Jón Björn Hákonarson, formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands, bauð fundarmenn velkomna og tilnefndi Stefán Boga Sveinsson sem fundarstjóra og Láru Guðmundsdóttur fundarritara. Ekki komu fram aðrar tillögur og töldust þau þar með rétt kjörin.
Fundarstjóri tók við stjórn fundarins og lýsti yfir að boðað hefði verið til fundarins í samræmi við samþykkt byggðasamlagsins. Hluti fulltrúa tók þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Áður en að gengið var til dagskrár var farið yfir fjölda atkvæða og nöfn viðkomandi fulltrúa sveitarfélaga, skv. eftirfarandi.
Fundarmenn:
|
Sveitarfélag |
Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2021 |
Fulltrúar á aðalfundi 2021 |
|
Vopnafjarðarhreppur |
3 |
Sara Elísabet Svansdóttir |
|
Fljótsdalshreppur |
1 |
Jóhann Frímann Þórhallsson |
|
Múlaþing |
15 |
Stefán Bogi Sveinsson og Helgi Hlynur Ásgrímsson |
|
Fjarðabyggð |
15 |
Jón Björn Hákonarson |
|
Hornafjörður |
8 |
Matthildur Ásmundardóttir |
Á dagskrá fundarins voru eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2020
- Ársreikningur 2020
- Umræða um liði 1 og 2
- Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
- Gjaldskrá HAUST nr. 22/2020 m.s.br.
- Umræður um liði 4 og 5
- Tillaga að breytingu á stofnsamþykkt
- Önnur mál
1. Skýrsla stjórnar fyrir 2020
Jón Björn Hákonarson flutti skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan fundargerðinni.
2. Ársreikningur 2020 lagður fram
Leifur Þorkelsson kynnti ársreikning 2020. Reikningurinn er endurskoðaður af KPMG og áritaður af skoðunarmönnum. Ársreikningurinn var tekinn fyrir hjá heilbrigðisnefnd á fundi 14.10.2021 og þá afgreiddur til aðalfundar.
|
Niðurstaða ársreiknings 2020 |
Áætlun 2020 |
|
|
Tekjur |
82.586.518 |
88.542.134 |
|
Gjöld |
79.467.844 |
88.534.098 |
|
Niðurstaða |
3.030.304 |
8.036 |
3. Umræður um liði 1 og 2
Til máls tóku, Matthildur Ásmundardóttir, Jóhann F. Þórhallsson, Leifur Þorkelsson og Stefán Bogi Sveinsson.
Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við ársreikninginn. Svo var ekki og skoðast hann því samþykktur samhljóða.
4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
Leifur Þorkelsson kynnti fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Drög að henni voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar 14.10.2021. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að tímagjald hækki um 3,7% og að íbúaframlag sveitarfélaga verði áfram 29,5%.
5. Gjaldskrá HAUST nr. 22/2020
Leifur Þorkelsson kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá HAUST. Tillagan gerir ráð fyrir ráð fyrir að upphæðir í nýrri gjaldskrá verði eftirfarandi:
|
Gjaldskrárbreytingar |
|||
|
2021 |
Tillaga 2022 |
Breyting |
|
|
Tímagjald |
13.500 |
14.000 |
3,70% |
|
Vatnssýni |
27.500 |
28.500 |
3,64% |
|
Önnur sýni |
20.200 |
21.000 |
3,96% |
|
Ný starfsleyfi |
25.600 |
26.500 |
3,52% |
|
Endurnýjuð starfsleyfi |
19.400 |
20.000 |
3,09% |
6. Umræður um liði 4 og 5
Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við fjárhagsáætlun. Svo var ekki og skoðast hún því samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við gjaldskrá. Svo var ekki og skoðast hún því samþykkt samhljóða.
7. Tillaga að breytingu um stofnsamþykkt
Leifur Þorkelsson kynnti tillögur að breytingum á stofnsamþykkt sem gerðar eru í kjölfar athugasemda frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Var m.a. bent á að lagfæra þyrfti atriði sem ekki væru í samræmi við sveitarstjórnarlög, svo sem varðandi fjárhagslegar skuldbindingar. Einnig þurfti að skerpa á ákvæðum varðandi valdframsal.
Tillaga að breytingum var samþykkt á 160. fundi heilbrigðisnefndar og send til umsagnar í ráðuneytinu sem gerði lítilsháttar athugasemdir við tillöguna. Á 163. fundi heilbrigðisnefndar voru lögð fram og samþykkt uppfærð drög að teknu tilliti til athugasemda ráðuneytisins. Jafnframt var samþykkt að vísa tillögunni til afgreiðslu aðalfundar.
Að lokinni kynningu kallaði fundarstjóri eftir því hvort athugasemdir væru gerðar við tillögu að breytingum á stofnsamþykkt Byggðasamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Engar athugasemdir komu fram og skoðast breytingarnar því samþykktar samhljóða.
8. Önnur mál
Ekki voru borin upp önnur mál. Fundarstjóri afhenti formanni stjórn fundarins og þakkaði hann fyrir góða fundarstjórn. Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:25.
Fundargerðina staðfesta Lára Guðmundsdóttir og Stefán Bogi Sveinsson

