Heilbrigðisnefndarmenn viðstaddir:

Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Ólafur Hr. Sigurðsson, Benedikt Jóhannsson og Eiður Ragnarsson.

Starfsmenn viðstaddir:

Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson, Hákon Hansson

Dagskrá :

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 612
  2. Tóbakssöluleyfi 615
  3. Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka 615
    3.1  Sundlaugar 615
    3.1.1  Sundlaugarvarsla 615
    3.1.2  Náttúrulaugar, spa, heitir pottar o.fl. 615
    3.1.3  Sundlaugin í Selárdal 615
    3.2  Eiðar 616
    3.3  Bensínstöðvar 616
    3.3.1  Shell Skjöldólfsstöðum 616
    3.3.2  Bensínstöð Möðrudal 616
    3.4  Sláturfélag Vopnfirðinga hf. 616
  4. Umsóknir um 15 starfsleyfi fyrir allt að 200 tonna fiskeldi  616
  5. Erindi og bréf 617
    5.1  Bréf frá UST v. móttökuaðstöðu fyrir úrgang í höfnum dags. 16.7.2012.  617
    5.2  Bréf frá UST dags. 27.8.2012 ósk um viðbótareftirlit  617
    5.3  Bréf frá Þorskeldi ehf., ósk um breytingu á starfsleyfi fiskeldis. 618
  6. Framsalssamningar 618
  7. Drög að ársreikningi 618
  8. Drög að fjárhagsáætlun 2013 618
    8.1  Húsaleiga á Reyðarfirði 618
  9. Tillaga að fundum fram að áramótum  619
  10. Önnur mál  619
    10.1   Starfsmannafundur var haldinn 20.6.2012. 619
    10.1.1 Minnispunktar af fundinum lagðir fram til kynningar. 619
  11. Í upphafi fundar var samþykkt tillaga um að breyta dagskrá og byrja á lið 3. Röð á dagskrárliðum var samt ekki breytt í bókun fundarins.

 

1.  Bókuð útgefin starfsleyfi

690 Vopnafjarðarhreppur

a) Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569. Tímabundið starfsleyfi fyrir Sundlaugina í Selárdal í Vopnafirði ásamt lítilli vatnsveitu. Leyfið gildir frá 30.6.2012 til 31.12.2012. Sjá einnig lið 3.1 í fundargerðinni.

b) Þórunn Egilsdóttir, kt. 231164-4809. Nýtt starfsleyfi fyrir rekstur einkavatnsveitu og sölu gistingar fyrir allt að 8 manns í senn að Hauksstöðum í Vopnafirði. Leyfið útgefið 5.7.2012.

c) Árni Helgason ehf., kt. 6709901769. Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðum með mötuneyti, Háholti 1, 690 Vopnafjörður. Leyfi útgefið 13.7.2012 með gildistíma til 13.7.2014.

d) Haraldur Jónsson, kt. 2204055-5809 og Kristbjörg E. Alfreðsdóttir kt. 030666-4539. Nýtt starfsleyfi. vegna sölu á gistingu og reksturs vatnsveitu að Ásbrandsstöðum, 690 Vopnafjörður. Leyfi útgefið 3.9.2012.

e) Veiðifélag Selár, kt. 560299-2579. Breyting á starfsleyfi, flutningur í Veiðihúsið Fossgerði við Selá í Vopnafirði. Leyfið útgefið 11.9.2012.

