Heilbrigðisnefndarmenn:
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Gunnhildur Imsland
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústdóttir

Starfsmenn:
Leifur Þorkelsson
Lára Guðmundsdóttir

Dagskrá:

1. Bókuð útgefin starfsleyfi 947
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 949
3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva 949
4. Tillaga að framsalssamningi milli MAST og heilbrigðisnefnda 949
5. Drög að nýrri reglugerð um hollustuhætti 950
6. Vinna milli funda 950
7. Starfsemi ársins 2021 951
8. Starfssemi ársins 2022 951
9. Önnur mál 951

 

1. Bókuð útgefin starfsleyfi

690 Vopnafjarðarhreppur
a) Brim hf., kt. 541185-0389. Endurnýjað starfsleyfi fyrir fiskvinnslu að Hafnarbyggð 8 Leyfið útgefið 3.12.2021.
b) Brim hf., kt. 541185-0389. Endurnýjað starfsleyfi fyrir fiskvinnslu að Hafnarbyggð 12. Leyfið útgefið 3.12.2021.

700-701 Múlaþing - Fljótsdalshérað
c) Eimskip Ísland ehf., kt. 421104-3520. Endurnýjað starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð að Miðási 19-21. Leyfi útgefið 8.12.2021.
d) Meindýravarnir í Múlasýslum ehf., kt. 491121-2540. Breyting á starfsleyfi fyrir meindýravarnir og eyðingu meindýra. Leyfi útgefið 17.12.2021.
e) Særún Sævarsdóttir, kt. 180785-3299. Starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu að Laugarvöllum 16. Leyfi útgefið 21.12.2021.
f) Björgunarsveitin Hérað, kt. 481199-2989. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningar á Þverklettum á Egilsstöðum á gamlársdag og á þrettánda. Leyfi útgefið 27.12.2021
g) Múlaþing 660220-1350 Starfsleyfi fyrir áramóta- og þrettándabrennur í Tjarnargarðinum. Leyfi útgefið 27.12.2021.
h) Sigfús Ingi Víkingsson, kt. 121174-3839. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Skógargerði. Leyfi útgefið 14.1.2022.
i) Stormur búgarður ehf., kt. 570114-1580. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Stormi. Leyfi útgefið 14.1.2022.

710 Múlaþing – Seyðisfjörður
j) Heilbrigðisstofnun Austurlands, kt. 610199-2839. Starfsleyfi fyrir heilsugæslu, mötuneyti og dvalarheimili að Suðurgötu 8. Leyfi útgefið 17.11.2021.

720 Múlaþing – Borgarfjörður eystri
k) Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á norðurenda flugbrautar. Leyfi útgefið 27.12.2021.

701 Fljótsdalshreppur
l) Fljótsdalshreppur, kt. 550169-5339. Endurnýjað starfsleyfi fyrir samkomuhús í Végarði. Leyfi útgefið 5.1.2022.
m) Gunnarsstofnun, kt. 451099-2569. Endurnýjað starfsleyfi fyrir vatnsveitu Skriðuklaustri. Leyfi útgefið 10.1.2022.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
n) Björgunarsveitin Brimrún kt. 710186-1389. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu um áramót. Leyfi útgefið 28.1.2022.

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
o) Björgunarsveitin Ársól, kt. 591289-2769. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu um áramót. Leyfið útgefið 15.12.2021.
p) Terra umhverfisþjónusta hf., kt. 470596-2289. Starfsleyfi fyrir móttökustöð úrgangs til endurvinnslu, endurnýtingar eða förgunar, og flutningi á úrgangi og spilliefnum til móttökustöðvar, að Hafnargötu 6. Leyfi útgefið 28.1.2022.

740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
q) Björgunarsveitin Gerpir, kt. 550579-0499. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu um áramót. Leyfið útgefið 15.12.2021.
r) Guðrún Björg Víkingsdóttir, kt. 060562-2619. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu að Hafnarbraut 1. Leyfi útgefið 25.1.2022.
s) Súlkus ehf., kt. 490805-0280. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir tannlæknastofu að Hafnarbraut 1. Leyfi útgefið 26.1.2022.

750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður
t) Sigdís Telma Gunnarsdóttir, kt. 100393-2639. Starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu að Borgarstíg 1. Leyfi útgefið 2.12.2021.
u) Responsible Foods ehf., kt. 640519-0880. Starfsleyfi fyrir fiskvinnslu að Hafnargötu 23. Leyfi útgefið 22.12.2021
v) Björgunarsveitin Geisli, kt. 471188-2559. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu um áramót. Leyfi útgefið 28.1.2022.

755 Fjarðabyggð – Stöðvarfjörður
w) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á Melseyri ofan Birgisness. Leyfi útgefið 27.12.2021.

760 Fjarðabyggð – Breiðdalsvík
x) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á malarsvæði sunnan við Gámavöll. Leyfi útgefið 27.12.2021.
y) Björgunarsveitin Eining, kt. 510590-2289. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu um ármót. Leyfi útgefið 28.1.2022.

