Heilbrigðisnefndarmenn viðstaddir:
Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason og Benedikt Jóhannsson
Aðalsteinn Ásmundsson sem varamaður Ólafs Hr. Sigurðssonar og Eiður Ragnarsson sem varmaður fyrir Kristínu Ágústsdóttur, sem er flutt af landi burt tímabundið.
Starfsmenn viðstaddir:
Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson, Hákon Hansson og Borgþór Freysteinsson
Dagskrá:
- Bókuð útgefin starfsleyfi 572
- Tóbakssöluleyfi 578
- Málefni einstakra fyrirtækja – efst á baugi í sumar 579
3.1 Vatnsveita Mýra 579
3.2 Vatnsveita Vopnafjarðar 579
3.3 Sala á „heimabakkelsi“ 579
3.4 Mengunarslys í Norðfirði 579
3.5 Ís úr vél 579
3.6 Sláturfélag Vopnfirðinga 579 - Ársreikningur HAUST 2010 580
- Gjaldskrá og drög að fjárhagsáætlun 2012. 580
- Önnur mál 581
6.1 Uppsögn samninga um eftirlitsverkefni frá Umhverfisstofnun. 581
6.2 Tillaga að fundadagskrá til áramóta. 581
6.3 Af vettvangi SHÍ 581
6.4 Fráveitumál sveitarfélaga. 582
6.5 Gagnleg ábending 582
Vikið var frá boðaðri dagskrá hvað varðar uppröðun liða, en fundargerðin er færð í þeirri röð sem fundurinn var boðaður.
Um miðbik fundarins var gert kaffihlé og rekstaraðili veitingastaðarins Kaffi Steinn, Jóhanna Margrét Agnarsdóttir, kynnti starfsemina og framtíðaráform varðandi reksturinn.
690 Vopnafjarðarhreppur
b) Háahraun ehf., kt. 620906-2120. Endurnýjað starfsleyfi vegna sölu á veitingum og gistingu að Hafnarbyggð 17. Leyfi útgefið 28.7.2011.
c) Sláturfélag Vopnfirðinga hf., kt. 590989-2159. Breyting á starfsleyfi. Leyfi fyrir aðstöðu til að svíða dilkhausa, sviðagámi, á SV hluta lóðar að Háholti 7, 690 Vopnafjörður. Gildistími leyfis er frá 8.9. til 31.12.2011. Sjá einnig bókun undir lið 3.5, málefni einstakra fyrirtækja.
700-701 Fljótsdalshérað
d) Caró ehf. kt., 690702-2070. Breyting á starfsleyfi v/flutnings fyrir Hársnyrtistofuna Caró, Miðvangi 6. Leyfið útgefið 20.6.2011.
e) Fimleikadeild Hattar, kt. 640901-2410. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á veitingum þann 17. júní og á Ormsteiti 2011. Leyfi útgefið 14.06.2011.
f) Vaðall ehf., kt. 620606-0810. Starfsleyfi/endurnýjun fyrir sundlaugina Skjöldólfsstöðum. Leyfið útgefið 20.6.2011.
g) Draumalandið ehf., kt. 670710-0410. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á gistingu og veitingum fyrir næturgesti að Arnhólsstöðum Skriðdal. Leyfið útgefið 21.6.2011.
h) Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Breyting á starfsleyfi fyrir sambýli Bláagerði 9-11. Leyfið útgefið 23.6.2011.
i) Draumalandið ehf., kt. 670710-0410. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á gistingu og vatnsveitu að Borg í Skriðdal. Leyfið útgefið 23.6.2011.
j) Örn Þorleifsson, kt. 311138-2709. Starfsleyfi/endurnýjun fyrir Farfuglaheimilið Húsey. Leyfið útgefið 28.6.2011.
k) Tannlæknastofa Austurlands á Egilsstöðum sf., kt. 630211-1580. Starfsleyfi/breyting fyrir Tannlæknastofu Austurlands á Egilsstöðum. Leyfið útgefið 29.6.2011.
l) Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Starfsleyfi/breyting vegna tilfærslu á kennitölu fyrir Sláturhúsið Kaupvangi. Leyfið útgefið 30.6.2011.
m) Héraðsverk ehf., kt. 680388-1489. Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir við inntaksmannvirki við Hálslón á Kárahnjúkum. Um er að ræða gistiaðstöðu án mötuneytis. Leyfi útgefið 2.7.2011.
n) Plastiðjan Ylur ehf., kt. 430497-2199. Endurnýjun starfsleyfis fyrir plastiðju að Miðási 43-45, 700 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 2.7.2011.
o) Ylur ehf., kt. 430497-2199. Nýtt starfsleyfi fyrir viðgerðaraðstöðu véla og tækja í eigu fyrirtækisins, Miðási 43-45, 700 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 2.7.2011.
p) Íslenska Gámafélagið ehf., kt. 470596-2289. Endurnýjun starfsleyfi fyrir rekstur söfnunarstöðvar og jarðgerðar að Tjarnarási 11, 700 Egilsstaðir. Einnig gildir starfsleyfið fyrir flutning úrgangs. Leyfi útgefið 2.7.2011.
q) Eyvindará ehf., kt. 701204-5730. Nýtt starfsleyfi fyrir malarnám og efnisvinnslu við Eyvindará, nr. E13 í aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028. Ábyrgðarmaður: Jón H. Sigbjörnsson, kt. 230157-4809. Leyfi útgefið 12.7.2011.
