Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Anna Ragnarsdóttir
Benedikt Jóhannsson Pedersen
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Sandra Konráðsdóttir

Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Kjartan Róbertsson
Elínborg S. Pálsdóttir

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 1011
  2. Skráningarskyldur atvinnurekstur 1012
  3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva. 1012
  4. Ársreikningur HAUST 2023 1013
  5. Gjaldskrá 1013
  6. Fjárhagsáætlun 2025 1013
  7. Vinna milli funda 1013
  8. Önnur mál 1014

1. Bókuð útgefin starfsleyfi

690 Vopnafjörður
a) Refsstaður ehf., 560497-2619. Starfsleyfi fyrir sláturhús að Refsstað 1. Leyfi útgefið 30.9.2024.

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
b) Skvísu Kaffi ehf., kt. 420824-0680. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Hlöðum D. Leyfi útgefið 23.9.2024.
c) HEF veitur ehf., kt. 470605-1110. Starfsleyfi fyrir seyrugryfju að Skjöldólfsstöðum. Leyfi útgefið 26.9.2024.

710 Múlaþing – Seyðisfjörður
d) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Starfsleyfi fyrir lyfsöluna að Norðurgötu 6. Leyfi útgefið 4.10.2024.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
e) Fjarðaþvottur ehf., kt. 69110-2540. Starfsleyfi fyrir þvottahúsi að Strandgötu 46c. Leyfi útgefið 1.10.2024.

740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
f) Blús, Rokk/djassklúbbur á Nesi, kt. 620498-3949. Starfsleyfi fyrir samkomuhús að Hafnarbraut 22. Leyfi útgefið 11.9.2024.

755 Fjarðabyggð – Stöðvarfjörður
g) Krzysztof Madejski, kt. 270688-4899. Starfsleyfi fyrir gististað að Fjarðarbraut 37a. Leyfi útgefið 25.9.2024.

780-781 Höfn
h) Vonia ehf., kt. 650923-0490. Starfsleyfi fyrir matsölustað að Hafnarbraut 4. Leyfi útgefið 26.9.22024.
i) Gistiheimilið Seljavellir ehf., kt. 710114-1450. Starfsleyfi fyrir gististað að Seljavöllum 2A. Leyfi útgefið 2.10.2024.
j) Gistiheimilið Seljavellir ehf., kt. 710114-1450. Starfsleyfi fyrir gististað að Hafnarbraut 34. Leyfi útgefið 4.10.2024.
k) Andreyn ehf., kt. 561222-0290. Starfsleyfi fyrir gististað að Vesturbraut 4. Leyfi útgefið 4.10.2024.
l) Andreyn ehf., kt. 561222-0290. Starfsleyfi fyrir gististað að Seljavöllum 2E. Leyfi útgefið 4.10.2024.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

2. Skráningarskyldur atvinnurekstur

700-701 Múlaþing - Egilsstaðir
a) Myllan Stál og Vélar ehf. Kt. 701109-1390. Vinnsla málma, Miðás 26. Skráning staðfest 4.10.2024.
b) Orkusalan ehf., kt. 560306-1130. Niðurrif mannvirkja, skemma Lagarfossi 2. Skráning staðfest 8.10.2024.

730 Fjarðabyggð- Reyðarfjörður
c) Steypustöð Austurlands ehf. Kt. 690923-1300. Steypustöð, Hjallaleira 23. Skráning staðfest 4.10.2024.

740 Fjarðabyggð- Neskaupstaður
d) G. Skúlason ehf. Kt. 621297-5389. Bifreiða-og vélaverkstæði, vinnsla málma, Vindheimanaust 5-8. Skráning staðfest 1.10.2024.

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.

3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva.

3.1 Mógli ehf.

Á 180. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands þann 5. september sl. var samþykkt að áminna Mógli ehf. þar sem fyrirtækið hafi ekki orðið við úrbótum í samræmi við kröfur dags. 30.7.2024. Jafnframt fékk lóðarhafi lokafrest til 13. september sl. til að ljúka úrbótum.

Enn hefur ekki verið brugðist við kröfum heilbrigðisnefndar um hreinsun á olíumenguðum jarðvegi við Strandgötu 61 og 59, 735 Eskifirði.

Að mati nefndarinnar hafa ítrekuð tilmæli og nú síðast væg þvingunarúrræði ekki skilað tilætluðum árangri og því nauðsynlegt að ganga harðar fram í þeim tilgangi að knýja fram úrbætur. Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir að leggja dagsektir á fyrirtækið Mógli ehf. að upphæð kr. 20.000,- á dag frá og með 1. nóvember 2024, þar til úrbætur hafa farið fram. Ákvörðun um dagsektir er tekin í samræmi við 61. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

4. Ársreikningur HAUST 2023

Fyrir liggur endurskoðaður ársreikningur frá KPMG.

Nefndarmenn samþykkja fyrirliggjandi ársreikning með rafrænni undirskrift og vísa honum til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar.

5. Gjaldskrá

Lögð var fram tillaga um breytingar á gjaldskrá fyrir heilbrigðs- og mengunarvarnareftirlit á Austurlandi.

Heilbrigðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á gjaldskrá fyrir sitt leyti og vísar tillögunni til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar.

6. Fjárhagsáætlun 2025

Tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 lögð fram.

Heilbrigðisnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun komandi árs miðað við leiðréttar íbúatölur Hagstofunnar og vísar tillögunni til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar.

7. Vinna milli funda

Umsagnir um veitinga- og gistileyfi

7.1 Rekstarleyfi fyrir samkomuhús, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstað. Umsækjandi Blús,Rokk/Djassklúbbur á Nesi.
7.2 Rekstrarleyfi fyrir veitingahús – A í flokki II að Hlöðum D, 700 Egilsstöðum. Umsækjandi Skvísu Kaffi ehf.
7.3 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II, Fjarðarbraut 37A, 755 Stöðvarfjörður. Umsækjandi Krzysztof Edmund Madejski.
7.4 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II, Seljavellir 2A, 781 Höfn. Umsækjandi Gistihúsið Seljavellir ehf.
7.5 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II, Hafnarbraut 34, 780 Höfn. Umsækjandi Gistihúsið Seljavellir ehf.
7.6 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II, Vesturbraut 4, 780 Höfn. Umsækjandi Andreyn ehf.
7.7 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II, Seljavelli 2E, 781 Höfn. Umsækjandi Andreyn ehf.
7.8 Rekstarleyfi fyrir kaffihús, Hafnarbraut 4, 780 Höfn. Umsækjandi Vonia ehf.

Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi

7.9 Tækifærisleyfi fyrir dansleik í Valaskjálf, Skógarlöndum 3a-b, 700 Egilsstöðum. Umsækjandi Menntaskólinn á Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 31.10.2024.
Aðrar umsagnir
7.10 Vegna sölu áfengis á framleiðslustað, Hið Austfirzka Bruggfjelag ehf., Sólvellir 23 a, 760 Breiðdalsvík.


8. Önnur mál

8.1 Aðalfundur HAUST bs.

Aðalfundur HAUST bs. verður haldinn 6. nóvember á Höfn kl 14:00. Fundarboð hefur verið sent á aðildarsveitarfélögin. Óskað var eftir að sveitarfélögin sendi HAUST upplýsingar um hvaða fulltrúar sitji aðalfund og fara með atkvæði fyrir þeirra hönd í síðasta lagi 30.10. nk.

8.2 Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands

5. desember kl. 9:00

Fundi slitið kl. 14:40

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

pdfFUNDARGERÐ Á PDF