Heilbrigðisnefndarmenn:
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Gunnhildur Imsland
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústdóttir

Starfsmenn:
Leifur Þorkelsson
Lára Guðmundsdóttir

Dagskrá:

1 Bókuð útgefin starfsleyfi 934
2 Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva 935
3 Endurskoðun Stofnsamnings 936
4 Samningur um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum 936
5 Drög að ársreikningi 2020 936
6 Vinna milli funda 937
7 Önnur mál 938

 

1. Bókuð útgefin starfsleyfi

690 Vopnafjarðarhreppur
a) Vöffluhúsið á Vopnafirði ehf., kt. 4806211150. Starfsleyfi fyrir veitingastað í Kaupvangi, Hafnarbyggð 4A. Leyfi útgefið 9.6.2021.

700-701 Múlaþing - Fljótsdalshérað
b) Þórarna Gró Friðjónsdóttir, kt. 180286-3229. Endurnýjað starfsleyfi fyrir gistingu og vatnsveitu að Flúðum. Leyfi útgefið 22.6.2021.
c) Sauðagull ehf., kt.650219-1980 Starfsleyfi fyrir matvælaframleiðslu í Valaskjálf Skógarlöndum 3. Leyfi útgefið 23.6.2021.
d) Northern Green Energy, kt. 600597-2569. Starfsleyfi fyrir matsöluvagn við Grund. Leyfi útgefið 28.6.2021.
e) Kristján Már Magnússon, kt. 070572-4279. Starfsleyfi fyrir niðurrif á íbúðarhúsi við Stóra Steinsvað. Leyfi útgefið 23.7.2021.
f) Snjóholt ehf., kt. 541118-0940. Endurnýjun á starfsleyfi fyrir seyrugryfju í Snjóholti. Leyfi útgefið 26.7.2021.

710 Múlaþing – Seyðisfjörður
g) Býtibúr ehf., kt. 660521-0540. Starfsleyfi fyrir veitingasölu að Austurvegi 23. Leyfi útgefið 27.7.2021.

701 Fljótsdalshreppur
h) Sauðagull ehf., kt.650219-1980 Starfsleyfi fyrir matsöluvagn við Hengifossá. Leyfi útgefið 23.6.2021.
i) Stálstjörnur ehf., 620197-2549 Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðum við Grjótárstíflu. Leyfi útgefið 28.7.2021

730 Fjarðabyggð - Reyðarfjörður
j) Kubbur ehf., kt. 660606-1650. Starfsleyfi fyrir sorpflutninga og sorphirðu. Starfsleyfið skráð til húsa að Hlunnavogi 3. Leyfi útgefið 12.7.2021
k) Kranar ehf., kt. 570389-1229. Starfsleyfi fyrir viðgerðaraðstöðu eigin véla og tækja að Nesbraut 7. Leyfi útgefið 12.7.2021

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
l) Egersund Ísland, kt. 610604-3070. Starfsleyfi fyrir móttöku og meðferð (litun) nótapoka frá fiskeldisfyrirtækjum og móttökustöð veiðarfæraúrgangs að Hafnargötu 2. Leyfi útgefið 16.7.2021
m) Margrét Bjarnadóttir, kt. 020190-2569. Starfsleyfi fyrir nuddstofu að Dalbraut 3. Leyfi útgefið 20.8.2021.

740 Fjarðabyggð – Neskaupstaður
n) Ferðafélag Fjarðamanna, kt. 690998-2549. Endurnýjað starfsleyfi fyrir fjallaskála að Karlsstöðum, Vöðlavík. Leyfi útgefið 01.06.2021.
o) Síldarvinnslan hf., kt. 570269-7479. Starfsleyfi fyrir starfsmannabústað að Egilsbraut 21, Við Lækinn. Leyfi útgefið 5.7.2021.
p) Launafl ehf., kt. 490606-1730. Starfsleyfi fyrir niðurrifi á asbesti á Blómsturvöllum 1. Leyfi útgefið 28.7.2021.
q) Bílaverkstæði Norðfjarðar ehf., kt. 430621-0760. Starfsleyfi fyrir bílaverkstæði að Vindheimanausti 7c. Leyfi útgefið 28.7.2021.
r) Hampiðjan Ísland ehf., 480269-4549. Starfsleyfi fyrir móttöku á veiðafæraúrgangi til endurvinnslu að Naustahvammi 49. Leyfi útgefið 20.08.2021.