r) Landsvirkjun, kt. 420269-1299. Nýtt starfsleyfi vegna reksturs vatnsveitu við inntaksmannvirki Hálslóns. Leyfi útgefið 15.7.2011.
s) Hjörtur Friðriksson, kt. 170260-2799. Endurnýjun starfsleyfis fyrir litla vatnsveitu og rekstur kjötvinnslu, þ.e. verkun og vinnslu á hreindýrakjöti í Skóghlíð, 701 Egilsstaðir. Leyfið fyrir kjötvinnsluna er m.t.t. mengunarvarna. Leyfi útgefið 16.7.2011.
t) Ungmenna og íþróttasamband Austurlands (UÍA), kt. 660269-4369, Tímabundið starfsleyfi fyrir heildarumsjón á UMFÍ móti á Egilsstöðum 2011, rekstri tjaldsvæðis á gamla flugvellinum, íþrótta- og mótssvæða annarra en þeirra sem hafa þegar leyfi frá öðrum aðilum, rekstri snyrtinga á mótssvæði, aðbúnaði starfsmanna, söluaðila o.fl. Ábyrgðarmaður: Elín Rán Björnsdóttir, kt. 240279-2159. Leyfið gildir frá 26. 7. til 3.9 2011. Leyfi útgefið 22.7.2011.
u) Tímabundin starfsleyfi vegna sölu veitinga í sölutjöldum á UMFÍ hátíðinni um verslunarmannahelgi á Egilsstöðum voru gefin út til eftirfarandi aðila:
1) Frjálsíþróttadeild Hattar, kt. 700910-0910
Ábyrgðarmaður: Jóney Jónsdóttir, kt. 190270-3009.
2) Ungmennafélagið Leiknir, kt. 480589-2549
Ábyrgðarmaður: Eyrún María Elísdóttir, kt. 100475-5889.
3) UMF Valur, kt. 460576-0599
Ábyrgðarmaður: Sigurborg Hjaltadóttir, kt. 130659-4039.
4) Umf. Neisti, kt. 670484-0849
Ábyrgðarmaður: Sóley Dögg Birgisdóttir, kt. 231277-5799.
5) Skíðafélagið í Stafdal, SKIS, kt. 450908-1690
Ábyrgðarmaður: Adda Birna Hjálmarsdóttir, kt. 280973-5569.
6) Körfuknattleiksdeild kt. 451191-1879
Ábyrgðarmaður: Hannibal Guðmundsson, kt. 300368-4179.
7) Knattspyrnudeild Hattar, 6.og 7. fl. kt. 420786-1159
Ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnlaugsson, kt. 200469-3219.
8) Fimleikadeild kt. 640901-2410
Ábyrgðarmaður: Anna Alexandersdóttir, kt.011270-4419.
w) Björgunarsveitin Hérað., kt. 481199-2989. Tímabundið starfsleyfi fyrir flugeldasýningu úr Tjarnargarðinum að kvöldi 31. júlí 2011 í tengslum við unglingalandsmót UMFÍ. Leyfi útgefið 26.7.2011.
x) Akstursíþróttafélagið Start, kt. 630206-1030. Tímabundið starfsleyfi fyrir motocrossbraut í Mýnesi, 701 Egilsstaðir. Einnig er starfsleyfi vegna hreinlætisaðstöðu og sölu á drykkjum og sælgæti í pakkningum frá viðurkenndum framleiðendum. Ábyrgðarmaður Atli V. Hjartarson, kt. 180274-4809. Gildistími leyfis frá 27.7. til 1.10.2011.
y) Forskot, ferðaþjónustufélag, kt. 600794-3109. Tímabundið starfsleyfi vegna samkomuhalds á Ormsteiti á Fljótsdalshéraði 13.- 21.8.2011. Leyfið gildir fyrir utanumhald og skipulag á Ormsteiti, fyrirkomulag salerna, þrif á hátíðasvæði o.fl. á þeim stöðum sem fólki er stefnt saman og ekki eru með starfsleyfi annarra. Ábyrgðarmaður: Guðríður Guðmundsdóttir, kt. 150160-2439. Leyfið útgefið 11.8.2011.
z) Forskot, ferðaþjónustufélag, kt. 600794-3109. Tímabundið starfsleyfi fyrir veitingasölu, hreindýraveislu, í tjaldi við Samkaup á Egilsstöðum á Ormsteiti þann 20.8.2011. Matreiðsla sem og þvottur áhalda fari fram í Mötuneyti Menntskólans á Egilsstöðum. Ábyrgðarmaður leyfis: Guðríður Guðmundsdóttir, kt. 150160-2439. Leyfi útgefið 11.8.2011.
bb) Félag eldri borgara Fljótsdalshéraði, kt. 451092-2009. Tímabundið starfsleyfi fyrir veitingastarfsemi í Hlymsdölum, Miðvangi 6, 700 Egilsstaðir. Leyfið gildir fyrir tilfallandi kökubakstur og sölu kaffiveitinga í fjáröflunarskyni fyrir félag eldri borgara Fljótsdalshéraði. Ábyrgðarmaður er formaður félags eldri borgana Fljótsdalshéraði. Leyfi útgefið 11.8.2011.
cc) Kvenfélag Eiðaþinghár, kt. 470510-0210. Tímabundið starfsleyfi fyrir veitingastarfsemi í Barnaskólanum Eiðum, 701 Egilsstaðir. Leyfið gildir fyrir tilfallandi veitingarekstur og sölu veitinga í fjáröflunarskyni fyrir kvenfélagið. Ábyrgðarmaður er formaður kvenfélags Eiðaþinghár. Leyfi útgefið 11.8.2011.
