræmi við samþykkt byggðasamlagsins. Hann kallaði eftir því hvort gerðar væru athugasemdir við lögmæti fundarins eða boðun hans. Engar athugasemdir komu fram. Fulltrúar tók þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Áður en að gengið var til dagskrár var farið yfir fjölda atkvæða og nöfn viðkomandi fulltrúa sveitarfélaga, skv. eftirfarandi.

Sveitarfélag

Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2024

Fulltrúar á aðalfundi 2024

Vopnafjarðarhreppur

3

Kristrún Ósk Pálsdóttir

Fljótsdalshreppur

1

Lilja Sif Magnúsdóttir

Múlaþing

16

Helgi Hlynur Ásgrímsson og Jónína Brynjólfsdóttir

Fjarðabyggð

16

Stefán Þór Eysteinsson

Hornafjörður

8

Sigurjón Andrésson

 

Starfsfólk HAUST sem sat fundinn án atkvæðisréttar: Lára Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri og Ólöf Vilbergsdóttir heilbrigðisfulltrúi.

Á dagskrá fundarins voru eftirfarandi mál:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2023
  2. Ársreikningur 2023
  3. Umræða um liði 1 og 2
  4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
  5. Gjaldskrá HAUST
  6. Umræður um liði 4 og 5
  7. Tillaga að breytingu á stofnsamþykkt
  8. Önnur mál

1.    Skýrsla stjórnar fyrir árið 2023

Stefán Þór Eysteinsson flutti skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan fundargerðinni.

 

2.    Ársreikningur 2023 lagður fram

Lára Guðmundsdóttir kynnti ársreikning 2023. Reikningurinn er endurskoðaður af KPMG.  Ársreikningurinn var tekinn fyrir hjá heilbrigðisnefnd á fundi 17.10.2024 og þá afgreiddur til aðalfundar.

 

Niðurstaða ársreiknings 2023

Áætlun 2023

Tekjur

88.363.939

90.493.796

Gjöld

91.575.292

90.495.315

Niðurstaða

(2.342.776)

(1.519)

 

3.    Umræða um liði 1 og 2

Fundarstjóri gaf orðið laust. Enginn tók til máls.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við ársreikninginn. Svo var ekki og skoðast hann því samþykktur samhljóða.

 

4.    Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár

Lára Guðmundsdóttir kynnti fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Drög að henni voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar 17.10.2024. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að tímagjald hækki um 9,4% og að íbúaframlag sveitarfélaga verði óbreytt eða 25%.

 

5.    Gjaldskrá HAUST

Lára Guðmundsdóttir kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá HAUST. Tillagan gerir ráð fyrir ráð fyrir að upphæðir í nýrri gjaldskrá verði eftirfarandi:

Gjaldskrárbreytingar

 

Nr. 146/2024

Tillaga 2025

Breyting

Tímagjald

16.000

17.500

9,38%

Vatnssýni

31.500

34.000

7,94%

Önnur sýni

23.000

25.000

8,70%

Ný starfsleyfi

30.000

32.000

6,67%

Endurnýjuð starfsleyfi

22.500

24.000

6,67%

 

6.    Umræður um liði 4 og 5

Fundarstjóri gaf orðið laust. Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Lára Guðmundsdóttir, Sigurjón Andrésson og Kristrún Ósk Pálsdóttir.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við fjárhagsáætlun. Svo var ekki og skoðast hún því samþykkt samhljóða.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við tillögu að breytingu á gjaldskrá. Svo var ekki og skoðast tillaga að breytingu á gjaldskrá, því samþykkt samhljóða.

 

7.    Tillaga að breytingu á stofnssamningi

Stefán Þór Eysteinsson, formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands tekur til máls og leggur fram tillögu að breytingu á stofnssamningi byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Í 6 gr. stofnsamnings verði bætt við svohljóðandi setningu: Heimilt er að taka þátt í aðalfundi með rafrænum hætti.

Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væri við breytingartillöguna. Svo var ekki og skoðast breytingar á 6. gr stofnsamningi byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands, því samþykkt samhljóða.

 

8.    Önnur mál

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 14:40.

Fundargerðina staðfesta Sigurjón Andrésson fundarstjóri og Ólöf Vilbergsdóttir fundarritari, með rafrænni undirritun.

Fundargerðin á pdf