Heilbrigðisnefndarmenn viðstaddir:

Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Benedikt Jóhannsson og Eiður Ragnarsson. Borghildur Sverrisdóttir og Erlín Emma Jóhannsdóttir sem varamenn fyrir Ólaf Hr. Sigurðsson og Eið Ragnarsson, sem boðuðu forföll.

Starfsmenn viðstaddir:

Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson, Hákon Hansson

Dagskrá:

  1. Umsóknir um 15 fiskeldisleyfi undir 200 tonnum, afturköllun ákvörðunar
  2. Umsóknir um 15 fiskeldisleyfi undir 200 tonnum, endurupptaka máls.
  3. Önnur mál

1. Umsóknir um 15 fiskeldisleyfi undir 200 tonnum, afturköllun ákvörðunar

Þann 12.9.2012 ákvað heilbrigðisnefnd að hafna 15 umsóknum um starfsleyfi fyrir allt að 200 tonna laxeldi í sjó. Við skoðun málsins kemur í ljós að ágalli var á málsmeðferð þar sem umsækjendur nutu ekki andmælaréttar við ákvörðunartökuna, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Samkvæmt 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 getur stjórnvald afturkallað ákvörðun að eigin frumkvæði, sem tilkynnt hefur verið aðila máls þegar það er ekki til tjóns fyrir aðila eða þegar ákvörðun er ógildanleg, sbr. eftirfarandi:

25. gr. Afturköllun.
Stjórnvald getur afturkallað ákvörðun sína að eigin frumkvæði, sem tilkynnt hefur verið aðila máls, þegar:
   1. það er ekki til tjóns fyrir aðila, eða
   2. ákvörðun er ógildanleg.

Heilbrigðisnefnd samþykkir að afturkalla ákvörðun sem tekin var þann 12.9. sl. um höfnun eftirfarandi umsókna um starfsleyfi:

Eftirfarandi aðilar sóttu um starfsleyfi:

Fyrir kvíaeldi á laxi allt að 200 tonna framleiðslu hvert leyfi í Reyðarfirði:

1.

Helgi Guðmundur Sigurðsson

kt. 060860-3199

19/6

2.

Margrét Stefánsdóttir

kt. 040369-4659

19/6

3.

Oddný Rósa Ásgeirsdóttir

kt. 120487-2489

19/6

4.

Sigurrós Sigurbergsdóttir

kt. 090728-4239

19/6

Fyrir kvíaeldi á laxi allt að 200 tonna framleiðslu hvert leyfi í Fáskrúðsfirði

5.

Einar Örn Gunnarsson

kt. 051061-3739

19/6

6.

Guðmundur Gunnarsson

kt. 160751-2159

19/6

7.

Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir

kt. 311055-2249

19/6

8.

Fiskeldi Austfjörðum ehf.

kt. 520412-0930 (nr. 1)

19/6

9.

Fiskeldi Austfjörðum ehf.

kt. 520412-0930 (nr. 2)

19/6

Fyrir kvíaeldi á laxi allt að 200 tonna framleiðslu hvert leyfi í Berufirði

10.

Fiskeldi Austfjörðum ehf.

kt. 520412-0930 (nr. 1)

25/6

11.

Fiskeldi Austfjörðum ehf.

kt. 520412-0930 (nr. 2)

25/6

12.

Gunnar Páll Helgason

kt. 071284-8169   29/6, lagfært

9/7

13.

Jóhann Örn Helgason

kt. 040188-2239   29/6, lagfært

9/7

14.

Sighvatur M. Helgason

kt. 050592-2789   29/6, lagfært

9/7

15.

Benedikt T. Sigurðsson

kt. 270152-2999   29/6, lagfært

9/7

 

2.    Umsóknir um 15 fiskeldisleyfi undir 200 tonnum, endurupptaka máls

Umsóknir um starfsleyfi fyrir fiskeldi í sjó frá aðilum sem upp eru taldir í lið 1 í fundargerð bárust til HAUST og voru til umfjöllunar á fundi Heilbrigðisnefndar þann 12.9. sl. Umsóknir þessar eru nú lagðar fyrir heilbrigðisnefnd á þeim grunni að málin verði endurupptekin.

