Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Kjartan Róbertsson
Dagskrá:
1. Bókuð útgefin starfsleyfi 996
2. Skráningarskyldur atvinnurekstur 997
3. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 997
4. Loðnuvinnslan hf. 998
5. Rarik ohf. 998
6. Vinna milli funda 998
7. Önnur mál 999
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
690 Vopnafjörður
a) N1 ehf., kt. 411003-3370. Starfsleyfi fyrir eldsneytisafgreiðslu með þvottaplani að Kolbeinsgötu 35. Leyfi útgefið 11.3.2024.
700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
b) Múlaþing, kt. 660220-1350. Starfsleyfi fyrir samkomuhús að Iðavöllum. Leyfi útgefið 20.3.2024.
c) 701 Hotels ehf., kt. 500124-0320. Starfsleyfi fyrir Hótel Valaskjálf, gisti-, veitinga- og samkomustað. Leyfi útgefið 24.3.2024.
d) 701 Hotels ehf., kt. 500124-0320. Starfsleyfi fyrir Hótel Hallormsstað, gisti-, veitinga- og samkomustað auk baðstaðar og starfsmannabústaðar. Leyfi útgefið 24.3.2024.
701 Fljótsdalshreppur
e) Fljótsdalsgrund ehf., kt. 520723-0210. Starfsleyfi fyrir gistingu, veitingastað og tjaldsvæði að Végarði 2. Leyfi útgefið 2.2.2024.
f) Hólshýsi ehf., kt 480118-1970. Starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Dvergabýli 1 (Hóli). Leyfi útgefið 26.2.2024.
710 Múlaþing – Seyðisfjörður
g) Partis ehf., kt. 640212-1520. Starfsleyfi fyrir gistingu að Austurvegi 22. Leyfi útgefið 6.2.2024.
h) Himmilimm ehf., kt. 480822-0800. Starfsleyfi fyrir gistingu að Botnahlíð 14. Leyfi útgefið 13.3.2024.
765 Múlaþing – Djúpivogur
i) Hafsalt ehf., kt. 420419-1390. Starfsleyfi fyrir veitingastað og framleiðslu á salti að Vogalandi 2. Leyfi útgefið 7.2.2024.
j) Krákhamar ehf., kt. 660616-0400. Starfsleyfi fyrir sölu á gistingu og vatnsveitu að Geithellum. Leyfi útgefið 13.2.2024.
720 Múlaþing – Borgarfjörður
k) Ferðaþjónustan Álfheimar ehf., kt. 580108-1210. Starfsleyfi fyrir gistingu og veitingastað að Álfheimum. Leyfi útgefið 13.2.2024.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
l) Olís ehf., kt. 500269-3249. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Búðareyri 33. Leyfi útgefið 13.2.2024.
740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
m) Eimskip Ísland ehf., kt. 421104-3520. Starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð Naustahvammi 58 Neskaupstað. Leyfi útgefið 13.3.2024.
755 Fjarðabyggð – Stöðvarfjörður
n) Kimi Emma Juliette Tayler, kt. 260786-3509. Starfsleyfi fyrir framleiðslu annarra matvæla í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla að Skólabraut 20. Leyfi útgefið 18.3.2024.
780-781 Höfn
o) GamlaFlugfélagið ehf., kt. 6212003560. Starfsleyfi fyrir gistingu að Hafnarbraut 24. Leyfi útgefið 8.2.2024.
p) Gistiheimilið Hali ehf., kt. 640717-1220. Starfsleyfi fyrir veitingastað, Þorbergssetri að Hala í Suðursveit. Leyfi útgefið 9.2.2024.
q) Gistiheimilið Hali ehf., kt. 640717-1220. Starfsleyfi fyrir gististað að Breiðabólsstað 1. Leyfi útgefið 12.2.2024.
r) HFN Brugghús ehf., kt. 550421-2750. Starfsleyfi fyrir bjórgerði að Heppuvegi 6. Leyfi útgefið 12.2.2024.
s) Sveitarfélagið Hornafjörður, kt. 590169-4639. Starfsleyfi fyrir skólphreinsistöð að Miðósi 4. Leyfi útgefið 5.3.2024.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.
2. Skráningarskyldur atvinnurekstur
750 Fjarðabyggð- Fáskrúðsfjörður
a) Loðnuvinnslan hf. Fáskrúðsfirði, kt. 5812012650. Skráning fyrir vinnslu fisks og annarra sjávarafurða að Hafnargötu 5. Skráning staðfest 22.3.2024.
b) Loðnuvinnslan hf. Fáskrúðsfirði, kt. 5812012650. Skráning fyrir vinnslu fisks og annarra sjávarafurða að Hafnargötu 32-36. Skráning staðfest 22.3.2024.
c) Loðnuvinnslan hf. Fáskrúðsfirði, kt. 5812012650. Skráning fyrir vinnslu fisks og annarra sjávarafurða að Skólagötu 2. Skráning staðfest 22.3.2024.
Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.
3. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
765 Múlaþing Djúpivogur
a) Hafsalt ehf., kt. 420419-1390. Tóbakssöluleyfi í Hafið Bistro, Vogalandi 2. Leyfi útgefið 7.2.2024.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu leyfisins.
4. Loðnuvinnslan hf.
Hljóðmælingar vegna hávaða frá atvinnustarfsemi Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði fóru fram 26. mars sl. í samræmi við bókanir Heilbrigðisnefndar Austurlands á 176. og 177. fundi nefndarinnar. Verkfræðistofan Efla sá um framkvæmd hljóðmælinga og lá fyrir fundinum minnisblað þeirra mælinga. Í minnisblaði kom fram að ekki hafi tekist að framkvæma allar þær mælingar sem lagt var upp með vegna ofankomu.
