Heilbrigðisnefndarmenn:
Jón Björn Hákonarson
Davíð Þór Sigurðarson
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Aðalheiður Borgþórsdóttir
Gunnhildir Imsland
Kristín Ágústdóttir
Benedikt Jóhannsson
Starfsmenn:
Leifur Þorkelsson
Lára Guðmundsdóttir
Dagskrá:
1 Bókuð útgefin starfsleyfi 900
2 Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva 901
3 Starfsemi ársins 2020 902
4 Breytingar á verðskrá og afsláttarkjörum rannsóknarstofu Matís ohf. 902
5 Vinna milli funda 903
6 Önnur mál 903
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
690-691 Vopnafjörður
a) Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569. Endurnýjað starfsleyfi fyrir brennu á gamlárskvöld árin 2019-2023 að báðum árum meðtöldum við Búðaröxl ofan þéttbýlis Vopnafjarðar. Leyfi útgefið 16.12.2019.
b) Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569. Endurnýjað starfsleyfi fyrir söfnunar- og móttökustöð úrgangs og spilliefna frá heimilum og smærri fyrirtækjum. Leyfi útgefið 13.1.2020.
701 Fljótsdalshreppur
c) Landsnet hf., kt. 580804-2410. Endurnýjað starfsleyfi fyrir tengivirki á Valþjófsstað í Fljótsdal, lóð A1. Leyfi útgefið 16.12.2019.
700-701 Fljótsdalshérað
d) Landsnet hf., kt. 580804-2410. Endurnýjað starfsleyfi fyrir tengivirki á Eyvindará, Fljótsdalshéraði. Leyfi útgefið 16.12.2019.
e) Landsnet hf., kt. 580804-2410. Endurnýjað starfsleyfi fyrir tengivirki á Hryggstekk, Fljótsdalshéraði. Leyfi útgefið 16.12.2019.
f) Erna Jóhanna Erlendsdóttir kt.170662-4159. Starfsleyfi fyrir áfyllingu á neysluvatnskúta í húsnæði Dagsverks við Vallaveg. Leyfi útgefið 17.12.2019
g) Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Endurnýjað starfsleyfi fyrir íþróttavöll að Einhleypingi 2a. Leyfi útgefið 18.12.2019.
h) Gunnþóra Snæþórsdóttir, kt. 310352-4389. Starfsleyfi fyrir nálastungustofu að Gilsárteigi 1. Leyfi útgefið 15.1.2020.
i) Samskip innanlands ehf., kt. 710169-4629. Starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð að Kaupvangi 25. Leyfi útgefið 23.1.2020.
j) Askja kaffi ehf., kt., 590219-2580. Starfsleyfi fyrir kaffihúsi og vatnsveitu að Möðrudalsleið 2. Leyfi útgefið 10.2.2020.
710 Seyðisfjörður
k) Seyðisfjarðarkaupstaður, kt. 560269-4559. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir vatnsveitu Seyðisfjarðar. Leyfi útgefið 21.1.2020.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
l) Hártískuhúsið Centrum ehf., kt. 610896-2439. Starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu að Búðareyri 15. Leyfi útgefið 11.12.2019.
m) Alcoa Fjarðaál sf., kt. 520303-4210. Endurnýjað tímabundið leyfi fyrir geymslu kerbrota í skemmu í landi Seljateigs. Gildistími leyfis: 1.1.2020-31.12.2020.
n) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á Reyðarfirði. Leyfi útgefið 30.12.2019.
o) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Endurnýjað starfsleyfi fyrir leikskóladeild í Félagslundi. Leyfi útgefið 4.1.2020.
p) Samskip innanlands ehf., kt. 710169-4629. Endurnýjað starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð að Hafnargötu 5. Leyfi útgefið 23.1.2020.
735 Fjarðabyggð - Eskifjörður
q) Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á Eskifirði. Leyfi útgefið 30.12.2019.
740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
r) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir áramótabrennu á Neskaupstaði. Leyfi útgefið 30.12.2019.
s) Gallerí hár ehf., kt. 700101-2150. Starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu og húðgötun í eyru að Egilsbraut 8. Leyfi útgefið 9.1.2020.
750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður
t) Magnús Þorri Magnússon, kt. 090269-4969. Starfsleyfi fyrir meindýravörnum og eyðingu meindýra. Leyfi útgefið 28.1.2020.
765 Djúpivogur
u) Frú Stefanía ehf., kt. 701219-0150. Breyting á starfsleyfi fyrir sölu á veitingum í Löngubúð. Leyfi útgefið 24.1.2020.
780-785 Hornafjörður.
v) Isavia ohf., kt. 550210-0370. Endurnýjun starfsleyfis fyrir rekstur Hornafjarðarflugvallar. Leyfi útgefið 13.12.2019.
w) Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639. Starfsleyfi fyrir niðurrif á húsi, Hafnarbraut 25. Leyfi útgefið 16.12.2019.
x) Sláturfélagið Búi svf., kt. 570901-3460. Starfsleyfi fyrir sláturhúsi að Heppuvegi 6. Leyfi útgefið 19.12.2019.
y) Ungmennafélagið Máni, kt. 640485-0439. Starfsleyfi fyrir þrettándabrennu við Laxá í Nesjum. Leyfi útgefið 19.12.2019.
z) Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639. Starfsleyfi fyrir niðurrif á Krosseyjarvegi 5. Leyfi útgefið 16.1.2020.
aa) Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, kt. 491087-2509. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu. Leyfi útgefið 22.1.2020.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.