765 Múlaþing – Djúpivogur
z) Stefán Gunnarsson, kt. 040762-3539. Starfsleyfi fyrir niðurrifi fjárhúsum og hlöðu á Melrakkanesi, jafnframt er heilmilt að nýta óvirkan úrgang til landfyllingar. Leyfi útgefið 13.12.2021.
aa) Slysavarnadeildin Báran, kt. 480982-0379. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningu um áramót. Leyfi útgefið 30.12.2021.

780-785 Höfn
bb) Björgunarfélag Hornafjarðar kt. 640485-0439. Starfsleyfi fyrir flugeldasýningar á Hornafirði á gamlársdag og á þrettánda. Leyfi útgefið 28.12.2021.
cc) Sveitarfélagið Hornafjörður kt. 590169-4639 Starfsleyfi fyrir fráveitu þéttbýlisins á Höfn. Leyfi útgefið 31.12.2021.
dd) Sveitarfélagið Hornafjörður kt. 590169-4639. Starfsleyfi fyrir skólphreinsivirki í Nesjahverfi. Leyfi útgefið 31.12.2021.
ee) Mikael ehf., kt, 620997-3079. Starfsleyfi fyrir sölu á gistingu að Hafnarbraut 8. Starfsleyfi útgefið 3.1.2022.
ff) Skinney – Þinganes hf., kt. 481069-2989. Starfsleyfi fyrir fiskvinnslu að Krossey. Starfsleyfi útgefið 11.1.2022.
gg) Skinney – Þinganes hf., kt. 481069-2989. Starfsleyfi fyrir þurrkun fiskafurða að Miðósi 17. Starfsleyfi útgefið 11.1.2022.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.

2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

710 Múlaþing Seyðisfjörður
a) El Grillo ehf., kt. 6909032020. Tóbakssöluleyfi í Kaffi Láru, Norðurgötu 3. Leyfi útgefið 10. 1.2022.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu leyfisins

3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva

3.1 Mjólkursamsalan á Egilsstöðum

Á 159. fundi heilbrigðisnefndar var samþykkt úrbótaáætlun fyrirtækisins sem gerði ráð fyrir að lokahluta framkvæmda við hreinsun á fráveituvatni yrði lokið í árslok 2021. Skv. síðustu mælingum á frárennslisvatni sem fram fóru í júní 2020 var magn COD í frárennsli ennþá yfir viðmiðunarmörkum í starfsleyfi. Töluverður árangur hafði náðst í hreinsun á fitu og svifögnum sem mældust undir mörkum. Ekki liggja fyrir upplýsingar frá fyrirtækinu um það hvort uppsetningu á nauðsynlegum búnaði sé lokið.

Heilbrigðisnefnd óskar eftir upplýsingum um hvort framkvæmdum við lokahluta framkvæmdanna er lokið. Jafnframt leggur nefndin áherslu á að sýni verði tekin af fráveituvatni sem allra fyrst og ekki síðar en 1. júlí nk.

3.2 Loðnuvinnslan Hafnargötu 32 á Fáskrúðsfirði

Kvartanir hafa borist frá íbúum í nágrenni frystihúss Loðnuvinnslunnar vegna hávaða frá eimsvala. Mælingar sem framkvæmdar voru af verkfræðistofunni Eflu í september 2020 staðfestu að hávaði við húsveggi í nærliggjandi íbúabyggð var yfir þeim mörkum sem tiltekin eru í reglugerð 724/2008 um hávaða. Framkvæmdir hafa staðið yfir við húsnæðið að undanförnu og m.a. var skipt um eimsvala í þeim tilgagni að draga úr hávaða frá starfseminni. Þrátt fyrir þessar úrbætur berst enn kvartanir vegna hávaða frá fyrirtækinu.

Heilbrigðnefnd gerir þá kröfu að hávaðamælingar frá árinu 2020 verði endurteknar þannig að unnt verði að leggja mat á hvort úrbætur fyrirtækisins hafi skilað tilætluðum árangri. Fyrirtækið fær frest til 1. mars nk. til að skila niðurstöðum mælinganna

4. Tillaga að framsalssamningi milli MAST og heilbrigðisnefnda

Matvælastofnun hefur gert tillögu að samningi við heilbrigðisnefndir sveitarfélaga um mögulegt framsal eftirlits. Einhverjar athugasemdir komu fram varðandi orðalag og von er á endurskoðaðri tillögu á næstu dögum.

Heilbrigðisnefnd fagnar framkomnum samningsdrögum enda er það nú sem endranær skoðun nefndarinnar að hagkvæmast sé að eftirliti sé sinnt úr nærumhverfinu. Framkvæmdastjóra falið að undirrita endanlegan samning fyrir hönd nefndarinnar.


5.  Drög að nýrri reglugerð um hollustuhætti

Kynnt voru drög að nýrri reglugerð um hollustuhætti sem voru til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda í upphafi árs.

