Jón Björn Hákonarson formaður Heilbrigðisnefndar Austurlands bauð fundarmenn velkomna og tilnefndi Stefán Boga Sveinsson sem fundarstjóra og Láru Guðmundsdóttur fundarritara. Ekki komu fram aðrar tillögur og töldust þau þar með rétt kjörin.
Fundarstjóri tók við stjórn fundarins og lýsti yfir að boðað hefði verið til fundarins í samræmi við samþykkt byggðarsamlagsins. Hluti fulltrúa tók þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Áður en að gengið var til dagskrár var farið yfir fjölda atkvæða og nöfn viðkomandi fulltrúa sveitarfélaga, skv. eftirfarandi.
Fundarmenn:
|
Sveitarfélag |
Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2020 |
Fulltrúar á aðalfundi 2020 |
|
Vopnafjarðarhreppur |
3 |
Sandra Konráðsdóttir |
|
Fljótsdalshreppur |
1 |
Helgi Gíslason |
|
Múlaþing |
15 |
Stefán Bogi Sveinsson og Helgi Hlynur Ásgrímsson |
|
Fjarðabyggð |
15 |
Jón Björn Hákonarson |
|
Hornafjörður |
8 |
Gunnhildur Imsland og Matthildur Ásmundardóttir |
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2019
- Ársreikningur 2019 lagðir fram
- Umræða um liði 1 og 2
- Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
- Gjaldskrá HAUST nr. 22/2020
- Umræður um liði 4 og 5
- Tillaga að breytingu á stofnsamþykkt
- Kjörinn löggiltur endurskoðandi
- Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
- Önnur mál
1. Skýrsla stjórnar fyrir 2019
Jón Björn Hákonarson flutti skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan fundargerðinni.
2. 2. Ársreikningur 2019 lagður fram
Leifur Þorkelsson kynnti ársreikning 2019. Reikningarnir voru endurskoðaðir af KPMG og áritaðir af skoðunarmönnum. Ársreikningurinn var tekinn fyrir fyrir heilbrigðisnefnd á fundi 6.10.2020 og þá afgreiddur til aðalfundar.
|
Niðurstaða ársreiknings 2019 |
Áætlun 2019 |
|
|
Tekjur |
88.985.518 |
87.097.400 |
|
Gjöld |
86.333.327 |
86.760.000 |
|
Niðurstaða |
2.652.191 |
337.400 |
3. Umræður um liði 1 og 2
Til máls tóku, Jón Björn Hákonarson, Leifur Þorkelsson, Stefán Bogi Sveinsson, Helgi Gíslason og Helgi Hlynur Ásgrímsson.
Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við ársreikninginn. Svo var ekki og skoðast hann því samþykktur samhljóða.
4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár
Leifur Þorkelsson kynnti fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Drög að henni voru samþykkt á fundi heilbrigðisnefndar 6.10.2020. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir lækkun á íbúaframlagi sveitarfélaga úr 30% í 29,5%.
5. Gjaldskrá HAUST nr. 22/2020
Leifur Þorkelsson kynnti tillögu að breytingu á gjaldskrá HAUST Tillagan gerir ráð fyrir ráð fyrir að upphæðir í nýrri gjaldskrá verði eftirfarandi:
|
Gjaldskrárbreytingar |
|||
|
2020 |
Tillaga 2021 |
Breyting |
|
|
Tímagjald |
13.200 |
13.500 |
2,27% |
|
Vatnssýni |
25.500 |
27.500 |
7,84% |
|
Önnur sýni |
20.000 |
20.500 |
2,50% |
|
Ný starfsleyfi |
25.000 |
25.600 |
2,40% |
|
Endurnýjuð starfsleyfi |
19.000 |
19.400 |
2,11% |
6. Umræður um liði 4 og 5
Til máls tóku Helgi Hlynur Ásgrímsson, Stefán Bogi Sveinsson og Helgi Gíslason
Leifur Þorkelsson svaraði fyrirspurnum.
Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við fjárhagsáætlun. Svo var ekki og skoðast hún því samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri kallaði eftir því hvort athugasemdir væru við gjaldskrá. Svo var ekki og skoðast hún því samþykkt samhljóða.
