Heilbrigðisnefndarmenn:
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Sandra Konráðsdóttir
Helgi Hlynur Ásgrímsson
í gegnum fjarfundarbúnað:
Benedikt Jóhannsson
Gunnhildur Imsland Kristín Ágústdóttir
Starfsmenn:
Leifur Þorkelsson
Lára Guðmundsdóttir
Dröfn Svanbjörnsdóttir
Elínborg Sædís Pálsdóttir
Dagskrá:
1. Bókuð útgefin starfsleyfi 939
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 940
3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva 940
4. Fyrirhuguð endurskoðun laga um hollustuhætti og mengunarvarnir 941
5. Endurskoðun á eftirlitskerfi með matvælum, mengunarvörnum og hollustuháttum 941
6. Urðunarstaðir riðufjár 941
7. Ársreikningur 2020 941
8. Breytingar á gjaldskrá 942
9. Fjárhagsáætlun 2022 942
10. Samningur um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum 942
11. Vinna milli funda 942
12. Önnur mál 943
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
690 Vopnafjarðarhreppur
a) Hágangur ehf., kt. 670405-0870. Breyting á starfsleyfi fyrir sjúkraþjálfun að Lónabraut 4. Leyfi útgefið 31.8.2021.
b) Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569. Breyting á starfsleyfi fyrir apótek að Kolbeinsgötu 8. Leyfi útgefið 6.9.2021.
c) Heiðbjört Antonsdóttir, kt. 200751-3969. Endurnýjað starfsleyfi fyrir hárgreiðslustofu að Skuldarhalla 1. Leyfi útgefið 13.10.2021.
700-701 Múlaþing - Fljótsdalshérað
d) Kristjana Júníusdóttir, kt. 260563-5649. Endurnýjað stafsleyfi fyrir gistingu að Ekru. Leyfi útgefið 1.9.2021.
e) Dýralæknastofan á Egilsstöðum ehf., kt. 630720-0870. Starfsleyfi fyrir dýralæknastofu að Bjarkarhlíð 2. Leyfi útgefið 3.9.2021.
f) Hreinsitækni ehf., kt. 621293-2069. Starfsleyfi fyrir söfnun og flutningi á sérstökum úrgangi og seyru og fyrir viðgerðaraðstöðu eigin véla að Lagarbraut 4. Leyfi útgefið 7.9.2021
710 Múlaþing – Seyðisfjörður
g) Múlaþing, kt. 660220-1350. Endurnýjað starfsleyfi fyrir mötuneyti í Herðubreið, Austurvegi 4. Leyfi útgefið 8.9.2021
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
h) Eskja hf., kt. 630169-4299. Starfsleyfi fyrir niðurrifi á Strandgötu 40 og Strandgötu 42. Leyfi útgefið 15.9.2021.
740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
i) Fiskmarkaður Austurlands ehf., kt. 580298-3119. Starfsleyfi fyrir fiskmarkað að Naustahvammi 64. Leyfi útgefið 1.9.2021.
j) Verkmenntaskóli Austurlands., kt. 520286-1369. Endurnýjað starfsleyfi fyrir mötuneyti að Nesgötu 40. Leyfi útgefið 22.9.2021.
765 Múlaþing – Djúpivogur
k) Brazerý ehf., kt. 610721-0870. Starfsleyfi fyrir sölu á veitingum og gistingu, litla matvælavinnslu og vatnsveitu að Karlstöðum. Leyfi útgefið 7.9.2021
780-781 Höfn
l) Þórbergur Torfason kt., 120354-7449. Starfsleyfi fyrir seyrugryfju ofan þjóðvegar, vestan brúar yfir Steinavötn. Leyfi útgefið 30.9.2021
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.
2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
a) Trausti Reykdal Guðvarðsson kt. 251244-2789. Tóbakssöluleyfi í verslun sinni að Strandgötu 29a. Leyfi útgefið 7.10.2021.
780-781 Höfn
b) Hafnarbúðin ehf., kt. 480617-0960. Tóbakssöluleyfi í Hafnarbúðinni Ránarslóð 2a. Leyfi útgefið 11.10. 2021
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa
3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva
3.1 Blábjörg ehf.
Fyrirtækinu var veitt undanþága fyrir notkun á brómi til sótthreinsunar á baðvatni í einum heitum potti á fundi nefndarinnar 11.10.2017. Sýni sem tekin hafa verið í pottinum hafa ekki öll verið að standast ákvæði reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Þá kom í ljós í eftirlitsferð að bróm er notað til að sótthreinsa tvo heita potta en ekki einn.
