Heilbrigðisnefndarmenn viðstaddir:

Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Benedikt Jóhannsson, Eiður Ragnarsson og Borghildur Sverrisdóttir sem varamaður fyrir Ólaf Hr. Sigurðsson, sem boðaði forföll.

Starfsmenn viðstaddir:

Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 638
  2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 640
  3. Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka. 641
    3.1      Sundlaugin í Selárdal. 641
    3.2      Dekkjaþjónusta Gunna Blikk, Ránargötu 2a, Seyðisfirði 641
    3.3      Skeljungur – aldur tanka. 641
    3.4      N1 hf. 641
    3.4.1      N1 hf, starfsstöð á Reyðarfirði 641
    3.4.2      Ný starfsstöð N1 hf. á Eskifirði 642
  4. Framsalssamningar HAUST og MAST. 642
  5. Drög að ársskýrslu 2012. 642
  6. Önnur mál 643
    6.1      Starfsmannabústaðir í ferðaþjónustu. 643
    6.2      Fráveitumál 643
    6.3      Næstu fundir . 643
    6.4      Myglusveppir 643
  7. Starfsmannamál 643

Frkvstj. óskaði eftir dagskrárbreytingu, þ.e. að færa umræðu um starfsmannamál, sem voru liður 6 í boðaðri dagskrá, aftur fyrir lið 7 um önnur mál. Þetta var samþykkt og númerum liða í fundargerð er breytt í samræmi við það.

1        Bókuð útgefin starfsleyfi  

690 Vopnafjarðarhreppur

a)Vopnafjarðarhreppur, kt., 710069-5569. Starfsleyfi fyrir félagsheimilið Miklagarð Miðbraut 1 á Vopnafirði. Um er að ræða samkomusal með fullbúnu eldhúsi, án samfelldrar starfsemi. Starfsleyfi útgefið 15.2.2013.

700-701 Fljótsdalshérað

b) Halldór Sigurðsson, kt. 120457-4469, f.h. þorrablótsnefndar Eiða-og Hjaltastaðaþingáa. Tímabundið starfsleyfi/ fyrir þorrablót í Hjaltalundi 16.2.2013. Leyfið útgefið 15.1.2013.

c) Jón Júlíusson, kt. 210447-4669 f.h. þorrablótsnefndar Skriðdæla. Tímabundið starfsleyfi vegna þorrablóts í félagsheimilinu Arnhólsstöðum þann 16.2.2013. Leyfið útgefið 24.1.2013.

d) Sigvaldi H. Ragnarsson, kt. 290668-3529 f.h. Góunefndar Jökuldælinga- og Hlíðarmanna. Tímabundið starfsleyfi fyrir Góugleði í Brúarásskóla þann 9.3.2013. Leyfið útgefið 1.2.2013.

e) Gróa Kristín Bjarnadóttir, kt. 230367-4939. Endurnýjað starfsleyfi fyrir veitingasölu í flugstöðinni á Egilsstaðaflugvelli. Starfsleyfi útgefið 19.2.2013.

f) Bautinn ehf. kt. 540471-0379. Tímabundið starfsleyfi vegna árshátíðar Alcoa Fjarðaáls í íþróttahúsinu á Egilsstöðum dagana 9. og 16.mars 2013. Leyfi útgefið 5.3.2013.

g) Birta ehf. kt. 420802-2260. Breyting á starfsleyfi vegna flutnings, Birta, Miðvangi 2-3, húðgötun aðeins eyru. Leyfið útgefið 5.3.2013.

h) Guðmundur Magni Bjarnason, kt. 060284-2109. Tímabundið starfsleyfi vegna niðurrifs íbúðarhúss að Laufási 3, 700 Egilsstöðum. Leyfi útgefið 6.3.2013.