dd) Guðný Eiríksdóttir, kt. 280554-3249. Tímabundið starfsleyfi til að framleiða svokallað sveitabakkelsi í Tungubúð, 701 Egilsstaðir og til að selja það á útihátíðum skv. nánari skilyrðum. Leyfi útgefið 118.2011.
ee) Arna Jóhannsdóttir, kt. 100565-5799. Tímabundið starfsleyfi fyrir nálastungu með einnota nálum í aðstöðu Snyrtistofunnar Öldu, Tjarnarbraut 19 frá 11.-16. Ágúst 2011. Leyfið útgefið 11.8.2011
ff) Guðný Harðardóttir, kt. 260785-3629. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á broddmjólk við Samkaup á Egilsstöðum þann 20. ágúst 2011. Salan fer fram í tengslum við Ormsteiti. Leyfi útgefið 17.8.2011.
710 Seyðisfjörður
gg) Stálstjörnur ehf., kt. 450700-4790. Breyting á starfsleyfi. Starfsleyfi gildir fyrir alhliða verkstæðisaðstöðu að Fjarðargötu 1. Leyfið útgefið 14.6.2011.
hh) Klas Hjære Poulsen kt. 011175-2449. Nýtt starfsleyfi vegna sölu á kaffiveitingum úr matsöluvagni, vagninn er rekinn í tengslum við starfsemi Húsahótela ehf. Leyfið útgefið 24.6.2011.
ee) Arnbjörg Sveinsdóttir, kt. 180256-7099. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á gistingu, Post-Hostel, Hafnargötu 4, Seyðisfirði. Leyfið útgefið 20.6.2011.
ff) LungA, kt. 600201-2120. Starfsleyfi tímabundið fyrir útitónleika á Seyðisfirð 16.-17. júlí. Leyfið útgefið 29.6.2011kk) Seyðisfjarðarkaupstaður, kt. 560269-4559. Breyting á starfsleyfi, rekstur Tónlistarskóla Seyðisfjarðar færður á kennitölu sveitarfélagsins. Leyfi útgefið 13.7.2011.
ll) G.B Bjartsýn ehf., kt.690304-2950. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingasölu við félagsheimilið Herðubreið dagana 16.-18. júlí 2011. Ábyrgðarmaður er Birna S Pálsdóttir, kt. 121071-5339. Leyfi útgefið 13.7.2011.mm) Íþróttafélagið Huginn., kt. 510381-0259. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingasölu við íþróttahúsið á Seyðisfirði þann 16. júlí 2011. Ábyrgðarmaður er Grétar R Benjamínsson, kt. 290893-3419. Leyfi útgefið 13.7.2011.
nn) Húsahótel ehf., kt. 210703-2510. Tímabundið starfsleyfi vegna samkomuhalds og veitingasölu í Angró og í tjaldi staðsettu við Angró á Seyðisfirði dagana 22.-24. júlí 2011 í tengslum við Smiðjuhátíð. Ábyrgðarmaður: Klas Poulsen , kt. 011175-2449. Leyfi útgefið 20.7.2011.
oo) Sigrún Sigtryggsdóttir, kt. 250753-3309. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á gistingu á einkaheimili fyrir allt að sex gesti, Gistihús Sillu, Botnahlíð 10. Leyfið útgefið 1.9.2011.pp) Gunnar S.- E.J.Waage ehf., kt. 520803-3270. Breytt starfsleyfi fyrir Dekkjaþjónustu Gunna blikk að Ránargötu 2a, 710 Seyðisfjörður. Ábyrgðarmaður: Gunnar Sigmar Kristjánsson, kt. 020667-3389. Leyfi útgefið 2.9.2011.
715 Fjarðabyggð – Mjóifjörður
qq) Sigfús Vilhjálmsson, kt.281144-2359. Endurnýjað starfsleyfi fyrir fiskverkun Sigfúsar í Mjóafirði. Leyfi útgefið 18.8.2011.
720 Borgarfjörður eystri
rr) Blábjörg ehf., kt. 710506-0430. Nýtt starfsleyfi fyrir Blábjörg Gistiheimili í gamla frystihúsinu á Borgarfirði eystri. Leyfið útgefið 20.6.2011.ss) Magnaðir ehf., kt. 481106-0280. Tímabundið starfsleyfi fyrir Tónleika á Bræðslunni, Borgarfirði. Leyfið útgefið 23. 6.2011.
tt) Ferðaþjónustan Álfheimar, kt. 580108-1210. Breyting á starfsleyfi vegna sölu gistingar og veitinga í Álfheimum við Merkisveg. Starfsleyfi breytt 12.07.2011.
uu) Fiskverkun Kalla Sveins ehf., kt. 510602-2340. Endurnýjað starfsleyfi vegna sölu á veitingum í Álfacafé og flutning á veitingum úr húsi. Einnig tímabundið leyfi vegna sölu á veitingum í Nýborg. Leyfi útgefið 18.7.2011.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
vv) Þorsteinn Erlingsson, kt. 120473-3019. Tímabundið starfsleyfi vegna skemmtanahalds og sölu á veitingum í Félagslundi 16.-18. júní 2011. Leyfi útgefið 14.6.2011.
ww)Ungmennafélagið Valur, kt. 460576-0599. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á veitingum í Félagslundi þann 17. júní 2011. Leyfi útgefið 15.05.2011.