 

700-701 Fljótsdalshérað

f) Grái hundurinn ehf., kt. 540605-1490. Starfsleyfi fyrir sölu matvælum í gamla Shellskálanum á Hallormsstað. Starfsleyfi útgefið 14.6.2012.

g) Höttur rekstrarfélag, kt. 630205-0930. Starfsleyfi/tímabundið fyrir söluskúr við Vilhjálmsvöll. Leyfið útgefið 15.6.2012.

h) Stjörnuhár, kt. 690705-0520. Lítilsháttar breyting á starfsleyfi, fjölgað úr þrem hársnyrtistólum í fimm. Leyfi útgefið 21.6.2012.

i) Kaffi Egilsstaðir ehf., kt. 660112-0730. Breyting á rekstaraðila fyrir Tjaldsvæðið Egilsstöðum, Kaupvangi 17. Leyfið útgefið 28.6.2012.

j) Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Tímabundið starfsleyfi vegna atvinnuvegasýningar í Egilsstaðaskóla 18.-19. ágúst 2012. Leyfi útgefið 13.7.2012.

k) Gabríel Alexander Joenson, kt. 201082-5879. Lítilsháttar breyting á starfsleyfi fyrir Temüjin Tatto húðflúrstofu og götun. Leyfið útgefið 20.7.2012.

l) Ylur ehf., kt. 430497-2199. Tímabundið starfsleyfi fyrir neysluvatnsveitu og fráveitu frá starfsmannaaðstöðu og salernisaðstöðu í við Rjúkanda á Jökuldal, 701 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 20.7. og gildir til 30.9.2012.

m) Harmónikufélag Héraðsbúa, kt. 540291-2179. Tímabundið starfsleyfi vegna sumarhátíðar í Brúarási 3. og 4.8.2012. Ábyrgðarmaður: Jón Sigfússon, kt. 090143-5579. Leyfi útgefið 1.8.2012.

n) Forskot, ferðaþjónustufélag , kt. 600794-3109. Tímabundið starfsleyfi fyrir Ormsteiti á Fljótsdalshéraði 10.-20.8.2012, þ.e. almennt utanumhald og skipulag, fyrirkomulag salerna, þrif á hátíðasvæði o.fl. auk leyfis til samkomuhalds. Ábyrgðarmaður: Guðríður Guðmundsdóttir, kt. 150160-2439. Leyfi útgefið 7.8.2012.

o) Forskot, ferðaþjónustufélag , kt. 600794-3109. Tímabundið starfsleyfi fyrir veitingasölu á Ormsteiti, þ.e. hreindýraveislu, í tjaldi við Nettó á Egilsstöðum þann 18.8.2012. Ábyrgðarmaður leyfis: Guðríður Guðmundsdóttir, kt. 150160-2439. Leyfi útgefið 7.8.2012.

p) Skógrækt ríkisins, kt. 590269-4339. Starfsleyfi vegna samkomuhalds í Trjásafni Skógræktarinnar í Mörkinni Hallormsstað í tengslum við tónleika eða aðrar uppákomur. Ábyrgðarmaður: Þór Þorfinnsson. Leyfi útgefið 7.8.2012.

q) Birna Kristjánsdóttir, kt. 120854-6159 . Tímabundið starfsleyfi vegna baksturs í Hlymsdölum, Miðvangi á Egilsstöðum og til sölu á varningnum í tjaldið við Nettó á Ormsteiti 2012. Leyfi útgefið 10.8.2012.

r) Jóhann Gísli Jóhannsson, kt. 050460-3479. Tímabundið starfsleyfi vegna samkomuhalds með veitingum 14.-16. september 2012 í húsnæði Alþýðuskólans á Eiðum. Um er að ræða leyfi fyrir lokaðan hóp, u.þ.b. 70 manns. Leyfi útgefið 11.9.2012.

s) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. Breyting á starfsleyfi fyrir nýtingu seyru til uppgræðslu í landi Eyrarteigs, 701 Egilsstaðir. Starfsleyfishafi var áður Sveitarfélagið Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Leyfið fært yfir á HEF skv. ákvæði í starfsleyfareglugerð 785/1999 gr. 27.2. Leyfi breytt 11.9.2012.

t) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. Breyting á starfsleyfi fyrir nýtingu seyru til uppgræðslu í landi Vallaness, 701 Egilsstaðir. Starfsleyfishafi var áður Sveitarfélagið Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Leyfið fært yfir á HEF skv. ákvæði í starfsleyfareglugerð 785/1999 gr. 27.2. Leyfi breytt 11.9.2012.

u) Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., kt. 470605-1110. Nýtt starfsleyfi fyrir nýtingu seyru til uppgræðslu í landi Skjöldólfsstaða, 701 EgilsstaðLeyfi útgefið 11.9.2012.

v) Farfuglaheimilið Hafalda ehf., kt. 610508-0810. Nýtt starfsleyfi fyrir nuddstofu að Blómvangi 2. Undanþága fékkst frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu skv. beiðni þar um. Leyfið útgefið 11.9.2012 með gildistíma til 1.10.2017.