750 Fjarðabyggð – Fáskrúðsfjörður
s) Franskir dagar á Fáskrúðsfirði. Tímabundið starfsleyfi fyrir bæjarhátíðina franska daga árin 2021-2024. Leyfi útgefið 8.7.2021.

760 Fjarðabyggð – Breiðdalsvík
t) Háskóli Íslands kt. 600169-2039. Starfsleyfi fyrir samkomusal í Sæbergi 1. Leyfi útgefið 15.6.2021.

765 Múlaþing – Djúpivogur
u) Hellisbjarg ehf., kt. 490402-3490, Starfsleyfi fyrir steinasafni að Markarlandi 1. Leyfi útgefið 20.08.2021.

780-781 Höfn
v) Birkifræ ehf., kt. 440321-1190. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Hafnarbraut 4. Leyfi útgefið 3.6.2021.
w) Vatnajökulsþjóðgarður kt. 441007-0940. Starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsasvæði og brennu í Skaftafelli. Leyfi útgefið 21.06.2021.
x) Vatnajökulsþjóðgarður kt. 441007-0940. Starfsleyfi fyrir seyrugryfju í Skaftafelli. Leyfi útgefið 21.06.2021.
y) Vatnajökulsþjóðgarður kt. 441007-0940. Starfsleyfi fyrir starfsmannabústað í Skaftafelli. Leyfi útgefið 21.06.2021.
z) Myllulækur ehf., kt. 601206-0210. Starfsleyfi fyrir tjald- og hjólhýsastæði að Stórulág. Leyfi útgefið 22.7.2021.
aa) Fróðasker ehf., kt. 410621-2230. Breyting á starfsleyfi fyrir gististað að Litla-Hofi, 785 Öræfi. Leyfi útgefið 29.7.2021.
bb) Nónhamar ehf., kt. 631208-1260. Breyting á starfsleyfi fyrir gististað að Hofi 2, 785 Öræfi. Leyfi útgefið 6.8.2021.
cc) Smyrlabjörg ehf., kt. 540301-2120, Endurnýjað starfsleyfi vegna sölu á veitingum- og gistingu, auk reksturs vatnsveitu að Smyrlabjörgum
dd) Skinney – Þinganes hf. kt. 480169-2989, Starfsleyfi fyrir móttöku á veiðafæraúrgangi til endurvinnslu að Ófeigstanga 17. Leyfi útgefið 6.08.2021.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.

 

2. Málefni einstakra fyrirtækja / starfstöðva

2.1 Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf.

Á 162. fundi heilbrigðisnefndar var samþykkt að áminna fyrirtækið þar sem frágangi við fráveitu var enn ekki lokið. Jafnframt var fyrirtækinu veittur frestur til úrbóta til 1. júlí sl.
Enn á ný hafa orðið tafir á nauðsynlegum úrbótum og er þeim enn ekki lokið. Í símtali við framkvæmdastjóra fyrirtækisins þann 27. ágúst sl. kom fram að búið væri að panta búnað í fráveitukerfið en afgreiðslutími hans væri langur og að enn gætu liðið einhverjar vikur þar til búnaðurinn væri tilbúinn til uppsetningar.

Heilbrigðisnefnd samþykkir, í samræmi við 1.mgr. 61.gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að hefja innheimtu dagsekta að upphæð kr.10.000,- á dag frá og með 1. október nk. hafi ekki verið bætt úr fyrir þann tíma.

2.2 701 Hotels ehf. Valaskjálf á Egilsstöðum

Kvartanir hafa borist frá rekstraraðila fráveitu á Egilsstöðum vegna fitu sem stíflað hefur fráveitukerfi í nágrenni við hótelið með tilheyrandi kostnaði og óþrifnaði. Rekstraraðli fráveitunnar telur að fituna megi rekja til starfsemi veitingastaðar hótelsins en ekki er fituskilja á fráveitu frá eldhúsinu. Í svari frá fyrirtækinu kemur fram að starfmenn þess séu meðvitaðir um að ekki megi losa fitu í niðurföll auk þess sem aðeins ómettuð fita sé notuð á veitingastaðnum og að hún storkni ekki í lagnakerfum.

