Dagskrá skv. fundarboði:
- Skýrsla stjórnar fyrir árið 2012
- Ársreikningar 2012 lagðir fram
- Umræða um liði 1 og 2
- Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár, 2014
- Tillaga um breytingu á gjaldskrá
- Umræður um liði 4 og 5
- Kjörinn löggiltur endurskoðandi
- Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
- Stutt umfjöllun um fráveitumál sveitarfélaga
- Önnur mál
Mætt:
Úr Heilbrigðisnefnd:
Valdimar O. Hermannsson
Benedikt Jóhannsson
Andrés Skúlason
Eiður Ragnarsson
Aðalsteinn Ásmundsson
Aðrir:
Bjarni Sveinsson
Úlfar Trausti Þórðarson
Daníel Björnsson
Agnar Bóasson
Gunnþórunn Ingólfsdóttir
Haukur Ingi Einarsson
Jakob Sigurðsson
Karl Sölvi Guðmundsson
Jón Þórðarson
Starfsmenn:
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson
Borgþór Freysteinsson
Júlía Siglaugsdóttir
Valdimar O. Hermannsson, formaður heilbrigðisnefndar, setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Valdimar bauð Karl Guðmundsson framkvæmdastjóra Austurbrúar sérstaklega velkominn, enda mikilvægt að tengja starf HAUST traustum böndum við nýja samstarfsstofnun.
Valdimar kynnti það fyrirkomulag fundarins að aðalfundarstörf fari fram í Vinaminni en bauð að fundarmönnum boðið að þiggja kaffiveitingar í Álfakaffi í lok fundar. 2
Valdimar lagði til að Jakob Sigurðsson, oddviti Borgarfjarðarhrepps myndi stjórna fundi og að Leifur Þorkelsson ritað fundargerð og var það samþykkt samhljóða og gengið til dagskrár.
Fundarstjóri óskaði eftir upplýsingum um hverjir færu með umboð og atkvæðisrétt fyrir sveitarfélögin skv. tilnefningum til HAUST ýmist með kjörbréfum eða tölvupósti.
Tafla yfir fjölda atkvæða og nöfn fulltrúa sveitarfélaga á aðalfund HAUST 2013:
|
Sveitarfélag |
Fjöldi atkvæða á aðalfundi 2013 |
Nafn fulltrúa sem fer með atkvæði sveitarfélags: |
|
Vopnafjarðarhreppur |
3 |
Andrés Skúlason skv. umboði |
|
Fljótsdalshreppur |
1 |
Gunnþórunn Ingólfsdóttir |
|
Fljótsdalshérað |
11 |
Úlfar Trausti Þórðarson |
|
Seyðisfjarðarkaupstaður |
3 |
Daníel Björnsson |
|
Borgarfjarðarhreppur |
1 |
Bjarni Sveinsson |
|
Fjarðabyggð |
14 |
Agnar Bóasson |
|
Breiðdalshreppur |
1 |
Valdimar Hermannsson skv. umboði |
|
Djúpavogshreppur |
2 |
Andrés Skúlason |
|
Hornafjörður |
7 |
Haukur Ingi Einarsson |
|
Samt.: |
43
|
1. Skýrsla stjórnar
Valdimar O. Hermannsson, formaður heilbrigðisnefndar, flutti skýrslu stjórnar. Skýrslan fylgir fundargerðinni.
2. Ársreikningar 2012 lagðir fram
Helga Hr., framkvæmdastjóri, kynnti ársreikningana. Reikningarnir voru endurskoðaðir af KPMG og áritaðir af skoðunarmönnum og reikningana og heilbrigðisnefnd.
Helstu niðurstöðutölur ársreiknings 2012 eru sem hér segir (í þúsundum króna):
|
niðurstaða ársreiknings 2012 |
áætlun 2012 |
niðurstaða ársreiknings 2011 |
|
|
Rekstartekjur |
51.702 |
47.002 |
44.971 |
|
Rekstargjöld |
48.378 |
46.702 |
43.389 |
|
Mismunur tekna og gjalda |
3.324 |
301 |
1.582 |
|
Hagnaður ársins |
3.453 |
1.607 |
Tekjur umfram áætlun skýrast aðallega af endurgreiðslum vegna kostnaðar við sýnatökur, sem voru langt umfram áætlun, en einnig af auknum tekjum vegna sérverkefna á Norðurlandi eystra að ósk Umhverfisstofnunar.
Gjöld umfram áætlun eru aðallega vegna aukins kostnaðar við sýnatökur og launakostnaður vegna verkefna umfram áætlun.
3. Umræða um liði 1 og 2 skýrslu stjórnar og ársreikninga 2012
Til máls tóku: Valdimar, Helga, Haukur Ingi, Úlfar, Aðalsteinn, Andrés, Eiður, Leifur, Jakob.
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2012 var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Ársreikningar fyrir árið 2012 voru bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða.
4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár 2014
Leifur Þorkelsson fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði.
Drög að fjárhagsáætlun 2014 voru til umfjöllunar á 111. fundi heilbrigðisnefndar þann 2.9.2013. Á þeim fundir voru drögin samþykkt og afgreidd til aðalfundar:
Gert er ráð fyrir
- að gjaldskráin sem var samþykkt árið 2011 verði fullnýtt, þ.e. að tímagjaldið 9.400 kr. verði nýtt sem grunnur að eftirlits- og starfsleyfagjöldum frá 1.1.2014. Þegar gjaldskráin var samþykkt lá ekki fyrir hvort samningar um verkefni fyrir UST næðust og því var gert ráð fyrir 9.400 kr, en eftir að þeir samningar náðust var ákveðið að fullnýta ekki heimild gjaldskrárinnar og nota kr. 9.200 sem tímagjald.