Heilbrigðisnefnd telur fulla þörf á því að núgildandi reglugerð sem er frá árinu 2002 verði endurskoðuð eða ný reglugerð samþykkt. Nefndin fagnar því sérstaklega að í framlögðum drögunum er skerpt á samræmingar- og hagkvæmnishlutverki Umhverfisstofnunnar og eftirlitshlutverki heilbrigðisnefnda. Hins vegar er ljóst að talsverð vinna er eftir áður en ný reglugerð verður tilbúin og orðin nothæf við heilbrigðiseftirlit. Heilbrigðisnefnd tekur undir athugasemdir við drögin frá SHÍ og öðrum heilbrigðiseftirlitssvæðum og leggur áherslu á að tekið verið tillit til þeirra í þeirri vinnu sem framundan er.

6. Vinna milli funda

Umsagnir um skipulagsmál

6.1 Um verkefnalýsingu fyrir tillögu að breyttu aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028
Nýjar íbúðarlóðir á Egilsstöðum
6.2 Um lýsingu fyrir nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Vopnafjarðar
verndarsvæði í byggð
6.3 Um skipulagslýsingu vegna rammahluta aðalskipulags Fljótsdalshéraðs 2008-2028
Ferðaþjónustu- og áfangastaðurinn Stuðlagil
6.4 Um skipulagslýsingu vegna deiliskipulags í landi Hákonarstaða á Efri-Jökuldal
6.5 Um skipulagslýsingu vegna breytingar á deiliskipulagi í landi Grundar á Jökuldal
6.6 Um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 Efnistaka á Suðurfjörum
6.7 Um lýsingu fyrir gerð deiliskipulags þjónustusvæðis í Skaftafelli
6.8 Um lýsingu vegna endurskoðunar deiliskipulags Hornafjarðarhafnar við Ósland
6.9 Um skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020

Aðrar umsagnir

6.10 Um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir gistiheimili að Brennistöðum 4, 700 Egilsstöðum
6.11 Um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Birnufelli 1/lóð 1, 700 Egilsstöðum
6.12 Um teikningu af bensínstöð við Öskju Kaffi, Möðrudal
6.13 Um aðaluppdrætti af viðbyggingu við löndunarhús fiskimjölsverksmiðju SVN, 740 Neskaupstað
6.14 Um aðaluppdrætti af þurrgeymslu Eskju við Leirubakka, 735 Eskifirði.
6.15 Um teikningar af eldsneytisafgreiðslu fyrir smábáta við Norðfjarðarhöfn, 740 Neskaupstað
6.16 Um aðaluppdrætti að þjónustuhúsi við Hengifoss, Fljótsdal
6.17 Um aðaluppdrætti af gistihúsi við Óbyggðasetur á Egilsstöðum í Fljótsdal.
6.18 Um aðaluppdrætti af starfsmannarými við veiðihúsið Hálsakot í Jökulsárhlíð
6.19 um matsskyldu framkvæmdar við aðflugsljós norðan flugbrautar á Egilsstaðaflugvelli
6.20 um matsskyldu framkvæmdar við gerð akstursíþróttasvæðis í Skagafelli á Eyvindarárdal

 

7. Starfsemi ársins 2021

Í árslok 2021 hafði tekist að ljúka yfir 90% af áætluðu eftirliti ársins og sömuleiðis höfðu verið tekin um 90% þeirra sýna sem ráðgert var að taka. Ástæður þess að ekki tekst að heimsækja fyrirtæki vegna eftirlits og/eða sýnatöku geta verið margskonar en starfsemi einhverra fyrirtækja var takmörkuð á árinu m.a. vegna sóttvarnarráðstafana og í einhverjum tilfellum voru fyrirtæki hætt störfum en höfðu ekki tilkynnt það til HAUST.

8. Starfssemi ársins 2022

8.1 Eftirlitsáætlun ársins 2022 lögð fram og samþykkt. Á eftirlitsskrá eru samtals 870 starfsstöðvar. Jafnframt samþykkt að stefnt skuli á að ljúka eftirliti ársins fyrir 15. desember nk.

8.2 Sýnatökuáætlun ársins lögð fram og samþykkt. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði alls 302 sýni á árinu 2022

 

9. Önnur mál

9.1 Gjaldskrá HAUST

Gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á Austurlandssvæði nr.22/2022 var birt í stjórnartíðindum þann 17. janúar sl. og hefur þar með tekið gildi.

9.2 Vatnsveitustyrkir fyrir lögbýli

Heilbrigðisnefnd vekur athygli á því að opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrk vegna vatnsveitna á lögbýlum. Hægt er sækja um styrk í gegn um þjónustugátt Matvælastofnunnar og er umsóknarfrestur til 28. febrúar n.k.

9.3 Næsti fundur

Verður haldinn þann 6. apríl kl 13:00 í gegn um Teams.

Fundi slitið kl. 13:56

Fundargerðin færð í tölvu og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Fundargerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Leifur Þorkelsson
Gunnhildur Imsland

 

pdfFUNDARGERÐ á PDF