2 Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva
2.1 Olíuverzlun Íslands ehf. Lagarfelli 2 í Fellbæ.
Starfsleyfi vegna starfseminnar rennur út í byrjun mars nk. og sótt hefur verið um endurnýjun. Hinsvegar er nauðsynlegum úrbótum m.a. áfyllingarplan ekki lokið og stöðin uppfyllir því ekki þau skilyrði sem til hennar eru gerðar. Sótt var um byggingarleyfi vegna framkvæmdarinnar í nóvember en sú umsókn hefur enn ekki verið samþykkt m.a. vegna kröfu um grenndarkynningu.
Ekki var farin sú leið að innheimta dagsektir eins og áður hafði verið boðað þar sem umsókn um byggingarleyfi hafði verið lögð fram þann 15. desember. Heilbrigðisnefnd ítrekar fyrri afstöðu sína og samþykir að starfsleyfið verði ekki endurnýjað fyrr en umsækjandi getur sýnt fram á að starfsstöðin uppfylli kröfur laga og reglugerða sem um starfsemina gilda.
2.2 Mjólkursamsalan á Egilsstöðum
Með tölvupósti þann 10. desember 2019 upplýsti Mjólkursamsalan að uppsetningu á búnaði til að hreinsa prótein og fitu væri að mestu lokið og jafnframt að sýnatökur væru fyrirhugaðar uppúr áramótum. Þann 11. febrúar bárust upplýsingar frá MS um að sýnatökur hefðu ekki farið fram m.a. vegna tíðarfars.
Heilbrigðisnefnd fagnar því ef frárennslismál frá starfsstöðinni eru að komst í lag en leggur áherslu á að bætt ástand verði staðfest með sýnatökum sem allra fyrst.
3 Starfsemi ársins 2020
3.1 Eftirlitáætlun ársins 2020
Eftirlitsáætlun ársins 2020 lögð fram og samþykkt. Á eftirlitsskrá eru samtals 922 starfsstöðvar. Jafnframt samþykkt að stefnt skuli að ljúka eftirliti ársins fyrir 15. desember nk. Framkvæmdastjóra falið að upplýsa nefndina reglulega um framvindu eftirlits.
3.2 Sýnatökuáætlun
Sýnatökuáætlun ársins lögð fram og samþykkt. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði alls 320 sýni á árinu 2020. Framkvæmdastjóra falið að upplýsa nefndina reglulega um framvindu sýnatöku.
3.3 Starfsmannamál
Í samræmi við fjárhagsáætlun var samþykkt að auglýsa eftir heilbrigðisfulltrúa til starfa frá 1. júní nk. Jafnframt var samþykkt að ráða Elínborgu Sædísi Pálsóttur í afleysingar frá 1. mars nk. til september lok miðað við fullt starf.
3.4 Fundartími heilbrigðisnefndar
Lögð var fram eftirfarandi tillaga að fundartímum heilbrigðisnefndar fyrir árið.
28. apríl Símafundur
9. júní Snertifundur
25. ágúst Símafundur
6. október Snertifundur
28. október Aðalfundur
8. desember Símafundur
4. Breytingar á verðskrá og afsláttarkjörum rannsóknarstofu Matís ohf.
Í lok janúar barst tilkynning frá Matís ohf. hvar vakin athygli á því að ný verðskrá rannsóknarstofu tók gildi um áramót. Jafnframt var tilkynnt að breytt afsláttarkjör HAUST hefðu tekið gildi frá sama tíma. Skv. nýrri verðskrá hækkar rannsóknarkostnaður á neysluvatnssýni um 25%. Lakari afláttarkjör leiða til þess að kostnaður HAUST vegna rannsóknar á neysluvatnssýni hækkar um 39% á milli ára.
Heilbrigðisnefnd undrast fordæmalausa gjaldskrárhækkun og óvænta lækkun afsláttarkjara. Ljóst er að sá kostnaðarauki sem af þessu hlýst rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar ársins 2020. Framkvæmdastjóra og formanni er falið kanna verð og þjónustu á öðrum rannsóknarstofum.
5. Vinna milli funda
Umsagnir um skipulagsmál
5.1 Umsögn um deiliskipulagstillögu fyrir Hafnarnes
5.2 Umsögn um aðalskipulagbreytingu og deiliskipulag vegna þéttingu byggðar í innbæ á Höfn
5.3 Umsögn um endurskoðun ferðaþjónustukafla aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030
6. Önnur mál
6.1 Erindi frá undirbúningsnefnd vegna sameiningar Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Undirbúningsnefndin óskar eftir upplýsingum um til hvaða ráðstafana Heilbrigðisnefnd Austurlands þarf að grípa í ljósi þeirra breytinga sem sameining sveitarfélaganna hefur í för með sér út frá gildandi lögum eða samþykktum félagsins.
Gert er ráð fyrir að tillaga að breyttri stofnsamþykkt verði lögð fyrir á aðalfundi HAUST sem fyrirhugaður er þann 28. október nk. Formanni og framkvæmdastjóra falið að gera tillögu að nauðsynlegum breytingum á 3. og 5. grein stofnsamþykktar í samræmi við umræður á fundinum og kynna þær fyrir undirbúningsnefndinni.
6.2 Niðurstaða Úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála.
Úrskurðarnefndin hafni kröfu kæranda um ógildingu á afgreiðslu heilbrigðisnefndar frá 14. maí 2019 um að samþykkja útgáfu starfsleyfis til handa Íslenska gámafélaginu ehf. fyrir jarðgerð á Reyðarfirði. Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 09:44.
Fundargerðin færð í tölvu og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Fundargerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.
Jón Björn Hákonarson
Davíð Þór Sigurðarson
Gunnhildur Imsland
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Benedikt Jóhannsson
Aðalheiður Borgþórsdóttir
Leifur Þorkelsson
Kristín Ágústsdóttir