- að gjald vegna rannsókna á neysluvatnssýnum verið hækkað úr kr. 12.500 í kr. 15.000, enda er raunkostnaður rannsóknastofu vegna þessara sýna kr. 16.750. Ekki þarf að hækka gjöld vegna annarra reglubundinna rannsókna.
- að launahækkanir uppá 4% verði á árinu.
Helstu niðurstöðutölur tillögu að fjárhagsáætlun 2014 eru sem hér segir, til samanburðar eru áætlun 2013 og ársreikningur 2012.
|
Ársreikn 2012 |
Áætlun 2013 |
Tillaga að áætlun 2014 |
|
|
Rekstartekjur |
51.702.441 |
48.990.263 |
52.292.129 |
|
Framlög sveitarfélaga |
41.979.294 |
43.752.183 |
45.454.548 |
|
Sértekjur HAUST |
9.723.147 |
5.238.080 |
6.837.581 |
|
Þar af tekjur v samninga vi. UST |
2.698.093 |
2.138.080 |
2.245.190 |
|
Rekstargjöld |
48.378.209 |
48.894.500 |
53.562.534 |
|
Mismunur tekna og gjalda |
3.324.232 |
95.763 |
-1.270.405 |
5. Tillaga um breytingu á gjaldskrá
Helga Hr. kynnir tillöguna: Lagt er til að grein 2 verði breytt þannig að í stað eftirfarandi ákvæðis
Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun kr. 12.500
komi
Gjald vegna rannsóknar pr. neysluvatnssýni skv. eftirlitsáætlun kr. 15.000
Gjald vegna rannsókna á öðrum sýnum skv. eftirlitsáætlun Kr. 12.500
Rök fyrir þessari breytingu eru að raunkostnaður við rannsóknir á neysluvatni hafa hækkað til muna og eru dýrari en kostnaður við rannsóknir á ís úr vél, baðvatni og öðrum sýnum skv. eftirlitsáætlun.
6. Umræður um lið 4 og 5, fjárhagsáætlun 2014 og gjaldskrárbreytingu
Til máls tóku: Eiður, Leifur, Karl, Valdimar, Helga, Úlfar.
Drög að fjárhagsáætlun voru borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Breyting á gjaldskrá borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
7. Kjörinn löggiltur endurskoðandi
Á aðalfundi 2011 bárust tilboð frá tveim endurskoðunarfyrirtækjum. KPMG bauð lægra og var samþykkt að nota þeirra þjónustu.
Tillaga er um að óska áfram þjónustu frá sama fyrirtæki.
Tillagan lögð fram og samþykkt samhljóða.
8. Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara
Tillaga er um að kjósa enn sömu skoðunarmenn reikninga og verið hafa, þ.e. Ástu Halldóru Guðmundsdóttur, fjármálastjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Stefán Bragason, starfsmanna- og skrifstofustjóra Fljótsdalshéraðs. Einnig lagt til að sömu varamenn verði kosnir áfram, þ.e. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti í Fljótsdalshreppi og Páll Baldursson sveitarstjóri Breiðdalshrepps.
Tillagan lögð fram og samþykkt samhljóða.
9. Stutt umfjöllun um fráveitumál sveitarfélaga
Helga Hr. fjallaði stuttlega um starfsleyfisskyldu fráveitna sveitarfélaga og sagði frá framkvæmdum á Borgarfirði eystri, en það sveitarfélag hefur sýnt mikinn metnað í fráveitumálum og farið aðrar leiðir en sveitarfélög af svipaðri stærðargráðu. Með því að hafa rotþrær í fjörum þéttbýlisins forðast sveitarfélög að dýrar lagnir brotni í brimi. Unnið er að tengingu siturlagna aftan við rotþrærnar í fjörunum í kjölfar þess að gerlamælingar sýndu skólpmengun í strandsjó.
Jón Þórðarson sveitarstjóri á Borgarfirði kom á fundinn og fjallaði um fráveitumál á Borgarfirði og staðsetningu útrásarlagna meðal annars m.t.t. hafstrauma og hitastigs. Jón kom einnig inná frágang við rotþrær og virkni þeirra.
10. Önnur mál
Til máls tóku: Karl Guðmundsson, Jón Þórðarson, Valdimar Hermannson.
Fundi slitið kl. 15:50 og boðið til kaffiveitinga í Álfakaffi. Á leið milli Vinaminnis og Álfakaffis var stoppað við Svínalæk og frágangur rotþróa skoðaður.
Fundargerðina staðfesta:
Jakob Sigurðsson
fundarstjóri
Leifur Þorkelsson
fundarritari
Fundargerð aðalfundar 2013 á pdf
Aðalfundarmenn við Svínalæk á Borgarfirði eystri. Frá vinstri: Haukur Ingi, Daníel, Gunnþórunn, Aðalsteinn, Valdimar, Benedikt, Júlía, Leifur, Borgþór, Úlfar, Jakob, Eiður, Agnar, Bjarni, Andrés, Jón, Karl Sölvi.