i) Þ.S. Verktakar ehf., kt. 410200-3250. Starfleyfi fyrir geymslu og lítilsháttar viðgerðaraðstöðu tækja og véla fyrirtækisins að Miðási 19-21, 700 Egilsstaðir. Leyfið gildir frá: 7. mars 2013 til 31. júní 2013 og er gefið út með kröfu um að á starfsleyfistímanum verði olíuskilja orðin nothæf.

j) Rafey ehf., kt. 440789-5529. Starfsleyfi fyrir bílaverkstæði, vélaverkstæði og rafvélaverkstæði að Miðási 11, 700 Egilsstaðir. Leyfið gildir frá 8. mars 2013 til 1. september 2013 og er gefið út með kröfu um að á starfsleyfistímanum verði mengunarvarnir fyrirtækisins bættar.

701 Fljótsdalshreppur

k) Gunnar Jónsson kt. 181148-3739 f.h. Þorrablótsnefndar Dalamanna Fljótsdal, kt. 690269-6009,. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót í Végarði þann 9.2.2013. Leyfið útgefið 16.1.2013

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

l) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir félagsheimilið Félagslund. Leyfið útgefið 1.2.2013.

Eiður mætir til fundar kl. 9:10

m) Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, kt. 220466-4699. Tímabundið starfsleyfi fyrir skemmtun og tískusýningu í Félagslundi Reyðarfirði þann 1.3.2013. Leyfið útgefið 25.2.2013.

n) East coast rental ehf., kt. 6506122050. Nýtt starfsleyfi fyrir Áhaldaleigu Austurlands, Nesbraut 2, 730 Reyðarfjörður. Leyfi útgefið 19.3.2013.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður

o) Einar Már Kristinsson, kt. 151154-5069. Tímabundið starfsleyfi fyrir þorrablót í Valhöll þann 26.1.2013. Leyfið útgefið 15.1.2013.

p) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir félagsheimilið Valhöll. Leyfið útgefið 1.2.2013.

q) Eyri Eskifirði ehf., 441011-0160. Starfsleyfi vegna mengunarvarna við matvælaframleiðslu að Hafnargötu 4. Matvælastofnun hefur yfirtekið eftirlit með matvælaþætti starfseminnar og því nær starfsleyfi HAUST nú eingöngu til mengunarvarna. Fyrra starfsleyfi frá 6. desember 2011 er jafnframt fellt úr gildi. Nýtt starfsleyfi útgefið 5.3.2013.

r) Sporður hf., 610269-6219. Starfsleyfi vegna mengunarvarna við matvælaframleiðslu að Strandgötu 97. Matvælastofnun hefur yfirtekið eftirlit með matvælaþætti starfseminnar og því nær starfsleyfi HAUST nú eingöngu til mengunarvarna. Fyrra starfsleyfi frá 1. desember 2010 er jafnframt fellt úr gildi. Nýtt starfsleyfi útgefið 5.3.2013

780-785 Hornafjörður

s) Þorrablótsnefnd Hornafjarðar, kt. 690101-2460. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót í íþróttahúsi Heppuskóla 26. janúar 2013.. Ábyrgðarmaður er Valgeir Þór Steinarsson, kt. 140370-3049. Leyfi útgefið 15.1.2013.

t) Þorrablót Nesja– og Lónmanna, kt. 681290-1339. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót í Samkomuhúsi Mánagarði þann 2.febrúar 2013. Ábyrgðarmaður er Valgerður Egilsdóttir, kt, 131156-4139. Leyfið útgefið 25.1.2013.

u) Heiðrún Högnadóttir, kt. 111078-6029. Breyting á starfsleyfi, nýr rekstaraðili. Starfsleyfi fyrir sölu á gistingu fyrir fjölskyldu eða hópa í íbúð á efri hæð hússins að Vikurbraut 2. Leyfi útgefið 31.1.2013.

v) Góugleði í Félagsheimili Hofgarði Öræfum. Tímabundið starfsleyfi fyrir Góuhóf í Hofgarði þann 2. mars 2013. Ábyrgðarmaður er Guðmundur B Þórðarson, kt, 270461-2479. Leyfið útgefið 1. febrúar 2013.

