| Fundargerð aðalfundar 2009 |
|
haldinn að Skriðuklaustri í Fljótsdalshreppi miðvikudaginn 11. nóvember 2009 kl. 14:00.
Dagskrá:
Mætt: Úr Heilbrigðisnefnd: Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Andrés Skúlason, Borghildur Sverrisdóttir, Benedikt Jóhannsson Aðrir: Gunnþórunn Ingólfsdóttir, Bjarni Sveinsson, Helga Jónsdóttir, Elfa Rúnarsdóttir, Katrín Dóra, Páll Baldursson. Sigurlaug Gissurardóttir sat fundinn símleiðis. Starfsmenn: Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson, Júlía Siglaugsdóttir, Hákon Hansson Farið var yfir hverjir færu með umboð sveitarfélaganna skv. tilnefningum til HAUST ýmist með kjörbréfum eða tölvupósti.Fulltrúar eftirfarandi sveitarfélaga fóru með atkvæði sem hér segir:
Fundarstjóri var kosinn Gunnþórunn Ingólfsdóttir og ritari Júlía Siglaugsdóttir Fundarstjórinn kynnti dagskrá og síðan var gengið til fundarstarfa.
1. Skýrsla stjórnar Valdimar O. Hermannsson, formaður heilbrigðisnefndar, flutti skýrslu stjórnar. Skýrslan fylgir fundargerðinni. 2. Ársreikningar 2008 lagðir fram Helga Hr., framkvæmdastjóri, kynnti ársreikningana sem höfðu verið yfirfarnir og áritaðir af skoðunarmönnum, endurskoðaðir af KPMG og afgreiddir til aðalfundar á 84. fundi Heilbrigðisnefndar þann 24.6.2009. Helstu niðurstöðutölur ársreiknings 2008 eru sem hér segir: :
3. Umræður um liði 1 og 2, skýrslu stjórnar og ársreikninga 2008 Fundarmenn voru samþykkir því sjónarmiði að standa þurfi vörð um verkefni á eftirlitssvæðinu. Verjast þurfi tilhneygingu í þá veruna að sparnaður í ríkisstofnunum bitni á landsbyggðinni. Fundarmenn höfðu áhyggjur af því að ef nýtt matvælafrumvarp verður samþykkt óbreytt verði eftirlit flóknara, einkum í litlum matvælafyrirtækjum. í frumvarpinu er ekki tekið skýrt fram að Matvælastofnun geti framselt eftirlitsverkefni til heilbrigðiseftirlits. Rætt var um ábyrgð sveitarfélaga og annarra rekstaraðila sund- og baðstaða varðandi merkingar og öryggi í sundlaugum m.a. vegna dóms sem fjallað var um í skýrslu stjórnar. Rætt var um gæludýrasamþykktir og þau vandamál sem fylgja aukinni gæludýraeign íbúa. VH. Útskýrði kostnað vegna funda á vegum Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, SHÍ. Það heilbrigðiseftirlitssvæði sem hefur átt formann hefur eitt staðið straum af kostnaði vegna ferða og funda hans. Nú hillir undir að breytingar verði þannig að það svæði sem hefur formann mun eins og önnur svæði standa straum af kostnaði vegna tveggja reglubundinna funda SHÍ árlega en að öðrum kostnaði vegna stjórnarstarfa verði skipt á heilbrigðiseftirlitssvæðin. Ársreikningar 2008 voru bornir undir atkvæði fundarins og samþykktir samhljóða. 4. Fjárhagsáætlun fyrir komandi starfsár 2010 Helga Hr. fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði.
Drög að fjáhagsáætlun 2010 voru til umfjöllunar á 87. fundi heilbrigðisnefndar þann 4.11.2009. Tvær tillögur voru lagðar fram, tillaga A sem er unnin skv. leiðbeinandi gjaldskrá frá Umhverfisráðuneyti og tillaga B, þar sem íbúaframlög voru lækkuð um 5%. Eftirfarandi niðurstaða var bókuð í heilbrigðisnefnd: Nefndin samþykkir tillögu A til aðalfundar, en ákveðið var að báðar tillögurnar verði kynntar á aðalfundinum. Helstu niðurstöðutölur eru:
5. Umræður um lið 4 fjárhagsáætlun 2010 Tillaga þess efnis að vísa fjárhagsáætlun 2010 skv. bókun heilbrigðisnefndar aftur til nefndarinnar til umfjöllunar var felld. Atkvæði voru greidd skv. eftirfarnadi töflu:
7. Kjörnir tveir skoðunarmenn ársreikninga og jafnmargir til vara Einnig var samþykkt samhljóða tillaga um sömu varamenn og sl. ár, þ.e. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti í Fljótsdalshreppi og Páll Baldursson sveitarstjóri Breiðdalshrepps. 8. Önnur mál a) Breytingar á skipan í heilbrigðisnefnd Björn Emil Traustason, aðalmaður í heilbrigðisnefnd hefur flust búferlum frá Höfn til Fjarðabyggðar og lætur hann því af störfum sem fulltrúi Suðursvæðis. Þetta er gert í samræmi við 7. gr. í stofnsamningi. Birni eru þökkuð frábær störf fyrir hönd Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Björn hefur verið aðalmaður í nefndinni frá sept. 2005 og varaformaður nefndarinnar frá nóv. 2006. Áður kom hann að störfum nefndarinnar sem varamaður. Skv. stofnsamningi og að höfðu samráði við bæjarstjóra Hornarfjarðar tekur Sigurlaug Gissurardóttir sæti Björns Emils sem aðalmaður í stjórn Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs., sem einnig er heilbrigðisnefnd Austurlands. Sigurlaug var boðin velkomin til starfa. b) Yfirlit yfir stórframkvæmdir og afskipi HAUST af þeim. c) Skógarorka Gunnþórunn fundarstjóri þakkaði mönnum fyrir góða þátttöku í fundinum og afhenti formanni heilbrigðisnefndar fundarstjórn. Valdimar þakkaði góða fundarstjórn og fundarmönnum öllum góð störf áður en hann sleit fundi og bauð fundarmönnum að þiggja kaffiveitingar í Klausturkaffi. Fundi slitið kl. 17.15
Fundargerðina staðfesta:
Gunnþórunn Ingólfsdóttir, fundarstjóri
|
| Forsíða |
| Stofnsamningur |
| Heilbrigðisnefnd |
| Starfsmenn |
| Fundargerðir |
| Umsóknareyðublöð |
| Gjaldskrá |
| Starfsreglur |
| Tenglar |