| Fundargerð 26. apríl 2010 |
|
|
|
90. / 26. fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands Haldinn í Breiðdal 26. apríl 2010 kl.13:00 Fundarmenn hittust kl. 12:00 á hádegi og snæddu saman hádegisverð í Café Margreti á Heimaleiti. Eftir það var haldið í Veiðihúsið Eyjar og aðstaðan þar skoðuð í fylgd staðarhaldara, Sigurd Olivers, og síðan fundað. Að loknum fundi var ekið til Breiðdalsvíkur og Breiðdalssetur skoðað í fylgd Maríu Pálsdóttur fostöðumanns. Heilbrigðisnefnd þakkar heimamönnum frábærar veitingar og móttökuna. Mætt: Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Benedikt Jóhannsson og Kristín Ágústsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir boðaði förföll. Starfsmenn viðstaddir: Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson, Hákon Hansson, Júlía Siglaugsdóttir og Borgþór Freysteinsson
Dagskrá:
Valdimar formaður setti fundinn um kl. 13:15 Starfsmenn greina frá hlutverki HAUST í málum sem kunna að koma upp vegna gossins, en það snýr aðallega að mengun (neyslu)vatns og vegna svifryks. Starfsmenn hafa fengið fyrirspurnir frá almenningi um ýmislegt sem snýr að þessum málum og reyna þá að greiða úr. Sýslumenn og/eða lögreglustjórar hafa verið í sambandi við starfsmenn HAUST. UST hefur í tvígang fundað með framkvæmdastjórum HES. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur miðlað úr sínum reynslubanka. Starfsmenn HAUST fylgjast vel með heimasíðum MAST og UST sem og leiðbeiningum sem þessar stofnanir birta sem og Almannavarna. AS spyr um áhrif á hreindýr og dýralíf á hálenidnu. Flúor safnast ekki fyrir í rennandi vatni. Grös og ber eru ekki varasöm nema ef ryk sest á þau, en það þvæst af með vatni. Flúor er mjög hvarfgjarnt efni og binst vel við kalk í lífverum, en er ekki lengi óbundið í náttúrunni. 700-701 Fljótsdalshérað
730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
780-781 Hornafjörður
3 Málefni einstakra fyrirtækja Starfsmenn gera grein fyrir forsögu máls, sérstöðu þess og núvarndi stöðu. Starfsmönnum falið að vinna málið áfram. Í vinnunni verði öryggi gesta látið hafa forgang sem og menntun og þjálfun starfsmanna Ítrekuð er krafa til svfél. um að greinargerð um áform varðandi rekstur laugarinnar verði send til HAUST. HHr lagði fram gögn sem sýna að fjárhagurinn er innan viðmiðunarmarka. Tölvukaup eru þó umfram fjarhagsáætlun sem og tölvuþjónusta, enda varð ekki hjá því komist að endurnýja tvær borðtölvur. Aksturskostnaður er einnig í hærri kantinum og skýrist að einhverju leyti af háu bensínverði, en einnig af því að helmingur bifreiðaskatta hefur þegar verið greiddur. Enn þarf að gæta ítrasta aðhalds í peningamálum. Ábending kom fram um að leita tilboða í tryggingar bifreiðanna og í endurskoðun ársreikninga. Minnt var á að bílar embættisins eru orðnir eldri en hingað til hefur verið álitið ásættanlegt og að kanna þarf með endurnýjun bíla ef fjárhagsstaðan batnar. 4.2 Staða eftirlits og horfur fram á sumar Eftirlitið er í eðlilegum farvegi, nema helst hjá framkvæmdastjóra, sem hefur verið í veikindaleyfi og sumarleyfi. Ekki er þó ástæða til annars en ætla að allt gangi upp. Heilbrigðisnefnd situr fram yfir sveitarstjórnakosningar og fram að næsta aðalfundi SSA. Ef þörf er á verði verði kallaður saman símfundur í vor eða sumar, en annars stefnt að snertifundi og skoðunarferð á virkjanasvæði í lok ágúst eða byrjun september. SG spyr um “ferðamiðlanir” - Hún telur að þarna sé rekstur í samkeppni við ferðaþjónustuaðila og spyr um leyfisveitingar slíkra aðila. Þessi starfsemi er að mati HAUST starfsleyfisskyld. Starfsmenn munu kanna málið hjá UST og sýslumannsembættum/lögreglugstjóri. Ábending til starfsmanna um að leita upplýsinga hjá stórum hótelum og upplýsingamiðstöðvum um hvort þau hafi lista yfir aðila sem hægt er að vísa á ef fullbókað er á hótelin og kanna þá hvort þessir aðilar hafi starfsleyfi. 5.2 Framsal eftirlitsverkefna frá MAST til HES. Svo virðist sem ákvæði breyttra matvælalaga um heimild til framsals eftirlits þar sem það er hagkvæmt muni skila árangri. MAST hefur fundað með flestum heilbrigðiseftirlitssvæðum og í undirbúningi er rammasamningur um framsal starfsleyfisvinnslu, eftirlits og beitingar þvingunarúrræða frá MAST til HES í öllum litlu fyrirtækjunum sem skv. túlkun MAST áttu að færast frá HES og til stofnunarinnar. Stórar kjötvinnslur og mjólkurbú munu verða hjá MAST, þ.m.t. t.d. mjólkurstöð MS á Egilsstöðum. Heilbrigðisnefnd lýsir ánægju sinni með þessa þróun mála og hvetur Umhverfisstofnun til að flýta sinni framsalsvinnu á sama máta. Símafundir hafa verið á milli stjórnarmanna og þeir tekið þátt í samstarfsvinnu við UST og MAST. Formaður f.h. stjórnar SHÍ, ásamt fulltr. Suðurlands og Reykjavíkur, funduðu í Sjávarútvegs - og landbúnarráðuneyti um breytta matvælalöggjöf og framsalsmál. Stöðufundur var hjá stjórn SHÍ, 16. apríl en unnið er m.a. að undirbúningi gerð upplýsingaheimasíðu fyrir SHÍ. 5.4 Vorfundur HES, UST, MAST og ráðuneytanna Hefðbundinn vorfundur framkvæmdastjóra HES, yfirmanna hjá UST og MAST og fulltrúa frá báðum ráðuneytunum verður haldinn 5. og 6. maí nk. í Hallormsstað. Um er að ræða hefðbundinn fund, þar sem áhersla er lögð á stefnumörkun og samræmingu starfs þessara aðila. Fundi var slitið kl. 15:15 Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti og/eða á símbréfi til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi. Valdimar O. Hermannsson |
| Forsíða |
| Stofnsamningur |
| Heilbrigðisnefnd |
| Starfsmenn |
| Fundargerðir |
| Umsóknareyðublöð |
| Gjaldskrá |
| Starfsreglur |
| Tenglar |