Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Jóhann Hjalti Þorsteinsson
Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Dagskrá:
- Bókuð útgefin starfsleyfi
- Skráningarskyldur atvinnurekstur
- Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
- Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva.
- Varnarefnamælingar í grænmeti
- Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
- Samþykkt um fiðurfénað í Fjarðabyggð utan skipulagðra landbúnaðarsvæða
- Vinna milli funda
- Önnur mál
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
690 Vopnafjörður
a) Sólarsalir ehf., 450316-0590. Starfsleyfi fyrir efnisvinnslu við Fremri Nýpur í námu við Skógarlón. Leyfi útgefið 15.05.2024.
700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
b) Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir búsetukjarna að Bláargerði 9-11. Leyfi útgefið 12.4.2024.
c) Múlaþing, 660220-1350. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu að Arnhólsstöðum. Leyfi útgefið 16.4.2024.
d) Stefán Sveinsson, kt. 170362-3819. Starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Útnyrðingsstöðum. Leyfi útgefið 18.4.2024.
e) Helgustaðir ehf., 650124-0220. Starfsleyfi fyrir gistingu og baðhús með heitum potti að Kaldá 1. Leyfi útgefið 11.4.2024.
f) Þorsteinn Guðmundsson, 021061-3369. Starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Ketilsstöðum. Leyfi útgefið 18.4.2024.
g) Laufey Ólafsdóttir, 070366-4289. Starfsleyfi fyrir gistingu, vatnsveitu, hestaleigu og reiðskóla að Húsey 1. Leyfi útgefið 30.4.2024.
h) GG Þjónusta ehf., kt. 651016-0610. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Flugvallarvegi 17. Leyfi útgefið 14.5.2024.
i) Land og Skógur, 671123-0850. Starfsleyfi fyrir seyrugryfju Hallormsstað. Leyfi útgefið 21.5.2024.
j) Land og Skógur, 671123-0850. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði í Atlavík og Höfðavík. Leyfi útgefið 21.5.2024.
k) Land og Skógur, 671123-0850. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu í Atlavík. Leyfi útgefið 21.5.2024.
l) Bar Smíðar ehf., 620218-0730. Starfsleyfi fyrir veitingasölu í Golfskálanum á Ekkjufelli. Leyfi útgefið 23.5.2024.
m) Berjaya Hotels Iceland hf., 621297-6949. Starfsleyfi vegna gistingar og veitingasölu að Tjarnarbraut 25. Leyfi útgefið 24.5.2024.
n) Stefán Jónsson, 110456-3449. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu að Haugum. Leyfi útgefið 30.5.2024.
710 Múlaþing – Seyðisfjörður
o) NO PANIC ehf., 591021-1090. Tímabundið starfsleyfi fyrir matsöluvagn við Ferjuleiru 2. Leyfi útgefið 29.5.2024.
765 Múlaþing – Djúpivogur
p) Faktor Brugghús ehf., 500604-2390. Starfsleyfi fyrir sölu veitinga að Búð 3. Leyfi gefið út 23.4.2024.
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
q) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir samkomuhús að Heiðarvegi 37. Leyfi útgefið 17.4.2024.
r) Alcoa Fjarðaál sf., 520303-4210. Starfsleyfi fyrir vörugeymslu að Hrauni 10. Leyfi gefið út 6.5.2024.
s) Ferðaþjónustan Fossárdal ehf., kt. 680217-0170. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á Reyðarfirði. Leyfi gefið út 22.5.2024.
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
t) Sjoppan Eskifirði ehf., 490424-0590. Starfsleyfi fyrir matsölustað að Strandgötu 13. Leyfi útgefið 2.5.2024.
u) Ferðaþjónustan Fossárdal ehf., kt. 680217-0170. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á Eskifirði. Leyfi gefið út 22.5.2024.
v) Andrés J. Stefánsson, 190373-3559. Tímabundið starfsleyfi fyrir matsölu á útihátíðum með aðstöðu að Strandgötu 13, Eskifirði. Leyfi útgefið 30.5.2024.
740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
w) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Starfsleyfi fyrir samkomuhús að Egilsbraut 2. Leyfi útgefið 7.5.2024.
x) Ferðaþjónustan Fossárdal ehf., kt. 680217-0170. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði í Neskaupstað. Leyfi gefið út 22.5.2024.