701 Fljótsdalshreppur

w) Fljótsdalsgrund ehf., kt. 470909-1450. Breyting á starfsleyfi fyrir sölu á veitingum og gistinuað Fljótsdalsgrund í Fljótsdal. Við bætist sala á veitingum úr fullbúnu eldhúsi í stað morgunverðaraðstöðu í félagsheimilinu Végarði. Starfsleyfi endurskoðað 18.6.2012.

x) ÍAV hf. 660169-2379. Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir, mötuneyti viðgerðaraðstöðu og vatnsveitu við Innri Sauðá. Starfsleyfi útgefið 19.6.2012.

710 Seyðisfjarðarkaupstaður

y) Óskar Karl Elíasson, kt. 301153-5469. Starfsleyfi fyrir sölu á veitingum í Söluskála Shell að Hafnargötu 2. Leyfi útgefið 14.6.2012.

z) LungA, kt. 600201-2120. Starfsleyfi fyrir útitónleikaLungA 21.-22.júlí 2012 í miðbæ Seyðisfjarðar. Leyfið útgefið 15.6.2012.

aa) Ljóshamar ehf., kt. 500712-0150. Starfsleyfi fyrir sölu á veitingum í Söluskála Shell að Hafnargötu 2. Ábyrgðarmaður: Óskar Karl Elíasson. kt. 301153-5469. Leyfi útgefið 10.7.2012.

bb) Slysavarnardeildin Rán., kt. 690399-2619. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á veitingum við Herðubreið, dagana 20.-21. júlí. Starfsleyfi útgefið 19.7.2012.

cc) Húsahótel ehf., kt. 510703-2510. Tímabundið starfsleyfi vegna samkomuhalds og veitingasölu í Angró og í tjaldi staðsettu við Angró á Seyðisfirði dagana 27.-29. júlí 2012 í tengslum við Smiðjuhátíð. Ábyrgðarmaður: Davíð Kristinsson, kt. 141077-4149. Leyfi útgefið 26.7.2012.

dd) Hringrás hf., kt. 420589-1319. Tímabundið starfsleyfi til að rífa tvo olíutanka á Seyðisfirði. Ábyrgðarmaður Ásmundur Einarsson, en ábyrgðarmaður á staðnum er Hafsteinn Hilmarsson. Leyfi útgefið 27.8.2012 og gildir til 15.9.2012.

720 Borgarfjörður eystri

ee) ÞS Verktakar ehf., kt. 410200-3250. Tímabundið starfsleyfi fyrir neysluvatnsveitu og fráveitu frá starfsmannaaðstöðu í Njarðvík, 720 Borgarfjörður eystri. Leyfið útgefið 11.7.2012 og gildir til 30.9.2012.

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

ff) Trévangur ehf., kt. 460307-1390. Endurnýjun starfleyfis fyrir trésmíðaverkstæði með lökkun að Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður. Leyfi útgefið 25.6.2012.

gg) Machinery ehf., kt 581103-3520. Tímabundið starfsleyfi vegna niðurrifst skemmu við Ægisgötu 6, 730 Reyðarfjörður fasteign númer 217-7463 og flutnings á úrgangi þaðan til förgunar eða endurvinnslu. Ábyrgðarmaður: Björn Kristinsson. Leyfi útgefið 3.7.2012.