Þrátt fyrir að bannað sé að losa fitu í fráveitukerfi er uppsöfnun fitu í fráveitukerfi Egilsstaða vandmál sem bregðast þarf við. Heilbrigðisnefnd hefur, skv. 5.mgr. 3.gr. reglugerðar nr.798/1999 um fráveitur og skólp, heilmild til að krefjast þess að aðilar í atvinnurekstri sem geta valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn.
Heilbrigðisnefnd bendir á að samkvæmt gr. 1.2.3. í starfsleyfi fyrirtækisins útgefnu þann 23. október 2014 átti fituskilja að vera komin á fráveitu frá eldhúsi i síðasta lagi í ársbyrjun 2018. Jafnframt bendir nefndin á að mettaða fitu er m.a. finna í afurðum dýra, t.d. í smjöri, beikoni o.fl. og því megi gera ráð fyrir að slík fita geti farið í niðurföll veitingastaða þrátt fyrir að ekki sé um vísvitandi losun að ræða. Veitingastaðir eru því að mati nefndarinnar atvinnustarfsemi sem getur valdið mengun í fráveitu og þar með hefur Heilbrigðisnefnd heimild til að gera kröfu um hreinsibúnað í samræmi við áðurnefnt orðalag reglugerðarinnar.

Heilbrigðisnefnd Austurlands gerir því þá kröfu í samræmi við heimild í 3.mgr. 5.gr. reglugerðar nr. 798/1999 um fráveitur og skólp að fráveituvatn frá eldhúsi veitingastaðarins verði forhreinsað í fituskilju áður en því er veitt í fráveitu sveitarfélagsins. Fyrirtækið fær frest til 1. mars nk. til að ganga frá uppsetningu skiljunnar.

 

3. Endurskoðun stofnsamnings

Drög að endurskoðuðum stofnsamningi um Heilbrigðiseftirlit Austurlands bs. voru send til umsagnar í Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu í kjölfar 160. fundar heilbrigðisnefndar þann 24. febrúar sl. Í júlí sl. barst svar frá ráðuneytinu sem gerði lítilsháttar athugasemdir við drögin. Framkvæmdastjóri kynnti uppfærð drög að stofnsamþykkt þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda ráðuneytisins.

Heilbrigðisnefnd samþykkir að senda tillögu að breyttum stofnsamningi til afgreiðslu aðalfundar.

 

4. Samningur um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum

Samningur við Umhverfisstofnun um framkvæmd eftirlits með fiskimjölsverksmiðjum á starfssvæði HAUST sem undirritaður var í byrjun árs 2020 rennur út í árslok

Heilbrigðisnefnd samþykkir óska eftir viðræðum við Umhverfisstofnun um nýjan samning og lýsir jafnframt yfir vilja sínum til að taka að sér aukin eftirlitsverkefni fyrir hönd stofnunarinnar.

 

5. Drög að ársreikningi 2020

KPMG hefur sent drög að ársreikningi vegna ársins 2020. Niðurstaðan er í samræmi við bráðabirgðauppgjör sem kynnt var á 162. fundi heilbrigðisnefndar þann 2.júní sl.

Heilbrigðisnefnd gerir ekki athugasemdir við drög að ársreikningi fyrir árið 2020 og væntir þess að fá endanlegan ársreikning til samþykktar fyrir næsta fund sem fer fram þann 6. október nk. Jafnframt óskar nefndin eftir því að undirritun ársreiknings fari fram með rafrænum hætti líkt og á síðasta ári.