w) Sæmundur Jón Jónsson, kt. 020482-4869. Starfsleyfi vegna mengunarvarna við matvælaframleiðslu í Árbæ á Mýrum. Matvælastofnun hefur yfirtekið eftirlit með matvælaþætti starfseminnar og því nær starfsleyfi HAUST nú eingöngu til mengunarvarna. Fyrra starfsleyfi frá 3. maí 2008 er jafnframt fellt úr gildi. Nýtt starfsleyfi útgefið 5.3.2013.

 

2        Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

700 Egilsstaðir

a) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Nettó Egilsstöðum Kaupvangi 6, 700 Egilsstaðir. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 5.3.2013.

710 Seyðisfjarðarkaupstaður

b) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Samkaup strax Seyðisfirði, Vesturvegi 1, 710 Seyðisfjörður. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 25.2.2013.

720 Borgarfjörður eystri

c) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Samkaup strax Borgarfirði eystri, Bakkaeyri, 720 Borgarfjörður. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 25.2.2013.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður

d) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Samkaup strax Eskifirði, Strandgötu 50, 735 Eskifjörður. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 25.2.2013.

740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður

e) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Samkaup úrval Neskaupstað, Hafnarbraut 13, 740 Neskaupstaður. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 25.2.2013.

750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður

f) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Samkaup strax Fáskrúðsfirði, Skolavegi 59, 750 Fáskrúðsfjöður. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 25.2.2013.

765 Djúpivogur

g) Samkaup hf., kt. 271298-3763. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í versluninni Samkaup strax Djúpavogi, Búlandi 1, 765 Djúpivogur. Ábyrgðarmaður Ómar Valdimarsson, kt. 111165-4089. Leyfi útgefið 25.2.2013.

 

3   Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka

3.1   Sundlaugin í Selárdal.

Framhald af síðasta fundi.

Með tölvupósti dags. 18.2013 hafa borist tímasettar áætlanir um lúkningu úrbóta í sundlauginni í Selárdal, þannig að fyrir lok árs geti laugin flokkast sem A laug.  

Heilbrigðisnefnd samþykkir tímabundið starfsleyfi til ársloka 2013.

 

3.2       Dekkjaþjónusta Gunna Blikk, Ránargötu 2a, Seyðisfirði

Bókun á fundi 107:

Gamall olíutankur er í jaðri lóðar. Tankurinn er orðinn eldri en 25 ára og því hefur verið gerð krafa um að hann verði tekinn upp. Þann 28.12. 2012 var sent ítrekunarbréf með kröfu um tímasettar áætlanir um hvernig og hvenær úr verði bætt. Frestur til svara er miður febrúar 2012.

Heilbrigðisnefnd samþykkir að starfsmenn gangi hart eftir því að gamlir tankar verði fjarlægðir.

Í kjölfar móttöku á bréfi með bókun nefndarinnar upplýsti rekstaraðili að húsnæði fyrirtækisins hafi verið byggt árið 1992 og að tankurinn ekki eldri. Þar með er ofangreind bókun marklaus, enda nær tankurinn ekki 25 ára aldri fyrr en árið 2017.

 

3.3       Skeljungur – aldur tanka

Í kjölfar eftirlits haustið 2012 voru Skeljungi send bréf, m.a. vegna of gamalla olíutanka. Um er að ræða eftirfarandi starfsstöðvar;

Skeljungur Egilsstöðum         Tankar frá 1984
Skeljungur Seyðisfirði            Tankar frá 1987
Skeljungur Reyðarfirði           Tankar frá 1985

Þann 15.3. barst erindi frá Skeljungi með ósk undanþágu til að mega nota tankana þrátt fyrir aldur umfram 25 ár. Jafnframt voru kynnt áform um að endurnýja tankana á Egilsstöðum og Seyðisfirði á árinu 2014 og á Reyðarfirði árið 2016. Fyrirtækið lagði einnig fram gögn sem sýna fram á fjarmælingar, þ.e. mælingar á birgðastöðu og samanburði við sölutölur sem gefa til kynna ef til leka kemur úr tönkum. Fram hefur komið að ekki finnast lekaprófanir á umræddum tönkum, en slíkar mælingar skal gera á 10 ára fresti skv. 76. gr. reglugerðar 35/1994 m.s.br.