hh) Húsasmiðjan ehf., kt. 551211-0290. Breyting á starfsleyfi fyrir verslun með merkingarskyldar efnavörur að Hafnargötu 7, 730 Reyðarfjörður. Leyfi útgefið 17.7.2012.

ii) Eimskip Ísland ehf. kt. 421104-3520. Endurnýjað starfsleyfi fyrir flutningafyrirtæki og vöruafgreiðsluHafnargötu 5. Leyfi útgefið 29.8.2012.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður

jj) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Endurnýjað starfsleyfi fyrir áhaldahús Fjarðabyggðar, Strandgötu 16, 735 Eskifjörður. Leyfi útg. 21.6.2012.


740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður

kk) G.V. Hljóðkerfi ehf. (öðru nafni Hljóðfæraleiga Austurlands), kt. 450799-2469. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu á Candy Floss í tengslum við hátíðahöld í Fjarðabyggð. Ábyrgðarmaður: Þorvaldur Einarsson, 280480-5259. Leyfi útgefið 15.6.2012.

ll) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Endurnýjað starfsleyfi fyrir áhaldahús Fjarðabyggðar, Egilsbraut 7, 740 Neskaupstaður. Leyfi útg. 21.6.2012.

mm) Millifótakonfekt ehf., kt. 671109-1040. Tímabundið starfleyfi vegna reksturs Egilsbúðar 12-15.7.2012 í tengslum við tónleikahald á Eistnaflugi 2012. Ábyrgðarmaður: Stefán Magnússon, kt. 290476-3729. Leyfi útgefið 3.7.2012.

nn) Gabríel Alexander Joensen f.h. Temuji Tatto, kt. 201082-5879. Tímabundið starfsleyfi dagana 14. og 15. júlí fyrir húðflúr í húsnæði Kírópraktors, Egilsbraut 7. Leyfið útgefið 13.7.2012

oo) Blús, Rokk/djassklúbbur á Nesi, kt. 620498-3949. Tímabundið starfsleyfi vegna bæjarhátíðarinnar Neistaflug 2.-6.8.2012. Ábyrgðarmaður: Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, kt.260583-4099. Leyfi útgefið 30.7.2012.

780-785 Hornafjörður

pp) N1 hf., kt. 540206-2010. Nýtt starfsleyfi fyrir N1, söluskála, Nesjum í Nesjahverfi. Leyfi útgefið 13.6.2012.

qq) JA vet ehf., kt. 660609-1640. Nýtt starfsleyfi fyrir sölu gistingar að Höfðavegi 8, 780 Höfn. Ábyrgðarmaður: Janine Arens, kt. 250476-2569. Leyfi útgefið 14.6.2012.

rr) Sveitarfélagið Hornafjörður., kt.590169-4639. Tímabundið starfsleyfi vegna sölu á veitingum á hafnarsvæðinu á Höfn dagana 16.-17. júní 2012. Leyfi útgefið 14.6.2012.

ss) Humarhátíð ehf., kt. 660499-2029. Tímabundið starfsleyfi fyrir Humarhátíð á Höfn 22. til 24. júní 2012. Ábyrgðarmaður: Kristín S. Kristjánsdóttir, kt. 110950-2339. Leyfi útgefið 22.6.2012.

tt) Þernuklettur ehf., kt. 660598-2949. Breyting á starfsleyfi (kennitölu) fyrir alifuglasláturhús að Heppuvegi 6, 780 Höfn í Hornafirði. Leyfi útgefið 16.7.2012.

uu) Kaupfélagshúsið ehf., kt. 600169-3949. Nýtt starfsleyfi vegna sölu á einföldum veitingumHafnarbraut 2. Starfsleyfi útgefið 17.7.2012.

vv) Flatatún ehf., kt. 560403-2830. Breytt starfsleyfi vegna sölu gistingar í Austurbæ, Svínafelli 1, 785 Öræfi. Ábyrgðarmaður: Ólafur Sigurðsson, kt. 030254-2369. Leyfi útgefið 20.7.2012.

