Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Sandra Konráðsdóttir

Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir Ólöf Vilbergsdóttir

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 1042
  2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 1043
  3. Skráningarskyldur atvinnurekstur 1043
  4. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. 1044
  5. Frumvarp til laga til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs 1045
  6. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 1046
  7. Vinna milli funda 1046
  8. Önnur mál 1047

 

1. Bókuð útgefin starfsleyfi

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir

a) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Starfsleyfi fyrir apótek að Kaupvangi 6. Starfsleyfi útgefið 6.1.2026.
b) LMJO ehf., kt. 511115-3290. Starfsleyfi fyrir gististað að Lyngási 5-7. Starfsleyfi útgefið 15.1.2026.

701 Fljótsdalur

c) Skriðukaffi ehf., kt. 561025-0100. Starfsleyfi fyrir veitingasölu í Skriðuklaustri. Starfsleyfi útgefið 9.2.2026.

710 Múlaþing – Seyðisfjörður

d) Skálanessetur ehf., kt. 560606-2490. Starfsleyfi fyrir fjallaskála í Skálanesi. Starfsleyfi útgefið 6.1.2026.
e) LMJO ehf., kt. 511115-3290. Starfsleyfi fyrir gististað að Lyngási 5-7. Starfsleyfi útgefið 15.1.2026.

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

f) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Starfsleyfi fyrir apótek að Hafnargötu 2. Starfsleyfi útgefið 22.12.2025.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður

g) Sigurlaug Huld Helgadóttir., kt. 040187-3089. Starfsleyfi fyrir fótaaðgerðarstofu að Strandgötu 26. Starfsleyfi útgefið 10.2.2026.

780-781 Höfn

h) Angelika Maria Zazulak, kt. 230699-4109. Starfsleyfi fyrir snyrtistofu að Bogaslóð 12. Starfsleyfi útgefið 8.1.2026.
i) Fellsá ehf., 530224-1630. Starfsleyfi fyrir gististað Oddnýjarhúsi. Starfsleyfi útgefið 28.1.2026.
j) Olís ehf., kt. 500269-3249. Starfsleyfi fyrir veitingasölu að Hafnarbraut 43B. Starfsleyfi útgefið 30.1.2026.

785 Öræfi

k) Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Svínafelli. Starfsleyfi útgefið 6.1.2026.
l) Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Starfsleyfi fyrir gististað að Svínafelli. Starfsleyfi útgefið 6.1.2026.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

2. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi

765 Múlaþing – Djúpivogur

a) Geislar Gautavík ehf., kt. 680212-1630. Tóbaksöluleyfi að Gautavík. Tóbakssöluleyfi útgefið 19.1.2026.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra tóbakssöluleyfa.

 

3. Skráningarskyldur atvinnurekstur

710 Múlaþing - Seyðisfjörður

a) Skálanessetur ehf., kt 560606-2490. Skráning vegna bifreiða- og vélaverkstæðis að Fjarðargötu 1. Skráning staðfest 12.12.2025.
b) Ferðaþjónusta Austurlands ehf., kt 480596-2939. Skráning vegna bifreiða- og vélaverkstæðis að Ránargötu2a . Skráning staðfest 5.2.2026.

700 Múlaþing – Egilsstöðum

c) Heilsuleiðir ehf., kt. 600613-1700. Skráning fyrir aðstöðu sjúkraþjálfara að Miðvangi 1-3. Skráning staðfest 6.2.2026.

730 Fjarðabyggð - Reyðarfjörður

d) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Skráning fyrir brennu við Hrúteyri um áramót. Skráning staðfest 18.12.2025.
e) Trévangur ehf., kt 460307-1390. Skráning vegna trésmíðaverkstæðis að Búðareyri 15. Skráning staðfest 6.1.2026.
f) Hárbankinn ehf., kt. 420419-0820. Skráning fyrir hárgreiðslustofu að Búðareyri 3. Skráning staðfest 23.1.2026.

735 Fjarðabyggð - Eskifjörður

g) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Skráning fyrir brennu um áramót á malarsvæði á móts við þorpið. Skráning staðfest 18.12.2025.

740 Fjarðabyggð - Neskaupstaður

h) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Skráning fyrir brennu utan við flugvöll um áramót. Skráning staðfest 18.12.2025.

