Heilbrigðisnefndarmenn:

Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson

Starfsmenn:

Lára Guðmundsdóttir
Kjartan Róbertsson      

 

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 974

  2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 975

  3. Skráningarskyldur atvinnurekstur 975

  4. Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði 976

  5. Vinna milli funda 976

  6. Starfsmannamál 976

  7. Önnur mál 977


1.  Bókuð útgefin starfsleyfi

700-701 Múlaþing – Fljótsdalshérað

a. Isavia Innanlandsflugvellir ehf., 591219-1380. Starfsleyfi fyrir alþjóðaflugvöll, Egilsstaðaflugvöllur. Leyfi útgefið 20.1.2023.

b. Þórarna Gró Friðjónsdóttir, 180286-3229. Starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Flúðum. Leyfi útgefið 27.1.2023.

c. Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir samkomuhúsi og vatnsveitu í Hjaltalundi. Leyfi útgefið 13.1.2023.

d. PES ehf., 500714-0500. Starfsleyfi fyrir gististað að Lagarbraut 4 Fellabæ. Leyfi útgefið 16.2.2023.

e. Glerharður ehf., kt. 500602-3410. Starfsleyfi fyrir tannlæknastofu að Miðgarði 13. Leyfi útgefið 16.2.2023.

f. Eiðar Village ehf., 660121-0480. Starfsleyfi fyrir gististað og fráveitu að Eiðum 17. Leyfi útgefið 27.2.2023.

g. Remote Hotels ehf., kt. 631215-1060. Starfsleyfi fyrir gististað, veitingastað, tjaldsvæði og vatnsveitu að Skjöldólfsstöðum. Leyfi útgefið 16.3.2023.


710 Múlaþing – Seyðisfjörður

h. Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir sundlaug að Suðurgötu 5. Leyfi útefið 26.1.2023.

i. Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir áhaldahús að Ránargötu 2. Leyfi útgefið 9.3.2023.

j. Landamerki ehf., 600115-2510. Starfleyfi fyrir tjaldsvæði að Ránargötu 1. Leyfi útgefið 10.3.2023.


730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

k. Fjarðabyggð, 470698-2099. Starfsleyfi fyrir íþróttahús og líkamsrækt að Heiðarvegi 13. Leyfi útgefið 10.2.2023.

l. Fjarðabyggð, 470698-2099. Starfsleyfi fyrir íþróttavöll að Melgerði 15. Leyfi útgefið 10.2.2023.

m. Fjarðaveitingar ehf., 560108-1330. Starfsleyfi fyrir matvælavinnslu að Austurvegi 21. Leyfi útgefið 27.2.2023.

n. Hafsalt ehf., kt. 420419-1390. Starfsleyfi fyrir krydd- og bragðefnaframleiðslu að Austurvegi 21. Leyfi útgefið 9.3.2023.


735 Fjarðabyggð - Eskifjörður

o.  KR-ÍA veitingasala ehf., 710502-0380. Starfsleyfi fyrir matsölustað að Strandgötu 13. Leyfi útgefið 2.3.2023.


740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður

p. Austurbrú ses., 640512-0160. Starfsleyfi fyrir kennsluaðstöðu/námsver að Bakkavegi 5. Leyfi útgefið 13.3.2023.


755 Fjarðabyggð – Stöðvarfjörður

q. Lára Scheving Thorsteinsson, kt. 200892-3489. Starfsleyfi fyrir gististað að Fjarðarbraut 48. Leyfi útgefið 20.2.2023.


780-785 Höfn

r. Ístak hf., 430214-1520. Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir og mötuneyti í Skógey. Leyfi útgefið 3.3.2023.

s. Vigdísarholt ehf., 580214-1180. Starfsleyfi fyrir hjúkrunarheimili og mötuneyti að Víkurbraut 29. Leyfi útgefið 7.3.2023.

t. Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 670804-2750. Starfsleyfi fyrir heilsugæslu að Víkurbraut 31. Leyfi útgefið 9.3.2023.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.

2.  Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

a. N1 ehf., 411003—3370. Tóbakssöluleyfi að Búðareyri 15. Leyfi útgefið 21.2.2023.

780-785 Höfn

b. Hótel Skaftafell ehf., 650589-1149. Tóbakssöluleyfi að Skaftafelli 2. Leyfi útgefið 17.2.2023.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa.


3.  Skráningarskyldur atvinnurekstur

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir

a. Ríkisútvarpið ohf., 600307-0450. Fyrir niðurrif á mannvirki, mastur að Eiðum/lóð 2. Skráning staðfest 1.2.2023.