 

2.  Tóbakssöluleyfi

700 Fljótsdalshérað

a) Grái hundurinn ehf., kt. 540605-1490 Tóbakssöluleyfi í gamla Shellskálanum Í Hallormsstað. Ábyrgðarmaður: Þráinn Lárusson kt. 150462-7549.

 

710 Seyðisfjörður

b) Óskar Karl Elíasson kt. 301153-5469. Tóbakssöluleyfi í Söluskála Shell að Hafnargötu 2. Ábyrgðarmaður Óskar Karl Elíasson, kt. 301153-5469. Leyfi útgefið 14.6.2012.

c) Ljóshamar ehf., kt. 500712-0150. Leyfi til sölu tóbaks í Söluskála Shell að Hafnargötu 2, 710 Seyðisfirði. Ábyrgðarmaður: Óskar Karl Elíasson, kt. 301153-5469. Leyfi útgefið 10.7.2012.

 

780 Hornafjörður

d) N1 hf., kt. 540206-2010. Leyfi til sölu tóbaks í söluskála N1 í Nesjum, Nesjahverfi. Ábyrgðarmaður: Helgi Kristjánsson, kt. 190751-2529. Leyfi útgefið 13.6.2012.

 

3. Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka

3.1 Sundlaugar

3.1.1 Sundlaugarvarsla

Til HAUST hafa borist ábendingar um að sundlaugarvörslu hafi verið ábótavant í sumar. Slíkt er brot á starfsleyfi og á reglugerð nr. 814/2010 um sund- og baðstaði og er litið mjög alvarlegum augum.

Heilbrigðisnefnd lítur það mjög alvarlegum augum að ekki sé farið að kröfum um laugargæslu og felur starfsmönnum að koma þeirri skoðun á framfæri við rekstaraðila sundlauga. Fara skal með slíkt sem alvarleg starfsleyfisbrot.

3.1.2  Náttúrulaugar, spa, heitir pottar o.fl.

Allnokkuð er um að ferðaþjónustuaðilar innrétti spa eða heita potta án þess að átta sig á þetta flokkast sem baðstaðir og að krafa er um klórblöndum og sýnatökur til að tryggja öryggi og gæði baðvatns. Á vegum hollustuháttahóps (samstarfshópur UST og HES um hollustuhætti) fer fram umræða um kröfur og flokkun lauga.

Umræðan kynnt. Starfsmönnum falið að senda ferðaþjónustuaðilum upplýsingar um reglugerðaumhverfi sund- og baðstaði, t.d. í netpósti.

Eiður mætir til fundar kl. 9:11.

3.1.3  Sundlaugin í Selárdal....

Sótt var um framlengingu á leyfi fyrir sundlaugina til eins árs þegar gildandi leyfi rann út þann 20.6.2012. Laugin uppfyllir ekki skilyrði þess að flokkast sem gegnumstreymislaug og því ber að koma á fullkominni hreinsun með hringstreymi baðvatnsins. Skv. reglugerð nr. 814/2010 skal það gert fyrir 1.1.2013. Formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri voru sammála um að gefa út leyfi til áramóta, enda verði möguleikar í rekstri kannaðir og lögð fram tillaga að breytingum áður en núverandi starfsleyfi rennur út.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu starfsleyfis skv. ofangreindu en minnir á að finna verður varanlega lausn á málefnum sundlaugarinnar.

3.2  Eiðar

Í Miklagarði, sem er hluti af fyrrum Alþýðuskólanum á Eiðum var veitt leyfi til að selja gistingu fyrir allt að 40 manns og morgunverð fyrir þann fjölda. Þetta var gert með skilyrðum um sýnatöku af fráveituvatni, þ.e. sýnatökur af vatni úr Eiðalæk sem er viðtaki fráveitunnar. Markmiðið var að kanna hvort Eiðalækurinn gæti borið þá mengun sem um ræðir, þótt augljóst sé að rekstur hótels eins og verið hefur komi ekki til greina án úrbóta.

