Heilbrigðisnefndarmenn:

Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Sandra Konráðsdóttir
Kristín Ágústsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson

Starfsmenn:

Lára Guðmundsdóttir
Kjartan Róbertsson

Dagskrá:

  1. Bókuð útgefin starfsleyfi 992
  2. Skráningarskyldur atvinnurekstur 993
  3. Krafa nágranna um aðgerðir af hálfu HAUST vegna hávaðamengunar frá atvinnustarfsemi Loðnuvinnslunnar 993
  4. Vinna milli funda. 993
  5. Önnur mál 995

 

1.  Bókuð útgefin starfsleyfi

700-701 Múlaþing – Egilsstaðir

a.  Félag skógarbænda á Fljótsdalshéraði, 491091-1349. Tímabundið starfsleyfi fyrir jólamarkað að Miðási 7. Leyfi útgefið 12.12.2023.
b.  Steingrímur Jónsson, 290978-5059. Tímabundið starfsleyfi fyrir sölu á matvælum á jólamarkaði Barra, þann 16.12.2023.
c.  SK veitingar ehf., 461218-0910. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Miðvangi 2-4. Leyfi útgefið 18.12.2023.
d.  Ingunn Heiða Ingimarsdóttir, 091284-2869. Starfsleyfi fyrir gistingu að Reynihvammi 1. Leyfi útgefið 5.1.2024.
e.  Múlaþing, kt. 660220-1350. Starfsleyfi fyrir Sláturhúsið menningarmiðstöð að Kaupvangi 9. Leyfi útgefið 17.1.2024.
f.  Sæmundur G. Gíslason, 271260-5989. Starfsleyfi fyrir vatnsveitu að Gíslastöðum. Leyfi útgefið 16.1.2024.

765 Múlaþing – Djúpivogur

g. Djúpavogskirkja, kt. 500169-2499. Starfsleyfi fyrir kirkju að Búlandi 11. Leyfi útgefið 9.1.2024.

730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður

h.  Baker Family ehf., 621123-1490. Starfsleyfi fyrir bakaríi að Hafnargötu 1a. Leyfi útgefið 10.1.2024.

735 Fjarðabyggð – Eskifjörður

i.  Fiskmarkaður Austurlands, kt. 580298-3119. Starfsleyfi fyrir fiskmarkað að Strandgötu 14b. Leyfi útgefið 18.12.2023.
j.  Ingey Arna Sigurðardóttir, 140489-2399. Starfsleyfi fyrir naglasnyrtistofu að Strandgötu 50. Leyfi útgefið 21.12.2023.

780-781 Höfn

k.  Eimskip Ísland ehf., 421104-3520. Starfsleyfi fyrir vöruflutningamiðstöð að Álaugarvegi 2. Leyfi útgefið 21.12.2023.
m.  Akurnesbúið ehf., 540714-0880. Starfsleyfi fyrir kartöfluvinnslu að Akurnesi. Leyfi útgefið 22.1.2024.

Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa.

 

2.  Skráningarskyldur atvinnurekstur

740 Fjarðabyggð- Neskaupstaður

 

n.  Atli Freyr Björnsson, kt. 111075-4339. Kíropraktor, Egilsbraut 8. Skráning staðfest 14.12.2023.

 

Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.    

 

3.  Krafa nágranna um aðgerðir af hálfu HAUST vegna hávaðamengunar frá atvinnustarfsemi Loðnuvinnslunnar

Með vísan í bréf dags. 5. júlí 2023 frá Davíð Erni Guðnasyni lögmanni íbúa að Búðarvegi 24, Fáskrúðsfirði. Fyrir hönd íbúanna var gerð krafa um að HAUST gripi strax til aðgerða gegn ólögmætri hávaðamengun sem hlytist af starfsemi Loðnuvinnslunnar við Hafnargötu 32-36, Fáskrúðsfirði. Nauðsynlegt væri að heilbrigðiseftirlitið myndi bregðast strax við og fullnýti allar heimildir sínar vegna þessa máls. 

Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkti úrbótaáætlun til að draga úr hávaðamengun frá starfsemi Loðnuvinnslunnar á 172. fundi heilbrigðisnefndar Austurlands þann 16.3.2023. Á 176. fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands, þann 7.12.2023, var bókað að framkvæmdum við hljóðvegg væri lokið og að framkvæma þyrfti nýjar hljóðmælingar þegar vinnsla færi aftur af stað. Að mati nefndarinnar er ekki hægt að gera frekari kröfur um úrbætur af hálfu Loðnuvinnslunnar fyrr en hægt er að sýna fram á hvort mótvægisaðgerðir hafi skilað tilætluðum árangri. Hljóðmælingar skulu vera á kostnað rekstaraðila og framkvæmdar af aðila sem eftirlitsaðili samþykkir. Heilbrigðisfulltrúi skal vera viðstaddur við framkvæmd hljóðmælinga.