xx) Sesam ehf., kt. 600810-0490. Nýtt starfsleyfi vegna brauðgerðar og sölu á veitingum að Hafnargötu 1. Leyfi útgefið 28.06.2011.
yy) Og synir / Ofurtólið ehf., kt. 481007-0700. Nýtt starfsleyfi fyrir verkstæðisaðstöðu, geymslu og lítilsháttar trésmíðaaðstöðu að Nesbraut 6, 730 Reyðafjörður. Leyfi útgefið 29.6.2011.
zz) Valborg H. Kristjánsdóttir, kt. 050460-4449. Starfsleyfi fyrir sölu á einföldum kaffiveitingum að Búðargötu 2. Starfsleyfi útgefið 15.7.2011 og gildir í 4 mánuði, eða til 15.11.2011
aaa) Hringrás hf., kt. 420589-1319. Tímabundið starfsleyfi til að rífa niður olíutanka á Djúpavogi, Stöðvarfirði og Seyðisfirði, samtals 7 tanka og flutnings á úrgangi frá niðurrifinu til förgunar eða endurvinnslu. Ábyrgðarmaður: Ásmundur Einarsson, kt. 060776-5049 Gildistími leyfis er frá 20. 7 til 30.9.2011. Leyfi útgefið 16.7.2011.bbb) Alcoa Fjarðaál sf., kt. 520303-4210. Starfsleyfi fyrir salernisaðstöðu vegna verktaka. Staðsetning er austan við mötuneytisbyggingu á Hrauni 1, 730 Reyðarfjörður. Leyfið útgefið 3.9.2011.
ccc) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Tímabundið starfsleyfi til niðurrifs á íbúðarhúsi, geymslu, fjósi og haughúsi að Hólmum í Reyðarfirði. Ábyrgðarmaður: Jóhann Eðvald Benediktsson, kt. 470698-2099. Gildistími leyfis 13.9.-31.12.2011.
Fjarðabyggð – Neskaupstaður
ddd) Millifótakonfekt ehf., kt 671109-1040. Tímabundið starfsleyfi vegna reksturs tjaldsvæðis á Bökkum í Neskaupstað og almennrar ábyrgðar á framkvæmd útihátíðar á Eistnaflugi 7.-9. júlí 2011. Ábyrgðarmaður:Stefán Magnússon, kt. 290476-3729. Leyfi útg. 30.6.2011.eee) Haukur Ingvar Sigurbergsson, kt. 040581-5619. Tímabundið starfsleyfi vegna sölubúðar á tjaldsvæði á Eistnaflug í Neskaupstað 7.-9. júlí 2011. Aðeins heitar pylsur, gosdrykkir og innpakkað sælgæti. Leyfi útgefið 6.7.2011.
fff) Köfunarþjónustan ehf., 431007-1180. Nýtt starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir í Tröllagili. Leyfi útgefið 15.7.2011.
ggg) Blús, Rokk/djassklúbbur á Nesi, kt. 620498-3949. Tímabundið starfsleyfi fyrir útisamkomur á Neistaflugi 28.7. til 1.8.2011. Ábyrgðarmaður: Þorlákur Æ. Ágústsson, kt. 190483-3719. Leyfi útgefið 25.7.2011.
hhh) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Endurnýjun/breyting á starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á Bökkum, Neskaupstað. Leyfi útgefið 29.7.2011.
iii) Héraðsverk ehf., kt. 680388-1489. Nýtt starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir og mötuneyti við Strandgötu. Leyfi útgefið 7.8.2011.
750 Fjarðabyggð - Fáskrúðsfjörður
jjj) Óðinn Magnason, kt. 281060-3419, f.h. Sumarlínu ehf., kt. 611200-2380. Nýtt starfsleyfi vegna veitingahússins Kaffi Sumarlína, Búðavegi 59, 750 Fáskrúðsfjörður. Um er að ræða starfsleyfi fyrirfullbúnum veitingastað með sæti fyrir allt að 50 gesti. Útgáfudagur leyfis er 20.6.201.1kkk) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Tjaldsvæðið við Bakkagil, Fáskrúðsfirði. Um er að ræða Tjald- og hjólhýsasvæði fyrir allt að 200 gesti. Útgáfudagur leyfis: 15. 7.2011.
lll) Þóra Elín Einarsdóttir, kt. 030274-3699. Nýtt starfsleyfi fyrir Sjúkraþjálfun í aðstöðu á dvalarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði. Útgáfudagur leyfis: 29.7.2011.
mmm) Weerawan Warwn, kt. 270976-2209. Tímabundið starfsleyfi til að selja tailenskan mat í sölutjaldi á Frönskum dögum 2011- merkja skal skv. leiðbeiningum í starfsreglum. Framleiðsla veitinganna í viðurkenndu eldhúsi í Glaðheimum, Fáskrúðsfirði. Gildistími Franskir dagar 2011.
nnn) Söluskáli Stefáns Jónssonar, kt. 131148-7719. Tímabundið starfsleyfi til að selja grillaðar pylsur í sölutjaldi á Frönskum dögum 2011. Gildistími Franskir dagar 2011.
ooo) Blakdeild Leiknis Fáskrúðsfirði. Tímabundið starfsleyfi til að selja grillaða hamborgara og vöfflur í sölutjaldi á Frönskum dögum 2011. Gildistími Franskir dagar 2011.