Í tölvupósti dags. 19.3.2013 kynnti fyrirtækið áform um lekaprófanir í ofangreindum tökum í mars 2013.

Heilbrigðisnefnd samþykkir að fresta ákvörðun um hvort undanþága verður veitt fram í fyrstu viku apríl, enda hafi fyrirtækið þá sent inn gögn um lekaprófanir. Formanni, varaformanni og frkvst. falið að afgreiða málið milli funda. Berist ekki gögn sem sýna fram á gott ástand tankanna skal notkun þeirra hætt tafarlaust.  

 

3.4      N1 hf.

3.4.1    N1 hf, starfsstöð á Reyðarfirði

Bókun á fundi 106:

N1 hf., kt. 5402062010 sótti um starfsleyfi fyrir nýja bensínstöð að Búðargötu 5, 730 Reyðarfjörður. Við skoðun kom í ljós að skilyrði fyrir starfsleyfi voru ekki að fullu uppfyllt.

Að fenginni jákvæðri umsögn frá Umhverfisstofnun og í samráði við formann heilbrigðisnefndar var gefið út starfsleyfi til tveggja mánaða með tímabundinni undanþágu á frá ákvæði í 1. mgr. 66. greinar í reglugerð nr. 35/1994 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi m.s.br. þar sem segir: „Afgreiðslutæki skal staðsetja á upphækkun til að verja þau fyrir hnjaski.“

Starfsleyfi fyrir nýja bensínstöð N1 á Reyðarfirði var gefin út skv. ofangreindri bókun og rann leyfið út þann 10.2.2013. Ekki hefur verið sótt um nýtt starfsleyfi né heldur framlengingu á fyrra leyfi.

Tillögur N1 um upphækkun og/eða aðrar varnir í þeim tilgangi að verja afgreiðslutæki fyrir hnjaski voru kynntar og ræddar.

Það er mat heilbrigðisnefndar að fram lagðar tillögur N1 fullnægi ekki eftirfarandi kröfu reglugerðar 35/1994: „Afgreiðslutæki skal staðsetja á upphækkun til að verja þau fyrir hnjaski.“

Fyrirtækinu er hér með veittur þriggja vikna frestur til að sækja um nýtt starfsleyfi og leggja fram ný gögn um hvernig það hyggst uppfylla kröfur reglugerðarinnar

Minnt er á að bensínstöðin er án starfsleyfis og að ekki er heimild til að starfrækja eftirlitsskylda starfsemi án gildra starfsleyfa.

 

3.4.2      Ný starfsstöð N1 hf. á Eskifirði

Unnið er að uppsetningu nýrrar bensínstöðvar N1 á Eskifirði. Eins og í bensínstöðinni N1 á Reyðarfirði var ekki gert ráð fyrir upphækkun undir afgreiðsludælum. Í

Tillögur N1 um upphækkun og/eða aðrar varnir í þeim tilgangi að verja afgreiðslutæki fyrir hnjaski voru kynntar og ræddar.