780 Höfn í Hornafirði

i) Björgunarfélag Hornafjarðar, kt. 640485-0439. Skráning fyrir flugeldasýningu um áramót. Skráning staðfest 11.12.2025.
j) Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639. Skráning fyrir brennu um áramót. Skráning staðfest 15.12.2025.
k) Bílaverkstæði Gunnars Pálma, ehf., kt. 530597-2029. Skráning vegna bifreiða- og vélaverkstæðis að Bugðuleiru 6. Skráning staðfest 16.12.2025.
l) Lovísa Rósa Bjarnadóttir, kt. 100277-5659. Skráning fyrir brennu um áramót við Löngubrúarhól í landi Hjarðarness. Skráning staðfest 18.12.2025.
m) Björgunarfélag Hornafjarðar, kt. 640485-0439. Skráning fyrir flugeldasýningu á þrettándanum. Skráning staðfest 2.1.2026.
n) Ungmennafélagið Máni, kt. 680886-1489. Skráning vegna brennu í landi Akurness við Laxá í Nesjum á þrettándanum. Skráning staðfest 5.1.2026.

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.

 

4.  Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Í samráðsgátt stjórnvalda hefur verið birt frumvarp til laga sem ætlað er að einfalda eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum (mál nr. S-3/2026). Verði frumvarpið að lögum verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður og opinbert eftirlit með starfs- og skráningarskyldri atvinnustarfsemi flutt til ríkisstofnana.

Heilbrigðisnefnd Austurlands mótmælir því fyrirkomulagi sem lagt er til í frumvarpinu, eins og það liggur fyrir, og telur að það feli í sér óásættanlega óvissu um framkvæmd, ábyrgðarskiptingu og raunverulegan ávinning eftirlits. Nefndin telur að ekki hafi verið sýnt fram á að fyrirhugaðar kerfisbreytingar bæti gæði, skilvirkni eða hagkvæmni eftirlits, né að þær taki nægjanlegt tillit til þeirrar fagþekkingar og staðbundnu reynslu sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits umdæmanna og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga. Heilbrigðisnefnd Austurlands varar sérstaklega við því að breytingar af þessari stærðargráðu, sem lagðar eru fram með takmörkuðum undirbúningi, ófullnægjandi greiningu á áhrifum og skömmum fyrirvara, geti leitt til þjónusturofs, tvíverknaðar, lengri boðleiða og skertar viðbragðsgetu.
Nefndin telur að fyrirhugaðar breytingar miði einkum að einföldun á stjórnsýslustigi, en óljóst sé hvort ávinningur skili sér til þjónustuþega, og taka ekki tillit til byggðarsjónarmiða, þar sem fleiri eftirlitsaðilar, fjarlægari stjórnsýsla, lengri boðleiðir og minni nálægð við eftirlitið geta grafið undan jafnræði í þjónustu milli landshluta og aukið kostnað þjónustuþeganna. Með boðuðu fyrirkomulagi er ljóst að þjónustuþegar verði undir eftirliti frá allt að þremur eftirlitsaðilum í stað eins með núverandi fyrirkomulagi. Afleiðingarnar myndu að mati nefndarinnar bitna á íbúum, atvinnulífi og starfsemi eftirlitsaðila, auk þess sem hætta er á auknum kostnaði fyrir ríki, sveitarfélög og aðra hagaðila.
Óljóst er hvaða verkefni munu sitja eftir hjá sveitarfélögunum og hvaða kostnaður muni falla á þau. Að sama skapi er óljóst hvernig sveitarfélögin eigi að sinna þeim verkefnum sem eftir sitja. Eins hefur ekki komið skýrt fram hvað verður um starfsmenn heilbrigðiseftirlita, hvar áætlað er að halda úti starfsstöðvum, hversu mörg störf á landsvísu þetta séu né hvernig sú skipting sé eftir landshlutum.
Heilbrigðisnefnd Austurlands telur nauðsynlegt að benda á að betur hefði átt að standa að samráði og upplýsingagjöf af hálfu ráðuneytisins við undirbúning málsins. Að mati nefndarinnar var upplýsingafundur sem haldinn var fyrir framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnamenn heilbrigðisnefnda of stuttur og veitti ekki á neinn hátt nægjanlegt svigrúm til umræðu og fyrirspurna. Nefndin leggur áherslu á að við undirbúning svo umfangsmikilla breytinga sé tryggt raunverulegt samráð, gagnsæi og tækifæri hagsmunaaðila til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Heilbrigðisnefnd Austurlands leggur að lokum áherslu á að markmiðum um aukið samræmi, einföldun og skilvirkni í eftirliti verði betur náð með því að efla, þróa og samræma núverandi fyrirkomulag heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, fremur en að ráðast í róttækar og illa ígrundaðar kerfisbreytingar.

 

5. Frumvarp til laga til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Í samráðsgátt stjórnvalda hefur verið birt frumvarp til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs (sjá mál nr. S-31/2026). Frumvarpið gerir ráð fyrir að starfsemi þessara stofnana verði sameinuð í eina nýja ríkisstofnun. Jafnframt er lagt til að matvælaeftirlit flytjist frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga til hinnar nýju ríkisstofnunar.