7. Tillaga að breytingu um stofnsamþykkt
Leifur Þorkelsson kynnti tillögur að breytingum á tveimur ákvæðum í stofnsamþykkt Heilbrigðisnefndar Austurlands, sem til koma vegna vegna sameiningar Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Lögð var fram eftirfarandi breyting á 3. gr og 5. gr samþykktarinnar:
3. gr var fyrir breytingu
3. Starfssvæði HAUST er Austurlandssvæði sbr. 6. tl. 45. gr. laga nr. 7/1998 Aðildarsveitarstjórnir eru sammála um að svæðið skiptist í eftirtaldar undirdeildir:
Norðursvæði: Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Borgarfjarðarhreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður
Miðsvæði: Fjarðabyggð
Suðursvæði: Djúpavogshreppur og Hornafjörður
3. gr eftir breytingu
3. Starfssvæði HAUST er Austurlandssvæði sbr. 6. tl. 45. gr. laga nr. 7/1998
5. gr var fyrir breytingu
5. Til að vinna að verkefnum þeim, sem lög og reglugerðir kveða á um eða aðildarsveitarfélögin kjósa að unnið skuli að á vettvangi HAUST, skulu á fyrsta aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs. eftir hverjar reglulegar sveitarstjórnarkosningar, kosnir fimm fulltrúar í heilbrigðisnefnd og jafnmargir til vara. Jafnframt skal kosinn einn fulltrúi náttúruverndarnefnda og einn til vara og leitað eftir tilnefningu eins fulltrúa og eins til vara frá samtökum atvinnurekenda á svæðinu. Skal kjöri aðalmannanna fimm þannig háttað að tveir nefndarmannanna koma frá hverri undirdeild, nema einn frá þeirri deild sem hefur heimili og varnarþing HAUST. Í samræmi við 14. gr. laganna skiptir nefndin sjálf með sér verkum, en samkomulag er um það milli aðildarsveitarfélaganna að formaður og fulltrúi náttúruverndarnefnda komi af því svæði, sem á aðeins einn fulltrúa í nefndinni. Fulltrúi náttúruverndarnefnda hefur málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Ný heilbrigðisnefnd taki til starfa á aðalfundi HAUST, eftir að fyrri nefnd hefur skilað skýrslu, ársreikningum og fjárhagsáætlun.
5. gr eftir breytingu
Til að vinna að verkefnum þeim, sem lög og reglugerðir kveða á um eða aðildarsveitarfélögin kjósa að unnið skuli að á vettvangi HAUST, skulu á fyrsta aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs eftir hverjar reglulegar sveitarstjórnarkosningar, kosnir fimm fulltrúar í heilbrigðisnefnd og jafnmargir til vara. Jafnframt skal kosinn einn fulltrúi náttúruverndarnefnda og einn til vara og leitað eftir tilnefningu eins fulltrúa og eins til vara frá samtökum atvinnurekenda á svæðinu. Skal kjöri aðalmannanna fimm háttað í samræmi við eftirfarandi töflu:
|
Sveitarfélag |
Fulltrúar |
|
Fjarðabyggð |
1 |
|
Múlaþing |
2 |
|
Hornafjörður |
1 |
|
Vopnafjarðarhreppur |
1 |
|
Fljótsdalshreppur |
Í samræmi við 48. gr. laga nr. 7/1998 skiptir nefndin sjálf með sér verkum en samkomulag er um það milli aðildarsveitarfélaganna að formaður og fulltrúi náttúruverndarnefnda komi úr Fjarðabyggð. Fulltrúi náttúruverndarnefnda hefur málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Ný heilbrigðisnefnd taki til starfa á aðalfundi HAUST, eftir að fyrri nefnd hefur skilað skýrslu, ársreikningum og fjárhagsáætlun.
Til máls tóku, Helgi Gíslason, Leifur Þorkelsson, Matthildur Ásmundardóttir og Jón Björn Hákonarson.
Að umræðu lokinni kallaði fundarstjóri eftir því hvort athugasemdir væru gerðar við breytingar á 3. gr og 5 .gr stofnsamþykktar Byggðasamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Engar athugasemdir komu fram og skoðast breytingarnar því samþykktar samhljóða.
8. Kjörinn löggiltur endurskoðandi
Leifur Þorkelsson lagði fram tillögu um að KPMG yrði endurskoðandi.
Fundarstjóri kallaði eftir athugasemdum við þessa tillögu, eða öðrum tillögum. Engar athugasemdir komu fram og skoðast tillagan því samþykkt samhljóða.
9. Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
Lagt er til að skoðunarmenn reikninga verði Ólöf Ingunn Björnsdóttir, fjármálastjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Halldóra Óskarsdóttir, sérfræðingur á fjármálasviði Múlaþings.
Skoðunarmenn til vara verði Jón Þórðarson Múlaþingi og Gunnþórunn Ingólfsdóttir Fljótsdalshreppi.
Fundarstjóri kallaði eftir athugasemdum eða öðrum tillögum. Engar athugasemdir komu fram og skoðast tillagan því samþykkt samhljóða.
10. Önnur mál
Skipun heilbrigðisnefndar
Heilbrigðisnefnd skipa nú eftirfarandi:
|
Formaður |
Jón Björn Hákonarson, Fjarðabyggð |
|
Stefán Bogi Sveinsson, Múlaþingi |
|
|
Helgi Hlynur Ásgrímsson, Múlaþingi Gunnhildur Imsland, Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Sandra Konráðsdóttir Vopnafjarðarhreppi |
|
|
F.h. atvinnurekenda |
Benedikt Jóhannsson |
|
F.h. náttúruverndarnefnda |
Kristín Ágústdóttir |
|
Varamenn: |
Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Fjarðabyggð |
|
Gauti Jóhannesson, Múlaþingi |
|
|
Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, Múlaþingi Kristján Sigurður Guðnason, Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Ásdís Helga Bjarnadóttir, Fljótsdalshreppi |
|
|
F.h. atvinnurekenda |
Auður Anna Ingólfsdóttir |
|
F.h. náttúruverndarnefnda |
Lovísa Rósa Bjarnadóttir |
Ekki voru fleiri önnur mál. Fundarstjóri afhenti formanni stjórn fundarins sem þakkaði fyrir góða fundarstjórn. Fleira ekki gert og fundi slitið kl 14:43
Fundargerðina staðfesta Leifur Þorkelsson og Stefán Bogi Sveinsson