 

6. Vinna milli funda

Umsagnir um skipulagsmál

6.1 Um skipulagslýsingu vegna deiliskipulags við Sigtún á Vopnafirði
6.2 Um áformaða deiliskipulagsbreytingu á norðvestursvæði á Egilsstöðum Byggingaráform við Lagarás 21-39
6.3 Um áformaða deiliskipulagsbreytingu á miðhluta hafnarsvæðis á Vopnafirði
6.4 Um skipulags- og matslýsingu varðandi áformaða breytingu á aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010 – 2030 vegna Fjarðarheiðagagna
6.5 Um breytingu á deiliskipulagstillögu fyrir Lambleiksstaði á Mýrum

Aðrar umsagnir

6.6 Um kennslustofu við Seyðisfjarðarskóla
6.7 Um framkvæmdaleyfisumsókn vegna sniðræsa í tengslum við fyrirhugaða hreinsistöð við Melshorn á Egilsstöðum
6.8 Um fyrirhugaðar framkvæmdir við íþróttahúsið á Egilsstöðum
6.9 Um Bræðsluna tónleika á Borgarfirði eystra
6.10 Vegna beiðni Icelandair Hótel um undanþágu frá reglugerð nr. 941/2002 um að ekki megi hleypa hundum inn á gististaði í flokki II, III, IV.
6.11 Um tækifærisleyfi vegna tónleikahalds í Sindrabæ 26.06.2021
6.12 Um rekstrarleyfi fyrir Kaffi Kósý á Reyðarfirði
6.13 Um teikningar af stöðvarhúsi Þverárdalsvirkjunar
6.14 Um tækifærisleyfi vegna skemmtunar í Sindrabæ 25.06.2021
6.15 Um tímabundið áfengisleyfi vegna Humarhátíðar á Hornafirði dagana 25.-27.6. 2021
6.16 Um tækifærisleyfi vegna Humarhátíðar á Hornafirði dagana 25.-27.6.2021
6.17 Um tímabundið áfengisleyfi í Saxa gistiheimili á Fáskrúðsfirði þann 3.7.2021
6.18 Um rekstrarleyfisumsókn Þórörnu Gróar Friðjónsdóttur vegna sölu gistingar á Flúðum í Hróarstungu
6.19 um umsókn MBK ehf. um tímabundna undanþágu frá kröfu um starfleyfi vegna niðurrifs Stóra-Steinsvaðs
6.20 Um tækifærisleyfi vegna Smiðjuhátíðar á Seyðisfirði 24.07.2021
6.21 Um tækifærisleyfi vegna Franskra daga á Fáskrúðsfirði 21.-25.07 2021
6.22 Um leyfi til að brenna bálköst í Skaftafelli 17. júlí 2021
6.23 um rekstaraleyfis umsókn Birkifræs ehf. vegna veitingu veitinga að Hafnarbraut 4 á Höfn
6.24 Um aðaluppdrætti af veiðihúsi í Ytri-Hlíð á Vopnafirði
6.25 Um rekstarleyfi fyrir Fróðasker ehf. að Litla Hofi
6.26 Um rekstrarleyfi fyrir Gistiheimilið Hvamm ehf.
6.27 Um aðaluppdrætti vegna byggingaráforma á Lækjarhúsi
6.28 Um rekstrarleyfi fyrir Býtibúrið ehf., kaffihús að Austurvegi 23, 710 Seyðisfirði
6.29 Um rekstrarleyfi fyrir Nónhamar ehf, vegna sölu á gistingu að Hofi 2 í Öræfum
6.30 Um leiðbeiningar (vinnuskjal 2.4) HMS fyrir olíugeyma og olíuskiljur
6.31 Um teikningar af olíuskilju við varaaflstöð Rarik á Borgarfirði eystra
6.32 Um teikningar af frauðplastverksmiðju á Djúpavogi
6.33 Um teikningar olíuafgreiðslu við smábátahöfnina á Vopnafirði
6.34 Um rekstrarleyfisumsókn Rakelar Þóru Einarsdóttur vegna sölu gistingar að Bogaslóð 4 á Hornafirði
6.35 Um Rekstrarleyfisumsókn Elínar Ýrar Sigurbjörnsdóttur vegna sölu gistingar að Hraunhóli 7 í Nesjum

 

7. Önnur mál

7.1 Nýlegur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála kynntur og ræddur.

7.2 Næsti fundur heilbrigðisnefndar fer fram þann 6.október nk. á Vopnafirði

Fundi slitið kl. 14:15

Fundargerðin færð í tölvu og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Fundargerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.

 
Jón Björn Hákonarson
Stefán Bogi Sveinsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Benedikt Jóhannsson
Sandra Konráðsdóttir
Leifur Þorkelsson
Gunnhildur Imsland

Fundargerð á pdf