Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Ólöf Vilbergsdóttir
Kjartan Róbertsson
Dagskrá:
1. Bókuð útgefin starfsleyfi 970
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 971
3. Skráningarskyldur atvinnurekstur 971
4. MS Egilsstöðum 971
5. Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði 971
6. Vinna milli funda 972
7. Önnur mál 973
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
690 Vopnafjörður
a) Íslenskir aðalverktakar hf., 660169-2379. Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir í Ytri Hlíð. Leyfi útgefið 13.1.2023.
700-701 Múlaþing - Fljótsdalshérað
b) Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir efnistöku, náma E14 Eyvindarárdal. Starfsleyfi útgefið 21.12.2022.
c) Sólrún Júlía Hjartardóttir Kjerúlf, 300579-4859. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á Hrafnkelsstöðum. Starfsleyfi útgefið 22.12.2022.
d) Kvenfélag Hróarstungu, 451199-2859. Starfsleyfi fyrir félagsheimilið Tungubúð og vatnsveitu. Starfsleyfi útgefið 9.1.2023.
710 Múlaþing – Seyðisfjörður
e) Múlaþing, kt. 660220-1350. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu við Langatanga. Starfsleyfi útgefið 29.12.2022.
720 Múlaþing – Borgarfjörður eystri
f) Múlaþing, 660220-1350 Starfsleyfi fyrir söfnunarstöð fyrir úrgang í áhaldahúsinu á Heiði. Starfsleyfi útgefið 17.01.2023.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
g) Alcoa Fjarðaál sf., 520303-4210. Starfsleyfi fyrir vöruskemmu að Leiruvogi 8. Starfsleyfi útgefið 19.12.2022.
h) Alcoa Fjarðaál sf., 520303-4210. Starfsleyfi fyrir geymsluskemma við Seljateigsland. Starfsleyfi útgefið 1.1.2023 með gildistíma í eitt ár.
740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
i) Fjarðabyggð, 470699-2099. Starfsleyfi fyrir íþróttahús að Mýrargötu 10. Starfsleyfi útgefið 13.1.2023.
780-785 Höfn
j) Eimskip Island ehf., 421104-3520. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð að Álaugarvegi 8. Starfsleyfi gefið út 10.1.2023.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
700-701 Múlaþing - Fljótsdalshérað
a) N1 ehf., 411003-3370. Tóbakssöluleyfi að Kaupvangi 4. Leyfi útgefið 5.1.2023.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
b) Djákninn ehf., kt. 530716-1120. Tóbakssöluleyfi í sjoppunni minni að Búðareyri 28. Leyfi útgefið 22.12.2022.
780-785 Höfn
c) N1 ehf., 411003-3370. Tóbakssöluleyfi að Vesturbraut 1. Leyfi útgefið 5.1.2023.
d) Samkaup hf., 571298-3769. Tóbakssöluleyfi í Nettó að Litlubrú 1. Leyfi útgefið 9.1.2023.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa.
3. Skráningarskyldur atvinnurekstur
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
a) Hekla Björk Jensdóttir, 020298-2359. Flugeldasýning við Valhöll á Eskifirði 4.2.2023. Skráning staðfest 17.1.2023.
Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu skv. reglugerð nr. 830/2022.
4. MS Egilsstöðum
Á 166. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands var óskað eftir upplýsingum frá MS á Egilsstöðum um hvenær lokahluta framkvæmda við hreinsun á fráveituvatni yrði lokið. Settur var upp búnaður til að hreinsa prótein og fitu árið 2019 en uppsetningu á búnaði til að hreinsa mjólkursykur úr fráveituvatni hefur tafist. Tetra Pak framleiðandi tækisins hefur gefið út að búnaðurinn verði tilbúinn til afhendingar 20. mars í Danmörku og ætti því að vera tilbúinn til uppsetningar um miðjan apríl í starfsstöð MS á Egilsstöðum.
Heilbrigðisnefnd felur heilbrigðisfulltrúum að fylgja eftir uppsetningu á tækinu og taka sýni af fráveituvatni þegar uppsetningu er lokið. Niðurstöður sýnatöku verði kynntar fyrir heilbrigðisnefnd þegar þær liggja fyrir.
5. Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði
Framkvæmdar voru hávaðamælingar í nágrenni frystihúss Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði að beiðni Fjarðabyggðar og HAUST. Mælingarnar voru framkvæmdar af verkfræðistofunni Mannvit í ágúst og september 2022 og skýrslu skilað í lok desember. Niðurstöður mælinga benda til þess að hljóðstig frá vinnslu sé yfir skilgreindum mörkum að næturlagi við húsvegg frá atvinnustarfsemi. Það á við bæði þegar full vinnsla er í gangi og þegar einungis viðhaldsvél er í gangi. Hljóðstig mælist hins vegar innan skilgreindra marka á daginn og kvöldin.
Lagt var fram minnisblað frá verkfræðistofunni Eflu dags 16.1.2023 fyrir hönd Loðnuvinnslunnar þar sem sjónarmiðum þeirra var komið á framfæri varðandi hljóðmælingar.
Þó að aðgerðir Loðnuvinnslunnar til að draga úr hávaða frá starfsemi sinni hafi nú þegar skilað árangri er hávaði að mælast yfir viðmiðunarmörk að næturlagi. Ekki hefur verið hægt að sýna fram á með óyggjandi hætti að hávaði sem mælist stafi ekki frá starfsemi Loðnuvinnslunnar. Heilbrigðisnefnd hvetur því fyrirtækið til að ná sátt í málinu og óskar eftir tímasettri áætlun um aðgerðir til að draga úr hávaða frá starfseminni. Tímasettri áætlun um úrbætur skal skila fyrir 2. febrúar n.k.
6. Vinna milli funda
| Umsagnir um skipulagsmál | |
| 6.1 | Um matsáætlun fyrir allt að 500 MW vindorkugarð í landi Klaustursels, 701 Egilsstöðum. |
| Aðrar umsagnir | |
| 6.2 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í íþróttahúsinu á Reyðarfirði vegna þorrablóts 20. janúar 2023. |
| 6.3 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna góuhófs í Hofgarði þann 4. mars 2023, 780 Höfn. |
| 6.4 | Um tækifærisleyfi tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts í íþróttahúsinu við Heppuskóla, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar, 21. janúar 2023. |
| 6.5 |
Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á Aski Taproom, Fagradalsbraut 25, 700 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar, 1. janúar 2023. |
| 6.6 | Um tímabundið áfengisleyfi á Bistro Skaftfell, Austurvegi 42, 710 Seyðisfirði. Tímasetning viðburðar, 31. desember 2022 til 1. janúar 2023. |
| 6.7 | Um brennuleyfi vegna áramótabrennu á Reyðarfirði. |
| 6.8 | Um brennuleyfi vegna áramótabrennu á Eskifirði. |
| 6.9 | Um brennuleyfi vegna áramótabrennu í Neskaupstað. |
| 6.10 | Um brennuleyfi vegna áramótabrennu á Fáskrúðsfirði. |
| 6.11 | Um brennuleyfi vegna áramótabrennu á Stöðvarfirði. |
| 6.12 | Um brennuleyfi vegna áramótabrennu á Breiðdalsvík. |
| 6.13 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts Nesja og Lónamanna í Mánagarði, 781 Höfn. Tímasetning viðburðar 28.1.2023. |
| 6.14 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts Fellamanna í íþróttahúsinu í Fellabæ, 700 Egilsstaðir. 27.1.2023. |
| 6.15 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts Egilsstaða í íþróttahúsinu á Egilsstöðum, 700 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 20.1.2023. |
| 6.16 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts Seyðisfjarðar í íþróttahúsinu á Seyðisfirði, 710 Seyðisfirði. Tímasetning viðburðar 21.1.2023. |
| 6.17 | Umsögn um aðaluppdrætti – frístundahús að Ásgötu 18, 701 Egilsstaðir. |
| 6.18 |
Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts eldri Hornfirðinga í Sindrabæ, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 27.1.2023. |
| 6.19 | Um tækifærisleyfi vegna hjónaballs í Félagsheimilinu Skrúði, 750 Fáskrúðsfirði. Tímasetning viðburðar 28.1.2023. |
| 6.20 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í íþróttahúsinu Neskaupstað. Tímasetning viðburðar 28.1.2023. |
| 6.21 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts á Hrollaugsstöðum, 781 Höfn. Tímasetning viðburðar 4.2.2023. |
| 6.22 | Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í Hjaltalundi, 701 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 11.2.2023. |
7. Önnur mál
7.1 Fundadagskrá fyrir árið 2023
Eftirfarandi fundardagskrá fyrir fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands fyrir árið 2023 var lögð fram:
23. mars
7. september
15. júní (snertifundur)
12. október (snertifundur)
7. desember
Fundardagskrá var samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 10:03
Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna
FUNDARGERÐ 171 á PDF