750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður
y) Loðnuvinnslan hf., 581201-2650. Starfsleyfi fyrir bifreiða- og vélaverkstæði og smurstöð að Hafnargötu 1a. Leyfi gefið út 3.5.2024.
z) Ferðaþjónustan Fossárdal ehf., kt. 680217-0170. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á Fáskrúðsfirði. Leyfi gefið út 22.5.2024.
755 Fjarðabyggð – Stöðvarfjörður
aa) Ferðaþjónustan Fossárdal ehf., kt. 680217-0170. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á Stöðvarfirði. Leyfi gefið út 22.5.2024.
760 Fjarðabyggð – Breiðdalsvík
bb) Fjarðabyggð, kt. 470697-2099. Starfsleyfi fyrir söfnunarstöð Þórðarhvammi. Leyfi gefið út 14.5.2024.
cc) Fjarðabyggð, kt. 470697-2099. Starfsleyfi fyrir áhaldahús og söfnunarstöð að Selnesi 14. Leyfi gefið út 14.5.2024.
dd) Ferðaþjónustan Fossárdal ehf., kt. 680217-0170. Starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á Breiðdalsvík. Leyfi gefið út 22.5.2024.
780-781 Höfn
ee) Díma ehf., kt. 660406-1150. Starfsleyfi fyrir gistingu í Hafnarnesi. Leyfi útgefið 7.5.2024.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
2. Skráningarskyldur atvinnurekstur
700 Múlaþing - Egilsstaðir
a) Miðás ehf., 5708901079. Skráning fyrir trésmíðaverkstæði að Miðási 9. Skráning samþykkt 24.4.2024.
b) Plastverksmiðjan Ylur ehf., kt. 580516-0250. Skráning vegna niðurrifs á stálgrindarhúsi við Valgeirsstaði. Skráning samþykkt 21.5.2024.
c) Bílaboginn ehf., kt. 611298-3749. Skráning fyrir bifreiða- og vélaverkstæði að Smiðjuseli 5. Skráning samþykkt 21.5.2024.
765 Múlaþing - Djúpivogur
d) Bragðavellir ehf., kt. 481019-0520. Skráning fyrir meindýravörnum. Skráning samþykkt 8.5.2024.
730 Fjarðabyggð- Reyðarfjörður
e) Fjarðabyggð 470698-2099. Skráning fyrir sorphirðu og sorpflutningum, vagn GZA99. Skráning samþykkt 11.4.2024.
f) LuxoCar ehf., 631115-0470. Skráning fyrir bón- og bílaþvottastöð að Búðareyri 29. Skráning samþykkt 8.5.2024.
750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður
g) Launafl ehf., 490606-1730. Skráning fyrir niðurrif á asbesti að Búðarvegi 8. Skráning samþykkt 4.6.2024.
Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.
3. Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
735 Fjarðabyggð - Eskifjörður
a) Sjoppan Eskifirði ehf., 490424-0590. Tóbakssöluleyfi fyrir Sjoppuna Eskifirði að Strandgötu 13. Leyfi útgefið 2.5.2024.
690 Vopnafjörður
b) J&S ehf., 670114-2010. Tóbakssöluleyfi fyrir Söluskálann Ölduna að Kolbeinsgötu 35. Leyfi útgefið 2.5.2024.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu ofangreindra tóbakssöluleyfa skv. lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir.
4. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva.
4.1 Sundlaugar Fjarðabyggð
Óskað er eftir heimild til að nýta ákvæði í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund og baðstöðum m.s.br. að laugarvörður sinni störfum sem tilgreind í eru í 3. ml 11. gr þó að laugarvörður sé einn á vakt við laugina. Óskað er eftir að nýta heimildina í sundlauginni á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og á Breiðdalsvík á ársgrundvelli.
Heilbrigðisnefnd samþykkir beiðni Fjarðabyggðar um undanþágu varðandi laugargæslu í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. Gerð er krafa um að gestir sundlaugar verði upplýstir um fyrirkomulag laugargæslu. Á meðan gestir eru í laug má laugarvörður ekki sinna öðrum störfum en þeim að selja aðgang ofan í laug eða tilfallandi störfum við laugarbakka þar sem yfirsýn yfir laugarsvæði er gott. Laugarvörður skal ávallt hafa á sér síma þannig að hægt sé að kalla til aðstoð með mjög stuttum fyrirvara. Ef fleiri en 20 gestir eru í laug í einu eða samsetning gesta kallar á aukna gæslu, skal kalla til auka laugarvörð.