 

4. Vinna milli funda

Umsagnir um veitinga- og gistileyfi og tækifærisleyfi

4.1        Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í Sindrabæ vegna fjáröflunar ungmennafélagsins Sindra. Tímasetning viðburðar 22.12.2023.
4.2        Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi vegna áramótadansleiks á Aski Taproom, umsækjandi Barsmíðar ehf. Tímasetning viðburðar 1.1.2024.
4.3        Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu á Seyðisfirði. Umsækjandi Þorrablótsnefnd Seyðisfjarðar. Tímasetning viðburðar er 27.1.2024.
4.4        Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts í gamla barnaskólanum á Eiðum, 701 Egilsstaðir. Umsækjandi Lilja Sigurðardóttir. Tímasetning viðburðar 9.2.2024.
4.5        Rekstrarleyfi vegna gististaðar að Reynihvammi 1, 700 Egilsstaðir. Umsækjandi er Ingunn Heiða Ingimarsdóttir.
4.6        Tækifærisleyfi, – tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu á Reyðarfirði vegna þorrablóts. Umsækjandi Þorrablót Reyðafjarðar. Tímasetning viðburðar er 26.1.2024.
4.7        Tækifærisleyfi, – tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts í Tungubúð, 701 Egilsstaðir. Umsækjandi Kvenfélag Hróarstungu. Tímasetning viðburðar er 26.1.2024.
4.8        Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu í Mánagarði vegna þorrablóts Nesja- og Lónmanna. Umsækjandi Þorrablótsnefnd Nesja og Lónamanna. Tímasetning viðburðar er 3.2.2024.
4.9        Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu við Heppuskóla vegna þorrablóts 2024. Umsóknaraðili Pakkhús- veitingar. Tímasetning viðburðar er 27.1.2024.
4.10     Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu í Fellabæ vegna þorrablóts Fellamanna. Umsækjandi Hlynur Bragason. Tímasetning viðburðar er 2.2.2024.
4.11     Tækifærisleyfi í Sindrabæ vegna þorrablóts eldri Hornfirðinga. Umsækjandi Félag eldri Hornfirðinga. Tímasetning viðburðar er 2.2.2024.
4.12     Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í Sindrabæ vegna þorrablóts aldraðra. Umsækjandi Funaborg ehf. Tímasetning viðburðar er 2.2.2024.
4.13     Tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í Hofgarði vegna góuhófs í Öræfum. Umsækjandi Ungmennafélag Öræfa. Tímasetning viðburðar er 2.3.2024.
4.14     Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi vegna Góugleði í Brúarásskóla. Umsækjandi þorrablótsnefnd Jökuldælinga. Tímasetning viðburðar 2.3.2024.
4.15     Tækifærisleyfi, – tímabundið áfengisleyfi í íþróttahúsinu í Neskaupstað vegna Kommablóts. Umsækjandi Kommablótið. Tímasetning viðburðar er 3.2.2024.
4.16     Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi að Hrollaugsstöðum. Umsækjandi Þorrablótsnefnd Suðursveitar og Mýra. Dagsetning viðburðar 10.2.2024.
4.17     Tækifærisleyfi – tímabundið áfengisleyfi fyrir þorrablót í Végarði, Fljótsdal. Umsækjandi Helga Eyjólfsdóttir. Tímasetning viðburðar 10.2.2024.
4.18     Tækifærisleyfi í Félagsheimilinu Skrúði vegna Hjónaballs. Umsækjandi Hjónaballið á Fáskrúðsfirði. Tímasetning viðburðar er 20.1.2024.

Umsagnir um brennuleyfi

4.19     Um umsóknar um brennuleyfi í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum - umsækjandi Múlaþing. Tímasetning viðburðar 31.12.2023.
4.20     Um umsóknar um brennuleyfi á Hermannastekk, Djúpavogi – umsækjandi Múlaþing. Tímasetning viðburðar 31.12.2023.
4.21     Um umsóknar um brennuleyfi á Langatanga Seyðisfirði - umsækjandi Múlaþing. Tímasetning viðburðar 31.12.2023.
4.22     Um umsóknar um brennuleyfi við enda flugbrautar á Borgarfirði eystra - umsækjandi Múlaþing. Tímasetning viðburðar 31.12.2023.
4.23     Brenna austan Hafnarbrautar á Háhól móts við gömlu mjólkurstöðina – umsækjandi Sveitarfélagið Hornafjörður. Tímasetning viðburðar 31.12.2023.
4.24     Brenna við Laxá í Nesjum – umsækjandi Ungmennafélagið Máni. Tímasetning viðburðar 6.1.2024.
4.25     Brenna við Löngubrúarhól í landi Hjarðarnes – umsækjandi Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Tímasetning viðburðar 31.12.2023.

 

5.  Önnur mál

5.1  Fundadagatal 2024

11. apríl kl. 9:00
6. júní kl. 9:00
5. september kl. 9:00
10. október (Staðfundur) kl. 12:00
5. desember kl. 9:00

Fundi slitið kl. 09:31

Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

 

pdfFUNDARGERÐ Á PDF