Sýni voru tekin í lok maí, áður en rekstur hófst, og aftur eftir miðjan júlí þegar rekstur var kominn í gang. Niðurstöður mælinganna sýna mun lægri fjölda gerla en þegar rekstur hótels var í gangi, en þó of mikinn. Einnig var skólpmengun greinileg við útrásir og að mati heilbrigðisfulltrúa ekki forsendur til að veita heimildir fyrir áframhaldandi rekstri í aðstöðunni fyrr en fráveita hefur verið löguð.

Heilbrigðisnefnd tekur undir álitið hér að ofan.

3.3  Bensínstöðvar

3.3.1  Shell Skjöldólfsstöðum

Gerðar voru aths. við að plan við afreiðsludælu er ekki olíuhelt og fyrirtækinu gefinn frestur til að skila tímasettum áætlunum um lagfæringar veittur til 15.10.

3.3.2  Bensínstöð Möðrudal

Gefinn frestur til 15.10. til að leggja fram viðbragðsáætlun og rekstarhandbók.

Heilbrigðisnefnd staðfestir ofangreint

3.4  Sláturfélag Vopnfirðinga hf.

Starfsleyfi fyrir aðstöðu til að svíða dilkahausa var auglýst og rennur umsagnarfrestur út þann 21.9.

HHr. gerir grein fyrir málinu.

Heilbrigðisnefnd samþykkir kynnt verklag og felur frksvstj. að gefa út starfsleyfið ef ekki berast rökstudd andmæli vegna mengunar af völdum starfseminnar.

 

4.  Umsóknir um 15 starfsleyfi fyrir allt að 200 tonna fiskeldi

Allmargar umsóknir um starfsleyfi fyrir fiskeldi í sjó hafa borist til HAUST. Að höfðu samráði við formann og varformann Heilbrigðisnefndar var ákveðið að auglýsa starfsleyfistillögur og gefa fjögurra vikna frest til athugasemda skv. 24. gr. í reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Nokkrir aðilar óskuðu eftir tveggja vikna fresti til að gera athugasemdir, enda auglýst á sumarleyfistíma. Framlengdur frestur rann út 24.8. sl. og hafa allmargar athugasemdir borist.

Eftirfarandi aðilar sóttu um starfsleyfi: dags. ums.

Fyrir kvíaeldi á laxi allt að 200 tonna framleiðslu hvert leyfi í Reyðarfirði:

1. Helgi Guðmundur Sigurðsson kt. 060860-3199 19/6
2. Margrét Stefánsdóttir kt. 040369-4659 19/6
3. Oddný Rósa Ásgeirsdóttir kt. 120487-2489 19/6
4. Sigurrós Sigurbergsdóttir kt. 090728-4239 19/6

Fyrir kvíaeldi á laxi allt að 200 tonna framleiðslu hvert leyfi í Fáskrúðsfirði

5. Einar Örn Gunnarsson kt. 051061-3739 19/6
6. Guðmundur Gunnarsson kt. 160751-2159 19/6
7. Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir            kt. 311055-2249 19/6
8. Fiskeldi Austfjörðum ehf. kt. 520412-0930 (nr. 1) 19/6
9. Fiskeldi Austfjörðum ehf. kt. 520412-0930 (nr. 2) 19/6

 Fyrir kvíaeldi á laxi allt að 200 tonna framleiðslu hvert leyfi í Berufirði

10. Fiskeldi Austfjörðum ehf. kt. 520412-0930 (nr. 1) 25/6
11. Fiskeldi Austfjörðum ehf.                               kt. 520412-0930 (nr. 2) 25/6
12. Gunnar Páll Helgason kt. 071284-816929/6, lagfært 9/7
13. Jóhann Örn Helgason kt. 040188-223929/6, lagfært 9/7
14. Sighvatur M. Helgason kt. 050592-278929/6, lagfært 9/7
15. Benedikt T. Sigurðsson kt. 270152-299929/6, lagfært 9/7

 

Málið hefur verið unnið áfram af starfsmönnum HAUST og hafa þeir notið ráðgjafar Jóns Jónssonar hæstaréttarlögmanns, skv. ákvörðun formanns og varaformanns.