Starfleyfisdrög voru unnin og auglýst í samræmi við 24. grein reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Auglýst var í Dagskránni á Austurlandi og á heimasíðu HAUST með umsagnarfresti til 9.8.2012. Öllum umsækjendum var sent bréf með upplýsingum um auglýsinguna og boði um að senda starfsleyfisdrög á prentuðu formi. Að ósk nokkurra hagsmunaaðila var frestur framlengdur og rann hann út þann 24.8. Athugasemdir bárust frá níu aðilum.

Gögn málsins, þ.e. þau gögn sem lögð voru fyrir fundinn 12.9. og einnig kærugögn málsaðila voru lögð fyrir Heilbrigðisnefnd.

Málin voru rædd ítarlega og valkostir skoðaðir áður en nefndin tók eftirfarandi ákvörðun:

Heilbrigðisnefnd felur framkvæmdastjóra að senda öllum ofangreindum umsækjendum bréf þar sem þeim er kynnt að nefndin íhugi að hafna umbeðnum leyfum og gefa 14 daga frest til að neyta andmælaréttar og/eða að koma á framfæri sínum sjónarmiðum eða frekari gögnum í málinu.

Umboðs- eða fyrirsvarsmönnum málsaðila verði send gögn málsins, svo sem umsagnir sem bárust í kjölfar auglýsingar, úrskurði og gögn sem heilbrigðisnefnd taldi skipta máli við hina afturkölluðu ákvörðun o.fl. Þetta verði gert í samræmi við stjórnsýslulög nr. 37/1993, kafla IV gr. 13-15.

IV. kafli. Andmælaréttur.
13. gr. Andmælaréttur.
Aðili máls skal eiga þess kost að tjá sig um efni máls áður en stjórnvald tekur ákvörðun í því, enda liggi ekki fyrir í gögnum málsins afstaða hans og rök fyrir henni eða slíkt sé augljóslega óþarft.
14. gr. Tilkynning um meðferð máls.
Eigi aðili máls rétt á að tjá sig um efni þess skv. 13. gr. skal stjórnvald, svo fljótt sem því verður við komið, vekja athygli aðila á því að mál hans sé til meðferðar, nema ljóst sé að hann hafi fengið vitneskju um það fyrir fram.
15. gr. Upplýsingaréttur.
Aðili máls á rétt á því að kynna sér skjöl og önnur gögn er málið varða. Fari aðili fram á að fá afrit eða ljósrit af málsskjölum skal orðið við þeirri beiðni nema skjölin séu þess eðlis eða fjöldi þeirra svo mikill að það sé verulegum vandkvæðum bundið. [Ráðherra]1) er heimilt að ákveða með sérstakri gjaldskrá2) hvað greiða skuli fyrir afrit og ljósrit sem veitt eru samkvæmt þessari grein.
Lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til þess að veita aðgang að gögnum samkvæmt þessari grein.
Ákvæði þessarar greinar taka ekki til [rannsóknar sakamáls og meðferðar þess að öðru leyti].3) Þó [geta sakborningur og brotaþoli]4) krafist þess að fá að kynna sér gögn málsins eftir að það hefur verið fellt niður eða því lokið með öðrum hætti.

 3.    Önnur mál

Næsti fundur verði haldinn þegar andmælafrestur skv. lið 2 er útrunninn. Stefnt að hádegisfundi 10. eða 11. desember.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00

Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

Valdimar O. Hermannsson                             
Árni Kristinsson
Borghildur Sverrisdóttir
Sigurlaug Gissurardóttir
Erlín Emma Jóhannsdóttir
Andrés Skúlason
Benedikt Jóhannsson
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson
Hákon Hansson

 

pdfFundargerðin á pdf