755 Stöðvarfjörður
ppp) Velkomin ehf., kt. 511110-0170. Nýtt starfsleyfi til að starfrækja gistiheimilið Kaffi Stein að Fjarðarbraut 41, 755 Stöðvarfjörður. Um er að ræða leyfi fyrir gistiheimili með 9 herbergjum. Fullbúin snyrting fylgir öllum herbergjum. Leyfið er gefið út 25.6.2011.qqq) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði. Um er að ræða tjald- og hjólhýsasvæði fyrir allt að 100 gesti. Útgáfudagur leyfis: 15.7.2011.
760 Beiðdalsvík
rrr) Sigurður Kristinsson, kt. 311236-4079. Breyting á starfsleyfi til að starfrækja gistiskála og heimagistingu, gistiskálar að Háaleiti og Hlíðarenda, heimagisting að Skarði, Skarði, 760 Breiðdalsvík. Leyfi útg. 20.6.2011.
sss) Breiðdalshreppur, kt. 480169-0779. Endurnýjað starfsleyfi fyrir Íþróttamiðstöð Breiðdalshrepps, Selnesi 25, 760 Breiðdalsvík. Um er að ræða Íþróttasal, líkamsræktarstöð og sundlaug og einn heitan pott. Útgáfudagur leyfis: 15.6.2011.
ttt) A.S Hótel ehf., kt. 510506-1890. Endurnýjað starfsleyfi fyrir Hótel Staðarborg, Staðarborg, 760 Breiðdalsvík. Um er að ræða starfsleyfi fyrir gistingu í 26 fullbúnum herbergjum með snyrtingu og veitingahúsi með fullbúnu eldhúsi og sæti fyrir 48 gesti í matsal. Útgáfudagur leyfis 1.7.2011.
uuu) Breiðdalshreppur, kt. 480169-0779. Endurnýjað starfsleyfi fyrir tjaldsvæði Breiðdalshrepps, 760 Breiðdalsvík. Um er að ræða tjald- og hjólhýsasvæði fyrir allt að 100 gesti. Útgáfudagur leyfis: 1.7.2011.vvv) Óðins Ferðir Íslands ehf., kt. 520510-0520. Breyting á starfsleyfi: Ferðaþjónusta Höskuldsstöðum, Höskuldsstöðum, 760 Breiðdalsvík. Um er að ræða starfsleyfi fyrir sölu á gistingu í sumarhúsi, fyrir allt að 9 gesti, gistingu á einkaheimili og hestaleigu að Höskuldsstöðum. Útgáfudagur leyfis; 8.7.2011.
www) Kvenfélagið Hlíf, kt. 470291-1849. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir útimarkað í Lækjarkoti við Sólvelli. Útgáfudagur leyfis: 14.7.2011.
xxx) Jón B. Stefánsson, kt. 311042-3009. Nýtt starfsleyfi fyrir ferðaþjónustu að Þorgrímsstöðum, 760 Breiðdalsvík. Um er að ræða gistingu í 4 herbergjum með snyrtingu. Einnig heimagistingu í 4 herbergjum með snyrtingu, lítilli íbúð með eldhúskróki og snyrtingu fyrir 2-4 gesti og veitingahúsi með fullbúnu eldhúsi fyrir 14 gesti í matsal. Útgáfudagur leyfis: 8.8.2011.
yyy) Breiðdalshreppur, áhaldahús, kt. 480169-0779. Nýtt starfsleyfi fyrir meindýraeyði. Hermann Arnþórsson kt. 080766-4249. Útgáfudagur leyfis: 6.9.2011.
765 Djúpivogur
zzz) Alda Jónsdóttir, kt. 070743-2839. Endurnýjað starfsleyfi fyrir Bændagistingu Eyjólfsstöðum, Fossárdal, 765 Djúpivogur. Um er að ræða gistiskála fyrir allt að 16 gesti, svefnpokagisting, með eldunaraðstöðu og tveimur fullbúnum snyrtingum og tjaldstæði fyrir allt að 100 gesti. Útgáfudagur leyfis: 15.7.2011.aaaa) Langabúð, Djúpavogi, kt. 510682-0259. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Löngubúð, Búð 1, Djúpavogi. Um er að ræða fullbúinn veitingastað fyrir allt að 50 gesti. Útgáfudagur leyfis: 15.7.2011.
bbbb) Hótel Framtíð ehf., kt. 471188-1829. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir tjaldsvæði Djúpavogs við Miðhús. Um er að ræða tjald- og hjólhýsasvæði fyrir allt að 200 gesti. Útgáfudagur leyfis: 25.7.2011.
cccc) Hótel Framtíð ehf., kt. 471188-1829. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Hótel Framtíð Djúpavogi. Um er að ræða gistingu í 46 herbergjum og veitingahúsi með tveimur veitingasölum fyrir allt að 250 og 45 manns og bar í kjallara fyrir 45 manns. Útgáfudagur leyfis: 1.8.2011.