715 Fjarðabyggð – Mjóifjörður

b.  Haförn Su 42 ehf., 670406-4070. Fyrir vinnslu fisks og annarra sjávarafurða að Borg. Skráning staðfest 23.2.2023.

765 Múlaþing – Djúpavogur

c.  SG Vélar ehf., 411092-2599. Fyrir flutning á úrgangi. Skráning staðfest 1.2.2023.

780 Höfn

d. Vélsmiðjan Foss ehf., 660399-2919. Fyrir starfsmannabústað að Ófeigstanga 15. Skráning staðfest 20.2.2023.

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.   

 

4. Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði

Óskað var eftir úrbótaáætlun á 171. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands frá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði, með það að markmiði að draga úr hávaða frá starfsemi fyrirtækisins. Úrbótaáætlun barst innan tilskilins frests.

Í samræmi við 13. gr í stofnsamningi Byggðarsamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits á Austurlandi þar sem segir: „Formaður stjórnar HAUST, sem jafnframt er formaður heilbrigðisnefndar ásamt varaformanni og framkvæmdastjóra eða hans staðgengli mynda framkvæmdaráð og er þeim heimil vinna að framvindu mála milli stjórnarfunda. Fullnaðarafgreiðsla mála fer fram á löglega boðuðum fundum heilbrigðisnefndar.“  Var innsend úrbótaáætlun samþykkt í samræmi við ofangreint þann 10. febrúar sl.

Heilbrigðisnefnd Austurlands staðfestir ofangreinda afgreiðslu máls og felur starfsmönnum að fylgjast með framgangi framkvæmda.

 

5. Vinna milli funda

Umsagnir um skipulagsmál

5.1        Um skipulagslýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir smávirkjun við Gestreiðarstaðaháls á Möðrudalsöræfum

5.2        Vegna umsóknar um byggingaráform og byggingarheimild fyrir hesthúsi að Faxagerði 3, 701 Egilsstaðir

5.3        Um nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi vegna verslunar- og þjónustusvæðis í landi Seljavalla 2 í Nesjahverfi

5.4        Um skipulags- og matslýsingu fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 fyrir nýtt svæði undir frístundabyggð við Eiða

5.5        Um deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Selskógi við Egilsstaðir

Aðrar umsagnir

5.6        Um umhverfismatsskýrslu um efnistöku úr Litlabakkanámu, Múlaþingi

5.7        Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í Brúarási, 701 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 11.2.2023.

5.8        Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í Végarði, 701 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 4.2.2023.

5.9        Um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna í Tungubúð, 701 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 18.2.2023.

5.10     Vegna umsóknar um sölu áfengis á framleiðslustað – Austri Brugghús, Fagradalsbraut 25, 700 Egilsstaðir.

5.11     Vegna umsóknar um rekstarleyfi fyrir gististað – PES ehf. Lagarbraut 4, 700 Egilsstaðir.

5.12     Matsáætlun vegna stækkunar Seyðisfjarðarhafnar.

5.13     Vegna umsóknar um rekstarleyfi fyrir gististað – Eiðar Village ehf. Eiðar 17, 701 Egilsstaðir.

 

6.  Starfsmannamál

Auglýst var eftir sumarstarfsmönnum og rann umsóknarfrestur út 17. febrúar sl. Alls bárust 11 umsóknir um stöðurnar. Verið er að ganga frá ráðningu við tvo sumarstarfsmenn sem koma til starfa í maí.


7.  Önnur mál

7.1   Kjör heilbrigðisnefndar

Farið var yfir tillögu um þóknun heilbrigðisnefndar sem lögð var fram á aðalfundi 26.10.2022. Heilbrigðisnefnd leggur til lækkun á þóknun til nefndarmanna í samræmi við samantekt um kjör annarra heilbrigðisnefnda.

Lagt var til að þóknun fyrir formann verði 5% af þingfararkaupi og 3% fyrir nefndarfólk óháð því hvort um stað – eða fjarfund sé að ræða. Lækkun á þóknun til stjórnar taki gildi 1.6 nk.  

Tillagan um þóknun til stjórnar var samþykkt samhljóða.

7.2  Næsti fundur heilbrigðisnefndar

Næsti fundur heilbrigðisnefndar verður haldinn 15. júní kl 13:00 á Fáskrúðsfirði.

Fundi slitið kl. 9:50

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.


pdfFUNDARGERÐ Á PDF