Heilbrigðisnefnd vekur athygli á því að undanþágan sem veitt var árið 2017 gildir aðeins um einn pott en ekki tvo og gerir þá kröfu að bróm verði aðeins notað í þann pott sem heimildin nær til. Jafnframt lýsir nefndin yfir áhyggjum af því að sýni sem tekin hafa verið að undanförnu skuli ekki hafa staðist kröfur reglugerðar og áformar að fella undanþáguna úr gildi nema niðurstöður úr komandi sýnatökum sýni fram á bætt ástand baðvatnsins.
3.2 Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf
Á 163. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands var samþykkt að hefja innheimtu dagsekta að upphæð kr.10.000,- á dag frá og með 1.október sl. hafi ekki verið bætt úr ástandi fráveitumála fyrir þann tíma. Í tölvupósti frá fulltrúa fyrirtækisins þann 28.9 kom fram að úrbótum væri enn ekki lokið og óskað var eftir að innheimtu dagsekta yrði frestað til 15. október nk.
Heilbrigðisnefnd sér ekki ástæðu til þess að veita frekari fresti og hafnar ósk fyrirtækisins. Dagsektir verða því að óbreyttu innheimtar frá og með 1. október sl. í samræmi við ákvörðun heilbrigðisnefndar á 163. fundi. Fyrsti gjalddagi dagsekta verður 1. nóvember nk. í samræmi við 3.mgr. 61.gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
4. Fyrirhuguð endurskoðun laga um hollustuhætti og mengunarvarnir
Í tölvupósti frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þann 16. september sl. upplýsti ráðuneytið að undirbúningsvinna varðandi endurskoðun laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir væri hafin. Jafnframt kom fram að samráð yrði haft við stjórnvöld og aðra haghafa varðandi þá vinnu sem framundan er.
Heilbrigðisnefnd telur fulla þörf á endurskoðun laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og fagnar því samráði sem boðað er varðandi vinnuna framundan.
5. Endurskoðun á eftirlitskerfi með matvælum, mengunarvörnum og hollustuháttum
Í frétt sem birtist á vef stjórnarráðsins þann 15. september sl. kom fram að á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og Umhverfis- og auðlindaráðuneytis sé hafinn vinna við endurskoðun á eftirlitskerfi með matvælum, mengunarvörnum og hollustuháttum. Fram kemur að fyrirhuguð endurskoðun sé unnin framhald af vinnu KPMG sem á síðasta ári vann greiningu á opinberu eftirliti að beiðni ráðneytanna tveggja.
Heilbrigðisnefnd vekur athygli á því að missagt er í frétt á heimasíðu Stjórnarráðsins að niðurstaða KPMG sé að ósamræmis gæti í framkvæmd opinbers eftirlits hér á landi. Hið rétta er að í skýrslu KPMG kemur fram að utanumhald er ekki að fullu samræmt, að fimm tegundir gagnagrunna eru notaðir við framkvæmd eftirlits og að slíkt geti leitt til ósamræmis.
Heilbrigðisnefnd gerir ráð fyrir að fá að koma að þeirri vinnu sem framundan er með einum eða öðrum hætti í samræmi við orðalag fréttarinnar um fyrirhugað samráð við haghafa. Að lokum ítrekar Heilbrigðisnefnd Austurlands þá afstöðu sína að best og hagkvæmast sé að að eftirliti sé sinnt úr nærumhverfinu í stað þess þenja út miðlægar eftirlitsstofnanir
6. Urðunarstaðir í tengslum við búfjársjúkdóma
Nýlega kom í ljós að framkvæmdaleyfi vegna malarnáms í Norðfjarðarsveit hafði verið gefið út í næsta nágrenni við urðunarstað fyrir riðufé frá árinu 1987. Sérfræðingur frá Matvælastofnun fór á staðinn ásamt fulltrúum frá sveitarfélaginu, landeiganda, heilbrigðiseftirliti og fleiri aðilum. Að mati Matvælastofnunnar var ekki talin hætta á ferðum ef malarnámið færist ekki nær urðunarstaðnum en nú er. Engar upplýsingar um staðsetningu urðunarstaðarins lágu hins vegar fyrir hjá Matvælastofnun en staðsetning hans var fundin með aðstoð heimamanna sem tóku þátt í urðuninni á sínum tíma
Heilbrigðisnefnd beinir því til Matvælastofnunnar að stofnunin taki saman upplýsingar um urðunarstaði vegna riðuniðurskurðar og annarra búfjársjúkdóma á starfssvæði nefndarinnar sem allra fyrst. Að mati heilbrigðisnefndar er afar mikilvægt að þessar upplýsingar liggi fyrir og að urðunarstaðir í tengslum við búfjársjúkdóma verði tilgreindir í aðalskipulagi sveitarfélaga. Jafnframt vekur heilbrigðisnefnd athygli umhverfisnefnda sveitarfélaga á málinu.