780-785 Hornafjörður
dddd) Björn Borgþór Þorbergsson, kt. 180462-5629. Starfsleyfi fyrir Gerði, ferðaþjónusta, Breiðabólsstað 2, Gerði, 781 Höfn. Um er að ræða leyfi fyrir sölu á gistingu fyrir allt að 90 gesti í Gerði, Skyrhúsi og fjórum smáhýsum og fyrir sölu veitinga úr fullbúnu eldhúsi í veitingasal fyrir allt að 90 gesti. Leyfið útgefið 21.6.2011.eeee) Ríki Vatnajökuls ehf., kt. 420707-2580. Breytt starfsleyfi fyrir Heimamarkaðsbúð í Ríki Vatnajökuls, í Pakkhúsinu á Höfn. Um er að ræða leyfi til að selja innpökkuð matvæli og kaffiveitingar með einföldu meðlæti, allt frá viðurkenndum framleiðslustöðum. Ábyrgðarmenn: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, kt. 160181-4869 og Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson, kt. 020177-4629. Leyfið gildir fyrir sumarmánuðina, þ.e. 1. júní til 15. september árin 2011 til 2023. Leyfi útgefið 24.6.2011.
ffff) Hanný Heiler, kt. 230562-7929. Nýtt starfsleyfi vegna sölu gistingar að Dynjanda, 781 Hornafirði. Starfsleyfi útgefið 6.6.2011.
gggg) Ránarslóð ehf., kt. 620405-0270. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á gistingu, Höfn Inn, að Vesturbraut 3. Leyfi útgefið 26.5.2011.
hhhh) Humarhátíð ehf., kt. 660499-2029. Leyfi fyrir Humarhátíð 2011 þann 1.-3. júlí 2011. Ábyrgðarmaður er Valdimar Einarsson, kt. 010762-5299. Leyfið útgefið 30.6.2011.
iiii) Öræfin ehf., kt. 490604-2430. Endurnýjað starfsleyfi fyrir sölu á gistingu, Gistiskálinn Vesturhús, Hofi, 785 Öræfum. Ábyrgðarmenn: Ingibjörg Guðjónsdóttir, kt. 310166-1729 og Guðjón Marteinsson, kt. 090864-7119. Leyfi útg. 30.6.2011.
jjjj) Fjölnir Torfason, kt. 011052-2749. Endurnýjað starfsleyfi vegna sölu á gistingu í Ferðaþjónustunni Hala í Suðursveit, Hala 2, 781 Hornafjörður. Um er að ræða starfsleyfi fyrir sölu gistingar í tveim húsum: Steinstúni og Breiðabólstað 1. Leyfi útgefið 1.7.2011.
kkkk) Olga Friðjónsdóttir, kt.140756-4909. Nýtt starfsleyfi fyrir litla vatnsveitu og sölu á gistingu að Brekku, Lóni. Leyfið útgefið 1.7.2011.llll) Sigurður Ólafsson, kt. 191158-5399. Breyting á starfsleyfi fyrir sölu á svefnpokagistingu í gamla bæjarhúsinu á Stafafelli og í tveim sumarhúsum austan við bæinn. Leyfi útgefið 12.7.2011.
Ungmennafélagið Sindri, kt. 430380-0609. Tímabundið starfsleyfi fyrir samkomu í Samkomuhúsi Lónmanna í Lóni. Ábyrgðarmaður: Ásgrímur Ingólfsson, kt. 100966-3369. Leyfið gildir fyrir allt að 100 manna samkomu sem hefst kl. 22 þann 30.7.2011 og stendur til kl 03:30 um nóttina. Leyfi útgefið 21.7.2011.
Sjónarsker ehf., kt. 440609-0580. Nýtt starfsleyfi fyrir úrbeiningu, reykingu og pökkun á kjötmeti í Matarsmiðju Matís á Höfn í Hornafirði. Ábyrgðarmaður: Klaus Kretzer, kt. 200662-2109. Gildistími leyfis er frá 27.7. til 31.12. 2012.
Björgunarfélag Hornafjarðar., kt. 640485-0439. Tímabundið starfsleyfi fyrir flugeldasýningu að kveldi 27.8.2011 við Jökulsárlón. Ábyrgðarmaður er Friðrik Jónas Friðriksson, skotstjóri er Einar Björn Einarsson. Leyfi útgefið 27.8.2011.
Litlahorn ehf., kt. 510872-0299. Nýtt starfsleyfi fyrir hjólhýsasvæði á Horni, 781 Höfn og lítilsháttar veitingasölu í aðstöðuhúsi við hjólhýsasvæðið. Ábyrgðarmaður: Ómar Antonsson, kt. 150853-2739. Leyfið gildir frá 21.8.2011 til 13.5.2012.
Fanney Björg Sveinsdóttir, kt. 130483-5509. Breyting á starfsleyfi, þ.e. leyfi fært yfir á nýjan rekstaraðila. Starfsleyfi fyrir litla matvöruverslun og lítilsháttar veitingasölu í Heimamarkaðsbúð í Ríki Vatnajökuls í Pakkhúsinu á Höfn. Leyfi útgefið 13.9.2011.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
a) Eymaver ehf., kt. 480600-3980. Tóbakssöluleyfi í Söluskála Shell á Reyðarfirði, Búðareyri 28, 730 Reyðarfjörður. Ábyrgðarmaður: Bjarni Rafn Ingvason, kt. 100553-2609. Leyfi útgefið 30.8.2011.3 Málefni einstakra fyrirtækja – efst á baugi í sumar
Borgþór gerði grein fyrir vinnu og sýnatökum vegna mengaðs neysluvatns á svæði Mýraveitunnar. Sú vinna sýndi glögglega mikilvægi þess að lagnakerfi vatnsveitna og einstakra húsa séu þekkt og að teikningar þurfa að vera hluti af innra eftirliti vatnsveitnanna.
Leifur segir frá mengun sem upp kom í vatnveitu Vopnafjarðar. Mikið vatnsmagn á brunnsvæði vatnsveitunnar olli skemmdum í umbúnaði á brunni, þannig að ofanvatn komst inn á lagnakerið.
