Heilbrigðisnefndarmenn:
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Gunnhildur Imsland
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústdóttir
Starfsmenn:
Leifur Þorkelsson
Lára Guðmundsdóttir
Dagskrá:
- Bókuð útgefin starfsleyfi 927
- Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 928
- Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva 928
- Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Múlaþingi 929
- Umgengni á iðnaðarlóðum 929
- Vinna milli funda 929
- Önnur mál 930
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
700-701 Múlaþing - Fljótsdalshérað
a) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. starfsleyfi fyrir vatnsveitu í Sænautaseli. Leyfi útgefið 1.3.2021.
b) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki við Smárahvamm. Leyfi útgefið 19.4.2021.
c) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki við Votahvamm. Leyfi útgefið 19.4.2021.
d) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki í Hallormsstað. Leyfi útgefið 19.4.2021.
e) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki við Mánatröð. Leyfi útgefið 19.4.2021.
f) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki við Einbúablá. Leyfi útgefið 19.4.2021.
g) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki við Eyvindrá. Leyfi útgefið 19.4.2021.
h) Efri Jökuldalur ehf., kt. 640221-0700. starfsleyfi fyrir sölu á gistingu, tjaldsvæði og vatnsveitu á Grund. Leyfi útgefið 19.4.2021.
701 Fljótsdalshreppur
i) Landsvirkjun, kt. 420269-1299. Endurnýjað starfsleyfi fyrir 690 MW vatnsaflsvirkjun ásamt tilheyrandi stíflum og mannvirkjum sem þjóna starfseminni. Leyfi útgefið 20.4.2021.
710 Múlaþing – Seyðisfjörður
j) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. starfsleyfi fyrir vatnsveitu á Seyðisfirði. Leyfi útgefið 1.3.2021.
k) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. starfsleyfi fyrir vatnsveitu sem þjónar skíðaskálnum í Stafdal. Leyfi útgefið 1.3.2021.
l) Launafl ehf., kt. 490606-1730. starfsleyfi fyrir niðurrifi á asbesti – Fossgata 5. Leyfi útgefið 27.4.2021.
720 Múlaþing – Borgarfjörður eystri
m) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. starfsleyfi fyrir vatnsveitu á Borgarfirði. Leyfi útgefið 1.3.2021.
765 Múlaþing – Djúpivogur
n) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. starfsleyfi fyrir vatnsveitu á Djúpavogi. Leyfi útgefið 1.3.2021.
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
o) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. starfsleyfi fyrir veitingasölu í skíðaskálanum í Oddskarði. Leyfi útgefið 16.2.2021.
750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður
p) Fjarðabyggð, kt. 470698-20999. Endurnýjað starfsleyfi fyrir sundlaug að Skólavegi 39-41. Leyfi útgefið 26.3.2021.
q) Fjarðabyggð, kt. 470698-20999. Endurnýjað starfsleyfi fyrir félagsmiðstöð að Skólavegi 45-47. Leyfi útgefið 9.4.2021.
r) Fáskrúðsfjarðarkirkja, kt. 520169-4239. Endurnýjað starfsleyfi fyrir kirkju og safnaðarheimili að Skólavegi 69. Leyfi útgefið 27.4.2021.
780-781 Höfn
s) JM ehf., kt. 700807-1770. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu að Vesturbraut 2. Leyfi útgefið 3.3.2021.
t) Hafnarkirkja, kt. 590169-7309. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir kirkju og safnaðarheimili að Kirkjubraut. Leyfi útgefið 12.9.2021.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
a) Krónan ehf., kt.711298-2239 Tóbakssöluleyfi í Krónunni að Hafnargötu 2. Leyfi útgefið 16.3.2021.
760 Fjarðabyggð – Breiðdalsvík
b) Goðaborg ehf., kt 020481-2939 Tóbakssöluleyfi í Kaupfjelaginu að Sólvöllum 25 Leyfi útgefið 10.3.2021.
3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva
3.1 Dagsverk á Egilsstöðum
Á 160. fundi heilbrigðisnefndar þann 24. febrúar 2021 var fyrirtækinu veittur frestur til 6. apríl 2021 til að ljúka upphreinsun á lóð sinni við Vallaveg eða leggja fram tímasetta úrbótaáætlun.
Búið er að fjarlægja talsvert af hjólbörðum o.fl. af lóðinni en eitthvað er enn eftir. Fyrirtækið hefur óskað eftir þriggja mánaða viðbótarfresti til þess að ljúka tiltekt á lóðinni í samræmi við áður framkomnar kröfur.
Heilbrigðisnefnd samþykkir að veita fyrirtækinu viðbótarfrest til 1. ágúst til þess að ljúka upphreinsun og tiltekt á lóðinni og leggur áherslu á að fresturinn verði nýttur upphreinsunar.
4. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Múlaþingi
Drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Múlaþingi lögð fyrir fundinn.
Starfsmönnum falið að gera lítilsháttar breytingar á drögunum áður en þau verða send sveitarfélaginu til meðferðar
5. Umgengni á iðnaðarlóðum
Heilbrigðisnefnd vill vekja athygli á því að umgengni á iðnaðarlóðum á starfssvæði nefndarinnar þarf í mörgum tilfellum að bæta. Víða hafa umráðamenn lóða safnað að sér umtalsverðu magni af ýmiskonar lausamunum á borð við úr sér gengin ökutæki og vinnuvélar, hjólbarða, timburafganga o.fl.
Heilbrigðisnefnd hvetur umráðmenn iðnaðarlóða til þess að halda lóðum sínum hreinum og snyrtilegum og fjarlægja af þeim lausamuni, drasl og annað sem ekki tengist daglegum rekstri. Starfsmönnum falið að fylgjast sérstaklega með umgengni á iðnaðarlóðum á næstunni og gera kröfu um úrbætur sé þeirra þörf.
6. Vinna milli funda
Umsagnir um skipulagsmál
6.1 Umsögn um skipulagslýsingu og vinnslutillögu fyrir breytingu á aðalskipulagi Seyðisfjarðar 2010-2030 -Vesturvegur 4-
6.2 Umsögn um skipulagslýsingu og vinnslutillögu fyrir breytingu á aðalskipulagi Borgarfjarðar 2004-2016 -Gamla frystihúsið-
6.3 Umsögn um skipulagstillögur vegna ofanflóðavarnargarða undir Bjólfshlíðum á Seyðisfirði
6.4 Umsögn um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 og tillögu að deiliskipulagi fyrir Innri-Gleðivík á Djúpavogi
6.5 Umsögn um tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúabyggð við Garðarsveg á Seyðisfirði
6.6 Umsögn um drög að tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar
Aðrar umsagnir
6.7 Umsögn um undanþágu frá starfsleyfi vegna niðurrifs Hafnargötu 46 á Seyðisfirði
6.8 Umsögn um uppfærðar teikningar af viðbyggingu við Viking Café á Horni við Hornafjörð
6.9 Umsögn um teikningar af fyrirhuguðum endurbótum á félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði
6.10 Umsögn til sýslumanns um rekstrarleyfisumsókn Gistiheimilisins Dyngju ehf. til sölu gistingar í flokki II að Hafnarbraut 1 á Höfn
6.11 Umsögn í tengslum við grenndarkynningu vegna vinnubúða við Hrappsstaði í Vopnafirði
7. Önnur mál
7.1 Næsti fundur heilbrigðisnefndar fer fram þann 2. júní nk. á Djúpavogi kl 13:00.
Fundi slitið kl. 13:40
Fundargerðin færð í tölvu og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Fundargerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Leifur Þorkelsson
Gunnhildur Imsland
