| Fundargerð 28. júní 2010 |
|
|
|
91 / 27. fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands Mætt Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Andrés Skúlason, Borghildur Sverrisdóttir og Benedikt Jóhannsson. 1. Hundamál Eina málið á dagskrá var umfjöllun um málefni hunds af gerðinni franskur mastiff, en tilkynning um óhapp af hans völdum barst frá lögreglustjóranum á Seyðisfirði. Frkvst. gerði grein fyrir forsögu málsins og gögnum þess. Samantekt á ferli máls hafði einnig verði send til fundarmanna fyrir fundinn. Í kjölfar ítarlegra umræðna var eftirfarandi bókað: Heilbrigðisnefnd telur málið mjög alvarlegt og fyrir liggur að íbúar Vopnafjarðar eru margir hræddir við dýrið. Gunnhildur og Rúnar eru hér með áminnt um að þau bera fulla ábyrgð á hundinum Brúnó og öllum skaða sem dýrið veldur. Heilbrigðisnefnd hvetur forráðamenn til þess að láta aflífa hundinn til að tryggja að ekki komi til frekari óhappa. Á meðan málið er íhugað gerir Heilbrigðisnefnd kröfu um að dýrið verði með múl þegar það er utan dyra. 2. Önnur mál Engin önnur mál. Fundi var slitið kl. 9:30 Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti og/eða á símbréfi til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi. Valdimar O. Hermannsson |
| Forsíða |
| Stofnsamningur |
| Heilbrigðisnefnd |
| Starfsmenn |
| Fundargerðir |
| Umsóknareyðublöð |
| Gjaldskrá |
| Starfsreglur |
| Tenglar |