Það er mat heilbrigðisnefndar að fram lagðar tillögur N1 fullnægi ekki eftirfarandi kröfu reglugerðar 35/1994: „Afgreiðslutæki skal staðsetja á upphækkun til að verja þau fyrir hnjaski.“

 

4  Framsalssamningar HAUST og MAST

Eftirlit með fyrirtækjum sem féllu undir framsalssamning HAUST og Matvælastofnunnar

Samningur HAUST og Matvælastofnunnar (MAST) um framsal eftirlits féll úr gildi um áramót. Skv. samningum fór HAUST með eftirlit í 8 fyrirtækjum. Í kjölfar reglugerðarbreytinga og yfirferðar MAST á starfsemi þeirra fyrirtækja sem um ræðir varð niðurstaða stofnunarinnar sú að aðeins 3 þessara fyrirtækja færist yfir til MAST en 5 verð undir eftirliti HAUST. Ekki er lengur um framsalssamning að ræða. HAUST mun eftir sem áður sinna umhverfis og mengunarvarnareftirliti í þeim þrem fyrirtækjum sem færast yfir til MAST.

LÞ svarar fyrirspurnum, enda hefur gætt óánægju hjá fyrirtæjum sem fara yfir tli MAST.


5   Drög að ársskýrslu 2012

Fyrir fundinn voru lögð drög að ársskýrslu 2012. Nokkur umræða varð um drögin, m.a. um neysluvatnskaflann. Nefndarmenn voru almennt ánægðir með uppsetningu skýrslunnar og framsetningu gagna.

Heilbrigðisnefnd samþykkir fram lögð drög og felur starfsmönnum að ganga frá henni og senda sveitarfélögunum og öðrum eins og venja er.


6    Önnur mál

6.1       Starfsmannabústaðir í ferðaþjónustu

Kynnt var að vegna kvartana og ábendinga um slakan aðbúnað í starfsmannabústöðum á ferðaþjónustustöðum hafa starfsmenn ákveðið að sinna eftirliti í slíkum stöðum sérstaklega.

6.2       Fráveitumál

HHr segi frá bréfi til UST , dags. 18.1.2013 í kjölfar bókunar á seinasta fundi. Ósk um skilgreiningar í fráveitumálum og svör sem borist hafa.

Bókun á fundi 107:

Samþykkt að sveitarfélögum á starfssvæði HAUST verði send bréf þar sem fram kemur að málið hafi verið rætt í nefndinni. Jafnframt komi fram að gert sé ráð fyrir að frá og með næstu áramótum verði gefin út starfsleyfi á fráveitur allra sveitarfélaga í samræmi gildandi lög og reglugerðir.

Kynnt að vegna óvissu um skilgreiningar hugtaka í fráveitureglugerð var Umhverfisstofnun sent bréf dags. 18.1.2013 með ósk um leiðbeiningar. Framkvæmd ofangreindrar bókunar frá 107. Fundi frestast því.

6.3       Næstu fundir

Tillaga er um snertifund á Eskifirði miðvikudaginn 22. maí. 2013 – 12:00

Benni sýni okkur fyrirtækið „sitt“ Eskju og Sigurlaug segi okkur frá hreinlæti eða ekki hreinlæti í Vietnam og Kambodia.

6.4       Myglusveppir

Spurt um myglu og sveppi í húsnæði. Kynnt að heilbrigðisfulltrúar hafa tekið þátt í borgarafundi um málið og setið fræðslunámskeið þar um. Allnokkuð er um fyrirspurnir símleiðis og eining beiðnir um að starfsmenn skoði húsnæði. Reynt er að greiða úr málum eins og efni og aðstæður leyfa.

Helga Hreinsdóttir vék af fundi.

7  Starfsmannamál

Auglýst var eftir starfsmanni til sumarafleysinga á dögunum umsóknarfrestur rann út þann 15. mars sl. 5 einstaklingar sóttu um starfið.

Farið var yfir umsóknir um starfið.

Staðgengli framkvæmdarstjóra falið að ræða við tiltekin umsækjanda um starfið.

Fundi slitið kl. 10:00

Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og Leifi Þorkelssyni og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

Valdimar O. Hermannsson
Árni Kristinsson
Borghildur Sverrisdóttir
Sigurlaug Gissurardóttir
Eiður Ragnarsson
Andrés Skúlason
Benedikt Jóhannsson
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson

pdfFundargerð á pdf