Heilbrigðisnefnd Austurlands mótmælir því fyrirkomulagi sem lagt er til í frumvarpinu, eins og það liggur fyrir, og telur að það feli í sér óásættanlega óvissu um framkvæmd, ábyrgðarskiptingu og raunverulegan ávinning eftirlits. Nefndin telur að ekki hafi verið sýnt fram á að fyrirhugaðar kerfisbreytingar bæti gæði, skilvirkni eða hagkvæmni eftirlits, né að þær taki nægjanlegt tillit til þeirrar fagþekkingar og staðbundnu reynslu sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits umdæmanna og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga. Heilbrigðisnefnd Austurlands varar sérstaklega við því að breytingar af þessari stærðargráðu, sem lagðar eru fram með takmörkuðum undirbúningi, ófullnægjandi greiningu á áhrifum og skömmum fyrirvara, geti leitt til þjónusturofs, tvíverknaðar, lengri boðleiða og skertar viðbragðsgetu.
Jafnframt hafnar Heilbrigðisnefnd Austurlands þeirri framsetningu að frumvarpið sé nauðsynlegt vegna athugasemda ESA. Athugasemdir ESA snúa fyrst og fremst að framkvæmd matvælalaga en ekki lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Afstaða ESA styður því ekki þá niðurstöðu að boðaðar kerfisbreytingar séu hvorki nauðsynlegar né nægjanlegar, og telur nefndin ekki rétt að vísa til ESA sem réttlætingar fyrir frumvarpinu.
Nefndin telur að fyrirhugaðar breytingar miði einkum að einföldun á stjórnsýslustigi, en óljóst sé hvort ávinningur skili sér til þjónustuþega, og taka ekki tillit til byggðarsjónarmiða, þar sem fleiri eftirlitsaðilar, fjarlægari stjórnsýsla, lengri boðleiðir og minni nálægð við eftirlitið geta grafið undan jafnræði í þjónustu milli landshluta og aukið kostnað þjónustuþeganna. Með boðuðu fyrirkomulagi er ljóst að þjónustuþegar verði undir eftirliti frá allt að þremur eftirlitsaðilum í stað eins með núverandi fyrirkomulagi. Afleiðingarnar myndu að mati nefndarinnar bitna á íbúum, atvinnulífi og starfsemi eftirlitsaðila, auk þess sem hætta er á auknum kostnaði fyrir ríki, sveitarfélög og aðra hagaðila.
Óljóst er hvaða verkefni munu sitja eftir hjá sveitarfélögunum og hvaða kostnaður muni falla á þau. Að sama skapi er óljóst hvernig sveitarfélögin eigi að sinna þeim verkefnum sem eftir sitja. Eins hefur ekki komið skýrt fram hvað verður um starfsmenn heilbrigðiseftirlita, hvar áætlað er að halda úti starfsstöðvum, hversu mörg störf á landsvísu þetta séu né hvernig sú skipting sé eftir landshlutum.
Heilbrigðisnefnd Austurlands telur nauðsynlegt að benda á að betur hefði átt að standa að samráði og upplýsingagjöf af hálfu ráðuneytisins við undirbúning málsins. Að mati nefndarinnar var upplýsingafundur sem haldinn var fyrir framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnamenn heilbrigðisnefnda of stuttur og veitti ekki á neinn hátt nægjanlegt svigrúm til umræðu og fyrirspurna. Nefndin leggur áherslu á að við undirbúning svo umfangsmikilla breytinga sé tryggt raunverulegt samráð, gagnsæi og tækifæri hagsmunaaðila til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Heilbrigðisnefnd Austurlands leggur að lokum áherslu á að markmiðum um aukið samræmi, einföldun og skilvirkni í eftirliti verði betur náð með því að efla, þróa og samræma núverandi fyrirkomulag heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, fremur en að ráðast í róttækar og illa ígrundaðar kerfisbreytingar.

 

6. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði

Lögð fram tillaga að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Heilbrigðisnefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

 

7. Vinna milli funda

Umsagnir um veitinga- og gistileyfi

7.1 LMJO ehf., kt. 511115-3290. Gistileyfi að Lyngási 5-7, 700 Egilsstöðum.
7.2 Skálanessetur ehf., kt. 560606-2490. Gistileyfi í Skálanesi, 710 Seyðisfirði.
7.3 Steinar Resort ehf., kt. 601216-1240. Gistileyfi að Krossi, 766 Djúpavogi.
7.4 Fellsá ehf., kt. 530224-1630. Gistileyfi í Oddnýjarhúsi, 781 Höfn.

Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi

7.5 Þorrablótsnefnd Seyðisfjarðar, kt. 680394-2109. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir þorrablót í íþróttahúsinu á Seyðisfirði. Tímasetning viðburðar 24.1.2026.
7.6 Thorberg Einarsson, kt. 100980-4879. Tækifærisleyfi fyrir tónleika í bílskúr, Hamrahlíð 26, 690 Vopnafirði. Tímasetning viðburðar 20.12.2025. Umsögn neikvæð.
7.7 Þorrablót Reyðarfjarðar, kt. 480102-3550. Tækifærisleyfi fyrir þorrablót í íþróttahúsinu Heiðarvegi 14A, 730 Reyðarfirði. Tímasetning viðburðar 23.1.2026.
7.8 Kommablótið, kt. 600123-1220. Tækifærisleyfi vegna kommablóts að Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað. Tímasetning viðburðar 31.1.2026.
7.9 Þorrablót Hróarstungu, kt. 590213-0200. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í Tungubúð, 701 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 21.2.2026.
7.10 Ungmennafélag Öræfa, kt. 590196-2589. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna góuhófs í Hofgarði, 785 Öræfum. Tímasetning viðburðar 7.3.2026.
7.11 Félag eldri Hornfirðinga, kt. 660190-1209. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Sindrabæ, Hafnarbraut 17, 780 Höfn í Hornafirði. Tímasetning viðburðar 30.1.2026.
7.12 Guðröður Hákonarson, kt. 300463-5849. Tækifærisleyfi vegna sveitablóts í Egilsbúð, 740 Neskaupstað. Tímasetning viðburðar 25.1.2026.
7.13 Þorrablótsnefnd Valla og Skóga, kt. 610105-1490. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts á Arnhólsstöðum, 701 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 7.2.2026.
7.14 Þorrablótsnefnd Eiða- og Hjalta, kt. 520413-1460. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í barnaskólanum á Eiðum, 701 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 20.1.2026.
7.15 Þorrablótsnefnd Suðursv/Mýra, kt. 620103-2330. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir þorrablót að Hrollugsstöðum, 781 Höfn í Hornafirði. Tímasetning viðburðar 7.2.2026.
7.16 Þorrablótsnefnd Jökuldælinga og Hlíðarmanna, kt. 560215-0880. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir þorrablót í Brúarási, 701 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 14.2.2026.
7.17 Félag fjörugra útbæinga í Fljótsdal, kt. 540224-0990. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í Végarði, Fljótsdal. Tímasetning viðburðar 20.2.2026.

Umsagnir vegna skipulags-, byggingar- og umhverfismála

7.18 Aðaluppdrætti fyrir sumarbústað, Lækjarból, Fossárdal. 766 Djúpavogi.
7.19 Breytingar á deiliskipulagi við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi.
7.20 Skipulagslýsing vegna deiliskipulags frístundabyggðar í landi Kollsstaðasels ofan Egilsstaða.
7.21 Aðaluppdrættir fyrir iðnaðar- og geymsluhúsnæði, Iðjuseli 1, 700 Egilsstöðum.
7.22 Tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 fyrir tjaldsvæði og íbúðarbyggð á Eskifirði. Mál nr. 942/2025 í skipulagsgátt.
7.23 Breyting á aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 og gerð nýs deiliskipulags fyrir jarðirnar Birgi og hluta Króks í Borgarhöfn. Mál nr. 1697/2025 í skipulagsgátt.
7.24 Breyting á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 – breytt landnotkun v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfirði. Mál nr. 1481/2025 í skipulagsgátt.
7.25 Breyting á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 - Íbúðir og þjónusta á athafnasvæði AT-301. Mál nr. 876/2025 í skipulagsgátt.

Aðrar umsagnir

7.26 Brennuleyfi fyrir litla brennu á Hrúteyri, 730 Reyðarfirði. Umsækjandi Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.27 Brennuleyfi fyrir litla brennu á malarsvæði móts við þorpið, 735 Eskifirði. Umsækjandi Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.28 Brennuleyfi fyrir litla brennu utan við flugvöllinn, 740 Neskaupstað. Umsækjandi Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.29 Brennuleyfi fyrir litla brennu við Sævarenda, 750 Fáskrúðsfirði. Umsækjandi Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.30 Brennuleyfi fyrir litla brennu á Melseyri ofan Birgisness, 755 Stöðvarfirði. Umsækjandi Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.31 Brennuleyfi fyrir litla brennu á malarsvæði sunnan við gámavöllinn, 760 Breiðdalsvík. Umsækjandi Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.32 Brennuleyfi fyrir stóra brennu við Löngubrúarhól í landi Hjarðarness, 740 Neskaupstað. Umsækjandi Lovísa Rósa Bjarnadóttir kt. 100277-5659. Tímasetning brennu 31.12.2025.
7.33 Brennuleyfi fyrir stóra brennu við Hermannastekk, 765 Djúpavogi. Umsækjandi Múlaþing kt. 660220-1350. Tímasetning brennu 6.1.2026.

 

8. Önnur mál

8.1 Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands

Fjarfundur 9. apríl kl. 8:30

Fundi slitið kl. 9:12

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna


FUNDARGERÐ 189 á PDF