4.2 Mengun í neysluvatni á Seyðisfirði
Lögð fram greinargerð frá HEF veitum og Síldarvinnslunni vegna óhapps sem varð við löndun á Seyðisfirði þar sem svifögnum og fitu var dælt inn á neysluvatnskerfið.
Heilbrigðisnefnd Austurlands brýnir fyrir HEF veitum að tilkynna HAUST tafarlaust um öll þau atvik er varðað geta gæði neysluvatns. Bent er á að símanúmer og netföng starfsmanna má nálgast á heimasíðu HAUST.
Í ljósi óhappsins og sambærilegra atvika óskar heilbrigðisnefnd eftir upplýsingum frá veitum og stórnotendum á starfssvæði HAUST um frágang á vatnsinntökum.
4.3 Dýrbítar krafa
Lögð var fram krafa tjónþola um aflífun á hundum vegna árása á fé. Í kröfu um aflífun er vísað í lögregluskýrslu dags. 8.11.2023 þar sem fram kemur að tveir hundar hafi ráðist á fé tjónþola. Í bréfi HAUST til eigenda hundanna dags. 5.4.2024 segir að verði ekki fallist á kröfu tjónþola skulu hundarnir undirgangast skapgerðarmat af aðila sem heilbrigðiseftirlit samþykkir.
Heilbrigðisnefnd Austurlands veitir eiganda hundana lokafrest til 20. júní nk. til að skila inn skapgerðarmati fyrir hundana. Skapgerðarmat skal framkvæmt af aðila sem Heilbrigðiseftirlit Austurlands samþykkir. Berist skapgerðarmat ekki mun nefndin íhuga að beita þvingunarúrræðum skv. ákvæðum í VI. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 m.s.br.
4.4 Rarik ohf.
Á 178. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands var óskað eftir að mótvægisaðgerðir sem kynntar voru í bréfi dags. 10.4.2024 yrðu tímasettar. Frestur til að skila inn tímasettri áætlun var til 26.4. sl. Umbeðin tímasett áætlun hefur ekki borist.
Heilbrigðisnefnd veitir Rarik ohf. lokafrest til 20. júní nk. til að skila inn tímasettri ááætlun um mótvægisaðgerðir. Hafi áætlun ekki borist fyrir þann tíma íhugar nefndin að beita fyrirtækið þvingunarúrræðum á grunni laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 kafla XVII 60 gr.
4.5 Tandraberg ehf.
Tandraberg ehf. var gert að skila inn skriflegri og tímasettri úrbótaáætlun vegna mengunarvarna á starfsstöð fyrirtækisins að Strandgötu 14, 735 Eskifirði. Fyrirtækinu var einnig gert að skrá starfsemina í samræmi við reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.
Heilbrigðisnefnd veitir Tandraberg ehf. lokafrest til 20. júní nk. til að skila inn úrbótaáætlun varðandi mengunarvarnir að Strandgötu 14,765 Eskifirði og skrá starfsemi fyrirtækisins skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur. Hafi áætlun og skráning ekki borist fyrir þann tíma íhugar nefndin að beita þvingunarúrræðum á grunni laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 kafla XVII 60 gr.
4.6 Tanni Ferðaþjónusta ehf.
Tanna Ferðaþjónustu ehf. var gert að skila inn skriflegri og tímasettri úrbótaáætlun vegna mengunarvarna við húsnæði fyrirtækisins að Strandgötu 14, 735 Eskifirði. Frestur til að skila inn úrbótaáætlun var til 30.4 sl.
Heilbrigðisnefnd samþykkir framlagða úrbótaáætlun og felur starfsmönnum að staðfesta útbætur.
5. Varnarefnamælingar í grænmeti
Sýnatökuáætlun MAST 2023 vegna mælinga varnarefnaleifa í matvælum gerir ráð fyrir að taka eigi tvö sýni á útiræktuðu grænmeti á starfssvæði HAUST. Sýni eru tekin skv. kröfum í reglugerð 672/2010 (EB/396/2005) um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og samkvæmt reglugerð ESB nr. 601/2021 (innleidd með 340/2022) um samræmda eftirlitsáætlun fyrir árin 2022, 2023 og 2024 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau áhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu.
Kostnaður við rannsókn á hverju sýni er mikill og skv. túlkun MAST á matvælalögum er gert ráð fyrir að hann sé greiddur af viðkomandi matvælafyrirtæki.
Heilbrigðisnefnd samþykkir að HAUST taki sýni í samræmi við sýnatökuáætlun MAST og að embættið greiði fyrir.
6. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Greint var frá fundi með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun HMS um framkvæmd á úttektum og eftirliti með nikótínvörum og rafrettum.
Heilbrigðisnefnd tekur vel í erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Málið er áfram í vinnslu.
7. Samþykkt um fiðurfénað í Fjarðabyggð utan skipulagðra landbúnaðarsvæða
Lögð er fram breyting á samþykkt um fiðurfé í Fjarðabyggð utan skipulagðra landbúnaðarsvæða.
Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu Fjarðabyggðar.
8. Vinna milli funda
Umsagnir um veitinga- og gistileyfi
8.1 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II-íbúðir, Hafnarbraut 43A, 780 Höfn. Umsækjandi Díma ehf.
8.2 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II-minna gistiheimili, Kaldá 1, 701 Egilsstaðir. Umsækjandi Helgustaðir ehf.
8.3 Rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II-Minna gistiheimili, Hafnarbraut 24, 780 Höfn. Umsækjandi GamlaFlugfélagið ehf.
8.4 Rekstarleyfi fyrir veitingastað í flokki C- Veitingastofa of greiðasala, Strandgötu 13, 735 Eskifirði. Umsækjandi Sjoppan Eskifirði ehf.
8.5 Rekstarleyfi fyrir veitingastað í flokki C- Veitingastofa of greiðasala, Flugvallarvegi 17, 700 Egilsstöðum. Umsækjandi GG Þjónusta ehf.
8.6 Rekstarleyfi fyrir veitingastað í flokki E- Kaffihús, Ekkjufelli Golfskálalóð, 701 Egilsstöðum. Umsækjandi Bar Smíðar ehf.
8.7 Breyting á rekstarleyfi fyrir veitingastað, Randúlfs sjóhús, 735 Eskifirði. Umsækjandi Mjóeyri ehf.
Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi
8.8 Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi, Körfuknattleiksdeild Hattar skemmtun í tjaldi við íþróttahúsið, Tjarnarbraut 26, 700 Egilsstöðum. Tímasetning viðburður 14.4.2024.
8.9 Tímabundið áfengisleyfi, árshátíð Múlaþings, íþróttahúsinu, Tjarnarbraut 26, 700 Egilsstaðir. Tímasetning viðburðar 4.5.2023.
8.10 Tækifærisleyfi til áfengsveitinga, Kvennakór Hornafjarðar, sjómannadagsball að Víkurbraut 9, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 1.6.2024.
8.11 Tækifærisleyfi, Sjómannadagsráð Hornafjarðar, sjómannadagur í íþróttahúsinu Víkurbraut 9, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 1.6.2024.
8.12 Tækifærisleyfi, Sjómannadagsráð Eskifjarðar, útitónleikar á Eskjutúninu, 735 Eskifirði. Tímasetning viðburðar 1.6.2024.
8.13 Tækifærisleyfi, ungmennaball, sveitarfélagið Hornafjörður, Heppuvegur 5, 780 Höfn. Tímasetning viðburðar 1.6.2024.
8.14. Tækifærisleyfi, Humarhátíð á Höfn fyrir Humarhátíð 2024. Tímasetning viðburðar 27. júní til 30. júní.
Umsagnir vegna skipulags- og umhverfismála
8.15 Aðaluppdrættir fyrir starfsmannabúðir, Desjamýrarvegur, 720 Borgarfirði eystra.
8.16 Nýtt deiliskipulag fyrir veiðihús í landi Hofs við Hofsá, 690 Vopnafjörður.
8.17 Aðaluppdrættir fyrir einbýlishús, Austurtún 10, 700 Egilsstaðir.
8.18 Aðaluppdrættir fyrir stálgrindarhús, Borg, 701 Egilsstaðir.
8.19 Aðaluppdrættir vélageymsla, Burstafell, 690 Vopnafjörður.
8.20 Deiliskipulag fyrir Hvamm í Lóni, 781 Höfn í Hornafirði.
8.21 Breyting á deiliskipulagi Útbæjar, Ránarslóð 3, 780 Höfn í Hornafirði.
8.22 Tillaga um flutning innan lóðar, Hafnargata 11, 710 Seyðisfirði.
9. Önnur mál
9.1 Úrskurður nr. 111/2023 Hafnargata
Lagt fram til kynningar
9.2 Næsti fundur heilbrigðisnefndar
5. september kl. 9:00
Fundi slitið kl. 10:21
Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.
Fundargerð á PDF