Heilbrigðisnefnd Austurlands gerir þá kröfu að Loðnuvinnslan klári hljóðmælingar svo fljótt sem verða má. Fyrirtækið skal upplýsa Heilbrigðiseftirlit um framkvæmd hljóðmælinga og heilbrigðisfulltrúi skal hafa tækifæri til að vera viðstaddur við hljóðmælingar.
5. Rarik ohf.
Borist hafa kvartanir frá íbúum vegna hávaða frá kyndistöð Rarik ohf. við Garðarsveg 15 á Seyðisfirði. Heilbrigðiseftirlit Austurlands hafði óskað eftir að fyrirtækið léti framkvæmda hljóðmælingar vegna starfseminnar. Lagt var fram minnisblað frá verkfræðistofunni Eflu dags. 13.3.2024 um hávaðamælingar fyrir kyndistöð á Seyðisfirði og bréf frá Rarik ohf. dags. 10.4.2024 þar sem kynntar eru mótvægisaðgerðir.
Heilbrigðisnefnd Austurlands óskar eftir að mótvægisaðgerðir sem kynntar eru í bréfi dags. 10.4.2024 frá Rarik ohf. verði tímasettar. Frestur til að skila inn tímasettri áætlun er til 26. apríl nk. Að loknum mótvægisaðgerðum skal fyrirtækið framkvæma hljóðmælingar á ný til að sýna fram á árangur aðgerða.
6. Vinna milli funda
Umsagnir um veitinga- og gistileyfi
6.1 Rekstarleyfi fyrir veitingastað í flokki II – Þórbergssetur, Hala í Suðursveit, 781 Höfn. Umsækjandi Gistiheimilið Hali ehf.
6.2 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II – Breiðabólsstaður 1, 781 Höfn. Umsækjandi Gistiheimilið Hali ehf.
6.3 Rekstrarleyfi vegna veitingahúss í flokki II – Vogalandi 2, 765 Djúpavogi. Umsækjandi Hafsalt ehf.
6.4 Breyting á rekstrarleyfi vegna sölu á gistingu flokki IV – A Hótel, Hótel Hallormsstaður, 701 Egilsstaðir. Umsækjandi 701 Hotels ehf.
6.5 Breyting á rekstrarleyfi vegna sölu á gistingu flokki IV-A Hótel, Hótel Valaskjálf, Skógarlönd 3a-b, 700 Egilsstaðir. Umsækjandi 701 Hotels ehf.
6.6 Breyting á rekstrarleyfi vegna sölu á gistingu flokki II –Blábjörgum og Geithellum, 766 Djúpavogi. Umsækjandi Krákhamar ehf.
Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi
6.7 Tækifærisleyfi fyrir hjónaball, Fjarðarbraut 43, 755 Stöðvarfirði. Umsækjandi Laufey Davíðsdóttir. Tímasetning viðburðar 23.3.2024.
6.8 Tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir þorrablót, Iðavöllum 701 Egilsstaðir. Umsækjandi Magnús Sigurðsson. Tímasetning viðburðar 24.2.2024.
6.9 Tækifærisleyfi – tækifærisleyfi fyrir skóladansleik VA í Egilsbúð,740 Neskaupstað. Tímasetning viðburðar er 14.3.2024.
6.10 Tækifærisleyfi vegna skóladansleiks Menntaskólans á Egilsstöðum í félagsheimilinu Iðavöllum, 701 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 21.3.2024.
6.11 Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi vegna árshátíðar Fjarðabyggðar í íþróttahúsi Reyðarfjarðar. Tímasetning viðburðar 16.3.2024.
6.12 Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi vegna árshátíðar Landsvirkjunar í íþróttahúsinu, Tjarnarbraut 26, 700 Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 13.4.2024.
6.13 Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna árshátíðar Sveitarfélagsins Hornafjarðar í íþróttahúsinu, Víkurbraut 9, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 19.4.2024.
Umsagnir vegna skipulags- og umhverfismála
6.14 Aðaluppdráttur fyrir veitinga- og gististað að Breiðabólsstað 4, 781 Höfn
6.15 Aðaluppdráttur fyrir starfsmannabúðir við Álaugarveg 6, 780 Höfn.
6.16 Aðaluppdráttur fyrir Höfn 2, hafnarhús, 765 Djúpavogi.
6.17 Matsáætlun fyrir 6,7 MW virkjun í Gilsá í Eiðaþinghá í Múlaþingi.
6.18 Aðaluppdráttur fyrir 37 m2 gestahús á lóð nr. 6 í Úlfsstaðaskógi í Múlaþingi.
7. Önnur mál
7.1 Erindi frá Neytendasamtökunum
Heilbrigðiseftirliti Austurlands barst á dögunum erindi frá Neytendasamtökunum þar sem fram kemur að stjórn Neytendasamtakana skori á viðeigandi stjórnvöld að niðurstöður eftirlits með veitingahúsum verði gerðar neytendum sýnilegar við inngang líkt og gert er í nágrannalöndum okkar, t.d. með broskallakerfi. Neytendur eigi að geta tekið upplýsta ákvörðun um matinn sinn og matvælaöryggi.
Heilbrigðisnefnd Austurlands tekur undir þessa áskorun og leggur áherslu á að reglugerð í samræmi við ákvæði 28. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli sem fjallar um birtingu niðurstaðna matvælaeftirlits, verði birt við fyrsta tækifæri.
7.2 Næsti fundur heilbrigðisnefndar
6. júní kl. 9:00 á Teams.
Fundi slitið kl. 10:05
Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