Safnbrunnaveitur eru á nokkrum stöðum á Austurlandi og sýnir þetta hve viðkvæmar þær geta verið. Í kjölfarið mun lagnakerfinu á brunnsvæðinu verða breytt þannig að unnt verður að taka sýni og loka fyrir einstaka brunna á auðveldan máta. Auk þessa íhuga forsvarsmenn sveitarfélagsins að taka upp geislun á neysluvatninu til að tryggja heilnæmi þess, enda er afar alvarlegt fyrir íbúa og matvælafyrirtæki þegar svona gerist.
Í sumar komu upp nokkur mál sem varða framleiðslu á bakkelsi í heimahúsum og varð fjölmiðlaumræða þar um. Hákon gerði ítarlega grein fyrir lagagrunni sem málið byggir á og þeim breytingum sem orðið hafa á reglugerðarumhverfi matvæla á undanförnum misserum. Skýrt er að engin heimild er til að selja matvæli framleidd í heimahúsum né heldur húsnæði sem er í beinum tengslum við íbúð. Landsreglur sem setja ber skv. matvælalögunum hafa hins vegar ekki verið samdar og enn virðist nokkur bið eftir þeim. Vonast er til að með gildistöku þeirra verði unnt að skýra og ná sátt við samfélagið um málaflokkinn.
Á laugardagsmorgni í lok ágúst barst kvörtun um grútarmengun í Norðfirði. Leifur fór strax á vettvang og gerði hann grein fyrir aðkomu sinni að málinu og orsök mengunarinnar. Þrátt fyrir góðan tæknibúnað í fiskimjölsverksmiðju SVN urðu mannleg mistök þess valdandi fita barst í umhverfið.
Í framhaldi af frásögn Leifs varð umræða um hvernig viðbragð við svona óhöppum muni breytast þegar HAUST fer ekki lengur með eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum.
Leifur minnti á ákvörðun heilbrigðisnefndar frá árinu 2008 um verklag ef niðurstöður rannsókna á ís úr vél koma illa út, þ.e. að gefa frest til úrbóta í tvígang en ef þriðja sýni stenst ekki gerlafræðilegar kröfur þá verði fyrirtækinu gert að hætta sölu á ís úr vélinni, þar til það sýni fram á að ísinn standist kröfur. Þessu verklagi þurfti að beitta í eitt sinn árið 2010 og nú einu sinni í öðru fyrirtæki.
Sótt var um leyfi til að staðsetja gám til að svíða dilkahausa á lóðinni Háholti 7 á Vopnafirði. Umsóknin barst með of skömmum fyrirvara til að hægt væri að auglýsa starfleyfisdrög og gefa 4ra vikna umsagnarfrest fyrir sláturtíð. Að höfðu samráði við formann og varaformann heilbrigðisnefndar var ákveðið að gefa leyfið út tímabundið og með fyrirvara um að ekki yrði unnið í ákveðnum vindáttum ef nágrannar hefðu mikinn ama af. Um leið og starfsleyfið var gefið út var það auglýst og almenningi boðið að gera aths. Verð sótt um endurnýjun starfsleyfis skal það gert með réttum fyrirvörum og við útgáfu þess mun tekið tillit til athugasemda ef slíkar berast.
Heilbrigðisnefnd samþykkir afgreiðslu málsins og verkferlið, enda er það í samræmi við bókun nefndarinnar um að ef formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri eru sammála um afgreiðslu máls sé þeim heimilt að ljúka máli milli funda.
4 Ársreikningur HAUST 2010
Ársreikningur 2010 lagður fram eins og hann kom frá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG, sem er kjörinn endurskoðandi byggðasamlagsins. Skoðunarmenn reikninga, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Bragason hafa farið yfir reikningana og áritað fyrir sína hönd.
Helstu niðurstöðutölur ársreiknings í samanburði við áætlun (í þúsundum króna):
| Rekstrartekjur | 44.656 | áætlun: | 42.525 |
| Rekstrargjöld | 43.603 | 42.343 | |
| Mism tekna og gjalda | 1.052 | 182 | |
| Hagnaður ársins | 1.168 | 182 |
HHr fór yfir helstu niðurstöður ársreikningsins. Gjöld umfram áætlun liggja aðallega í hækkun launatengdra gjalda.
Heilbrigðisnefnd samþykkir ársreikning 2010 eins og hann var lagður fram og afgreiðir hann til aðalfundar HAUST.
Nefndarmenn árituðu reikninginn til staðfestingar sínu samþykki.
Framkvæmdastjóra var falið að kanna hvort unnt sé að ná niður kostnaði við endurskoðun ársreikninga t.d. því að leita tilboða hjá fleiri endurskoðunarfyrirtækjum.
5 Gjaldskrá og drög að fjárhagsáætlun 2012
Í upphafi þessa dagskrárliðar kynnti Helga gögn sem hún og Leifur höfðu útbúið. Farið var yfir rekstarniðurstöður undanfarinna ára og þróun í gjaldskrármálum, kostnaður við sýnatöku skoðaður, einnig hvaðan tekjur HAUST hafa komið sem og gjaldskrá HAUST borin saman við gjaldskrár annarra heilbrigðiseftirlitssvæða, UST og MAST. Einnig var sýnt fram á að þrátt fyrir minnkandi akstur hækkar kostnaður við hann. Skoðaðar voru nokkrar tillögur að gjaldskrárhækkun.