Fyrir fundinn var lögð fram tillaga að ákvörðun Heilbrigðisnefndar. Í tillögunni felst að hafna öllum 15 leyfisumsóknunum. Meginrök eru að í umræddum fjörðum er nú þegar allmikið fiskeldi og að með útgáfu svo margra lítilla leyfa yrði gengið nálægt burðargetu fjarðanna. Við þessa tillögu er byggt á eftirfarandi markmiðum laga:

Markmið hollustuháttalaga nr. 7/1998 m.s.br. 1. gr. laganna: Markmið þessara laga er að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi.

Markmið laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda, 1. mgr. 1. gr.: Markmið laga þessara er að vernda hafið og strendur landsins gegn mengun og athöfnum sem stofnað geta heilbrigði manna í hættu, skaðað lifandi auðlindir hafsins og raskað lífríki þess, spillt umhverfinu eða hindrað lögmæta nýtingu hafs og stranda.

Málið rætt fram og til baka og skoðað frá ýmsum hliðum, enda staðan ekki einföld.

Heilbrigðisnefnd samþykkir tillögu um að hafna öllum starfsleyfisumsóknum um allt að 200 tonna leyfi til laxeldis, sbr. ofangreind upptalning og felur starfsmönnum að svara umsóknum á grunni fram lagðra gagna.

 

5. Erindi og bréf

5.1 Bréf frá UST v. móttökuaðstöðu fyrir úrgang í höfnum dags. 16.7.2012.

UST hefur safnað saman upplýsingum um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa í höfnum. Í framhaldinu mun UST beina því til hafnaryfirvalda að hafa samband við heilbrigðisnefnd á sínu svæði til að fá frekari upplýsingar og úrskurð um hvort móttaka úrgangs í höfninni sé starfsleyfisskyld, þ.e. hvort hún skuli flokkast sem gámastöð.

Lagt fram til kynningar.

5.2 Bréf frá UST dags. 27.8.2012 ósk um viðbótareftirlit

UST óskar eftir að HAUST framkvæmi reglubundið eftirlit með urðunarstöðum í Langanesbyggð (Bakkafirði og Þórshöfn) og á Kópaskeri. Áður hefur UST óskað eftir að HAUST framkvæmi reglubundið eftirlit í fiskimjölsverksmiðju á Þórshöfn.

Starfsmenn hafa samþykkt að taka þessi verk að sér enda verði greitt kílómetragjald fyrir akstur, en ekki 1,2 klst tímagjald eins og gjaldskrá HAUST gerir ráð fyrir vegna fyrirtækja á starfssvæðinu.

Heilbrigðisnefnd samþykkir framangreint.

5.3  Bréf frá Þorskeldi ehf., ósk um breytingu á starfsleyfi fiskeldis

Óskað er eftir að starfsleyfi fyrirtækisins um allt að 200 tonna þorskeldi í Berufirði verði breytt í 99 tonn af þorski og 100 tonn af regnbogasilungi.

Heilbrigðisnefnd samþykkir umbeðið leyfi, enda er ekki um að ræða aukningu á mengunarálagi frá því sem áður var.

 

6.  Framsalssamningar

Reynsla – reynslusögur frá árinu.

Eftirlit með sorpförgun er nánast lokið. Eftirlitið fer fram skv. framlengdum samningi milli UST og HAUST frá 1998. HAUST innheimtir eftirlitsgjöld af rekstaraðila þar sem ekki var gert ráð fyrir þessu inni í framlögum svfél eins og verið hefur.

Eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum er ekki farið af stað, en lítillega með fiskeldisstöðvum. Eftirlitið á að fara fram skv. nýjum samningi milli UST og HAUST sem var undirritaður í byrjun árs. HAUST innheimtir kostnað vegna eftirlits til UST skv. gjaldskrá HAUST, en UST rukkar síðan rekstaraðila skv. sinni gjaldskrá.

