Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Borgþór Freysteinsson
Dagskrá:
- Bókuð útgefin starfsleyfi 988
- Skráningarskyldur atvinnurekstur 989
- Kverkfjöll Sigurðarskáli sf. 989
- Loðnuvinnslan hf. 990
- Skýrsla starfshóps um fyrirkomulag eftirlits 990
- Samþykkt um fráveitur í Múlaþingi 990
- Vinna milli funda 990
- Önnur mál 991
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
a) Íslenska gámfélagið, 470596-2289. Starfsleyfi fyrir söfnunarstöð að Tjarnarási 11. Leyfi útgefið 9.10.2023.
b) Þórfell ehf., 410709-0230. Starfsleyfi fyrir efnistöku í námu nr. E67, Selhöfða. Leyfi útgefið 13.10.2023.
710 Múlaþing – Seyðisfjörður
c) Íslenska gámfélagið, 470596-2289. Starfsleyfi fyrir söfnunarstöð að Fjarðargötu 3. Leyfi útgefið 9.10.2023.
d) Íslensk orkuvirkjun Seyðisfirði ehf., kt. 531205-0730. Starfsleyfi fyrir Fjarðasels og Gúlsvirkjun. Leyfi útgefið 8.11.2023.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
e) Eyrin Heilsurækt ehf., kt. 491023-0820. Starfsleyfi fyrir líkamsrækt að Strandgötu 1. Leyfi útgefið 25.10.2023.
f) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Reyðarfjarðar. Leyfi útgefið 25.10.2023.
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
g) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Eskifjarðar. Leyfi útgefið 25.10.2023.
740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
h) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Neskaupstaðar. Leyfi útgefið 25.10.2023.
750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfirði
i) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Fáskrúðsfjarðar. Leyfi útgefið 25.10.2023.
j) Perlur, félag eldri borgara á Fáskrúðsfirði, kt. 430912-0890. Starfsleyfi fyrir samkomusal að Skólavegi 39. Leyfi útgefið 20.11.2023.
755 Fjarðabyggð – Stöðvarfirði
k) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Stöðvarfjarðar. Leyfi útgefið 25.10.2023.
760 Fjarðabyggð – Breiðdalsvík
l) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu Breiðdalsvík. Leyfi útgefið 25.10.2023.
780-781 Höfn
m) Vonia ehf., 650923-0490. Starfsleyfi fyrir sölu á veitingum að Dalbraut 12. Leyfi útgefið 6.10.2023.
n) Beka ehf., 650811-0110. Starfsleyfi fyrir starfmannabúðir og mötuneyti í landi Reynivalla, Efribær. Leyfi útgefið 9.10.2023.
o) Hringrás ehf., kt. 490195-2039. Starfsleyfi fyrir söfnunarstöð og móttökustöð úrgangs að Sæbraut 1. Leyfi gefið út 30.11.2023.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.
2. Skráningarskyldur atvinnurekstur
690 Vopnafjörður
a) Mælifell ehf., kt. 590195-2439. Trésmíðaverkstæði Háholt 2. Skráning staðfest 9.10.2023.
765 Múlaþing - Djúpivogur
b) Míla hf., 460207-1690. Niðurrif mannvirkja, fjarskiptamastur Kambi 1. Skráning staðfest 16.10.2023.
735 Fjarðabyggð- Eskifjörður
c) Launafl ehf., kt. 490606-1730. Niðurrif mannvirkja, Kirkjustígur 1b. Skráning staðfest 12.10.2023.
780-781 Höfn
d) Rósaberg ehf., kt. 620601-2330. Niðurrif mannvirkja, Hafnarbraut 16 og 16a. Skráning staðfest 17.10.2023.
e) Steypustöðin ehf., kt. 660707-0420. Steypustöð, Bjarnarnes Skógey. Skráning staðfest 10.11.2023.
Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.
3. Kverkfjöll Sigurðarskáli sf.
Fyrir liggur beiðni um framlengingu heimildar af 127. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands varðandi frágang fráveitumála við Sigurðarskála í Kverkfjöllum sem veitt var til 6 ára.
Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir, til tveggja ára núverandi frágang við fráveitu við Sigurðarskála í Kverkfjöllum, verður sú heimild ekki lengd frekar. Á þeim tíma skal finna aðrar lausnir í fráveitumálum á svæðinu í samráði við fagaðila. Nefndin ítrekar fyrri kröfur er varðar girðingu í kring um þró og settjörn.
4. Loðnuvinnslan hf.
Farið var yfir stöðu framkvæmda á hljóðvegg á lóðarmörkum Hafnargötu 36 við Búðaveg í samræmi við úrbótaáætlun sem samþykkt var á 172. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands.
Framkvæmdum við hljóðvegg er lokið. Heilbrigðisnefnd Austurlands felur starfsmönnum að fylgja eftir framkvæmd nýrra hljóðmælinga þegar vinnsla fer af stað. Útlit er fyrir að vinnsla hefist ekki að nýju fyrr en í febrúar.
5. Skýrsla starfshóps um fyrirkomulag eftirlits
Í október sl. var gerð opinber skýrsla starfshóps um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Starfshópurinn var skipaður af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í samráði við matvælaráðherra. Verkefni hópsins var að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Niðurstaða starfshópsins er að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga yrði lagt niður í þeirri mynd sem það er í dag og að eftirliti verði fært yfir til ríkisins. Skýrsla starfshópsins ásamt bókun Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi um efni hennar var lögð fram til kynningar.
Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir að fela formanni, framkvæmdastjóra og varaformanni að vinna drög að umsögn um umrædda skýrslu.
6. Samþykkt um fráveitur í Múlaþingi
Lögð er fram lítilsháttar breyting á samþykkt nr. 1028/2021 um fráveitur í Múlaþingi.
Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir breytingar á samþykkt nr. 1028/2021 um fráveitur í Múlaþingi.
7. Vinna milli funda
Aðrar umsagnir
7.1 Um tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu – Gilsárvirkjun, 701 Egilsstaðir.
7.2 Um aðaluppdrætti fyrir einbýlishús, Austurtún 16, 700 Egilsstaðir
7.3 Um aðaluppdrætti fyrir sumarhús, Gata, 701 Egilsstaðir.
7.4 Um viðbyggingu við þjónustuhús, Fellabrún 2/Fellavöll, 700 Egilsstaðir.
7.5 Um aðaluppdrætti fyrir iðnaðarhúsnæði að Miðási 7, 700 Egilsstaðir
7.6 Um vegna spennistöðvar að Hamragerði 2, 700 Egilsstöðum.
7.7 Um aðaluppdrætti fyrir spennubás við Lagarfossvirkjun, 701 Egilsstöðum.
7.8 Um umsókn um rekstarleyfi fyrir reksturs veitinga í flokki II – Vonia ehf., Dalbraut 12, 780 Höfn.
7.9 Vegna byggingarleyfisumsóknar fyrir sumarhúsið Lerkilund í landi Reynihaga, 701 Egilsstaðir.
7.10 Um aðaluppdrætti af þjónustuhúsi Hákonarstöðum, Jökuldal, 701 Egilsstaðir
8. Önnur mál
8.1 Næsti fundur heilbrigðisnefndar
1. febrúar kl 9:00 á Teams.
Engin önnur mál voru á dagskrá.
Fundi slitið kl. 9:58
Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