- Staða fjárhags í lok ágúst 2011
Fjárhagsleg staða HAUST skv. bókhaldi í lok ágúst er að mati starfsmanna ásættanleg og innan marka áætlunar. Hins vegar eru útgjaldaþyngstu mánuður ársins eftir, þ.e reikningar vegna aksturs og sýnatöku í ágúst voru enn ekki komnir inn í bókhald, kostnaður vegna aðalfundar og haustfunda starfsmanna sömuleiðis. Þó er vonast til að unnt verði að skila ásættanlegri niðurstöðu í lok árs.
- Drög að nýrri gjaldskrá fyrir HAUST
Breyta þarf gjaldskrá HAUST skv. leiðbeiningum frá lögfræðingum MAST. Í kjölfar þess að forsjá matvælaeftirlits var fært til MAST og lögum breytt þar að lútandi er lagagrunnur fyrir innheimtu gjalda ekki aðeins í hollustuháttalögum nr. 7/1998 fyrir heldur einnig í matvælalögum nr. 93/1995.
Einnig verður að hækka gjaldskrá HAUST vegna hækkandi verðlags almennt, ekki síst aukins kostnaðar við akstur, hækkandi rannsóknakostnað, nýja kjarasamninga o.fl.
Eftirfarandi tillaga starfsmanna um grunntölur í gjaldskránni var samþykkt:
Tímagjald HAUST verði kr. 9.400,-
Gjald vegna rannsókna skv. eftirlitsáætlun verði kr. 12.500,-
Drög að nýrri gjaldskrá samþykkt og henni vísað til aðalfundar HAUST.
- Drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2012
HHr kynnti drög að fjárhagsáætlun miðað við ofangreinar hækkanir gjaldskrár.
Drög að fjárhagsáætlun 2012 samþykkt og henni vísað til aðalfundar HAUST.
6.1 Uppsögn samninga um eftirlitsverkefni frá Umhverfisstofnun.
Umhverfisstofnun hefur sagt upp samningum um að HAUST fari með eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum og förgun úrgangs á Austurlandi. Uppsögnin mun að óbreyttu taka gildi 1.1.2012.
Allmikil umræða varð um málið og þá breytingu sem verða mun á þjónustu við íbúa og atvinnulífið á Austurlandi þegar starfsmenn Umhverfisstofnunar taka við verkefnunum. Minni staðþekking eftirlitsmanna og meiri fjarlægð frá verkefnunum þykja ekki vænlegt til að bæta þjónustu og viðbragðshraða vegna mengunarslysa auk þess sem kostnaður fyrirtækja mun aukast frá því sem nú er.
Framkvæmdastjóra falið að upplýsa forstjóra Umhverfistofnunar og Umhverfisráðherra um eindregin vilja Heilbrigðisnefndar Austurlands um að halda verkefnum í heimabyggð. Fáist uppsögn samninganna ekki dregin til baka eða frestað verði óskað eftir verkefnum frá Umhverfisstofnun á öðrum grunni.
Einnig var starfsmönnum bent á að upplýsa fyrirtæki sem málið varðar og einnig Samtök sveitarfélaga á Austurlandi fyrir aðalfund sem verður í lok september.
6.2 Tillaga að fundadagskrá til áramóta
Eftirfarandi fundatímar samþykktir:
26.10. miðvikudagur Símfundur – ef þarf til að undirbúa aðalfund
28.10. föstudagur Aðalfundur HAUST á Breiðdalsvík
23.11. miðvikudagur Símfundur í heilbrigðisnefnd
6.3 Af vettvangi SHÍ
VOH gerir grein fyrir nýlegum stjórnarfundi hjá Samökum heilbrigðiseftirlitssvæða.
- Samtökin munu standa fyrir haustfundi HES, UST, MAST og ráðuneytanna tveggja og verður fundurinn haldinn 19.-20. október.
- Aðalfundur SHÍ verður haldinn nokkru eftir austfundinn og þá á Suðurlandinu. Auk aðalfundarstarfa veður fjallað um ferðaþjónustumál, og vonast eftir að Erna Hauksdóttir verði gestur fundarins.
- Heimasíða SHÍ er kostnaðarsöm og líklegt er hún verði lögð niður.
- VOH kynnti einnig umræður eru um breytta skipan stofnana ríkisins á vegum skipulags, umhverfisverndar og þjóðgarða. Ekki vitað hvort þessi umræða kemur til með að hafa háhrif á starfssvið heilbrigðiseftirlits.
6.4 Fráveitumál sveitarfélaga
Helga sagði frá vinnu varðandi fráveitumál sveitarfélaga frá seinasta fundi. Nokkrar kannanir hafa verið gerðar á gerlamengun viðtaka á undanförnum árum og einhver sveitarfélög standa í spennandi breytingum og tilraunum í málaflokknum. Hugsanlega er ástæða til að segja lítillega frá þessum málaflokki á aðalfundi HAUST.
6.5 Gagnleg ábending
Ábending kom frá nefndarmanni um að HAUST prenti ekki út gögn fyrir fundi nema um sé að ræða gögn varðandi fjárhag HAUST. Þessari ábendingu var vel tekið af hálfu starfsmanna.
Heilbrigðisnefnd þakkaði forsvarsmanni Kaffi Steins góðar veitingar og móttöku. Síðan var fundi slitið kl. 16:05
Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti og/eða á símbréfi til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.
Valdimar O. Hermannsson
Árni Kristinsson
Ólafur Hr. Sigurðsson
Sigurlaug Gissurardóttir
Eiður Ragnarsson
Andrés Skúlason
Benedikt Jóhannsson
Leifur Þorkelsson
Borgþór Freysteinsson
Hákon Hansson
Helga Hreinsdóttir
Fundargerð 98 í pdf