Eftirlit með matvælafyrirtækjum skv. samningi milli MAST og HAUST er í gangi. Kostnaður vegna þessara fyrirtækja er innheimtur af svfél eins og fyrir önnur fyrirtæki á starfssvæði HAUST. Samskipti milli MAST og HAUST ganga stirt. Leifur gerir grein fyrir málinu og leggur fram minnisblað þar um. Samningi við MAST þarf að segja upp með 3ja mánaða fyrirvara til að uppsögn taki gildi í lok árs.

HHr falið að ræða málið við forstjóra MAST, komi ekki fram gagngerar breytingar verði samningum sagt upp fyrir lok septembermáauðar.

7. Drög að ársreikningi

Drög að ársreikningi lögð fram til samþykktar.

Ársreikningurinn er saminn af KPMG í samræmi við ályktun aðalfundar 2012 og er yfirfarinn og undirritaður af skoðunarmönnum HAUST, Ástu Halldórsdóttur og Stefáni Bragasyni.

Heilbrigðisnefnd samþykkir ársreikninginn til afgreiðslu aðalfundar 2012.

8. Drög að fjárhagsáætlun 2013

Drög að fjárhagsáætlun 2013 lögð fram

Heilbrigðisnefnd samþykkir drög að fjárhagsáætlun til afgreiðslu aðalfundar 2012 með fyrirvara um breytingar á fyrirtækjalistum sveitarfélaganna.

8.1 Húsaleiga á Reyðarfirði

Samningur um leigu húsnæðis að Búðareyri 7 á Reyðarfirði nær til 31.12.2012. Eftirfarandi setning er í samningum: "Leigusamningur þessi fellur úr gildi á tilgreindum lokadegi skv. grein 1.01 sbr. og grein 2.04. Leigutaki skal tilkynna leigusala með sex mánaða fyrirvara hvort hann hyggist nýta sér forleigurétt sinn að leigutíma loknum, sbr. grein 11.02."

Frá Klasa ehf. hefur borist boð um framlengingu samningsins um eitt ár. Óskað er eftir að Heilbrigðisnefnd samþykki það boð og feli frkvstj. að undirrita samninginn. Ath. að aðrir leigusamningar eru ótímabundnir. Á Höfn er ákvæði um 3ja mánaða uppsagnarfrest.

Heilbrigðisnefnd samþykkir framlengingu húsaleigusamningsins.

9. Tillaga að fundum fram að áramótum

Samþykkt að hafa aðalfund á Seyðisfirði þann 24. október.

Ákvörðun um aðra fundi frestað

Rætt um undirbúning aðalfundar og að leggja fram tillögu um lítilsháttar breytingu á stofnsamningi.

10. Önnur mál

10.1 Starfsmannafundur var haldinn 20.6.2012.

10.1.1 Minnispunktar af fundinum lagðir fram til kynningar.

Helstu málefni voru merkingar og öryggi á sund- og baðstöðum, hestaleigur (unnið hefur verið að starfsleyfagerð fyrir slika starfsemi), farið var yfir stöðuna í starfsleyfamálum opinna leiksvæða. Veggjalýs hafa verið að gera usla í ferðaþjónustunni og bæklingur þar um var sendur víða í sumar. Muffinsfrumvarpið svokallaða hefur verið mikið í umræðu. Nú er búið að setja reglugerð sem heimilar sölu á heimabakkelsi í vissum tilfellum en aðeins ef um er að ræða sölu í góðgerðarskyni.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:20

Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

Valdimar O. Hermannsson
Árni Kristinsson
Ólafur Hr. Sigurðsson
Sigurlaug Gissurardóttir
Eiður Ragnarsson
Andrés Skúlason
Benedikt Jóhannsson
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson
Hákon Hansson


pdfFundargerð 104 á pdf