7. Ársreikningur 2020
Fyrirliggur endurskoðaður ársreikningur frá KPMG.
Nefndarmenn samþykkja ársreikning með rafrænni undirskrift og vísa honum til endanlegrar afgreiðslu aðalfundar
8. Breytingar á gjaldskrá
Umræða um gjaldskrá fyrir heilbrigðs- og mengunarvarnareftirlit á Austurlandi. Lögð var fram tillaga um að upphæðir í gjaldskrá hækki til samræmis við verðlagshækkanir
Heilbrigðisnefnd samþykkir að vísa tillögu að gjaldskrárbreytingum til afgreiðslu aðalfundar
9. Fjárhagsáætlun 2022
Tillaga að fjárhagsáætlun vegna ársins 2022 lögð fram
Heilbrigðisnefnd samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu aðalfundar
10. Samningur um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum
Á 163. fundi heilbrigðisnefndar þann 1. september sl. var samþykkt að óska eftir nýjum samningi við Umhverfisstofnun um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum. Í svari frá Umhverfisstofnun þann 13. október sl. kom fram að stofnunin hefði ákveðið að endurnýja ekki samninginn.
Heilbrigðisnefnd lýsir yfir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun Umhverfisstofnunar. Nefndin bendir á að hjá Heilbrigðiseftirliti Austurlands starfa heilbrigðisfulltrúar sem hafa víðtæka þekkingu og reynslu af eftirliti með mengandi starfsemi og að HAUST hefur sinnt eftirliti með fiskimjölsverksmiðjum og sorpurðunarstöðum f.h. Umhverfisstofnunnar um áratugaskeið. Það er sárt að horfa á eftir verkefnum flytjast frá sveitarfélögum á landsbyggðinni yfir til ríkisstofnanna á höfuðborgarsvæðinu, ekki síst vegna þess að heilbrigðisnefnd hefur á undanförnum árum og áratugum sýnt mikið frumkvæði í því taka að sér eftirlitsverkefni fyrir hönd ríkisstofnanna. Það er enn bjargsföst trú Heilbrigðisnefndar Austurlands að það sé allra hagur, ekki síst út frá umhverfissjónarmiðum, að eftirliti sé sinnt úr nærumhverfinu og harmar því mjög að ákvörðun Umhverfisstofnun í þessum málum sé á þennan hátt. Í ljósi áherslna stjórnvalda um störf án staðsetninga og fjölgun þeirra á landsbyggðinni þá skorar Heilbrigðisnefnd Austurlands á ráðherra og þingmenn kjördæmisins að taka þessi mál til umræðu.
11. Vinna milli funda
Umsagnir um skipulagsmál
11.1 um skipulagslýsingu og vinnslutillögu að breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028. Álfaás gistiþjónusta í landi Ketilstaða
11.2 um tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóð gamla frystihússins á Borgarfirði.
11.3 um tillögu að að endurskoðuðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar
Aðrar umsagnir
11.4 Um tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu við Heppuskóla 18.9.2021.
11.5 um rekstrarleyfisumsókn Hótels Eskifjarðar ehf., vegna reksturs gististaðar í flokki IV að Strandgötu 47 á Eskifirði
11.6 um tækifærisleyfi vegna skólaskemmtunar ME í Aski taproom 21.10.2021
11.7 um tækifærisleyfi vegna skólaskemmtunar FAS í Sindrabæ 7.10.2021
12. Önnur mál
12.1 Aðalfundur Byggðasamlags um rekstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands Aðalfundur byggðasamlagsins fer fram á Höfn í Hornafirði þann 3. nóvember nk.
12.2 Næsti fundur heilbrigðisnefndar er skv. fundardagskrá þann 1. desember nk.
Fundi slitið kl. 14:00
Fundargerðin færð í tölvu og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Fundargerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Leifur Þorkelsson
Gunnhildur Imsland

