Jón Björn Hákonarson, formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands, bauð fundarmenn velkomna og tilnefndi Stefán Boga Sveinsson sem fundarstjóra og Elínborgu S. Pálsdóttur fundarritara. Ekki komu fram aðrar tillögur og töldust þau þar með rétt kjörin.
Fundarstjóri tók við stjórn fundarins og lýsti yfir að boðað hefði verið til fundarins í samræmi við samþykkt byggðasamlagsins. Hann kallaði eftir því hvort gerðar væru athugasemdir við lögmæti fundarins eða boðun hans. Engar athugasemdir komu fram.
Hluti fulltrúa tók þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Áður en að gengið var til dagskrár var farið yfir fjölda atkvæða og nöfn viðkomandi fulltrúa sveitarfélaga, skv. eftirfarandi.
Fundarmenn:
|
Sveitarfélag |
Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2022 |
Fulltrúar á aðalfundi 2022 |
|
Vopnafjarðarhreppur |
3 |
Sandra Konráðsdóttir |
|
Fljótsdalshreppur |
1 |
Halla Auðunardóttir |
|
Múlaþing |
15 |
Berglind Harpa Svavarsdóttir |
|
Fjarðabyggð |
15 |
Jón Björn Hákonarson |
|
Hornafjörður |
8 |
Anna Ragnarsdóttir |
Fulltrúar í heilbrigðisnefnd sem sátu fundinn án atkvæðisréttar: Gunnhildur Imsland, Kristín Ágústsdóttir og Stefán Bogi Sveinsson.
Starfsfólk sem sat fundinn án atkvæðisréttar: Elínborg S. Pálsdóttir og Lára Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri.
Á dagskrá fundarins voru eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2021
- Ársreikningur 2021
- Umræða um liði 1 og 2
- Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
- Gjaldskrá
- Umræður um liði 4 og 5
- Ný heilbrigðisnefnd
- Önnur mál
1. Skýrsla stjórnar fyrir 2021
Jón Björn Hákonarson flutti skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan fundargerðinni.
2. Ársreikningur 2021 lagður fram
Lára Guðmundsdóttir kynnti ársreikning 2021. Reikningurinn er endurskoðaður af KPMG. Ársreikningurinn var tekinn fyrir hjá heilbrigðisnefnd á fundi 14.9.2022 og þá afgreiddur til aðalfundar.
|
Niðurstaða ársreiknings 2021 |
Áætlun 2022 |
|
|
Tekjur |
87.582.476 |
89.866.448 |
|
Gjöld |
86.935.794 |
92.150.488 |
|
Niðurstaða |
659.590 |
-2.284.040 |
3. Umræður um liði 1 og 2
Til máls tóku: Stefán Bogi Sveinsson, Jón Björn Hákonarson og Lára Guðmundsdóttir.
Að umræðu lokinni bar fundarstjóri ársreikninginn upp til atkvæðagreiðslu og var hann samþykktur samhljóða.
4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
Lára Guðmundsdóttir kynnti fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Drög að henni voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar 14.9.2022. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að tímagjald hækki um 5% og að íbúaframlag sveitarfélaga verði lækkað úr 29,5% í 25%.
5. Gjaldskrá HAUST
Lára Guðmundsdóttir kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá HAUST. Tillagan gerir ráð fyrir að upphæðir í nýrri gjaldskrá verði eftirfarandi:
|
Gjaldskrárbreytingar |
|||
|
Nr.22/2022 |
Tillaga 2023 |
Breyting |
|
|
Tímagjald |
14.000 |
14.700 |
5% |
|
Vatnssýni |
28.500 |
30.000 |
5.26% |
|
Önnur sýni |
21.000 |
22.000 |
4.76% |
|
Ný starfsleyfi |
25.600 |
28.000 |
5.66% |
|
Endurnýjuð starfsleyfi |
20.100 |
21.000 |
4.48% |
6. Umræður um liði 4 og 5
Til máls tóku: Anna Ragnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson og Stefán Bogi Sveinsson.
Að umræðu lokinni bar fundarstjóri gjaldskránna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða. Að því loknu var fjárhagsáætlun komandi starfsárs einnig borin upp og samþykkt samhljóða.
7. Ný heilbrigðisnefnd
Ný heilbrigðisnefnd var kynnt og er hún þannig skipuð:
| Aðalmenn: | Stefán Þór Eysteinsson, Fjarðabyggð Jónína Brynjólfsdóttir, Múlaþingi Helgi Hlynur Ásgrímsson, Múlaþingi Anna Ragnarsdóttir Pedersen, Hornafirði |
| F.h. atvinnurekenda | Benedikt Jóhannsson |
| F.h. náttúruverndarnefnda | Kristín Ágústsdóttir |
| Varamenn: | Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Fjarðabyggð Ólafur Áki Ragnarsson, Múlaþingi Kristjana Sigurðardóttir, Múlaþingi Janine Arens, Hornafirði Guðni Jónsson, Fljótsdalshreppi |
| F.h. atvinnurekenda | (Enginn tilnefndur) |
| F.h. náttúruverndarnefnda | Gunnhildur Imsland |
8. Önnur mál
Á fundi heilbrigðisnefndar 14.9.2022 var formanni og varaformanni falið að fara yfir reglur um þóknun fulltrúa í heilbrigðisnefnd og gera tillögur að breytingum til aðalfundar. Eftirfarandi tillaga var lögð fram:
Aðalfundur samþykkir að um þóknun heilbrigðisnefndar fari með sama hætti og verið hefur, þó með þeirri breytingu að greidd verði hálf þóknun fyrir hvern fund sem setinn er gegnum síma eða fjarfundarbúnað.
Greinargerð:
Verulegur munur er á þeim tíma sem heilbrigðisnefnd tekur til funda eftir því hvort um er að ræða staðfund eða fjarfund. Eðlilegt er að það endurspeglist í þóknun. Sú þóknun sem áætluð er fyrir fjar- eða símafund samkvæmt tillögunni er eftir sem áður í góðu samræmi við það sem gengur og gerist varðandi þóknun fyrir sambærileg störf á vettvangi sveitarstjórna.
Fundarstjóri gaf orðið laust um tillöguna. Eftirtaldir tóku til máls: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Anna Ragnarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Jón Björn Hákonarson, Stefán Bogi Sveinsson og Sandra Konráðsdóttir.
Fram kom eftirfarandi vísunartillaga:
Aðalfundur samþykkir að vísa tillögu um þóknun heilbrigðisnefndar til nýrrar heilbrigðisnefndar til endanlegrar afgreiðslu á sínum fyrsta fundi.
Greinargerð:
Kjörnir fulltrúar á sveitarstjórnarstigi eru jafnan í þeirri stöðu að taka ákvörðun um eigin kjör. Því er ekki óeðlilegt að ný heilbrigðisnefnd fari yfir þá tillögu sem fram kom á aðalfundi og taki síðan afstöðu til hennar.
Fundarstjóri bar vísunartillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða.
Ekki komu fram fleiri önnur mál og var dagskrá fundarins þar með tæmd.
Fundarstjóri afhenti fráfarandi formanni stjórn fundarins og þakkaði hann fyrir góða fundarstjórn.
Fráfarandi formaður flutti nokkur lokaorð þar sem hann þakkaði Leifi Þorkelssyni, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri HAUST nýverið, fyrir samstarfið á liðnum árum. Var honum óskað velfarnaðar í nýju starfi, en hann hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 14:35.
Í lok fundar var fundarstjóra og framkvæmdastjóra falið að ganga endanlega frá fundargerð og staðfesta hana með undirritun sinni.
